Dagur - 29.07.1943, Blaðsíða 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EVDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheirata:
Sigurður Jóhannesson.
Skrifstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Argangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Bjömssonar.
■N
i
iUl
XXVI. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 29. júlí 1943
31. tbl.
Ritfregn
Þingvísur 1872—1942.
Safnað hefir Jóhannes úr
Kötlum. Útg. Þórhallur
Bjarnarson. Rvík 1943.
MOKKUR sýnishorn úr bpk þessari
^ hafa áður birzt hér i blaðinu, en
um hana sem heild má segja, að þar
kenni margra og allmisjafnra
grasa. Gaman okkar Islendinga er
tiðast nokkuð grátt, og má sjá þess
glögg merki á verulegum hluta kveð-
skapar þess, er þarna hefir verið sam-
an safnað, en beinskeyttar eru þær
margar og harðskeyttar stökurnar, og
sjálfsagt ekki alltaf jafn sælt að
standa í skotmarkinu miðju, þegar
slík skeyti eru á lofti. Mikið myndi
það hafa aukið gildi bókarinnar, ef
Alþingisrímur Valdimars heitins As-
mundssonar hefðu verið teknar upp
í hana í heild sinni, en þær eru vafa-
laust jafnmergjuðustu og listfengleg-
ustu þingvisur, sem kveðnar hafa verið
á Islandi. Frágangur bókarinnar er hinn
prýðilegasti og skýringarnar, sem vís-
unum fylgja, víða nægilega ýtarleg-
ar, en þó miklu viðar full lauslegar,
a. m. k. fyrir yngri kynslóðina, sem
er ókunnug flestu því, er við kemur
sögu eldri þinga og þingmanna. En
auðvitað hefði það lengt bókina
mjög, ef gerð hefði verið rækileg til-
raun til þess að verða við slíkum
kröfum. — Alþýðukveðskapur á
borð við þennan er ávallt kærkomið
lestrarefni margra, enda þjóðleg, ram-
íslenzk list, sem ekki má leggjast nið-
ur og sjálfsagt er að halda til haga í
hæfilegú úrvali.
/. Fr.
Einn dagur á
austurvígstöðvunum
CJVO nefnist rússnesk kvik-
mynd, sem Nýja-Bíó sýnir
nm þessar mundir. Var blaða-
mönnum boðið til reynslusýn-
ingar á myndinni fyrir
skemmstu, en opinberar sýning-
ar- eru nú byrjaðar.
Myndin er tekin af tugum
rússneskra kvikmyndatöku-
manna í ýmsum héruðum Rtiss-
lands, 13. dag júnímánaðar
1942, og á að sýna einn dag í lífi
rússnesku þjóðarinnar við víg-
línuna og að baki hennar. Skýr-
ir myndin í meginatriðum
greinilega og eftirminnilega frá
gangi viðburðanna.
Margar myndanna frá vígstöðv-
unum eru ægilegar og áhrifa-
miklar. Er sjálfsagt hollt fyrir
ýmsa hernaðarsérfræðinga vora,
sem ekki þekkja annað til hern-
aðar en liægindastól og útvarp,
að íhuga þær og allar þær hörm
ungar, sem nútímastyrjöld hef
ir í för með sér, ekki aðeins fyrir
liermennina í eldlínunni, held-
ur kannske fremur fyrir óbreytta
borgara í þorpum, bæjum og
borgum.
Myndin er yfirleitt mjög fróð-
leg og áhrifamikil, einna sízt þó
þegar sjónglerinu er snúið að
framleiðslutækjunum að baki
víglínunnar. Er sá kafli alllang-
ur og ekki laus við lélegri ,,pro-
paganda" en hinir, t. d. eru
vinnubrögð verkamanna í verk
NAUÐSYNLEG STÆKKUN LAXÁRSTÖÐVARINNAR
i VÆNDUM
Nýju vélarnar
væntanlegar hingað
í september
Stöðin verður stækkuð unr 4000
liestöfl, úr 2400 í 6400. Gert er
ráð fyrir því, að Húsavík og
sveitirnar í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu fái rafmagn frá
stöðinni í framtíðinni.
gNUT OTTERSTED raf-
veitustjóri hefir skýrt svo frá,
að hinar nýju vélar til Laxár-
stöðvarinnar séu búnar til út-
skipunar í Ameríku og væntan-
legar, ef allt fer að réttum sköp-
um, hingað til landsins í septem-
ber n.k. Mun þá væntanlega
undinn bráður bugur að því að
korna þeim fyrir í stöðvarhúsinu,
og gera aðrar nauðsynlegar ráð-
stafanir til þess, að raforka til
bæjarins verði aukin svo fljótt,
sem nokkur kostur er á.
