Dagur - 05.11.1942, Page 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðala, auglýiingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrífstofa viS Kaupvangstorg.
Simi 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prtntwrk Odda Bjömssonar.
1 RiKISSTJÓRN ÚLAFS THORS SEGIR AF SER STRAX
OG ÞING KEMUR SAMAN 10.-15. NÓVEMBER
Frá bókamarkaðinum.
Sven Hedin: Lönd leyndar-
dómanna. Ferðir um fjöll og
eyðimerkur Mið-Asíu 1893—
1897. í íslenzkri þýðingu eftir
Sigurð Róbertsson. Bókaforlag
Pálma H. Jónssonar. Prentverk
Odds Bjömssonar. Akureyri
1942.
SVEN HEDIN, hinn heimsfrægi sænski
landkönnuður, mun svo sem kunnugt
er, vera einhver þekktasti ferðalangur,
sem nú er uppi. Meðal landfræðinga,
mannfræðinga og annarra visindamanna
mun hann að sjálfsögðu frægastur fyrir
rannsóknir sínar á náttúrufari Mið-Asíu-
landanna, þessara líttkunnu hágangna og
tröllabyggða, og á þjóðfélagsháttum hinna
frumstæðu þjóða, er þar búa í svintandi
hæð meðal ókleifra tinda. En öllum þorra
manna mun Hedin þó kunnastur fyrir
hinar alþýðlegu ferðabækur sínar, sem
þykja óvenjulega skemmtilegar aflestrar,
enda er hann ritsnillingur mikill, sem
kann vel þá list að segja skemmtilcga frá
ferðalögum sínum, hvort hcldur hann
reikar á úlfaldabaki um eyðlmerkur og
brunasanda, eða klífur risajökla og ófæru-
tinda í slíkri hæð, að loft gerist svo þunnt,
að mannleg lungu þola illa þá árcynslu
að draga andann og liggur því við köfn-
un. Og ferðafélögum sfnum, dýrum og
mönnum, og öllum þcim ólíku þjóðflokk-
um og kynkvíslum, er hann kynnist, lýslr
Hedin af slikri samúð, skilningi og frá-
sagnargleði, að lesandanum finnst hann
sjálfur þekkja þetta fólk og hafa með því
dvalizt, að lcstrinum loknum.
NÚ hefir Sigurður Róbertsson snarað
einni þessara skemmtilegu og alþýð.
legu ferðabóka á íslenzku, en bókaforlag
Pálma H. Jónssonar gefið hana út — í
vandaðri útgáfn. Þýðing Sigurðar virðist
ágæt, málið hreint, látlaust og allþrótt-
mikið og hinum heiðríka og karlmannlega
frásagnarstíl Hedins vel haldið. Prentun
og annar frágangur bókarinnar er mcð
ágætum, eins og allt það, sem frá Prent-
verki Odds Bjömssonar kemur af því
tagi. Þá spillir það heldur ekki, að bókin
cr skreytt fjölda ágætra mynda, og cru
þær flestar eftir höfundinn sjálfan, en
Hedin er prýðilegur dráttlistannaður, t.
d. eru ýmsar pcnnateikningar hans mjög
rómaðar. Pappírinn er vandaður og fal-
legur, en mætti þó vera þykkari.
Ferðabækur eftir góða höfunda em nú
mjög i tízku meðal ýmissa bókavina, og
er það vel. Þarf því naumast að draga það
í efa, að „Lönd leyndardómanna" verða
eftirsótt gjafabók, t. d. nú um jólin, enda
virðist bókin einkar vel fallin til tækifær-
Isgjafa.
J- Fr.
Meðalþungi dilkanna
varð 13,5 kg.
Slátrun sauðfjár á vegum
Kaupfélags Eyfirðinga er ný-
lega lokið. Alls var slátrað 31.456
kindum, þar af 19.501 hér á Ak-
ureyri. Er þetta nokkru meira
en verið hefir undanfarin haust.
Meðalþungi dilkanna reyndist
vera 13 kg., að þessu sinni,
eða svipað og verið hefir. Þyngsti
dilkurinn vóg 25 V2 kg.
Ennþá hefir ekkert verið til-
kynnt um það, hvenær þing
verður kvatt saman, en talið er
að það muni verða 10.—15. þ. m.
Landkjörstjórn hefir ennþá ekki
úthlutað uppbótarþingsætum, en
Washinéton, 26. okt.
gENDISVEIT hinna stríðandi
Frakka hér tilkynnti í dag
að kostnaður á hverjum klukku-
tíma af hernámi Nazista í Frakk-
landi myndi geta fætt og klætt
500 franskar þriggja meðlima
fjölskyldur í heilt ár.
