Dagur - 03.12.1942, Page 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Björnssonar.
FRAMSÓKNARMENN MARKA STEFNU SlNA í VANDA-
MAlUM YFIRSTANDANDI TlMA
Miðstjórn og þingmenn flokksins hafa nýlega gert samþykktir um afstöðu Fram-
sóknarflokksins til nokkurra helztu verkefna Alþingis og væntanl. ríkisstjórnar.
Flokkurinn vill koma á sérstakri innflutningsstofnun, sem fái
ákvörðunarrétt yfir öllum innflutningi og öllu skipsrúmi lands-
manna; ákveða eðlilegt grunnkaupsgjald og grunnverð inniendra
afurða; endurskoða tollaiöggjöfina og koma á skyldusparnaði.
Öflugar ráðstafanir til J>ess að mæta erfiðleikum eftir stríðs-
áranna, séu gerðar nú þegar, og framkvæmdasjóði ríkisins trvggt
nægilegt fjármagn til framkvæmda þá.
Samþykktir"-'->- f''ra hér á eftir:
Sigur við Salómonseyjar.
Siðan Bandaríkjamenn náðu aftur fótfestu á Salomonseyjum, hafa Japanit
gert hverja tilraunina af annarri til þess að hrekja þá þaðan. Hafa margar o£
skæðar sjóorrustur verið háðar við eyjarnar og var hin mesta þeirra í síðasta
mánuði, og unnu Bandaríkjamenn hinn glæsilegasta sigur. — Myndin er íré
orrustusvæðinu. Japönsk tundurskeytaflugvél flýgur lágt ( á miðri mvndinniJ
og stefnir að skipum Bandaríkjamanna en allt umhverfis springa varnarskcyti
loftvarnabyssanna.
Fullveldisdagar
— skuldadagar.
Fullveldisdagurinn kom —
og leið.
p ULLVELDIÐ kom og — fyrr eða
síðar kemur að því, að það fari
etnnig veg allrar veraldar. Ef til vill
verður það ráðið nú á næstu árum, —
jafnvel næstu daga, — hvort það
kemur í hlut þeirrar kynslóðar, sem
nú er uppi, að skrá þann kapitula í
sögu þjóðarinnar, er tákni hrun þess
og skjótan endi. Það kostaði alda-
langa baráttu, mikið erfiði og þungar
fórnir margra kynslóða að bæta það
tjón, sem fortíðin hafði bakað, og
endurheimta hið glataða frelsi. Sú
borg, sem svo torvelt var að byggja,
getur þó brunnið á einni nóttu, e/
eigi er yfir henni vakað. Stórar veizl-
ur eru nú haldnar i þeim salarkynn-
um og óvarlega er þar leikið að opn-
um eldi sundrungar og ófriðar. Hinar
göróttu veigar stopuls stríðsgróða,
bruggaðar í ölhúsi dauðans og tor-
tímingarinnar úr blóði og veita stríð-
andi lýða — eru þar ákaft teygaðar
og virðast nú teknar að stíga mörtn-
um mjög til höfuðs. Ýmsir virðast
jafnvel líklegir til þess, að stíga dans-
inn við söng og hljóðfæraslátt, með-
an borgin brennur. Gripahúsin á þess-
um búgarði — atvinnuvegir þjóðar-
innar, fjós hennar og hlöður — standa
þegar í Ijósum loga. Guð einn veit,
hvort jafnvel hinum nýfengnu, tákn-
rænu húsdýrum, glerkúnum dýru og
fögru, sem fluttar hafa verið til vor
með ærnum lífsháska yfir heimshöf-
in, verður bjargað.
ÍSLENDINGUM hefir nýskeð boð-
* izt alveg óvenjulegt, óvænt og
stórkostlegt tækifærí til þess að
leggja tryggan grundvöll að varanleg-
um þjóðarauði í landinu. Skyndigróð-
inn, sem þjóðinni áskotnaðist, var að
vísu mikill, en þó engan veginn svo
ríkulegur, að ekki væri auðvelt að
sóa honum á skammri stundu, ef
þjóðin kysi heldur að leika hlutverk
léttúðugs og óforsjáls auðkýfings eina
nótt, í stað þess að nota hina óvæntu
og auðfengnu velmegun til þess að
(Framhald á 4. síðu).
E1 d g o s ?
Réykur, eldur og sandut stíga 2000
let í loft upp þegar stór sprengja
springur í sandauðninni. Slík gos ger-
ast nú tíð er Bandamenn balda uppi
stöðugum' loftárásum á lið Möndul-
vetdanna f Norður-Aftikv.
KAUPGJALl) OG VERÐLAG
1. Gerðar séu ráðstafanir til
þess að ákveða í eðlilegum skorð-
um grunnkaupgjald og grunn-
verð innlendra afurða með samn-
ingum við samtök framleiðenda
og verkamanna. Sé miðað við,
að hægt verði að halda uppi heil-
brigðri framleiðslustarfsemi og
að vinnandi stéttir þjóðfélagsins
búi við sambærileg kjör.
Ráðstafanir séu gerðar til þess,
að hækkanir á afurðaverði og
kaupgjaldi eigi sér ekki stað,
meðan á samningum stendur.
INNFLUTNINGS-
STOFNUN.
2. Komið verði á fót sérstakri
innflutningsstofnun, vegna styrj-
aldarinnar. Fái sú stofnun fullan
ákvörðunarrétt yfir öllum inn-
flutningi og öllu skipsrúmi til
landsins, og ttm verðlagningu
allra innfluttra vara.
Hert verði á eftirliti með gjald-
eyrisverzlun landsmanna, til
þess að tryggja það, að allur er-
lendur gjaldeyri, sem þeir eign-
ast, verði afhentur, og þannig
komið í veg fyrir fjárflótta úr
landi.
