Dagur - 06.06.1942, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Simi 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Bjömssonar.
XXV. árg. Akureyri, laugardaginn 6. júní 1942 27. tbl.
Rödd
úp sveitinni
TTNGUR BÓNDI hér í nágrenninu
u skrifar blaðinu fyrir nokkrum
dögum á þessa leið:
„Unga fólkið héðan úr sveitinni er
farið til hinnar nýju Klondyke—sjáv-
arsíðunnar og Breta — og með því
allt líf og fjör. — Tíðarfar hefir verið
ákaflega óstillt og frost á hverri nóttu
að kalla nú undanfarið. Gróður er þvi
minni en í meðallagi og kvíðir margur
seinfengnum heyskap, þótt „karl og
kerling" leggi sig gjarnan fram sem
fyrr og njóti til vinnunnar nokkurs
styrks bæjarbarnanna, sem nú hafa
leitað sveitarinnar, vöggu feðra sinna
og mæðra, aftur um stund, og hinnar
skapandi, frjóu og angandi moldar.
— Sauðburður stendur nú yfir, og
veit eg ekki annað en hann gangi
vonum framar í ekki betra tíðarfari.
— Tvilembingum fjölgar nú ár frá
ári, og mun það stafa af bættri fóðr-
im og síldarmjölsgjöf. En sildarmjöl
er nú orðið bændum ómissandi til
fóðurs handa skepnum beirra með
öðru fóðri, enda mjög á það treyst, er
fólksfæðin ógnar. Vonandi er, að ráð-
andi menn þjóðarinnar tryggi bænd-
um nóg af síldarmjöli í haust, ef til
verður, og þá með skaplegu verði“.
Skotæíingar o£ skeprtuhöld.
■piTT er það, sem miklum óþæg-
***-* indum veldur hér í dreifbýlinu,
en það eru her- og skotæfingar setu-
liðsins, en slíkar æfingar fara stund-
lun fram dag eftir dag í heimalönd-
um sumra bæja, þar sem allt er þó
krökt af lambfénaði og öðrum skepn-
um. Dag eftir dag heyrist geltið í vél-
byssum og öðrum morðtólum herliðs-
ins, eins og maður væri í nánd við
víglínuna sjálfa. Allar skepnur tryll-
ast, sem vonlegt er, og torveldar þetta
mönnum mjög að fylgjast með burði
ánna og að hemja skepnur í heima-
högum. Það er og undur, að ekki skuli
hljótast slys af mörgum þessum æf-
ingum, því að ekki er mér kunnugt
nm, að þær séu auglýstar fyrirfram,
og oft lítur svo út sem skotið sé af
handahófi innan um bæi og fénað. —
Sem dæmi má nefna það, að fyrir
skömmu síðan fóru hér um tugir bif-
reiða með þungar fallbyssur í eftir-
dragi. Hófst svo hin ógurlegasta skot-
hríð, loftið skalf og fjöllin kváðu við.
Eldblossar og reykur sáust, hvar sem
litið var. Fallbyssukúlur komu niður
hingað og þangað innan um fjárhópa,
mynduðu djúpa og stóra gígi og
kviknaði sumstaðar í sinu út frá þeim.
Ekki veit eg til þess, að verulegur
skaði hafi hlotizt af þessu þá, en fáir
bændur munu hafa haft rollur sínar
úti fyrstu kveldin á eftir. —- Væri
ekki úr vegi að beina þeirri ósk til yf-
irmanna hersins að haga þannig æf-
ingum sínum og velja þá staði til
þeirra, að sem minnstum truflunum
og spjöllum ylli fyrir okkur, hina
störfum hlöðnu einyrkja sveitanna".
(K. E.).
smlðrithisuerðiö ðnreytt.
Smjörlíkisverðið verður ó-
breytt, kr. 3.68 kílóið í smásölu.
