Dagur - 24.06.1943, Blaðsíða 2

Dagur - 24.06.1943, Blaðsíða 2
2 DAGUR Fimmtudagur 24. júní 1943 Skilyrði kommúnista fyrir samstarfi við Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn Fulltrúar Sósíalistaflokksins á Alþingi héldu því fram, að miðl- unartillögur Framsóknarmanna í níu manna nefndinni bæru vott um afturhaldsstefnu Fram- sóknarflokksins og væru svo fjarri því að geta verið grund- völlur að myndun vinstri stjórn- ar, að þær væru í sjálfu sér ekki svara verðar. Jafnframt gátu sósíalistar þess, að heppilegast mundi fyrir flokk þeirra að stofna til verzlunar- sambands við Sjálfstæðisflokk- inn! í síðasta blaði var sýnt fram á, hverju sósíalistar höfnuðu, er þeir harðneituðu að sinna að nokkru tillögum Framsóknar- manna. Áður höfðu sósíalistar í orði lagt ríkt á um það, að stríðs- gróðann yrði umfram allt að skattleggja duglega. Nú gafst þeim færi á að sýna þann vilja sinn í verki, en þá linuðust þeir allir upp. Þá höfðu þeir og þótzt bera mikla umhyggju fyrir auknum verklegum framkvæmd- um og þar með trygging atvinnu fyrir verkalýðinn. En nú brá svo við, að stórauknar verklegar framkvæmdir voru orðnar að afturhaldsstefnu á máli þeirrar foringjaklíku, sem ræður í Sósíalistaflokknum. Að hennar dómi er það ekki í þágu al- mennings í landinu, bænda, fiskimanna og verkamanna, að mynda samstarf um slíka stefnu. Að þeirra áliti er það ólíkt nota- drýgri stefna fyrir verkamennina að verzla við Sjálfstæðismenn um að fá nokkra fúlgu til al- þýðutrygginga gegn því, að gróðafélögin fái skattaívilnanir. Að lokum fór svo, að sósíalist- um leizt ekki meira en svo á málstað sinn og voru hræddir um, að kjósendur þeirra mundu sjá í gegnum blekkingarvefinn. Þeir tóku því það ráð að reyna að hypja upp sig einhverjum umbótaflíkum. Þá tilkynntu þeir ,að þeir óskuðu að leggja fram gagntillögur af sinni hálfu í níu manna nefndinni. í þessum „samkomulagstillög- um“ sósíalista, sögðust þeir m. a. vilja afnema varasjóðshlunnindi almennra hlutafélaga, en að þessum hlunnindum verði sett takmörk eða felld niður iijá þeim félögum, sem safnað hafi hæfilegum sjóðum. Á þenna hátt ætluðu þeir að þvo hendur sín- ar í skattamálunum, en hve sá þvottur hefir reynzt haldgóður og verið af miklum heilindum ger ,sézt bezt á því, að í þinglok- in dreit Sósíalistaflokkurinn í sitt eigið hreiður með því að hjálpa stríðsgróðamönnum til þess að halda sjóðhlúnnindum sínum. Þetta er talandi vottur um hina dæmalausu grautargerð kommúnista í skattamálunum. Þegar þeir eru orðnir svo að- þrengdir, að þeir komast ekki lengur hjá að sýna einhverja af- stöðu, bera þeir fram í níu manna nefndinni tillögur um ákveðna skattaálagningu á stríðs- gróðann, en ganga síðan í lið rneð forsvarsmðnnum strfðsgróð- ans um að drepa sínar eigin til- tögur. Hitt og þetta annað var í ,,samkomulagstillögum“ komrn- Únista, er var svipað eða nær samhljóða því, er Framsóknar- menn höfðu áður borið fram í sínum tillögum og þá var kallað afturhald. En til þess að það væri alveg öruggt, að enginn árangur næðist í störfum nefnd- arinnar, stráðu kommúnistar ýmsum ,,skilyrðum“ inn í tillög- ur sínar, sem þeir vissu, að hinir flokkarnir gátu alls ekki gengið að. Eitt slíkra skilyrða var um afstöðuna til styrjaldarinnar. Samkvæmt því áttu íslendingar að taka virkan þátt í stríðinu með Bandamönnum, en af því sem á undan var farið, efaðist enginn um, að þetta gilti aðeins á meðan