Dagur - 09.04.1942, Síða 4
4
DAGUR
Fimmtudaginn 9. áprii 1942
ÚR BÆ OG BYGGÐ
□ Rún 59424157 — Frl.
Kirkjan. Messað verður í Akureyr-
arkirkju n, k. sunnudag, kl. 2 e. h.
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr. 50.00
frá A. Þ., Reykjavík. Þakkir. Á. R.
Sextuésaimæli átti Jón Björnsson,
skipstjóri, Bæjarstræti 1, þ. 6. þ. m.
SkrúSsbóndirm, hið vinsæla leiknt
Björgvins Guðmundssonar tónskálds,
er nýkomið út frá bókaforlagi Pálma
Jónssonar. Verður bókarinnar nánar
getið hér í blaðinu innan skamms.
Nýtt Kvennablað, jan.—febrúar-
hefti 1942, hefir blaðinu nýlega bor-
izt til umsagnar. Ritstj. og útg. Guð-
rún Stefánsdóttir og María J. Knud-
sen, Rvík. Ritið virðist myndarlegt,
og flytur ýmsar góðar greinar um
áhugamál kvenna og annað 'skemmti-
efni. Þá mun og kvenþjóðin segja, að
í því séu ýms „munstur" og „upp-
skriftir", sem einar út af fyrir sig
borgi andvirði blaðsins með góðum
vöxtum.
Skákþing íslendinéa er háð í
Reykjavík úm þessar mundir. Tveir
þátttakendur frá Skákfélagi Akureyr-
ar sækja þingið, þeir Jóhann Snorra-
son og Margeir Steingrímsson, og
tefla báðir í meistaraflokki.
Frá Dalvík. Bátar reru s.l. laugar-
dág og var afli ágætur. Miklar ógæft-
ir hafa hamlað veiðum undanfamar
vikiu-.
Framhaldsstoinfundur Húsmæðra-
skólafélags Akureyrar verður í Sam-
komuhúsi bæjarins mánudaginn 13.
þ. m., kl. 9 e. h.
„Nýársnóttin." Til þess að koma í
veg'fyrir misskilning í sambandi við
ummæli Jóns Norðfjörð í blaðavið-
jtali, er birtist í síðasta tbl. Dags, um
dans frú Guðrúnar Indriðadóttur, e:
„Nýársnóttin" var síðast sýnd í Rvík,
skal éftirfarandi tekið fram samkv.
beiðni Jóns: Danslagið verður hér
hið sama og það, er þá var viðhaft,
en dansinn, sem hér verður stiginn, er
gaminn af frú Jórunni Geirsson.
Dánardæéur. Hinn 22. f. m. and-
aðist Elísabet Jóhannesdóttir í Syðri-
tungu á Tjömesi. Hún var komin yfir
áttrætt, kona Þorsteins Bjamasonar,
bónda þar, sem lifir enn. Fluttust þau
hjón nokkru fyrir aldamót úr Kaup-
angssveit í Eyjafirði norður að Syðri-
tungu og hafa búið þar síðan. Margir
munu minnast Elísabetar, því að
Syðritunga er næsti bær vestan undir
Tunguheiði, sem til skamms tíma var
fjölfarnasta leiðin milli Norður- og
Suður-Þingeyjarsýslu og erfið yfir-
ferðar á vetrum. Þáði þá margur veg-
móður greiða og gistingu að Syðri-
tungu hjá hjónum þessum, sem voru
vel efnum búin og gestrisin.
Skákþinéi Akureyrar er nýlokið.
Hæstur varð Júlíus Bogason; fékk
4Vá vinning af 6. Næstir urðu Jóhann
Snorrason og Jón Sigurðsson, með 4
vinninga hvor.
Skólameistarafrúin, Halldóra Ólafs-
dóttir, átti fimmtugsafmæli 7. þ. m.
Sölubúðum í bænum verður lokað
í dag frá kl. 12% til 3 e. h., vegna
norsku minningarguðsþjónustunnar.
Guðsþjónustan hefst kl. 1 e. h.
Landsmót skíðamanna hófst á
Vaðlaheiði á annan páskadag. Fór þá
fram skíðaganga. Svig- og stökkkeppni
var frestað vegna veðurs. Fer þessi
keppni fram strax og birtir upp. —
Grein um mótið birtist í næsta blaði.
Vorþiné Umdæmisstúkunnar nr. 5
hefst á Akureyri nk. laugardag kl. 8,30
í Skjaldborg. Gert er ráð fyrir góðri
þátttöku templara í bænum og von
er á aðkomufulltrúum.
Sumardvalarnefnd bama er tekin
til starfa. Þeir, sem vilja láta skrá
börn sín og njóta aðstoðar nefndar-
innar við að koma þeim í sveit, geta
talað við framkvæmdastjóra nefnd-
arinnar, Helga Pálsson, á Skömmtun-
arskrifstofunni, alla virka daga kl. 1
—-3 e. h.
-
Kven-armbandsúr
. tapaðist nýlega é götum bæjarins. —
Finnandi skili úrinu til
Jóns P. Hallérímssohar,
Stjörnu Apoteki.
