Dagur - 09.04.1942, Side 1

Dagur - 09.04.1942, Side 1
Vikublaðið DAGUR Ritstjórar: INGIMAR EYDAL, JÓHANN FRÍMANN. AfgreiSsla, auglýsingar, innheimta: Jóhann Ó. Haraldsson. Skrifstofa viS Kaupvangstorg. S'uni 96. Argangurinn kostar kr. 8,00. Prentverk Odda Bjömasonar. Kirkfu- hljóinleik- ar ,Geysis‘ á páskadag. CÁ, sem þetta ritar, hefir þrásinnis ^ heyrt söngelska og söngfróða ut- anbæjarmenn, og þá ekki hvað sízt Reykvíkinga — en þeir munu þó ekki kalla allt ömmu sína í þeim efnum — halda því fram, að Ingimundur Árna- son hafi mest skap(temperament) og þrótt allra söngstjóra, þeirra, er nú stýra karlakórum á landi hér. Enginn dómur skal þó á það lagður, að sinni, hvað hæft muni í þessu, m. a. til þess að styggja ekki dómvÍ3Í þeirra bæj- arbúa, er kunna að vera á annarri skoðun um þetta, og þola ekki hið frábæra nær sér en góða bæjarleið, eða þó allra helzt nokkrar þingmanna- leiðir álengdar a. m. k. — En hitt er vafalaust, að söngstjóri „Geysis“ er öðrum fjölkunnugri að því leyti, að honum tekst ávallt að „vekja upp“ þróttmiklar og hæfar söngraddir í þessum litla bæ og fylkja þeim kring- um sig. Þótt „Geysir“ hafi þráfald- lega goldið hið mesta afhroð, sökum brottflutnings ýmissa beztu söng- krafta sinna úr bænum, hefir söng- stjóranum þó ávallt tekizt að stappa upp úr jörðunni að kalla nýja og hæfa söngvara, til þess að drepa í skörðin. — Þetta sannaðist m. a. glöggt á sunnudagskveldið var. Þá hafði kórinn t. d. á að skipa hvorki meira né minna en fimm einsöngvur- um, og þeim öllum góðum, hverjum é sína vísu, allt frá hreimþýðum og styrkum bassa (Guðm. Gunnarss.) upp í kliðfagrar og ljóðrænar háraddir (Jóh. Guðm. og Kondrup) og allað- sópsmikinn „hetjutenór“ (Herm. Stef.). V TTM SÓNGSKRANA skal ekki fjöl- ^ yrt hér. — Gamla sálmalagið hans Merikanto fór vel í raddsetningu Sv. Bjarman, og ekki spillti ein- söngvarinn, Kristinn Þorsteinss., fyrir því. Rödd hans er ljóðræn og „músikölsk“, svo að af ber. — Norrænu meistararnir stóðust að sjálfsögðu sitt próf með ágætum, en óneitanlega var þó gaman að Forster líka, hvað sem öll hreppapólitík á heimsvísu og kynþáttastolt kann að segja um negrahljómlist og ameríska „dandýa“. En gjarnan mætti ísl. tekstinn við lagið vera hóti skárri, svo að kórinn þyrfti ekki að þrástagast á annarri eins kórvillu og þessari: „Eg er þreyttUR", með áherzluatkvæði í lágkviðu en áherzlulaust í hákviðu. Slík misþyrming máls og bragliðs læt- ur litlu betur í sæmilega næmu brag- eyra en hin herfilegasti hjárómur. — Lag Björgvins Guðmundssonar við hinn ágæta og dulmagnaða teksta Guðm. Böðvarssonar: Villtir í hafi, er' prýðilegt — svipmikið, dulúðugt og fullt norrænna tilþrifa. — Þá voru og Hirðingjar Schumann’s vel sungn- ir, en stórum betur virðist mér þó það lag fara í blönduðum kór en sungið af karlmannaröddum einum saman. — Undirleikur frú Jórunnar Geirsson setti sérstakan glæsibrag á síðasta þátt söngskrárinnar. I»*f ’ ■ TTM SONG „Geysis“ hefir stundum ^ mátt með nokkrum sanni segja, að hann væri troppo con forza frem- ur en troppo con grazía. En í þetta skipti virtust styrkbreytingarnar mýkri og eðlilegri en oft fyrr, en þrótturinn og skapið þó hið sama og éður. Kirkjan okkar virðist mjög (Framhaiú é 3. síðu.) Samtal