Dagur - 06.11.1941, Síða 1

Dagur - 06.11.1941, Síða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimmtudegi. Argang- urinn kostár kr. 6.00 Ritstjóri: Ingimar Eydal Prentverk Odds Björnsonar. AFGREIÐSLAN og innheimtan i skrif- stofu blaðsins við Kaupvangstorg. Simi 96. Afgreiðslumaður og gjaldkeri: Jóhann Ó. Haraldsson ■ • • • * « ♦ a-o-o > »♦»»»« XXIV. ÁRG.' t--#- # # # « # -? Akureyri, 6. nóv. 1941. 44. tbl. Stöðvun dýrtíðarinnar. Kafli úr framsöguræðu viðskiptamálaráðherra um frumv. til ráðstafana gegn dýrtíðinni. HINAR NÝJU TILLÖGUR í DÝRTÍÐARMÁLINU. Reynsla undanfarinna mánaða hefir ekki dregið úr þeirri sann- færingu minni, að þjóðarnauðsyn beri til, að dýrtíðin sé stöðvuð. Jafnframt virðist ljóst, að hér þarf að gera tvennt í senn: Stöðva kapphlaupið milli verð- lags og kaupgjalds innanlands með því að fastákveða hvoru- tveg'gja, og það eins fyrir því, þótt slík ráðstöfun myndi ekki teljast eðlileg á venjulegum tímum. Verja verulegum fjármunum sem taka ber með sköttum, til þess að halda í skefjum verði á þeim höfuðnauðsynjavörum, sem ekki er hægt að ráða verðlagi á með lögbindingu, — bæði þeim, sem launþegár og aðrir nota til neyzlu, og þeim, sem framleiðend- ur innlendra vara nota til starf- rækslu sinnar. Með þessu móti mætti mega gera sér vonir um, að komið yrði í veg fyrir síaukna dýrtíð og sí- fellda verðrýrnun íslenzkrar krónu, og það án þess að slík framkvæmd yrði gerð á kostnað þeirra stétta, sem kaupgjalds- og verðlagshömlurnar virðast snerta mest. Um þetta fjölluðu þær tillögur, sem til meðferðar voru í ríkis- stjórninni nú í septembermánuði, og þetta er einnig aðalefni þess frumvarps, sem hér liggur fyrir. Þessum aðalráðstöfunum verða að fylgja aðrar veigamiklar fram- kvæmdir, sem eg mun koma að síðar. En sú er veigamest, að tryggja útflutningsverð landbún- aðarafurða um leið, og innan- landsverðlagið er bundið. Samkvæmt ákvæðum frum- varps þess, er hér liggur fyrir, skal kaupgjald eigi hækka frá því, sem það á að vera samkvæmt vísitölunni 1. okt., og verðlag á jnnlendum afurðum, bæði land- og sjávarafurðum svo og raf- magni, skal eigi fara fram úr því, sem var 1. okt., að undanskildum árstíðarhækkunum á kjöti og kar- töflum. Húsaleiga á einnig að haldast óbreytt frá því, sem núer, og flutningsgjald á aðalnauðsynja- vörum milli íslands og annarra landa. Jafnframt er ráðherra gef- ið aukið vald, til þess að hafa af- skipti af verðlaginu á þeim nauð- synjum, sem eigi er sett hámarks- verð á með þessari löggjöf. Þá er og ákvæði um það í frum- varpinu, að stofnaður skuli sér- stakur dýrtíðarsjóður, og á að verja úr honum fé, til þess að draga úr verðhækkun erlendra nauðsynjavara, bæði til neyzlu og framléiðslu innanlands. Er því slegið föstu með ákvæði þessu, að það eigi að vera sameiginlegt mál allrar þjóðaripnar, að bera þær verðlagshækkanir, sem koma úr þeirri átt, að svo miklu leyti, sem f j ár öf lunarmöguleikarnir hrökkva til. Þá er ákveðið, að úr'dýrtíðar- sjóði skuli greidd verðuppbót á íullkomin þjóðarnauðsyn, að stöðva kapphlaupið milli verðlags og kaupgjalds og miklu almennari mun vera skilningur á nauðsyn þess að halda uppi verðgildi krón- unnar en margir hyggja. Sumir álíta, að menn séu svo hrifnir af því fyrirkomulagi, er nú gildir, og svo blindaðir af pen- ingaflóðinu, að þe|r sjái alls ekki handaskil í þessum málum, og telji ekkert athugavert við það, sem er að gerast. En þessu mun alls ekki svo far- ið. Eg er viss um, að fyrir hendi er almennur skilningur á því, að það er stórhættulegt, að knýja áfram með vaxandi hraða þá verðhækkunar- og kauphækkun- arbylgju, sem risin er. Eg er einn- ig viss um, að margir þeirra manna-,- sem hafa kynnt sér þessi mál, álíta, að unnt sé með þeim ráðstöfunum, er í frv. felast, að viðbættum vissum viðbótarráð- stöfunum, er eg vík að síðar, að stöðva dýrtíðarflóðið, — og a. m. k. séu svo sterkar líkur fyrir því, að slíkt megi takast, að