Verðhækkun sú, sem í vændum
var og frá var skýrt í síðasta
blaði, kemur ekki til fram-
kvæmda,því að ríkissjóður mun
greiða framleiðendunum upp-
bót, svo að framleiðsla þessarar
vöru beri sig með því verði, sem
gilt hefir undanfarið.
Vilhjálmur Þór
verður i kjöri fyrir
Framsóknarflokk*
inn á Akureyri
Að öðrum írambjóðendum allra ílokka á landinu
ólöstuðum er vafasamt, hvort nokkurt kjördæmi
á völ á mikilhæfari athafna- og áhrifamanni til
þingsetu en honum. — Sú skyssa má ekki henda
okkur Akureyringa, að við höfnum slíkum manni
sem fulltrúa bæjarins á Alþingi.
Vilhjédmur Þór.
pULLTRÚARÁÐ Fram-
sóknarfélaganna hér og
fjölmargir aðrir áhrifa-
menn í bænum hafa þrá-
sinnis og einhuga skorað á
Vilhjálm Þór bankastjóra
að gefa kost á sér til þing-
setu fyrir Akureyri. Var
bankastjórinn lengi mjög
tregur til þessa, sökum
margháttaðs annríkis og af
öðrum ástæðum, en hefir
þó að lokum ákveðið að
verða við þessum ein-
dregnu áskorunum flokks-
bræðra sinna og annarra
stuðningsmanna hér. Mun
það flestra manna mál, að
Framhald é 3. síðu.
Báðir núverandi þingmenn verða í kjöri fyrir hönd
Framsóknarflokksins. Allir Framsóknar- og sam-
vinnumenn í kjördæminu veita þeim öruggt íylgi,
en Reykjavíkurvaldið vill fella þá og koma sínum
útsendurum að.
Báðir þingmenn Eyfirðinga,
þeir Bernharð . Stefánsson
bankastjóri og Einar Ámason
BernharS Stetánsson.
bóndi á Eyrarlandi, verða enn í
kjöri við kosningar þær til Al-
þingis, er fram eiga að fara 5.
júlí næstkomandi. Enn eiga því
kjósendur í Eyjafjarðarkjör-
dæmi þeirri gæfu að fagna að
geta veitt þessum þrautreyndu
og vel metnu þingfulltrúum sin-
um fylgi sitt við kosningarnar.
Það þarf ekki að lýsa þessum
frambjóðendum fyrir eyfirzkum
kjósendum, því að þeir eru
Einar Árnqson.
þeim fyrir löngu kunnir að
áhuga og stefnufestu í þjóðmál-
um ásamt lagni og drengskap í
öllum stjómmálaviðskiptum.
Áhugi þeirra og lipurð við að
vinna að framgangi velferðar-
mála kjördæmis síns er alkunn-
ur og sjást þess víða merki. Auk
Framh. á 4. síðu.
Sjómanna-
dagurinn
Hðtrðahom r bænum ð
morgyn
Sjómannadagurinn er á morg-
un, sunnudaginn 7. júní, og
verður hátíðlegur haldinn af
sjómönnum og stéttarfélögum
þeirra um land allt.
Síðastliðin 3 ár hefir sjó-
mannadagsins verið minnzt hér
á Akureyri með hátíðahöldum
og ýmsum skemmtiatriðum fyr-
ir bæjarbúa, svo sem kappróðri,
sundi, knattspyrnu og reiptogi,
að ógleymdum dansinum, sem
alltaf er sjálfsagður.
Kappróðurinn, sem jafnan
hefir verið eitt eftirsóttasta
skemmtiatriðið, hefir að undan-
förnu farið meira og minna út
um þúfur vegna þess, að ekki
hefir verið hægt að fá nema ó-
heppilega og ójafna báta til þess
að þreyta kappróðurinn á. Sá
sjómannadagsnefndin sig til-
neydda a ðláta smíða 2 sam-
stæða kappróðrarbáta fyrir sjó-
mannadaginn, og verður keppt
á þessum bátum nú í fyrsta sinn.