atvikin haga því svo, að Rússar eru á sömu línu og lýðræðisþjóðirnar gagnvart naz- ismanum. Af undanfarinni reynslu vita menn, að breyttust atvikin á þá leið, að Rússar sner- ust til vinfengis við nazista, eins og komið hefir fyrir áður, þá mundu skilyrði kommúnista hér breytast á þá lund, að íslending- ar ættu að hallast á sveif með Hitler. Að slíku skilyrði geta lýðræðissinnar aldrei gengið. Og það vita kommúnistar ofur vel. Kommúnistar, eða sósíalistar, eins og þeir nú vilja láta kalla sig, héldu vel til haga öllum hin- um upphaflegu „skilyrðum“ sín- um í því augnamiði vitanlega að gera ágreininginn sem mestan og girða fyrir, að samkomulag næð- ist. Og þrátt fyrir þetta þóttust þeir vera að gera „samkomulags- tilraunir“. Auk þess gerðu þeir kröfu um, að lokið væri að ganga frá stórmálum, er engan undirbúning höfðu fengið, og voru tillögur þeirra í samræmi við undirbúninginn í sumum þeim málum, því að ekki varð ráðið af tillögunum hvað fyrir þeim sjálfum vekti, svo voru þær óljóst og aumlega orðaðar. T. d. settu kommúnistar það Það eru vordagar 1943. F.nn ber hvorki á hlýindum eða græn- um laufum. Ég er staddur uppi í sveit og heyri á vegum útvarps- ins bergmál af kröfugöngum í Reykjavík. Þær virðast hafa ver- ið tvær. Annars vegar er Alþýðu- sambandið, undir andlegri for- sjá Einars Olgeirssonar. Hins vegar átti að fylkja launamönn- um ríkis og bæja. Sigurður Thor- lacius talaði fyrir þá deild. í þetta sinn mun hún ekki hafa verið fjölmenn. En tilgangurinn er að fylkja hér liði til tangar- sóknar á hendur atvinnuvegun- um og ríkinu. í vor var þetta æf- ing fyrir komandi tíma. Það má kallast furðulegt, að nokkrum„launþeigja“(til að tala máli Alþbl.) skuli hafa komið til hugar að gera kaupkröfugöngur í vor. Á undangengnum missir- um hafa kaupkröfur borið þann árangur, að nú eru laun og kaup á íslandi hærri en nokkru sinni fyrr i *ögu landsln*, Kaup og skilyrði, að tekin yrði upp alveg ný stefna í fátækramálum þjóð- arinnar, þar sem ákveða átti í snatri að landið yrði eitt fram- færsluhérað og fátækrastyrkur lögboðinn fastur, og var þó þetta stórmál órætt og ekkert undirbú- ið. í öðru lagi settu kommúnist- ar það skilyrði, að réttarfarinu yrði breytt í frjálslyndara horf. Ilvorki var þetta mál þó rætt eða undirbúið, og heldur engin vitneskja um það í tillögum þeirra, í hverju breytingarnar ættu að vera fólgnar. í bæklingi Eysteins Jónssonar, Hvers vegna var ekki mynduð róttæk umbótastjórn? dregur hann m. a. fram tvö dæmi um lokaafstöðu Sósíalistaflokksins í samningunum milli flokkanna. Þeir kröfðust þess, að fastákveð- ið yrði í einstökum atriðum, hvernig atvinnuleysistrygging- um skyldi fyrir komið framvegis, „allt án þess að nokkur undir- búnings-athugun hafi fram far- ið, og án þess að þeir hafi rætt málið á samningafundum nefnd- arinnar”. Hitt dæmið er um raforkumál sveita og sjávarþorpa. í því máli höfnuðu sósíalistar allri skipu- legri lausn. Stefna Framsóknar- manna í því máli er, að ríkið hafi forgöngu um stærstu raf- orkuveitur, því að öðruvísi verði málið ekki leyst, nema fyrir örfá þéttbýlissvæði. „Þessari stefnu ganga sósíalistar á móti með fjandskap, en í staðinn eiga að koma loðnar yfirlýsingar um „undirbúning" og „rannsóknir", og að svo mikið fé, sem „fært þykir“, verði handbært til slíkra framkvæmda. Síðan kom í ljós á Alþingi, að sósíalistar vildu heldur láta gróðahlutafélög halda hlunnindum