Framhalds-stofnfundur
»Húsmæðraskólafélags Akureyrar« veiður haldinn í Sam-
komuhúsi bæjarins n.k. mánudag, þ. 13. þ m., kl. 9 e.h.
Konur! Fjölmennið! Nefndftn.
Auglýig um vecðlagsákvæði.
tSamkvœmt heimild í lögum nr. 118, 2. júlí 1940, hefir
verðlagsnefnd ákveðið, að hómarksálagning á alls konar
einangrunarveggplötur úr pappa eða trjákvoðu skuli
vera 22%.
Þetta birtist hér með þeim, sem hlut eiga að máli.
Viðskiptamálaráðuneytið, 28. marz 1942.
Boltar,
Allar sfærðir fyrirliggjandi af
maskínuhoKum,
borðaboltum og frönskum skrúfum.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Jám- og glervörudeild.
Nýjustu bækurnar:
Jón Þorleifsson, listmálari,
þrjátíu og tvær heilsíðu-
myndir, með inngangi eftir
Sigurð Einarsson.
Heimilisalmanak
eftir Helgu Sigurðardóttur.
Bók þessa þurfa allar hús-
mæður að eignast.
Ljóð og löé,
100 kórlög, safnað hefir
Þórður Kristleifsson.
Bókaverzlun
Þorsteins Thorlacius.
Ensk-íslenzkar - íslenzk-enskar
skjala- og bréfaþýðingar.
Braéi Eiríksson, Brekkugötu 7.
leikrit eftir Björgvin Guðmundsson.
kom í bókaverzlanir laugardaginn
fyrir páska. Áskrifendur beðnir að
vitja bókarinnar í FORNSÖLUNA,
Hafnarstræti 105.
Pálml 11. Jónsson
TÚN TIL SÖLU.
Tún Jóhönnu Sigurðardóttur við
Þingvallastræti er til eölu. Tilboð
óskast send. Ennfremur til sölu elda-
vél.
Braéi Eiríksson, Brekkugötu 7.
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl 9:
TVEIR GÆÐINGAR.
Föstudag kl. 6 og 9:
GEORGE GETUR ALLT.
Laugardag kl 6 og 9:
TVEIR GÆÐINGAR.
Sunnudag kl 5:
MINNISSTÆÐ NÓTT.
(Bönnuð bömum).
Kl. 9:
GEORGE GETUR ALLT,
Mánudag kl. 6 og 9:
STÚLKAN FRÁ KENTUCKY.
ibúðarhús
við Lækjargötu til sö!u,
með lausri íbúð 14. ma'
næstkomandi.
Viggó Olafsson,
Brekkugötu 6.
Frál.april
tek ég á móti sjúklingum kl.
4—6 e. h. og á öðrum tím-
um eftir umtali.
Vald. Steffensen.
Þann 26. marz síðastl
tapaðist Fahrenheit-hitamælir
vestan við húsið Strandg. 29.
— Skilist vinsamlega til af-
greiðslunnar.
Kaupakonu
vantar á gott sveitaheímil
hér í sýslunni í sumar. Háti
kaup. Upplýsingar gefur
Elías Tómassor
frá Hrauni.
Hafragrjón
í pckkum
T©
Kako
Klórkalk
Kaupfél. Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild.
Aðalfundur
Kaupfélags
Ey f irðinga
verður haldinn á Akureyri mánudaginn 20.
og þriðjudaginn 21. apríl næstk. FunduriniT
hefst í Samkomuhúsi bæjarins klukkan 10 f.
:; h. mánudaginn 20. apríl.
DAGSKRÁ:
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfs-
manna fundarins,
2. Skýrsla stjórnarinnar.
3. Skýrsla framkvæmdastjóra. Reikningar
félagsins. Umsögn endurskoðenda.
4. Ráðstöfun ársarðsins og innstæðna Ínn-
lendra vörureikninga.
5. Erindi deilda.
6. Framtíðarstarfsemi.
7. önnur mál.
8. Kosningar.
Akureyri 7. apríl 1942.
Félagsstjórnin.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦$3
Xýkomið:
Karlm. axlabönd
Karlm. sokkabönd
Ungl. axlabönd
Ungl. náttfot
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvörudeild.
Gangið í
Gefjunar-
föluxii
Á síðustu árum hefir íslenzkum iðnaði fleygt fram,
ekki sízt hefir ullariðnaðurinn aukizt og batnað og á
ullarverksmiðjan Gefjun á Akureyri mikinn þátt í þess-
um framförum.
Gefjunardúkamir eru nú löngu orðnir landskunnir
fyrir gœði.
Ullarverksmiðjan vinnur úr íslenzkri ull, fjölmargar
tegundir af bandi og dúkum til fata á karla og konur,
böm og unglinga.
Gefjun starfrœkir saumastofur í Reykjavík og á Ak-
ureyri. Gefjunarföt em smekkleg, haldgóð og hlý.
Gefjunarvörur fóst um land allt hjá kaupfélögum og
kaupmönnum.
GEFJUN
Í£SSSSSSSSSSSS$S$SSSSSSS$SSSSSSSSSSSSSSS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS&