Dagur - 24.06.1943, Blaðsíða 4
4
DAGUR
Fimmtudagur 24. júní 1943
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Sóknarpresturinn mun verða fjar-
verandi þessa viku og nasstu. Situr
prestastefnu í Reykjavík. Sr. Benja-
mín Kristjánsson þjónar hér í fjar-
veru hans.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an, af sóknarprestinum, sr. Friðrik J.
Rafnar, vígslubiskupi, ungfrú Kristín
Sigurðardóttir, Svalbarði og Jón R.
Sigurðsson, sama stað.
Katolína Guöbrandsdóttir frá Súða-
vík, nú til heimilis hjá dóttur sinni,
Önnu Jensdóttur og manni hennar,
Karli Einarssyni bólstrunarmeistara,
Hafnarstrœti 25, verður 85 ára á
morgun, 25. þ. m.
Sextugur varð 22. þ. m. Zóphus
Gissurarson, Glerárþorpi. Zóphus er
héraðskunnur fyrir leikarahæfileika
sína, gamansemi og eftirhermur.
Karlakór Akureyrar hafði samsöng
í Nýja-Bíó s.l. sunnudag. Söngstjóri
var Svéinn Bjarman. Einsöngvari Jó-
hann Konráðsson. Húsfyllir var og
söngvurum mjög vel tekið.. Því - mið-
ur hefir blaðið ekki tækifæri til þess
að geta nánar um samsönginn að
sinni, en mun væntanlega gera það í
næsta tbl. Kórinn endurtekur söng-
inn í Nýja-Bíó næstk. sunnudag kl.
2 e. h.
. .Sjötíu o& timm ára varð Stefán D.
Grímsson, Árgerði, Glerárþorpi, fyrr-
um bóndi að Syðra-Krossanesi, s.l.
þriðjudag.
Glímuílokkur úr „Ármanni", Rvík,
er í sýningarför um Norðurland
þessa dagana, undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar, íþróttakennara. Flokkur-
iim hafði sýningu í Samkomuhúsi
bæjarins í gærkvöldi og var vel fagn-
að. Að glímusýningu lokinni voru
sýndar amerískar íþróttakvikmyndir.
Frú Hallbjörg Bjarnadóttir er hér
í bænum og mun syngja opinberlega
á næstunni.
Aðaltundur Leikfélags Akureyrar
verður haldinn í bæjarstjórnarsaln-
um næstk. fimmtudag, 1. júlí, og hefst
kl. 8,30 e .h.
Ekkjan Jóharma Friðriksdóttir,
Oddeyrargötu 34, varð 75 ára 21. þ.
mán.
Baldur Ingólfsson írá Víðirhóli á
Hólsfjöllum lauk nýlega sveinsprófi’
í húsgagnabólstrun með óvenjulega
hárri ágætiseinkunn, eða 9,63 sem
meðaleinkunn x öllum prófgreinum.
I fyrravor lauk hann burtfararprófi
frá Iðnskóla Akureyrar með I. ágæt-
iseinkunn, 9, 52, en það er eitt hið
hæsta próf, sem tekið hefir verið við
skólann frá upphafi. Baldur er sonur
Ingólfs Kristjánssonar frá Grímsstöð-
um, nú bónda að Víðirhóli. Hefir
hann lært iðn sína af Karli Einars-
syrú húsgagnabólstrunarmeistara hér
í bæ, og var prófsmíði hans hæginda-
stóll, forkunnar vel gerður.
Gjaíir til gamalmennaheimilis í
Skjaldarvík: Frá B. J. og M. G. kr.
15. Frá Stefáni Ág. Kristjánssyni kr.
50. Frá E. B., áheit kr. 200. Frá Þ. J.
kr. 50. — Hjartans þakkir. Stefán
Jónsson. — Gjöfum og áheitum til
gamalmennaheimilisins verður fram-
vegis veitt móttaka hjá eftirtöldum:
Bókaverzl. Þorst. Thorlacius. Bóka-
verzl. Gunnl. Tr. Jónssonar. Bóka-
verzl. Eddu. Ritstjórum blaðanna á
Akureyri og Arna Jóhannssyni gjald-
kera K. E. A. og hjá undirrituðum.
Stefán Jónsson.
Tilkynning
frá mæðrastyrksnefnd
Nokkrar konur geta komizt í
sumardvöl á vegum nefndarinn-
ar að Laugum í Þingeyjarsýslu.