sínum, en féð rynni í raforkusjóð“. Eitt af „skilyrðum" kommún- ista var að afnema yrði bann vinnulöggjafarinnar gegn póli- tískum verkföllum. Kommúnist- ar heimta fullt frelsi til þess að mega standa fyrir verkföllum, sem hafa þann tilgang að traðka lögum og rétti. Þetta telja þeir svo mikið umbótamál fyrir verkalýðinn, að allar aðrar um- bætur verði að víkja fyrir því. Dómur brezka verkalýðsins um starfsemi kommúnista þar í landi. JpLOKKSÞING verkamannaflokks- ins brezka, er.kom saman nú um hvítasunnuna, samþykkti með stór- kostlegum meiri hluta atkvæða að synja kommúnistaflokki Englands um upptöku í verkamannaflokkinn, eins og stjórn þess flokks hafði farið fram á. Þessi fregn kemur að vísu ekki á óvart, því að miðstjórn verka- mannaflokksins hafði áður samþykkt að leggja til við flokksþingið, er það kæmi saman, að hafna öllum tilmæl- um í þessa étt, og lýstu sumir leið- togar flokksins við það tækifæri neðanjarðarstarfsemi brezku komm- únistanna heldur ófagurlega, og hví- líkri spillingu, sundrung og ófriði þeir hefðu ávallt valdið innan verk- lýðshreyfingarinnar brezku. M. a. minntu þeir á afstöðu þeirra til ófrið- arins, er þeir reyndu eftir beztu getu að grafa grunninn undan viðnáms- þrótti ensku þjóðarinnar gegn sókn Nazista, þegar óvænlegast horfði, en þá voru þeir Hitler og Stalin gengnir í eina sæng pólitískt fyrir nokkru, Ekkert sýnir betur en þetta, að það er bylting en ekki umbætur, sem fyrir klíku kommúnista vakir. Loks má nefna þingrofsskil- yrðið. Sósíalistaflokkurinn krafð- ist þess að fá þingrofsrétt. Einn fimmti eða þaðan af minni hluti þingsins átti, hvenær sem hon- um sýndist, að geta sprengt allt stjórnarsamstarf og kastað þjóð- inni út í kosningar. Það hefði verið svo einkar þægilegt fyrir kommúnista að fá þetta afbeldis- vopn í hendur og geta beitt því í þágu síns elskaða föðurlands, eða kannske öllu heldur í þágu síns ennþá meira heittelskandi föð- urlands í austurátt. Að öllu þessu búnu segja svo kommúnistar, er nú kalla sig sósíalista: Það stóð ekki á okkur að stofna til umbótastjórnar með hinum flokkunum. Það voru þeir, sem voru svo hlálegir að vilja ekki Ællast á hin fínu ,,skilyrði“ okkar. svo sem mönnum er enn i fersku minni. Fyrrverandi forseti verka- mannaróðsins brezka sagði m. a. við þetta tækifæri: „Sú staðreynd, að Alþjóðasamband kommúnista hefir verið leyst upp, án þess að spyrja deildirnar í hinum ýmsu löndum róða, eða leita álits þeirra, sýnir bezt, að kommúnistaflokkarnir um víða veröld eru í vasa Rússa. Vér treyst- um enn ekki kommúnistaílokki Bretlands". Brezkur verkalýður og íslenzkur. JjESSI skýlausa afstaða og ákvörð- un ársþings brezkra verkamanna sýnir ljóslega, að Bretar kunna vel að greina á milli þess að leggja Rúss- um, her þeirra og ríkisstjórn allt það lið, er þeir framast mega í baráttunni gegn Möndulveldunum, þar sem framtíð allrar siðmenningar í heimin- um virðist undir því komin að villi- mennska Nazista og ójöfnuður verði niður kveðin, og hins að leggja verka- lýðshreyfinguna brezku að fótum kommúnista í blindri undirgefni og átrúnaði og gefa þeim þannig stór- um aukin áhrif ög bætta aðstöðu í hinni innlendu þjóðmálabaráttu. Hið fyrra atriðið eru þeir algerlega sam- mála um að sé lífsnauðsyn, hið síð- ara er þeim mjög fjarri skapi. — Vafalaust mættu margir íslendingar læra nokkuð í þessu efni af reynslu og skoðunum hins stóra nágranna okkar í suðri, því að