Dagur - 28.01.1943, Blaðsíða 1

Dagur - 28.01.1943, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR Ritstjórar: INGIMAR EYDAL, JÓHANN FRÍMANN. Afgrciðsla, auglýsingar, innheimta: Sigurður Jóhannesson. SkriCstofa við Kaupvangstorg. Sími 96. Argangurinn kostar kr. 8,00. Prentverk Odds Bjömssonar. XXVI. árg. Afkoma smábátaútvegsi ns við Eyjafjörð undir því komin,að Færeyingar fáist til að sigla Bretar og BandariRjamenn legta papgaumiialir m hraðtrystan llsh I siað trOkassa. Lækkar koslnaíi b raðirysti húsanna héðan með ísfisk Engar líkur til þess, að íslenzk skip sigli héðan, ef sjómenn halda fast við kröfur sínar um 55 prc. grunnkaupshækkun í tilkypningu frá utanríkis- málaráðuneytinu segir, að Bret- ar og Bandaríkjamenn hafi orð- ið við þeim tilmælunr íslend inga, að leyfa pappaumbúðir um hraðfrystan fisk sem seldnr er til þessara landa, í stað tré- kassa. Með þessu móti mun hægt að lækka kostnað hrað- fiystihúsanna um á anriað hundrað kr. á hverja sm.dcst fiskjar, tn talið hefir verið að með núgildandi fiskverði og kaapgjaldi sé halli á rekstri hus- anna sem nemur kr. 500,00 íi smáldSt. Virðist því þurfa frekari aðgerða við til þess að hraðfr/'ti- hús’.n gtti tekið til starfa á ný. Dýrtíðin hér innanlands hefir komið því til leiðar að þessi arð- sami atvinnurekstur hefir stöðv- a.2t f.r það nú álgjörlega á valai ísiendinga sjálfra, hvort þeir láta við svo búið standa. eð.t hefjast handa um það, að koma husunum af stað aftur, og fu'! nvgja þannig samningum þeim. sem \ér höfum gert við þessar hcl/tu viðskiptaþjóðir vorar. Fuinrfiarah Framsfihnar- ifiiags Eyjafjarðar lýsir stufiningi sinum uið dýrtrðarrððstaianir rlhisstjfirnarinnar. 1 ulltrúaráð Framsóknavfélags Eyjafjarðar hefir á fundi sínum 22. þ. m. samþykkt ályktun þá, er hér lc.r á eftir: ..Fundur í fulltrúaráði Fram- söknar! élags Eyj af j arðarkj ör • dæmis, haldinn 22. jan. 194á, lvsir ánægju sinni yfir þeim rað- stöfunum, sem ríkisstjórnin hef- ir þegar gert til að minnka verð- bólguna í landinu. j'ulltjúaráðið telur því rétt, að þingmenn FramsóknarflokKs- irs veiti núverandi ríkissti<’n'n fyllsta stuðning að hverju þv>' máli, er miðar að lækkun dh- tíftar, og sem tryggastri afkomu atvinnuveganna að styrjöldinni íoKlmií-" gYFIRZKIR útgerðarmenn eru nú að búa báta sína á veið- ar. Vertíð mun almennt hefjast í næsta mánuði. Tíðindamaðxtr ,,Dags“ hitti Valtý Þorsteinsson, útvegsbónda í Rauðuvík, að máli og spjallaði við hann um horf- ur í útvegsmálum hér við fjörð- inn. Sagðist honum svo frá: Þeir útvegsmenn, sem nti eru að búa báta sína undir vertíðina, byggja afkomuvonir sínar að mestu leyti á samningum sem Kaupfélag Eyfirðinga á nú í við færeyska útgerðarmenn uni ís fiskflutninga héðan á færeyskum skipum með líku sniði og síðast- liðið vor og sumar. Eins og kunnugt er mun ekki um þið að ræða að sinni, að bátar geti lagt afla sinn upp í hraðfrvsú- húsin. Þau munu áreiðanlega ekki veiða starfrækt, nema einhverjar breytingar verði á verðlagi, annaðhvort að fisk- verðið hækki eða tilkostnaður þeirra minnki. Eg tel alveg úti- lokað að útgerðarmenn geti tek- ið lægra verð fyrir fiskinn meðan dýrtíð helst svipuð og nú er og engan hefi ég heyrt telja það sennilegt að fiskverðið fáist hækkað á erlendum markaði. Vii'ðist því líklegast að hrað frystihúsin hér við fjörðinn sem annars staðar, starfi ekki. Um saltfiskinn er það að segja, að ég tel útilokað að útgerðin geti borið sig, með því að byggja cingöngu á söltun aflans Þar að auki mun salt mjög af skornum skammti og söltun af þeim á- stæðum mjög takmörkuð. ísfiskútflutningur með svip- uðu sniði og s. i. ár verður þ\ í .xð vera meginstoð útgerðarinnar ef hún á að geta borið sig. Eins og kunnugt er veittu xítvegsmenn KEA umboð til þess að annast þessa flutninga á nýafstöðnum Fiskisamlagsftmdi og mun kaup lélagið nú eiga i samningum við Færeyinga um fkitningaraálin. Á þeim samnir.gum veHur mik- íð. íslenzku skipin, sera héðan sigldu í fyrra munu áreiðanlegi ekki sigla nú, ef halclið vcr-ður til streitu kröfum þeinv sem n.