Komið getur til mála, að kon-
urnar liafi með sér eitt barn.
Þær, sem vilja sinna þessu,
gefi sig fram fyrir 1. júlí við frú
Soffíu Thorarensen, Brekku-
götu 2 eða frú Ingibjörgu Ei-
ríksdóttur, Þingvallastræti 14.
SÍLDARVERÐ RÍKISVERK-
SMIÐJANNA
(Framhald af 1. síðu).
jyjEIRI HLUTI verksmiðju-
síjórnarinnar hefir nú svar-
að bréfi atvinnumálaráðherra,
dags. 18. júní, með nýju bréfi,
dags. 19. s. m. Hefir bréf þetta
þegar birzt í heild í sunnanblöð-
unum. Lætur verksmiðjustjórn-
in þar í ljós óánægju sína út af
þeirri ákvörðun ráðherrans að
hafna tillögum meiri hluta verk-
smiðjustjórnarinnar viðvíkjandi
fasta verðinu á síldinni og rök-
styður það nokkru nánar. Því
miður er ekki rúm til þess að
birta bréf verksmiðjustjórnar-
innar í heild að sinni. En bent
er þar á það m. a., að síldarverk-
smiðjur einstaklinga hafi jafnan
keypt sildina föstu verði fyrir
áætlunarverð Síldarverksmiðja
ríkisins, og muni svo enn reyn-
ast. En með þessu skapist nú
ósamræmi um síldarverð í land-
inu, sem geti skaðað ríkisverk-
smiðjurnar og dregið úr við-
skiptum þeirra. Þorsteinn M.
Jónsson skrifaði undir bréf þetta
með fyrirvara, en þar sem
,,Morgunblaðið“ rangfærir fyrir-
vara Þorsteins nokkuð í meðferð
sinni (líklega þó fremur af van-
gá en illvilja), þykir rétt að birta
hann hér í heild, án þeirrar af-
bökunar:
, „Eg undirritaður leyfi
mér hér með að minna á
sérstöðu mína í máli því, er
bréf þetta ræðir um. Aðal-
tillaga mín var sú, að verk-
smiðjurnar tækju síld að-
eins til vinnslu og verðið
væri áætlað 18 kr. málið, en
í samræmi við þetta taldi
eg rétt að kaupa síldina fyr-
ir kr. 18.00 málið, ef keypt
yrði.
Þorsteinn M. Jónsson".
glNS OG menn sjá af ofanrit-
uðu ber ekki sérlega mikið á
milli tillögu meiri hluta verk-
imiðjustjórnarinnar um fasta
verðið og tillögu þeírrar, er
hlaut staðfestingu ráðherra, og
sízt svo mikið, að ástæða virðist
til þess að hvetja til ófriðar á
þeim grundvelli, eins og
„Morgunblaðið" hefir nú gert.
Þegar þess er gætt, að afköst
Síldarverksmiðja ríkisins verða
stórum aukin nú frá því sem var
á síðasta ári, m. a. með því, að
nýjar verksmiðjur bætast nú við
þær, sem reknar voru af ríkinu
í fyrra, er þess fastlega að vænta,
að heildaraflinn verði svo mik-
ill, að nákvæmlega sama verð
verði greitt fyrir síldina nú, sam-
kv. ákvörðun atvinnumálaráð-
herra, eins og meiri hluti verk-
smiðjustjórnarinnar hefir lagt
til að greitt verði.
EINSÖNGUR Þ. H. H.
(Framh. af 1. síðu).
hann ekki náð þeirri karlmennsku og
snerpu í söng sinn, sem samsvari
rödd hans og persónu að öðru leyti,
en enginn efi er á, að þarna er ágæt-
ur efniviður, sem óhætt er að treysta
til mikilla afreka, þá honum 'vex fisk-
ur um hrygg og hann hefir fengið
tækifæri til að njóta náms við sitt
hæfi. Heyrzt hefir, að hann hyggi á
Vesturheimsför einmitt í þeim til-
gangi, og er það vel farið.
jyfÖRG af viðfangsefnunum varð
* hann að endurtaka, M6 þar
sýnir í kvöld kl. 9:
Korsíkubræður
Föstudag kl. 9:
Litla Nellie Kelly
Laugardag og sunnudag kl. 9:
Korsíkubræður
Sunnudag kl. 5.:
Litla Nellie Kelly
NYKOMIÐ
Ullarjavi,
margar tegundir.