Daglegur kostnaður myndi
einnig geta greitt árs kaup fyrir
20.000 verkamenn, eða byggt
2.500 fyrirmyndar heimili, 80
mílur af járnbrautarteinum eða
150 eimreiðir.
LeikfélagAkureyrar
hefur að nýju sýningar á
„Nýjársnóttinni“.
Æfir auk þess danskan
gamanleik.
Leikfélagið hafði fyrstu sýn-
ingu sína á þessum vetri á „Ný-
ársnóttinni“, hinu vinsæla al-
þýðuleikriti Indriða Einarssonar
í gærkvöldi. í vor lék félagið leik-
rit þetta 12 sinnum hér í bæn-
um við ágæta aðsókn og viðtök-
ur. Leikendur eru allir þeir
sömu og í vor, nema í hlutverki
Önnu; frú Sigurjóna Jakobs-
dóttir fór með það í vor, en hún
er nú forfölluð vegna veikinda.
Fer frú Guðbjörg Bjarnadóttir
með hlutverkið að þessu sinni.
Leiðbeinandf er Jón Norðfjörð,
eins og áður.
Þá æfir félagið danska gaman-
leikinn „Þrír skálkar" eftir Carl
Gandrup, um þessar mundir, að
því er hr. Gunnar Magnússon,
formaður Leikfélagsins, hefir
tjáð blaðinu. Er Jón Norðfjörð
einnig leiðbeinandi við þær æf-
ingar. Þetta er skemmtilegur
gaman- og söngvaleikur og lík-
legur til þess að hljóta vinsældir.
Sýningar munu væntanlega hefj-
ast í byrjun desember.
Vegna aukins kostnaðar af
völdum dýrtíðar hefir félagið
neyðzt til þess að hækka verð að-
göngumiða að sýningum-
eftir því mun beðið. Öll gögn
hafa ekki borizt frá kjörstjórn-
um úti á landi, en búizt er við,
að það verði nú næstu daga.
Ekki er vitað, hvaða flokkar
muni standa að ríkisstjórn. Eng-
New York, 28. okt.
JSLF.NZKA söngkonan María
Markan mun halda áfram að
syngja við Metropolitan óper-
una á hljómlistatímibili ársins
1942-43.
Félagið tilkynnti í dag söng-
leikjaáætlanir fyrir komandi vet-
ur, 101 söngvarar munu starfa
við Metropolitan óperuna.
Ekki var skýrt frá vetrarsöng-
skrá Maríu Markan, en hún
sagði við blaðamenn, að hún
vonaðist eftir að „syngja mjög
oft“, og lofaði að tilkynna mjög
bráðlega þau hlutverk, sem hún
fengi.
María Markan hefir upp á síð-
kastið sungið annars staðar. í
síðastliðinni viku söng hún á
hinum fræga stað „Stage Door
Canteen" í New York, sem fræg-
ir listamenn frá leikhúsum, út-
varpi og kvikmyndum halda
uppi til að skemnjta hermönn-
um. Þessa viku syngur hún á
fleiri samkomum, sem haldnar
eru til að auka sölu stríðsverð
bréfa og til að styðja stríðsfram
kvæmdir með ýmsu rnóti.
(Framh. á 4. síðu).
Dómsmálaráðuneytið hefir
itaðfest, að það hafi skipað Jón
Sveinsson, fyrrv. bæjarstjóra til
þess að vera skattdómara ríkis-
ins, frá 1. október s. 1. að telja.
Embætti þetta var stofnsett með
skattlögunum frá 1942 og segir
svo í lögunum um starf þessa
embættismanns:
„Dómsmálaráðherra skipar
lögfræðing til þess að hafa á
hendi rannsóknir í skattamál-
um, er hafi heimild til þess að
hefja rannsóknir og setja rétt í
hvaða umdæmi landsins sem er.
Auk valds rannsóknardómara
skal hann hafa sama rétt til þess
að krefjast upplýsinga og sama
aðgang að bókum og skjölum og
ríkÍ9skattanefnd hefur samkv.
lögum þewum. Kostiuður ai
inn einn flokkur hefir þing-
meirihluta að baki sér, svo sem
tunnugt er, og eru uppi ýmsar
tilgátur um myndun ríkisstjórn-
ar.
Ólafur Thors hefir gengið á
fund ríkisstjóra og tjáð honum,
að hann muni biðjast lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt strax
og þing er komið saman. Var
gefin út tilkynning um þetta frá
skrifstofu ríkisstjóra s. 1. þriðju-
dag. Verður þar með lokið ó-
happasælasta stjórnartímabili,
sem um getur í íslenzkri stjórn-
arfarssögu á þessari öld.