TOLLAMÁLIN.
3. Tollaiöggjöfin sé endur-
skoðuð í sambandi við ráðstaf-
anir til þess að vinna gegn dýr-
tíðinni.
FJÁRFRAMLÖG TIL VERÐ-
LÆKKUNAR.
4. Unnið verði gegn óeðlilegri
verðhækkun aðfluttra vara í inn-
anlandsviðskiptum, svo sem unnt
er, og með fjárframlögum til
þess að halda niðri verðlagi
helztu nauðsynjavara, ef aðrar
þær ráðstafanir, sem gerðar verða
í þeim tilgangi, reynast ekki full-
nægjandi.
SKYLDU SPARN AÐUR.
5. Skyldusparnaður verði á-
kveðinn með lögum, og stefnt að
J>ví,-að meginliluti þeirra tekna,
sem menn hafa um fram þurft-
artekjur, og eigi eru notaðar til
greiðslu gamalla skulda, sé lagð-
ur til hliðar.
FRAMKVÆiVIDASJÓÐUR
RÍKISINS.
6. Lagt verði kapp á að efla
Framkvæmdasjóð ríkisins, og
fjárlög, í }>ví skyni, afgreidd með
sem mestum tekjuafgangi, á
meðan þjóðartekjurnar eru ríf-
legar.
SKIPULAG VINNUAFLSINS
7. Gerðar verði, með samkomu-
lagi við verklýðsfélögin, ráð-
stafanir, sem miði að því að
tryggja nægilegt vinnuafl handa
atvinnuvegum þjóðarinnar og til
nauðsynlegustu fi*amkvæmda.
Allir verkfærir nrenn í landinu
verði skrásettir. Ríkisvaldið hafi
í samræmi við niðurstöður þeirr
ar skrásetningar, íhlutun unr
framkvæmdir og stofnun nýrra
fyrirtækja.
Komi það í ljós, að þessar ráð-
stafanir nægi ekki til þess að
aðalatvinnuvegum Jrjóðarinnar
verði haldið í horfi, og neyðar-
ástand skapast, vegna skorts á
vinnuafli, verður að grípa til
þess úrræðis, að skylda fólk til
vinnu við nauðsynjastörf J>jóð-
félagsins.
(Framh. á 3. síðu).
Sjúkrasamlagsgjöld-
in hækka
Sjúkrasamlag Akureyrar hefir
tilkynnt, að frá 1. des s.i. verði
nránaðargjöld samlagsmeðlima
kr. 8.00 í stað kr. 5.00. — Reynd-
ist þetta nauðsynlegt vegna
stóraukins kostnaðar samlagsins,
af völdum dýrtíðar.
í Reykjavik eru mánaðar-
gjöld nú kr. T0 00.
Leihlfilag Akuregrar sýnir
gamanielKlnn Þrir skðik-
ar « I næstu uiku.
Undanfarnar vikur hefir I . A.
æft garnanleikinn „Þrír skálkar",
eftir Carl Gandrup, og gerir fé-
lagið nú ráð fyrir, að sýningar
hefjist í næstu viku Þetta er
fjörugur gamanleikur, með
miklu af söngvum og íógrurn úti-
sýningum. Leikstjóri og leið-
beinandi er Jón Norðfjörð.
Aðalhlutverkin, skálkana, leika
Þórir Guðjónsson, Júlíus Odds-
son og Jóhann Guðmundsson,
en kvenhlutverkin frú Svava
Jónsdóttir og ungfrú Mnrgrét
Ólafsdóttir.
Leikfélagið mun hafa í hvggju
að ráðast í fleiri sýningar í veiur,
en ekki er ákveðið ennþá, hvaða
verkeíni J>að verða.
stöðugír fundir i atia-
mannanefndinnl - en
ntiii ðrangur.
Ekkert bólar á nýrrl
ríkisstfórn
Áttamannanefndin, sem stjórn-
málaflokkarnir settu á laggirnar,
til J>ess að athuga möguleika á
myndun nýrrar ríkisstjórnar,
hefir setið á fundum undanfarna
d.aga, en árangur hefir enginn
ERLEND TIÐINDI
^LLUR hinn frjálsi heimur
hefir harmað og fagnað í
senn yfir afdrifum franska flot-
ans í Toulon. Menn harrna það,
að hin fríðu frönsku skip eru
horfin og að þessi lrluti flotans
getur ekki tekið þátt í barátt-
unni til þess að frelsa Frakkland
undan oki hinna þýzku drottn-
ara, með flotadeildinni í Ale-
xandríu og Dakar og sveitum
Girauds hershöfðingja og de
Gáulles. En jafnfranrt fagna
menn yfir J>ví, að gátan um flot-
ann er ráðin endanlega og lausn
hennar varð áreiðanlega ekki
(Framh. á 3. síðu).
orðið ennþá. Framsóknarfl.,
Alþýðufl. og Sósíalistar hafa birt
starfsskrá og skilmála lýrir þait-
töku í stjórn. en frá Sjálfstæðis-
fl. hefir ekkert lie/rzt opinher-
lega unr það, hvaða tökum hann
vill taka á málunum.
Gera má ráð íynr, að enn diag-
ist lengi að ný stjórn verði mvnd-
uð, og meðan svo er, mun Al-
þingi vart taka á málunum með
festu, en þess munu kjósendur
hafa vænzt af því. Ekkert mark-
vert hefir gerzt á þingi ennþá og
er ekki að sjá, að þar sé neinn
grundvöllur til, enn sem komið
er, fyrir raunhæfu, ábvrgu við-
reisnarstarfi.