Dagur - 12.12.1940, Síða 2
220
D A Q U B
51. tbl.
Svartir ularsokkar
mjög góðir.
Hannyíöaverzlon
Raonbeiöar 0. Björnsson.
Stóru orðin . . .
(Framh. af 1. síðu).
flokksins verið að gera ráðstafan-
ir til að skera niður „sukkið og
eyðsluna“, sem sjálfstæðismönn-
um hafði orðið svo tíðrætt um áð-
ur. Sannleikurinn er sá, að þegar
til kom, fundu sjálfstæðismenn
ekki hina óþörfu útgjaldaliði, sem
þeir þó höfðu mest fjargviðrast
út af og margboðað, að þeir ætl-
uðu að skera niður. Þeir hafa því
orðið að gefast upp við að hefja
nýja fjármálastefnu, strikað þegj-
andi yfir stóru orðin og ekki séð
sér annan veg færan en þræða í
öllum meginatriðum sem vandleg-
ast troðnar slóðir Framsóknar-
manna í fjármálum og atvinnu-
málum.
Það er að vísu enginn ljóðm’ á
Sjálfstæðisflokknum, þó að hann
hafi, er til alvöru og ábyrgðar
kom, tekið það ráð að fylgja fram
í verki fjármálastefnu Framsókn-
arflokksins. Það er honum fremur
til lofs en lasts, en hitt er öllu
lakara fyrir flokkinn, að hafa áð-
ur fordæmt fjársukk og fjár-
eyðslu Framsóknarfl., enverðasvo
að viðurkenna, að sá dómur hafi
verið slagorð ein og blekkingar.
Það er því vel skiljanlegt, að for-
ingjar Sjálfstæðisfl. geri þá kröfu
til Framsóknarmanna, að þeirþegi
um þetta glappaskot sjálfstæðis-
manna, en þó að Framsóknarmenn
þegðu, þá myndu steinarnir tala,
og kjósendur Sjálfstæðisflokksins
munu tala, þegar að kosningum
kemur, og spyrja: Hvar er niðúr-
skurðurinn á „sukkinu og eyðsl-
unni“, sem þið töluðuð mest um,
áður en þið komust til valda, og
lofuðuð að afmá? Hvar er niður-
skurður á tollum og sköttum, sem
Jðla-
bækurnar
sem auglýstar hafa
verið í útvarpinu und-
anfarna daga, fást allar í
Bókaversluö
Þorst. Thorlacius
Góð bók, er bezta
JÓLAGJÖFIN.
þið lofuðuð einnig að létta af
þjóðinni?
Vilji forráðamenn Sjálfstæðis-
flokksins svara þessum spurning-
um af fullri hreinskilni, þá getur
það svar ekki orðið á annan veg
en þenna:
Allt tal okkar um eyðsluna og
sukkið hjá Framsóknarflokknum
var aðeins stóryrði, sem við höf-
um ekki megnað að standa við.
Eyðsluna og sukkið höfum við
alls ekki fundið, þegar á átti að
herða, og þar hefir því ekkert
verið niður að skera. Við höfum
og komizt að raun um, að án toll-
anna og skattanna er ekki hægt
að reka þjóðarbúskapinn.
Að fengnu þessu hreinskilnis-
lega, rétta svari væri eðlilegt að
kjósendur segðu: Erindi ykkar í
þjóðstjórnina hefir þá verið í því
innifalið að sýna það og sanna, að
Sjálfstæðisflokkurinn er að
minnsta kosti ekki öðrum flokk-
um hæfari til að hafa fjármála-
stjórnina með höndum. Þeirra
hluta vegna er því ástæðulaust að
kjósa sjálfstæðismenn öðrum
fremur til þingsetu, x
Jarðarför Konráðs sonar míns, sem andaðist 3. þ. m.,
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. þ. m., kl. 1 e. h
Anton Ólafsson.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
mmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmwmmmmmmmmm
Jarðarför Guðrúnar Davíðsdóttur fer fram frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 16. des. n. k., kl. 1 e. h.
Jarðarför móður minnar, Ouðrúnar Vigfúsdóttur, fer fram
laugardaginn 14. þ. m. og hefst með húskveðju frá heimili
hennar, Fjólugötu 11, kl. 1 e. h.
Akureyrí, 10. des. 1940.
Bjarni Erlendsson.
Aldrei
hefir jóla-ösin byrjað eins snemma og nú.
Það er því vissast að draga ekki jóla-
innkaupin of lengi.
Vér bjóðum yður nú sem fyr
vörur með hagkvæmustu verði.
Flórmjöl, bezta tegund
Ger
Natron
Kardemommur
Vanilledropar
Möndludropar
Möndlur
Succat (enskt)
Kanell
Vanillesykur
Rabarbarasulta
Ennfremur:
Suðusúkkulaði, Átsúkkulaði m. teg.
og allsk. sœlgœtisvörur í miklu úrv.
Konfektöskjur koma með m.s. Esju.
Sendum licini um allan bœinn.
Eaupfélag Eyfiröinga
Nýlenduvörudeild.
Útibú: Strandgötu 35 og Hafnarstrœti 20
Flórsykur
Hjartasált
Eggjaduft
Kardemommudropar
Cítrondropar
Rommdropar
Muskat
Siróp
Kokosmjöl
Negull
Marmelade
|f I !f «f !9«f 11 ffff !«!!««■
Kaupið jólagjaflrnar
s:
þar sem vörurnar eru við allra hæfi, úrvalið mest
og verðið hagkvæmast, en það er eins og undan-
farin ár í
Kaupfélagí Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeildin, {Sj
KtUUUUii UMKtHUÍ