Dagur - 16.04.1942, Qupperneq 1
Vikublaðið DAGUR
riitstjórar: INQIMAK EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýaingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsaon.
Skrifstofa viS Kaupvangstorg.
Sími 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentv»rk Odda Bjömasonar.
XXV. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 16. apríl 1942.
17. tbl.
Helztu
fréttir.
MIKLA athygli vekja atburð-
irnir, sem nú eru að gerast
í Frakklandi. ÞjóSverjar undir-
búa nú af kappi sókn sína á
austurvígstöðvunum, og- þykir
þeim mikið við liggja að
tryggja bakstöðvar sínar x Ev-
rópu. Það hlutverk munu þeir
ætla Frökkum. Til þessa hefir
Darlan verið helzti formælandi
Kennar*
iirnir og
Kilfan.
^lyktun Kennarafé*
lag» Suður.Þingeyiuga
f SÍÐASTA hefti Tímarits Máls og
* menningar víkur Halldór Kiljan
Laxness rithöf. að fundarályktun, sem
hann segir, að Barnakennarafélag
Suður-Þingeyjarsýslu hafi afgreitt, og
fjallar um málfar á síðari tíma bók-
um, m. a. á bókinni „Vopnin kvödd“ í
þýðingu H. K. Laxness. Það, sem um
þessa ályktun er sagt, missir að því
leytí marks, að umrætt félag er ekki
til, og að H. K. L. er hvergi í álykt-
uninni borin á brýn vanþekking á ís-
lenzkri tungu. En þar sem att mun við
tillögu þá, sem Kennarafélag Suður-
Þingeyinga afgreiddi um þetta efni a
síðastliðnu vori, og birt var í Tíman-
um, þykir stjóm Kennarafélags S.-
Þing. rétt að skýra nánar, hvað fyrir
tillögumönnum vakti, því að svo virð-
ist sem viss hópur manna vilji ekki
skilja það efni, sem um ræðir í álykt-
uninni, sbr. „Nýtt dagblað“.
VENNARASTÉTT landsins er fyrir-
^ skipað að kenna málið eftir á-
kveðnum reglum, sem eigi má út af
víkja. Þessar reglur eru óhjákvæmi-
legar, einkum í hinum lægri skólum,
þar sem glundroði í móðurmáls-
kennslu torveldar námið stórkostlega.
Með því að gefa út bækur, frum-
samdar eða þýddar, sem brjóta á
margan hátt í bág við þessar reglur,
og senda þær inn á fjölda íslenzkra
heimila, teljum við að ráðizt sé á
starf þeirra manna, sem kenna eiga ís-
lenzkt mál, og rifið niður það, sem
þeir byggja upp.
Þó kastar tólfunum, þegar félag,
sem kennir sig við mál og menningu,
beitir sér fyrir útgáfu slíkra bóka. Og
því gat Kennarafélag S.-Þing. ekki
látið ómótmælt.
H. K. Laxness hefir í síðari bókum
sínum, og sérstaklega í þýðingu bók-
arinnar „Vopnin kvodd“, brotið ýms-
ar af meginreglum þeirrar íslenzku
réttritunar, sem nú er lögboðin í skól-
um landsins.
Og þar sem hann hefir gengið
lengst í þessum efnum umtalsveröra
manna, sem við ritstörf fást, og er
auk þess afkastamikill og víðlesinn
rithöfundur, er hann tekinn sem
dæmi í ályktun kennarafélagsins.
Þær reglur, sem H K. L. hefir m. a.
brotið í bókum sínum eru:
a) Hann hlítir alls ekki reglum um
gildandi kommusetningu, og setur
ekki einu sinni kommur þar, sem
hver sæmilegur lesari hlýtur að
staldra við í lestri. Dæmin eru mý-
mörg.
b) Hann hlítir í engu gildandi
reglum um tvöfaldan samhljóð og z,
nema þá sjaldan, að hann er knúinn
til þess af „viðskiptaástæðum“, að
eigin sögn.
c) Hann ritar oft breiðan raddstaf
á undan ng og nk, og brýtur þar með
oft hljóðvarpslögmál málsins.
d) í bókinni „Vopnin kvödd“,
skrifar hann venjulega í einu orði
ýms atviksorð og stýriorð, sem kennt
er að skrifa í tveimur eða þremur
orðum.
e) Hann ritar víða eftir framburði
málsins, þar sem sizt skyldi.
f) Hann hefir stundum upphafs-
itaíi í samnöfnum og fornöfnum, eins
(Framh. k 2. Ȓ6u).
