Dagur - 13.03.1941, Blaðsíða 2

Dagur - 13.03.1941, Blaðsíða 2
44 ÐAQUB 10. tbl. Hvar er miljóna- sparnaðurinn? Jarðarför elsku iitla drengsins okkar, hjartar, sem andaðist 6. þ. m., ter fram föstudaginn 14. þ. m. og hefst með hús- kveðju að heimili okkar Ártúni kl. 1 e.h. — Jarðsett verður að Hólum. Sigrún Finnsdóttir. Marinó Tryggvason. það tilkynnist, að sonur okkar Sturla andaðist á Kristnes* hæli föstudaginn 7. þ.m. Jarðai förin er ákveðin fimmtud. 20. þ. m. að Myrká og hefst kl. 12 á hádegi. Kveðjuathöfn fer fram á heimili okkar, Ránargötu 4, þricjud. 18 þ. m.kl 1 e. h. Vilhelmina Hansdóttir. Póröur Magnússon. Hugheilar þakkir öllum þeim, sem sýndu mér hluttekningu og vináttu við andlát og jarðarför mannsins míns Krlslfáns Slgnrðssontfr, kaupniann*. Sigurlaug JakobsdóKir. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1942 var lagt fram á Alþingi 24. f. m. i Rekstrarútgjöldin í frumvarp- inu eru áætluð 21 milj. króna, og er það 3 milj. kr. hærra en á fjár- lögum yfirstandandi árs. Tekjurn- ar á rekstraryfirlitinu eru áætlað- ar 22% milj. kr. og er því rekstr- arafgangur áætlaður 1% milj. kr. Útborganir samkv. sjóðsyfirliti eru 23 milj. kr., og greiðslujöfnuð- ur hagstæður um 100 þús. kr, Tekjur og gjöld á frumvarpinu eru hærri nú en nokkru sinni áð- ur. Margir útgjaldaliðir hækka allverulega: Alþingiskostnaður um 110 þús. kr., útgjöld til ríkisstjórn- ar um 200 þús. kr., dómgæzla og lögreglustjórn um 250 þús. kr., út- gjöld til vegamála um 300 þús. kr., framlög til strandferða um 50 þús. kr., til kennslumála hækkar um 150 þús. kr., til verklegra fyrir- tækja um 186 þús. kr., til berkla- varna um 275 þús. kr., til styrktar sjúklingum 195 þús. kr., til al- þýðutrygginga nemur hækkunin 200 þús. kr. og til dýrtíðaruppbót- ar á launum embættismanna og starfsmanna ríkisins 850 þús. kr. Þá hefir verið tekið inn á fjár- lögin í fyrsta sinni framlag ríkis- sjóðs til jöfnunarsjóðs sveita- og bæjarfélaga, að upphæð 700 þús. kr. Nokkrir útgjaldaliðir lækka frá núgildandi fjárlögum, t. d. vextir um 320 þús. kr. og framlög til vitamála og hafnargerða um 110 þús. kr. Skattar og tollar eru áætlaðir 4 milj. kr. hærri en á núgildandi fjárlögum, og er þessi áætlun miðuð við tekjurnar, eins og þær hafa reynzt á árinu 1940. Það er eðlilegt að gjöld ríkis- sjóðsins hækki allmikið vegna al- mennrar verðhækkunar. En eftir- tektarvert er það, að hvergi bólar á þeim miljónasparnaði í ríkis- rekstrinum, sem Sjálfstæðismenn lofuðu, ef þeir kæmust til valda, hvergi bólar á niðurskurði á „eyðslunni og sukkinu", er Sjálf- stæðismönnum varð svo tíðrætt um, áður en þeir fengu yfirráð fjármálanna í sínar hendur. Nú hefði verið ástæða til að beita niðurskurðinum, til þess að mæta þeim óhjákvæmilegu hækkunum, er dýrtíðin veldur, ef Sjálfstæðis- menn hefðu komið auga á „eyðsl- una og sukkið“, þegar til kom. Það verður fróðlegt að vita hvaða grein foringjar Sjálfstæðis- flokksins gera fyrir þessu a'triði, þegar þeir koma fram fyrir kjós- endur í flokki sínum á undan næstu kosningum. Margir þeirra trúðu því í sakleysi sínu, að allt málæðið um miljónasparnaðinn væri ærlega meint. Himr þurfa einskis að spyrja, því þeim hefir verið það ljóst frá upphafi, að allt sparnaðarhjal foringja Sjálfstæð- isflokksins hefir aldrei annað ver- ið en hjóm og froða. 