Nokkur hluti af verði bátanna
hefir þegar verið greiddur af á-
góða síðasta sjómannadags, en
eftirstöðvamar ber að greiða að
næsta sjómannadegi liðnum.
Hátíðahöldin á morgun
munu fara fram á líkan hátt og
að undanförnu. Hefjast þau
með hópgöngu sjómanna kl. 10
árd. Verður gengið í fylkingu
um götur bæjarins. Kl. 11 árd.
verður hlýtt á sjómannamessu í
Akureyrarkirkju. Kl. 1,30 fer
fram skírn kappróðrarbátanna
með aðstoð karlakórsins Geysis,
og fer sú athöfn fram við skipa-
kvína á Torfunefi. Þar næst
verður kappróður, og verður ró-
ið á milli hafnarbryggjanna.
Síðan fer fram stakkasund í
skipakvínni. Að þessu loknu
verður háð knattspyrna og reip-
tog á íþróttavellinum og að síð-
ustu dansskemmtun fyrir sjó-
menn og gesti þeirra í Sam-
komuhúsi bæjarins.
Sjómannadagsblaðið og merki
sjómannadagsins verða seld á
götum bæjarins allan daginn og
einnig á skrifstofu Eimskipafé-
lags íslands, sem verður skrif-
stofa dagsins, og gluggasýningu
hefir sjómannadagurinn í verzl-
unarhúsi K. E. A. við Kaup-
vangsstræti.
Þess er vænzt, að bæjarbúar
sýni veldvild sína og virðingu
fyrir sjómannastéttinni með því
að kaupa sjómannablaðið og
Frambjóð-
endur
Framsóknai*-
flokksins
Framboð Framsóknarflokks-
ins til Alþingiskosninganna 5.
júlí eru nú kunn. Frambjóðend-
ur eru þessir:
Gullbringu- og Kjósarsýsla:
Þórarinn Þórarinsson, rit-
stjóri.
Borgarfjarðarsýsla:
Sverrir Gíslason, bóndi,
Hvammi.
Mýrasýsla:
Bjami Ásgeirsson, alþm.
Snæfells- og Hnappadalssýsla:
Bjami Bjarnason, skólastjóri.
Dalasýsla:
Pálmi Einarsson ráðunautur.
Barðastrandarsýsla:
Steingr. Steinþórsson, búnað-
armálastjóri.
Vestur-ísafjarðarsýsla:
Halldór Kristjánsson, bóndi,
Kirkjubóli.
Norður-ísafjarðarsýsla:
Kristján Jónsson frá Garðs-
stöðum.
ísafjarðarkaupstaður:
Guðm. Ingi Kristjánsson,
bóndi, Kirkjubóli.
Strandasýsla:
Hermann Jónasson, fyrv. for-
sætisráðherra.
V.-Húnavatnssýsla:
Skúli Guðmundsson, kaupfé-
lagsstjóri.
A.-H únavatnssýsla:
Hannes Pálsson, bóndi, Und-
irfelli.
Skagafjarðarsýsla:
Pálmi Hannesson, rektor og
Sigurður Þórðarson, kaupfélags-
stjóri.
Eyjaíjarðarsýsla:
Einar Árnason, bóndi, Eyrar-
landi, og Bernharð Stefánsson,
bankastjóri.
Akureyri:
Vilhjálmur Þór, bankastjóri.
Suður-Þingeyjarsýsla:
Jónas Jónsson, alþm.
Norður-Þingeyjarsýsla:
Gísli Guðmundsson, alþm.
N orður-Múlasýsla:
Páll Zophóníasson, ráðunaut-
ur og Páll Hermannsson, alþm.
Suður-Múlasýsla:
Eysteinn Jónsson, fyrv. ráð-
herra, og Ingvar Pálmason, al-
þingismaður.
Framhald á 4. síð'u.
merki dagsins, eða stuðla að því
á annan hátt, að hátíðahöld
dagsins geti farið sem bezt
fram,