Undanfarið hefir borið all-
mikið á því, að börn og ungling-
ar sæki um borð í erlend skip
hér við bryggjumar og á höfn-
inni. I fyrrinótt sótti lögreglan
3 smástráka fram í skip hér á
höfninni. Höfðu þeir farið á bát
fram í skipið um kvöldið. Þá
voru 11 drengir teknir í yfir-
heyrslu í fyrradag út af óleyfi-
legum ferðum fram í erlend
skip hér á höfninni, en eins og
kunnugt er, eiga þessi skip eng-
an samgang að haía við land.
Hér er um hið alvarlegasta
mál að ræða, ekki aðeins vegna
barnanna sjálfra, heldur alls
Sjómannadagsráðið hefir á
aðalfundi sínum 1. marz 1942,
tekið þá ákvörðun að gangast
fyrir byggingu dvalarheimilis
'yrir aldraða sjómenn í ná-
Trenni Reykjavíkur. Skal eign-
um Sjómannadagsins, svo og
tekjum næstu ára, varið til að
koma þessu málefni í fram-
kvæmd. En með því að sýnilegt
3r, að tekjur Sjómannadagsins
ná skammt í þessu efni, er hér
með skorað á alla landsmenn,
að sýna nú enn einu sinni örlæti
sitt, og leggja skerf þessu nauð-
synja málefni til stuðnings. Vér
afumst ekki um, að öllum þorra
landsmanna er þetta kærkomið
tækifæri, til að sýna hug sinn til
sjómannanna, sem nú heyja
jafnvel enn harðari baráttu fyr-
ir velgengni þjóðarinnar en
nokkru sinni fyrr, í verki, og
styrkja gott málefni, er þeir
vilja koma í framkvæmd, sjó-
mannastéttinni til gleði og allri
þjóðinni til gagns. „Margt smátt
gerir eitt stórt,“ og vonum við,
að þátttakan verði sem almenn-
ust.
Útvarp og blöð eru vinsam-
lega beðin að leggja máli þessu
lið, með því að birta ávarp
þetta ásamt greinum er fram
koma um málið, svo og á annan
hátt.
Gjaldkeri dvalarheimilis-
nefndarinnar er hr. skipstjóri,
Bjöm Ólafs, Mýrarhúsum, Sel-
tjamamesi, og veitir hann mót-
töku gjöfum til dvalarheimilis-
sjóðtini. Auk þeu mun blaSið
bæjarfélagsins. Skipsmenn á
langferðaskipum þessum fá
ekki að hafa samgang við land,
vegna ótta við, að sjúkdómar
berist með þeim hingað, en með
þessu ráðslagi unglinganna er
þessi varúðarráðstöfun að engu
orðin.Aðstandendum ber skylda
til að gæta svo barna sinna, að
slíkir atburðir komi ekki fyrir
oftar. Vonandi er, að allir skilji,
hve alvarlegt mál hér er á ferð-
um og hagi sér samkvæmt því.
Til öryggis væri þó sennilega
nauðsynlegt að setja sérstakan
vörð hér við höfnina, þegar skip
eru inni.
„ísl.“ á Akureyri taka við fé-
gjöfum í þessu augnamiði.
Virðingarfyllst.
Reykjavík, 7. apríl 1942.
I dvalarheimilisnefnd Sjómannad.
Sigurjón Á. Ólafsson, alþm.
Grímur Þorkelsson, stýrim.
Guðbjartur Ólaisson, hafns.m.
Björn Ólafs, skipstjóri.
Þórarinn Kr. Guðmundss., sjóm.
Haukur Jóhannesson, loftskm.
Þorsteinn Árnason, vélstjóri.
Landsmót skíðamanna hófst
á páskadag, eftir að búið var að
fresta því nokkrum sinnum
fyrst vegna þess, að Siglfirðing-
ana vantaði og svo vegna veð-
urs. Gangan fór fram uppi á
Vaðlaheiði og urðu úrslit þessi:
A-FLOKKUR.
Mín. Sek.
Guðm. Guðmundsson S.S. 64 35
Jónas Ásgeirsson Skb. 65 19’
Ásgr. Kristjánsson S.S. 68 43
B-FLOKKUR.
Erlendur Stefánsson Skb. 68 35
Steinn Símonarson S.S. 70 45
Hörður Björnsson M. A. 72 50
17—19 ára.
Reynir Kjartansson íf. Þ. 39 3
Har, Pálsson S.S. 40 32
Ingólfur Guðmundsson S.S. 44 48
SVIG A-FLOKKUR.
sek.