2. stór- hríðarmót. Skíðanefnd í. R. A. gekkst fyrir skíðamóti sl. sunnudag, og fór það fram í Búðargili. Er þar góður mótsstaður fyrir áhorfendur, stutt að fara, en ekki eins góður staður fyrir keppendurna, því brekkan er stutt og fallhæð fremur lítil, svo svigbrautin verður aldrei mjög erfið. Keppni fór þarna fram í svigi, og tók 21 keppandi þátt í því. Fé- lögin „Þór“, K. A. og íþróttafélag Menntaskólans leiddu þarna sam- an hesta sína í fyrsta sinni i skíðakeppni, að ég held, annars hafa Akureyringar alltaf keppt sameiginlega á skíðamótum út á við undir nafni í. R. A., og er það rétt gert, en jafnsjálfsagt að fé- lögin keppi við hvert annað inn- anbæjar. Það skemmtilega við þetta mót var það, að þarna kepptu aðeins úrvals skíðamenn. Skal nú greint frá, hvernig úrslit mótsins urðu: í svigi karla í C-flokk voru 10 keppendur, 2 frá K. A., 3 frá „Þór“ og 5 frá M. A. Fyrstur varð Haf- steinn Þorgeirsson (,,Þór“) á 39.2 sek. (samanlagður tími í báðum ferðum), annar Þorsteinn J. Hall- dórsson (M. A.) á 39.9 sek, þriðji Jón Jónsson (,,Þór“) á 42.1 sek. í þessum flokki var aðeins einstak- lingakeppni. Skemmstum tíma í 2. ferðinni náði Hörður Björnsson (M. A.) á 18.5 sek. Er hann góðux svigmaður, en var svo óheppinn að detta í fyrri ferðinni. Þeir þrír, sem fyrstir urðu, eru einnig lipr- ir og skemmtilegir svigmenn. A- og B-flokkarnir kepptu sam- an í sveitakeppni, reiknað með 4 beztu mönnunum frá hverju fé- lagi. Keppendur voru 11, 5 frá K. A., 4 frá „Þór“ og 2 frá M. A., sem kom því ekki til greina í sveita- keppninni. Eftir fyrri umferð hafði „Þór“ nokkru betri tíma en K. A., eða 69.7 sek. samanlagt, en K. A. 72.4 sek. Leit nú vel út fyrir Þórsurum, en að kveldi skal dag lofa. í seinni umferðinni duttu tveir „Þórs“-menn, og þar með var sigurinn fallinn K. A. í skaut. Sveit K. A. var 2 mín. 24.9 sek., en sveit Þórs 2 mín. 33.2 sek. Skemmstum tíma náði Júl. B. Magnússon (,,Þór“), 31 sek. báðar ferðir. Annar varð Magnús Árna- son (M. A.), 32.5 sek, og þriðji Björgvin Júníusson (K. A.), 33.6 sek. í B-flokki varð fyrstur Gunnar Karlsson (K. A.), 35,1 sek., annar Karl Hjaltason (,,Þór“), 37.2 sek., þriðji Eysteinn Árnason (K. A.), 38 sek. Skemmstum tíma í annari ferðinni í B-flokki náði Hreinn Ólafsson (,,Þór“), 16.8 sek., en hann fór svolítið of hratt seinni ferðina, fór fram hjá „porti“ og datt, varð því að sjá á bak fyrsta sætinu í flokknum og. hreppa það síðasta. Eg saknaði séstaklega tveggja keppenda frá landsmótinu í fyrra, og voru það þeir Jón Egilsson og Páll Linberg, og fáum við vonandi að sjá þá á næsta móti. Eg efast ekki um, að sveit úr hópi þeirra, er kepptu á þessu móti, mundi standa sig prýðilega á landsmótinu og verða bænum til sóma; en ef á að fara að skipta Akureyringum, eins og ég hefi heyrt, og M. A. eigi að keppa sér, er lítil von um sigur Akureyring- um til handa. 3. marz 1941. Ábí Á Ijósmyndastofunni i GRÁNUFÉLAGSGÖTU 21 getið þér fengið nýmóðins Kombinationsmyndir og margar fleiri gerðir, sem hvergi fást annars staðar o <* > ► o KÆRAR PAKKIR fyrtr heimsókn, skeyti og giafir d siOtugsafmœiinu. Helgi Helgason. f 4> ♦ ♦♦ Guðr. Funch-Rasmussen. | Handklæði í miklu úrvali. Kaupfélag Eyfirðinga. Vefnaðarvörudeild. ÍHUUMUIMHISIIttia

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.