Vænta menn nú þess, að þing-
ið láti ékki undir höfuð leggjast
að taka skjótt og röggsamlega á
Áætlunarverð
á kjöti, ull og gærum
ákveðið.
STJÓRN KEA hefir nýlega
samþykkt, að áætlunarverð á I.
flokks kjöti, sem lagt er inn í
sláturhús félagsins á þessu
hausti, skuli vera 4 krónur fyrir
hvert kíló. Endanlegt verð til
bænda verðúr, eins og venja er,
ákveðið síðar, þegar kjötið er
selt. Þá samþykkti stjórnin enn-
fremur, að áætlunanærð á ull sé
það sama og í fyrra, kr. 4.50 fyr-
ir kíló. Fyrra árs ull og þessa árs
er öll óseld og óútflutt. Gæru-
verð var einnig áætlað jrað sama
og í fyrra, eða kr. 1.50 fyrir kíló.
þessari ráðstöfun greiðist úr rík-
issjóði".
Um það bil, er lögin voru sam-
jiykkt, hafði Hermann Jónasson,
þáverandi forsætisráðherra, gert
ráðstafanir til þess, að Baldvin
Jónsson, lögfræðingur, sonur
Jóns heitins Baldvinssonar, yrði
settur í embætti þetta. Þegar rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokksins tók
við völdunum, var sú ráðstöfun
fym. forsætisráðherra að engu
höfð. Mun þá hafa verið ráðið.
að Jón Sveinsson fengi embætt-
ið, jrótt ekki hafi þótt hyggilegt
að gera það opinbert þá.
Borgararnir rnunu lxafa vænzt
þess, að í embættið veldist mað-
ur, sem hefði tiltrú þeirra fyrir
sakir óhlutdrægni og réttsýni.
Hér skal enginn dómur lagður á
. i S.
megin vandamálum þjóðarinnar
á yfirstandandi tíma, dýrtíðar-
málunum og verzlunarmálun-
um, þótt jrað komi við kaun
einhverra.
Dýrtíðin fer enn hraðvaxandi
og má telja fullvíst, að vísitala
yfirstandandi mánaðar verði
mun hærri en hin síðasta, seni
j)ó var 67 stigum hærri en þá er
ríHsstjórn Ólafs Thors tók við
völdum og ekki ólíklegt, að hún
vei"ði allt að 90 stigum hærri, er
hann lætur af völdum en þegar
hann tók við þeim.
Þjóðin ætlast áreiðanlega til
þess nú, að eitthvað sé gert í mál-
unum, — að tími blekkinganna
sé útrunninn, en tími fram-
kvæmdanna hafinn. Virðing
manna fyrir Alþingi mun enn
fara þverrandi, ef þar verður nú
uj pi sama linkindin og áður í
meðferð þessara mála.
Fyrra árs kartöflur
af reiknaðar með 42-48 kr.
verði hver tunna.
Stjórn KEA hefir nýlega
ákveðið endanlegt verð á þeim
kartöflum, sem félagið tók til
sölumeðferðar á s.l. ári og s.l.
vetri. Þær kartöflur sem lagðar
voru inn til áramóta 1942 verða
reiknaðar með 42 krónum tunn-
an, frá 1. jan. til apríl með 45
krónum og þær kartöflur, sem
lagðar voru inn eftir þann‘tuna,
með kr. 48.00 tunnan.
Þéssi misnrunandi vei'ðlagning
stafar af því, að sanngjarnt þótti,
að þeir, sem lögðu á sig að
geyma kartöflurnar sjálfir,
fengju eitthvað fyrir ómak sitt
og svo hitt, að þeir, sem síðast
leggja inn, seinna hluta vetrar
og á vorin, verða æfinlega að
bera meiri rýrnun á vörunni,
vegna langrar geymslu en hinir,
sem koma vörunni frá sér strax
á haustin.
Ævintýri eyfirzks
bónda
Fann sprengju og lagði á sig að
flytja hana langa leið og afhenda
setuliðinu!
Herstjórnin biður menn að
VARAST AÐ SNERTA Á
SLÍKUM HLUTUM.
Nýlega skeði það, h'ér út með
firðinum, að bóndi nokkur fann
sprengju í flæðarmálinu neðan
undan bæ sínum, tók hana upp,
(Framh. á 4, síðu).
r
Jón Sveinsson, fyrrv. bæjarstjóri, skip-
aður skattdómari ríkisins frá 1. okt. s.l.