Björgvin Júníusson Í.R.A. 83,1
Jéau Ásgeimos 122,8
Maðurinn yzt tit hæéri á myndinni
er Paul Reynaud, fyrrv. forsætisráð-
herra Frakklands og einn af sakborn-
ingunum í Riom, þar sem Þjóðvetjar
vildu fá andstæðinéa sína dæmda
fyrir það, að hafa komið styrjöldinni
af stað. En réttarhöldin í Riom éengu
ekki „skv. áætlun". Sakborninéarnir,
t. d. Daladier, báru Þjóðverja þuné-
um sökum. Var þá tekið það ráð, að
fresta réttarhöldunum um óákveðinn
tíma, nú nýlega.
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl. 9.:
STÚLKAN FRÁ KENTUCKY
Föstudaginn kl. 6 og 9:
FJÖRUTÍU ÞÚSUND RIDDARAR
Laugardaginn kl. 6 og 9:
STÚLKAN FRÁ KENTUCKY
Sunnudaginn kl. 3:
GEORGE GETUR ALLT
Kl. 9:
FJÖRUTÍU ÞÚSUND RIDDARAR
Mánudaginn kl. 6:
GEORGE GETUR ALLT
(Síðasta «inn.)
Kl. 9:
FLUGHETJUR KYRRAHAFSINS
B-FLOKKUR.
\sgrmur Stefánsson S.S. 80,2
-<arl Hjaltason Í.R.A. 87,7
Systeinn Árnason í. R. A. 92,2
C-FLOKKUR.
Þorst. J. Halldórsson M. A. 83,6
rlar. Pálsson S.S. 84,8
Pómas Á. Jónasson M. A. 93,0
STÖKK KARLA. A-FLOKKUR.
Stig.
Sigurgeir Þórarinsson Skb. 221,5
Tónas Ásgeirsson Skb. 214,2
Asgrímur Stefánsson S.S. 197,7
B-FLOKKUR.
Sigurður Njálsson Skb. 230,0
Steinn Símonarson S.S. 193,6
17—19 ára.
Har. Pálsson S.S. 220,5
Sigurður Þórðarson Í.R.A. 218,3
Finnur Björnsson M.A. 216,5
í flokkakeppni í göngu sigr-
aði Skíðafélag Siglufjarðar (S.
S.). Þessir menn skipuðu flokk-
Nazista í Vichy-stjórninni, en
Petain hefir streitzt gegn kröf-
um Þjóðverja, eftir getu. En nú
mun það ekki stoða lengur, því
að Pierre Laval hefir nú tekið
við af Darlan í stjórninni, og er
hann talinn ennþá meiri vinur
nazista en fyrirrennari hans,
enda í stjórnina kominn fyrir
þeirra tilverknað. Þykir nú lík-
legt að Frakkar muni beita
flota sínum, flugher og landher,
ef Bandamenn freista að gera
innrás í landið og opna nýjar
vígstöðvar í Evrópu.
* * *
gENDIFÖR Stafford Cripps
til Indlands er lokið. Ind-
versku leiðtogarnir höfnuðu til-
lögum brezku stjórnarinnar, og
hefir því ekkert um skipazt í
málefnum landsins. Enginn vafi
er á, að Bretar vildu leysa
deilumálin og teygðu sig langt
til samkomulags, en aðalágrein-
ingurinn varð um landvarna-
málin og sérríki Múhammeds-
trúarmanna. Á það vildi Kon-
gressflokkurinn ekki fallast. Á-
greiningurinn meðal Indverja
sjálfra varð því tillögunum að
falli, að verulegu leyti. Indverj-
ar munu aftur á móti standa
sameinaðir gegn innrásarhætt-
unni úr austri, sem nú ógnar
landi þeirra.
* * *
gLAÐIÐ „Frit Danmark“, sem
gefið er út í London, segir
frá því nýlega, að Þjóðverjar
hafi afhent dönskum yfirvöld-
um sagnfræðinginn danska, dr.
la Cour, en hann hefir undan-
farið setið í þýzkum fangabúð-
um. Óónægjualda mikil reis í
Danmörku eftir handtöku hans,
og tóku Þjóðverjar þá það ráð,
að lægja sjóana, með því að
senda hann heim aftur.
inn: Guðm. Guðmundsson, Ás-
grímur Stefánsson, Ásgrímur
Kristjánsson, Steinn Símonar-
son. Á síðasta Landsmóti sigr-
uðu ísfirðingar gönguna en þeir
tóku ekki þátt í mótinu núna.
í flokkakeppni í svigi sigraði
í. R. A. í A-flokki, með B til
(Framh. i 2. «6u).
Ávarp til landsmanna