hér eru því mið- ur til þeir menn, sem vilja, að ís- lenzka þjóðin leggist hundflöt fyrir kommúnistiskum áhrifum og innlend- um ofsatrúarmönnum af því sauða- húsi, aðeins sökum þess, að heimur- inn stendur í óbættri þakkarskuld við Rússa fyrir hina vasklegu vörn þeirra gegn „blóðhundum Hitlers“ síðustu tvö árin. Fjórir dvergar og einn risi. gÍÐASTI „íslendingur“ birtir langa hugvekja eftir ritstjórann út af því, að fleiri menn starfi nú við „Dagur“ en nokkurt hinna bæjarblað- anna. Sjálfur kveður hann sér enga skotaskuld verða úr því, að vera allt í senn á sínu heimili: ritstjóri blaðs- ins, auglýsingastjóri og afgreiðslu- maður. Ut frá þessum forsendum kemst ritstjórinn svo að hinum furðu- legustu niðurstöðum, ekki aðeins um misjafna starfhæfni hinna ýmsu blaðamanna hér, heldur sér hann einnig í þessu ýmis merkileg jarteikn í þjóðmálabaráttunni yfirleitt. Höf- um vér enga löngun til þess að Nýtt stjórnmálajafnvægi á íslandi laun eru meira að segja svo há, að hvenær sem dregur úr þeim tekjum, sem landsmenn hafa beinlínis í sambandi við tilkostn- að Bandamanna við styrjöldina, hrynur allt atvinnulíf landsins í rústir, og ríki og bæir standa eftir með miklar kröfur frá hálfu ann- arra en litlar tekjur. Launþegar landsins hafa hald- ið kröfudag 1. maí s.l., eins og vant er, en í þetta sinn væntan- lega í sögulegum skilningi, til að minnast unninna sigra. í bili er ekkert til að heimta meira en það sem fengið er. Alþýðusambandið hefir nú sameinað allan verkalýð bæjanna um eitt mál: Hærra kaup og auk- in hlunnindi. í þessu sambandi eru menn úr fjórum stjórnmála- flokkum. Þeir skiptast eftir póli- tískum flokkum á kjördegi. En um hagsmunamál stéttarinnar standa þeir saman í einni fylk- ingu, undir meginstjórn leiðtoga kommúnistaflokksins. Kringum þessa fylkingu er almenn ringul- reið. Borgaraflokkarnir skiptu árið sem leið fimm sinnum um stjórn eða stjórnarstuðning. — Þrennar kosningar með vaxandi upplausn fóru fram á árinu. Að lokurn gat þingið ekki myndað stjórn. Ríkisstjóri skipaði þá nokkra röska utanþingsmenn í landsstjórn. Það er einskonar landshöfðingjastjórn, sem gefst vel, eins og á stendur. En þingið hefir ekki getað leyst sína eigin skyldu af höndum, af því að jafn- vægi vantar í þjóðfélaginu. Gamla jafnvægið er glatað, og hið nýja er að verða til. Frá 1830 til 1916 leitaði þjóð- in að pólitísku jafnvægi í lausn sjálfstæðismálsins. En árið 1916 skapaðist nýtt jafnvægi, og í þetta sinn um innanlandsmálin. Sambandið við Danmdrku var að slitna svo að segja af sjálfu sér. Samvinnumenn í sveitum lands- ins mynduðu Framsóknarflokk- inn. Hóglátir og umbótasinnað- ir verkamenn mynduðu Alþýðu- flokkinn. Þessir tveir flokkar störfuðu saman nálega óslitið í 20 ár. Morgunblaðsflokkurinn myndaði jafnvægið til hinnar hliðar. Á þessum árum lyftu Framsóknaxmenn og Alþýðu- flokkurinn grettistaki um fram- farir landsins og umbætur á lífs- kjörum stærstu stéttanna í land- inu. Árið 1936 rufu tveir Al- þýðuflokksmenn, Héðinn Valdi- marsson og Vilm. Jónsson, sam- starf þessara tveggja flokka með þriggja mánaða víxlinum. Upp úr því hættu þeir pólitískri starf- semi. Flokkur þeirra lamaðist, en kommúnistar efldust á þeirra kostnað og komu með nýja stefnu inn í íslenzk stjórnmál. Þeir viðurkenndu ekki grund- völl þingstjórnarinnar, en kröfð- , ust algerðrar innanlandsbylting-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.