óverjandi sé að gera ekki þessa tilraun. Frá sjónarmiði margra, veltur hins vegar mikið á því, hvort hægt er að framkvæma slíkar ráðstafanir án þess að íþyngja einstökum stéttum þjóðfélagsins eða gera þeim í nokkru rangt til. VIÐHORF LAUNÞEGA. Flestir þeir, sem tala út frá sjón- armiði launamanna, virðast ganga út frá því sem eðiilegum hlut, að útfluttar landbúnaðarafurðir, þann'ig, að bændur fái tryggt það jgrunnkaup standi yfirleitt óbreytt. útflutningsverð, sem í fyrra var á ull og gærum, og það innaniands- verð, sem nú er ákveðið á kjöti. Er þetta gert til þess að tryggja bændur gegn því, að tekjur þeirra rýíni stórum frá því, sem nú er, vegna verðfalls á útfluttum af- urðum. Þessi ráðstöfun er sann- gjörn og eðlileg þegar þess er gætt, að með ákvæðum írum- varpsins er verðlagið á innan- landsmarkaðinum sett fast, og sá möguleiki því eigi fyrir hendi, meðan lögin gilda, sem annars lægf beint við, að bændur geti bætt upp verðfall á útflutnings- vörum sínum með hækkun verð- lags á innlendum markaði. Fjölmargir menn munu nú vilja viðurkenna það. að æskilegt sé og Viðurkenna, að í því væri fólgin alveg sérstök hætta, ef kapphlaup ætti sér stað um hækkun grunn- kaups. Það er álveg augljóst mál, að verkamenn eða launamenn geta ekki reiknað með neinum hagnaði af áframhaldandi hækk- un kaupgjalds í samræmi við hækkun vísitölunnar, því að þeir eru nákvæmlega eins settir eftir hækkunina, sem áður. Jafnframt verður því ekk'i með rökum neit- að, að af síhækkandí verðlagi og kaupgjaldi, leiðir stórtjón fyrir þessar stéttir í framtíðihni. Þegar þessi þróun er svo langt komin, að af henni l<aíiðir samdrátt í at- vinnurekstrinum, þá kemur at- vinnuleysið og launalækkanirnar í einhverri m,ynd4 og eftir því, sem verðlagsgrundvöllurinn í landinu er þá orðinn hærri, eftir því verður kostur þeirra þrengri, sem á launatekjum lifa. Þessi hætta eykst um allan helming hér, við væntanlegan brottflutn- ing setuliðsins. Vegna stóraukinnar atvinnu hef- ir mikill fjöldi verkamanna, sjó- manna og iðnaðarmanna jafnvel margfaldar tekjur við það, sem áður var, og verulegar afgangs- tekjur frá nauðþurftum, og geta því lagt þær til hliðar. Munu og margir gera það, eftdr að þeir hafa losað sig úr skuldum og lag- að fyrir sér með ýmsu móti. Það er ekkert smámál fyrir framtíð allra þessara manna, hversu fer um verðgildi íslenzkr- ar krónu og hvað úr þeim verð- mætum verður, sem þeir nú eign- ast. Hver er þá sú belina áhætta, sem verkamenn og aðrir launþeg- ar hafa, eftir að kaupgjald og inn- anlandsverðlag hefir verið fast- ákveðið með lögum? Við hagfræðilega athugun, sem fram hefir farið á grundvelli vísi- tölunnar, hefir verið áætlað, að hve miklu leyti framfærslukostn- aðurinn í Reykjavík byggðist á aðflutningsverði, eða réttara sagt, |nnkaupsverði helztu nauðsynja- vara, sem fluttar eru til landsins. Það hefir komið í ljós við þessa athugun, að sá þáttur, sem inn- kaupsverð erlendra vara á í vísi- tölunni, er minni en margur hyggur. Samkvæmt þessari athug- un hefir verið áætlað, að um 5% hækkun á inpkaupsverði erlendra vara myndi hækka vísitöluna um ca. 1 stig, — eða m. ö. o. að 50% hækkun á innkaupsverði þessara vara ætti að hækka vísitöluna um 10 stig, en það þýðir, að slík 50% hækkun innkaupsverðsins myndi hækka framfærslukostnaðinn, þ. e. a. s. kostnaðinn við að lifa, sem kaupgjaldið er miðað við, um 5— 6% frá þyí, sem nú er. Af þessu fá menn nokkra hug- mynd um, hver þessi áhætta er, og ég er sannfærður um, að* flest- um mun finnast hún hverfandi í samanburði við það, er þeir höfðu gert ráð fyrir. Þegar svo þess er gætt, að þessa áhættu er þeim ekki ætlað að bera einum, þar sem afla á fjár, til þess að mæta hækkunum á er- lendri vöru, þá verður að vísa öll- um ásökunum um það, að leysa eigi dýrtíðarmálíjn á kostnað laun- þega sérstaklega, frá, sem full- komlega rakalausum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.