Höjgaard & Schultz A/S hafa
tekið að sér að sjá um undirstöð-
ur fyrir hina nýju vélasamstæðu,
en amerískir rafmagnsmenn
munu annast uppsetningu sam-
stæðunnar. Þrýstivatnspípur,
stöðvarhús og háspennulína var
— svo sem kunnugt er — þegar í
upphafi miðað við þá orkufram-
leiðslu, sem nú er á döfinni. Bú-
izt er við, að stækkunin kosti um
tvær miljónir króna.
Notkun rafmagns til suðu og
hitunar hefir vaxið mjög hér í
bænum, síðan Laxárstöðin var
tekin í notkun í október 1939.
Þá hefir og alls konar iðnaður,
er krefst raforku til rekstursins,
færzt mjög í aukana á þessu
tímabili. Verður því bætt úr
brýnni þörf með fyrirhugaðri
stækkun stöðvarinnar. Þá er
ennfremur ljóst, að sveitir og
sjá'varþorp hér í grennd þarfnast
mjög rafmagns, og er líklegast,
að Laxárveitan verði að full-
nægja þeirri þörf, áður en langt
um líður. Hins vegar er enn ekki
ráðið, hvaða fyrirkomulag verð-
ur haft á framkvæmd þess máls,
þegar til þeirra kasta kemur.
Fleiri þjóðir en Þjóðverjar einir eiga kafbáta, sem skeinuhættir geta reynzt
skipum óvinanna á höfum úti. — Myndin sýnir eina slíka fleytu í eigu
Ameríkumanna, er henni var hleypt af stokkunum einhvers staðar á Atlants-
hafsströnd Bandarikjanna, en slíkir viðburðir gerast þar harla tíðir nú orðið.
— Bráðum tekur þessi kafbátur þátt í hildarleiknum á einhverju
heimshafanna.
Séra Sigurður Stefánsson, Möðruvöllum:
Endurbyggmgarsjóður Möðruvalla-
klaesturskirkju í Hörgárdal
smiðjunum með þeirrt fádæmum,
að kommúnista hlýtur að reka í
rogastanz, og ef þeir ætlast til að
myndin sé öll tekin bókstaflega,
er sýning hennar vafasamur
hagur fyrir þá, út frá sjónarmiði
breta- og bæjarvinnu.
Yfirleitt mun kvikmyndin þó
Iiollt íhugunarefni öllum, nema
þeim, sem hafa týnt eiginleik-
anum til þess að hugsa sjálfstætt
Framhald á 4. slðu.
gÍÐASTLIÐIÐ haust var þess
minnzt með guðsþjónustu og
nokkrum hátíðarhöldum á
Möðruvöllum í Hörgárdal, að 75
ár voru þá liðin frá byggingu
hinnar veglegu kirkju, er Þor-
steinn Daníelsson á Skipalóni
reisti þar á árunum 1865—67.
Á þessu byggingarafmæli kom
fram sú tillaga að stofna til sér-
staks sjóðs, er kirkjan ætti og
aldrei yrði skertur fyrr en að því
kæmi að byggja þyrfti nýja
kirkju á staðnum. Var flutnings-
maður tillögunnar Þórhallur
bóndi Ásgrímsson á Þrastarhóli.
En henni var hið bezta tekið, og
sóknarpresti og sóknarnefnd fal-
inn undirbúningur málsins.
Á safnaðarfundi í vor var svo
lögð fram skipulagsskrá fyrir
Endurbyggingarsjóð Möðru-
vallakl.kirkju og hún samþykkt
þar, en síðan staðfest af biskupi
landsins 1. þ. m.