ú er i fram komnar um 55% grunn- kaupshækkun. Þótt ensk Liskflutningaskip fengjust til Jress að koma hingað til fisktöku, er ákaflega hætt við að þeir flutningar yrðu svo stop- ulir, að á engan hátt væri viðun- andi fyrir útgerðamenn. Mér virðist því útlitið allt annað en glæsilegt. Það er ömurlegt til Jress að vita, að afkorna útvegs- ins hér um slóðir skuli þurfa að byggjast á flutningasamningum við Færeyinga, meðan íslenzk skip geta ekki siglt fyrir dýrtíð hér innanlands. Mesta hags- munamál útvegsins nú er áreið- anlega, að það takist að í'áða nið- urlögum veiðbólgunnar á öllum sviðum, st’o að hann geti aftur borið sig á heilbrigðan hátt.“ ERLEND TÍÐINDI Ráðstefnan i Gasa* blanca. — Sókn Kússa — Nýlenduveldi Itala liðiö undír lok. Aðfaranótt miðvikudagsins var útvarpað tilkynningu frá brezkum og amerískum útvarps- stöðvum þess efnis, að Roose- velt Bandaríkjaforseti, Chur- chill, forsætisráðherra Breta, Gi- raud hershöfðingi, de Gaulle hei'shöfðingi og fjöldamargir af æðstu herráðsforingjum og hers- höfðingjum og flotaforingjum Bandamanna hefðu haft fund með sér undanfarna 10 daga í borginni Casablanca á vestui'- stiönd Afríku. Stalin var boðin þátttaka, en hann var vant við látinn, Jjar sem hann stjórnar sókn Rússa á austm'vígstöðvun- um, og gat ekki komið. Á fundinum var rætt um styrjaldarmálin og framtíðarfyr- irætlanir Bandamanna og voru hinar mikilverðustu ákvarðanir teknar.einkum með tillititilþess hvernig mætti létta byrðinni af Rússum, sem nú fást hér um bil einir sins liðs við Þjóðverja. — Náðist algjört samkomulag i öll- Fvfcmh' d. !• u'ðu. Frá Guadalcanal. . Japanskir fangar eru látnir vinna að landvarnarvinnu á Gua- dalcanaleyju i Salomonseyjaklasanum. Japanir eru á undanhaldi á eynni, en verjast af mestu liörku. Eru þar háðir grimmilegir „ bardagar um Iwern skika. Sjómenn fara fram á stór- felldar kauphækkanir. Otgcrðamnnaffiiag mniregrar heiir umynnt neim. ati Daö ganga ehhí að neinni hæhhun. Síððuasi fslishssigiingar ð ísienzhum shlpum? Sjómannafélag Akureyrar htf- ir nú nýskeð farið fram á k|ai'a- hæiur til handa h'ásetum, kynd urum og matsveinum á skipum, er sigia með ísvarinn fisk. -- Kiöfur þær, er þeir leggja iram eru í aðalatriðum þessar: 1. Grunnkaupshækkun, 55% á það grunnkaup, er ákveðið var með samningi milli Útgerðarm.- fél. Ak. og Sjóm.féh, dags. 22. jan. 1941, og er samningur þessi enn í gildi. 2. Auk þess hækki grunnk uip matsveina um ca. 10% áður en ofangr. 55% hækkun komi lil greina. 3. Hafnarfrí skipverja í heimahöfn hverja ferð, strax cx skip er landfast, og vari Jrað eigi skennxr en 24 klst. 4. Skipverjar fái sumarfrí, er sé einn dagur fyrir hvern mán<xð er skipverji starfar á skipi. í gildandi samningi er ákvæði um að skipverjar hafi frí í lxeima höfn, er skip kemur fiá útlönd- um, þar til affermingu er lokið og lestir hreinsaðar. — Gagn.art þeim skipum er héðan sigla (r í fæstum tilfellum um 24 klst. uppihald að ræða er skip kemur frá útlöndun, ef liægt er að hefja losun strax við komu skipsins Engin ákvæði um sumarfrí eru í hinum gildandi samningi. Miðað við núgildandi kjör hefir hver háseti um kr. 2260,00 I á rnánuði, miðað við J ferð á mánuði, £5500 sölu og 15 daga áhættuþóknun. Miðað við sömu hlutföll gagnvart hinum nýju kröfum, verður kaup háseta um kr. 3000,00, eða hækkun, sem nemur kr. 740,00 á hvern háseta á mánuði. Matsveinskaup veið- ur á sama hátt um kr. 3334,00 á móti 2368,00, eða hækkun sem nemxir kr. 966,00. Ef miðað er við vélskip, sem ekki þarf að hafa kyndara, nemur hækkunin alls á kaupi 4 háseta og nrat- sveins kr. 3926,00 á mánuði. Eins og mönnurn mun vera kunnugt, er hámarksverð á fiski í Englandi og lágmarksveið á fiski hér innanlands, svo að aug- Ijöst er að þessir liðir geta ekki farið upp fyrir ákveðið liámark eða niður fyrir ákveðið lágmark. — Hinsvegar er mikil áhætta því samfara, að fiskverð í Eng- landi fari langt niður fyrir há- marksvei'ðið. — Samkv. upplýs- ingum þeirra útgerðarmanna er hafa haft skip í förun'i héðan í seinni tíð telja þeir ekki neinn verulegan afgang vera á því, að ferðirnar, fram að þessu, hafi borið sig, og rnátti ekki mik- ið út af bera til þess, að um tap væri að í'æða. — Það virðizt þ\'í augljóst mál, að út- gerðarmenn geta ekki tekið á sig þá atjknu byrði, sem er Jjessari kaupkröfu samfara, enda hefir Útg.m.fél, Ak. svarað málaleit- Framhald :í 3. sfðu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.