við ÁRNA JÓHANNSSON. Eitt af merkustu menningarfélögum hér um slóðir er Skógræktarfélag Eyfirðinga. Áhugamenn- irnir í félaginu hafa tekið upp merki frumherjanna í skógræktinni hér norðanlands og hafa unnið ötul- lega að verndun skógarleifa, plöntun trjágróðurs og leiðbeiningum um skógrækt. Almenningur hefir ekki veitt starfi félagsins þá athygli, sem það á skil- ið. Félagið er fámennt og fátækt, en verkefnin blasa allstaðar við. Þ>að ætti að vera metnaðarmál allra góðra Eyfirðinga, að merkið sem frú Margrethe Schiöth og aðrir ágætir forvígismenn skóg- og blómaræktar hér norðanlands hafa lyft svo hátt, falli ekki fyrir sinnuleysi og deyfð samtíðarinnar. Með því að sameinast innan vébanda Skógræktar- félagsins geta allir héraðsbúar lagt fram sinn skerf til þessa mikla menningarmáls. Skógræktarfélag Eyfirðinga er elzta og dugmesta skógrækt- arfélag landsins. Á undanföm- um ámm hefir það unnið að því að varðveita þær skógar- leifar sem enn em til í héraðinu og gróðursetja nýja skógar- lunda. En ennþá er margt að vinna í þessum málum. „Dag- ur“ kom að máli við formann fé- lagsins, Árna Jóhannsson, gjaldkera, og spurðist frétta af starfi félagsins á þessu 12. starfsvori, sem nú fer í hönd. — Hvað ætlar félagið að taka sér fyrir hendur í vor? „Við murium fyrst og fremst halda áfram að gróðursetja plöntur í Vaðlaheiðargirðing- unni. Við gróðursettum þar 8000 plöntur í fyrra og sáðum auk þess miklu af birkifræi. Plöntumar, sem gróðursettar hafa verið þar á undanförnum ámm, hafa dafnað vel, sérstak- lega þær eldri, og má nú telja alveg víst, að þarna í heiðinni muni vaxa upp fagur skógur í framtíðinni, ef félagið hefir bol- magn til þess að halda þessu starfi áfram og auka það er tímar líða. En það útheimtir vitaskuld mikið starf á hverju vori, og er félaginu nauðsynleg- ur stuðningur allra áhuga- manna, bæði í sjálfboðavinnu og á annan hátt. Það ætti að vera metnaður unga fólksins hér í bænum, að stuðla að því, að á næstu áratugum vaxi upp fagur skógur þarna í heiðinni, gegnt bænum. En ennþá virð- ist allmikið skorta á almennan skilning manna í þessu efni. — Þá munum við halda Framh. á 3. síðu. Tnndurdufiahættan Xauðsynlejíl að kunnállumenn séu <11 faks Iier við Eyjaf jurð (il þess að eyða duflum Klukkan um 10 árdegis á annan páskadag rak tundurdufl á land í Dalvík, sem næst fyrir miðju kauptúninu. Fjaran er sendin þar sem duflið bar að landi og sprakk það ekki. Leið svo sá dagur, að ekki var að- gert. Duflið lá í fjömnni óspmngið, en fólk í 10 næstu húsum f lúði heimili sín, því hve- nær, sem duflið springur þama eru öll þau hús í þorpinu, sem standa nærri þessum stað, í hættu, og að líkindum myndu verða skemmdir á húsum í mestum hluta þorpsins ef sprenging yrði. Skömmu eftir að dufl þetta lenti í f jörunni í Dalvík sprakk annað dufl utan við kauptúnið, með miklum gný, en ekki varð tjón af. Dalvíkingar munu hafa snúið sér til íslenzkra og brezkra Framh, á 3. síðu. / dag eru tvö ár liðin frá því, að Þjóðverjar hófu innrás sína í Noreg, 9. apríl 1940. — Guð veiti frændum vorum, Norðmönnum, styrk í þungri baráttu, og leiði þá senn til sigurs, friðar og frelsis. Tveir frægir forystumerm lýðræðis- þjóðanna, Smuts hershöfðingi, tor- sætisráðherra