Slæður og treflar
úr silki og ull.
Hanzkar,
skinn og bómull.
Vasaklútar,
góðir og ódýrir.
Snyrtivörur,
mikið úrval.
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Björnsson.
Hér með tilkynnist,
að mark það, er ég nota á þessu ári er:
Tvífjaðrað framan hægra, alheilt
vinstra. — Þetta eru meno bcðnir að
athuga.
Virðingarfyllst,
JÓN AUSTFJÖRÐ.
FRÉTTIR í STUTTU MÁLI
(Framhald af 1. síðu).
sonar nokkrar mínútur af dag-
skrá sinni og útvarpaði jafn-
framt kveðjuorðum til íslenzku
þjóðarinnar.
Þýzka útvarpið njætti á stund-
um mínnast orða hins yísa Salo-
mons konungs: Að þegja hefir
sinn tíma.
Kveðjan, sem Þjóðverjar sendu
íslendingum þann 16. júní, var
með þeim hætti, að eígi þurfti
þar orðum við að bæta. Hún
mun eigi gleymast, heldur lifa í
minningu allra siðaðra manna,
sem dæmi um hið villimannleg-
asta og ómannúðlegasta stjórn-
skipulag og hugarfar, sem þekkst
hefir síðan á dögum Ghengis
Khans.
nefna „Bikarinn", eftir Markús Krist-
jánsson, „Sólin hverfur", nýtt lag eft-
ir Björévin Guðmundsson og „Die
beiden Grenadiere", eftir Schumann.
Af öðrum viðfangsefnum, sem athygli
vöktu, má telja nýtt lag eftir Jón
Þórarinsson, „Skógardraumur“. Er
það einkar athyglisvert. Sænsk þjóð-
lög, þrjú að tölu, voru og prýðilega
með farin af söngmanninum.
Það væri freistandi að ræða nánar
um þessa nýstárlegu heimsókn, en
því miður leyfir rúmið það ekki að
sinni.
Dr. v. Urbantschitsch lék undir á
flygil af nákvæmni, öryggi og natni
hins hámenntaða listamanns.
Þökk sé þeim báðum fyrir komuna,
" Ábeyrandi.
VORMÓT FRAMSÓKNARMANNA
á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu verður haldið að
Þverá í öngulsstaðahreppi n. k. sunnudag, 27. júní,
og hefst kl. 2 V2 e. h.
DAGSKRÁ :
1. Samkoman sett.
2. Ávarp til Einars Árnasonar og fjölskyldu.
3. Minni Framsóknarflokksins.
4. Frjáls ræðuhöld.
Á milli ræðanna og af og til syngur karlakórinn
Geysir, og Lúðrasveit Akureyrar leikur.
Veitingar verða seldar á staðnum. Merkjasala.
Dans á palli um kvöldið.
SKEMMTINEFNDIN.
Skömmtunartímabilið er senn útrunnið!
Athugið að taka skömmtunarvörurnar í tíma,
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
— nýlenduvörudeild.
OPINBERT UPPBOÐ
verður haldið að Ósi í Arnarnesshreppi miðviku-
dag, 30. júní, og hefst kl, 1 e, h,
Þar verður selt, ef viðunandi boð fæst', ýmsir inn-
anstokksmunir, svo sem: rúmstæði, sængurföt o. fl.
Ennfremur 1 dráttarhestur og ef til vill vetur-
gamalt tryppi.
Uppboðsskilmálar birtir á uppboðsstaðnum.
Ósi, 22. júní 1943.
EINAR GUTTORMSSON.
RYKFRAKKAR
KARLA
léttir og hentugir
til sumarferðalaga
Verð kr. 112.00—160.00
B. Laxdal.
Hinn gamli og góði
NURALIN taulitur
fæst í þessum litum:
Rósrauður,
Bleikrauður,
Citróngulur,
Fjólublár.
Ií. E. A.
— nýlenduvörudeild.
Hefi fengið alls konar
KRAKKAFATNAÐ,
svo sem:
Boli, Skyrtur, Buxur
(fleiri gerðir).
Kjólar og Sokkar
væntanlegir á næst-
unni.
VERZLUNIN L0ND0N
1-2 STÚLKIIR
geta fengið atvinnu
við buxna- og pilsa-
saum.
B. Laxdal.