í skipulagsskránni segir m. a.:
„Tilgangur sjóðsins er að tryggja
það, að sem mest fé verði fyrir
hendi, er til þess kemur að
byggja þurfi nýja kirkju á
Möðruvöllum í Hörgárdal og
má aldrei skerða sjóðeignina
nema til slíkrar endurbyggingar
á kirkju staðarins (3. gr.). Og
ennfremur: „Sjóðurinn veitir
viðtöku gjöfum og áheitum og
öðru því fé, er til kann að falla
(Framhald á 4. síðu).
Fréttir í stuttu máli
Fólkseklan í sveitum. Noregs-
söfnunin. Elmer Davis á Islandi,
J^ÁÐNINGARSKRIFSTOFA
landbúnaðarins er nú um •
það bil að ljúka störfumaðþessu
sinni. 450 bændur hafa óskað
eftir aðstoð hennar með útvegun
kaupafólks, en ekki liefir verið
unnt að sinna nenra nokkrum
hluta beiðnanna, þar sem eftir-
spurn eftir landbúnaðarstörfum
hefir verið mjög lítil. Þessar
ráðningar hafa tekizt fyrir milli-
göngu skrifstofunnar: 64 kaujra-
menn (beðið hafði verið unr
134), 75 kaupakonur (beðið
um 321), 42 drengir (lreðið um
100), 17 unglingstsúlkur (beðið
um 37), og 1 vinnunraður (beðið
um 3). Ennfremur Irafði verið
beðið unr 2 vinnukonur og
tvenn hjón í ársvistir, en ekki
fengizt. — Aldrei fyrr lrefir lrinn
íslenzki landbúnaður verið jafn
illa staddur með verkafólk senr
nú, og er ekki annað sýnt en að
skera verði niður meira eða
minna af búpeningi landsmanna
í haust — einmitt þegar brýnasta
nauðsyn ber til þess, að við get-
um lifað sem mest á eigin fram-
leiðslu okkar í öllum greinum.
Má segja, að ekki sé ein báran
stök fyrir bændur, þar sem þessi
vandræði bætast nú ofan á fjár-
pestirnar, grasbrestinn, ótíðina
og lrinn erfiða og geysi heyfreka
vetur.
* *
jgOREGSSÖFNUNIN er nú
að komast upp í 800 þúsund-
ir króna. Eru þar þó enn ótaldar
ýmsar upplræðir, senr vitað er
um að safnazt hafa, en enn eru
ókomnar í hendur söfnunar-
nefndarinnar. Má því vænta þess,
að söfnunin nemi ekki minna en
(Framh. á 4. síðu).
Miissolini hrekkur upp af klakknum!
Hvenær fer næsti einræðislierrann sömu leiðina?
. . Síðastliðið sunnudagskvöld var það tilkynnt í Rómaborg, að
Benitó Mússólini, „11 Duce“ Ítalíu, hefði beðizt lausnar frá störf-
um, en Badoglió marskálkur hefði tekið við völdum sem eftir-
maður hans, þó með þeim breytingum frá því sem áður var, að
Victor Emanuel konungur tekur sjálfur æðstu herstjórriina í sínar
liendur.
þEIR Badoglió og Victor Em-
anuel hafa flutt sitt ávarpið
hvor til þjóðarinnar. Báðir
hvöttu jreir þjóðina til þess að
taka þessum tíðindum með ró-
semi og „dæma engan“(!) — Þá
hefir jrað ennfremur verið til-
kynnt, að ítalía muni halda stríð-
inu gegn Bandamönnum áfram,
en líklegt er jró talið, að það
verði aðeins um stundarsakir og
muni hin nýja stjórn leitast við
að fá sérfrið og bjarga -þannig
því, sém þjargað verður. Herlög
gilda nú raun\’erulega í öllu
landinu, samkomustöðum hefir
verið lokað frá því áð dimma
tekur á kvöldin og þar til í birt-
ingu að morgni. og fólki er
bannað að hópast saman á göt-
um úti. TTerinn hefir fengið fyr-
irskipanir um að bæla miskunn-
arlaust niður allar óeirðir. Þrátt
(Framhald á 4. síðu).