Suður-Afríku, og Sir Archibald Wavell, yfirhershöfðingi : Indlandi. Wavell tekur þátt í samn- ingaumleitunum Indverja og Breta, er fara fram þessa daéana í New Delhi, meðan Japanir undirbúa sókn til lndlands og éera loftárásir á ind- verskar boréir. SflngslaiíMí Húsai Fréttaritari blaðsins t Húsa- vík skrifar: Undanfarin ár hefir starfað í Húsavík karlakórinn „Þrymur'1 undir stjórn hins f jölgáfaða pró- fasts, Friðriks A. Friðrikssonar. sem auk þess að stjórna kórn- um af miklum næmleik og fjöri, yrkir handa honum, hvenær sem á liggur, ljóð og lög — jafn- vígur á hvorttveggja. í s.l. janúarmánuði var einn- ig stofnaður í Húsavík samkór karla og kvenna. Eru í honum 60 manns. Heitir hann: ,„Sam- kór Húsavíkur". Söngstjóri er Ásbjörn Stefánsson læknir. Á þeim stutta tíma, sem lið- inn er, hefir kór þessi æft 9 lög, flest lítið þekkt hér um slóðir og sum allumfangsmikil. Eitt þess- ara laga er nýtt lag eftir Friðrik A. Friðriksson, prófast, söng- stjóra „Þrymis“, ort við ljóð eft- ir Huldu. Kórinn gerði ekki ráð fyrir að geta á þessum vetri starfað leng- ur en til marzloka, vegna þess að um það leyti fara vorannir í kauptúninu að hefjast, að því er sjávarútveginn snertir. Þess vegna var ákveðið, að kórinn skyldi láta almenning til sín heyra laugardagskvöldið 28. marz. Hélt hann þá í Samkomu- húsi Húsavíkur „jómfrúáöng" sinn. Áheyrendur skemmtu sér (Fmnb. é 3. ilðu). k i Helztu fréttlr < • — JAPANIR hafa byrjað loftárás- ir á indverskar borgir. Á páskadagsmorgun réðust fjöl- margar sprengjuflugvélar á borgina Colombo á Ceylon- eyju. Bretar tóku vasklega á móti og skutu niður stóran hluta árásarvélanna. Telja þeir að einar 18 vélar af 75 hafi komizt óskaddaðar heimleiðis, Japanar hafa flug- og flota- bækistöð á Andamaneyjum í Bengalflóa, um 900 mílum fyr- ir austan Ceylon og munu flug- vélar þessar hafa bækistöð á flugvélamóðurskipi, sem haldið er út þaðan; á annan páskadag réðust japanskar flugvélar á tvær hafnarborgir í Madrashér- aði á austurströnd Indlands. — Virðizt sem Japanar undirbúi nú sókn til Indlands og Ástralíu samtímis. * * * | DAG eru liðin 2 ár síðan naz- iztar -réðust á Noreg. Á þess- um árum hefir norska þjóðin orðið að þola meiri hörmungar en nokkur þjóð önnur á síðari öldum, en hefir þó ekki látið bugast. Mótspyman gegn naz- istum og quislingum er sízt minni nú, í byrjun þriðja árs ógnarstjórnarinnar, en á fyrsta árinu. Til dæmis um hugsunarhétt erlendra quislinga er, að þeir tala nú opinberlega um það, að Noregur muni leggja ísland undir sig, auk Grænlands og Færeyja, ef Hitler sigrar. Út- varpið í Oslo hefir nýlega sagt frá því, að eitt Osloblaðanna hafi birt grein um hið væntan- lega „stórnorska“ ríki, og talið ísland sérlega vel fallið til að vera stjórnarmiðstöð vegna landfræðilegrar afstöðu. Ekki verður ferill quislinga glæsilegri, þegar þessi svik við bræðralagshugsjón Norður- landa bætast ofan á níðings- verkin, sem þeir vinna heima fyrir. íslenzka þjóðin mun í dag minnast frjálshuga Norðmanna heima og erlendis með lotningu. Leikhúsið. Leikfélag Akureyrar hefir frumsýningu á „Nýársnóttinni", eftir Indriða Einarsson, í Samkomu- Í».V.*Í fewjwiss, I kvöld, kL 9 e. h- . .

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.