Dagur - 12.08.1943, Page 1

Dagur - 12.08.1943, Page 1
Vikublaðið DAGUR Riutjórar: INGIMAR EYDAL, JÓHANN FRÍMANN. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Sigurður Jóhaunesson. Skrifstofa við Kaupvangstorg. Simi 96. Argangurinn kostar kr. 8,00. Prentverk Odds Björassonar. IF* mmm XXVI. árg. Akureyri fimmtudaginn 12. ágúst 1943 33. tbl. Samband ís- lenzkra sam- vinnnfélaga 1902-1942. S. I. S. gefur út minningarrit um fjörutíu ára starfsemi sína í land- inu. Gísli Guðmúndsson alþ.m. hefir samið bókina. QAMBAND ísl. samvinnumanna og félög þess, sem fyrir mannsaldri síðan voru aðeins veikur og blaktandi vísir, eru í dag orðin öflug félagssam- tök og mikils virt innan lands og ut- an. í sambandsfélögunum fimmtíu eru nú full 20 þúsund félagsmanna, og stór hluti þeirra fjölskyldufeður. Má á því marka þátttöku þjóðarinn- ar í þessari miklu félagsmálahreyf- ingu. A hverju ári annast Sambandið kaup og sölu á vörum, innan lands og utan, fyrir marga tugi miljóna króna. í einkarekstri væri þarna tækifæri til mikillar auðsöfnunar. En sam- vinnumenn hyggjast ekki fyrst og fremst að safna auði, heldur að gera verzlun landsins hagstæða og tryggja sér sannvirði vinnu sinnar. Með myndun hinna sterku sjóða í félögun- um og Sambamdinu vilja þeir tryggja þessa miklu félagsverzlun lands- manna gegn áföllum á erfiðum tím- um. Samvinnumenn óska þess ein- læglega, að verzlunarsamtök þeirra þurfi aldrei að fá eftirgjafir hjá lán- ardrottnum sínum, enda hefir Sam- bandið aldrei þurft þess fram að þessu. Það er vel farið, að S. í. S. hefir nú minnzt 40 ára starfsemi sinnar i land- inu með prýðilega myndarlegu riti, þar sem gerð er — eins og segir í | formála höfundar bókarinnar — „til- raun til að gefa þeim 20 þúsund fé- lagsmönnum, sem Sambandið vinnur fyrir, ýtarlegri skýrslu en hingað til hafa verið tök á, um þau verk, sem unnin eru þar, og hafa verið unnin, og þau viðfangsefni, sem þar hafa verið til úrlausnar, — um það, sem á hefir unnizt, og um mátt og þýðingu Sam- bandsins nú fyrir þá, sem í því eru, og fyrir þjóðina í heild. Það er skil- yrði fyrir framtíð alls samstarfs, að þeir, sem þar eru þátttakendur, viti sem gerst um allt það, sem samstarfið miðar að. Með því einu fæst sá sam- hugur, sem er lífgjafi alls félags- skapar“. Heildarsaga samvinnuhreyfingar- innar á Islandi er enn óskráð, og bíð- ur það merka, verkefni úrlausnar. En ýmsum þáttum hennar hafa þegar verið gerð góð og verðug skil með minningarritum nokkurra stærstu og merkustu kaupfélaganna og nú síðast með þessu ágæta minningarriti Sam- bandsins, sem vissulega mun verða vel þegið af ýmsum áhugasömum og fróðleiksfúsum samvinnumönnum. Tvö ummæli eru í þessu riti til- færð eftir tveimur minnsstæðustu for- vígismönnum Sambands ísl. sam- vinnufélaga frá liðnu érunum, Pétri á Gautlöndum og Hallgrími Kristins- syni. Hallgrímur sagði: „Samvinnu- menn þurfa að vera bjartsýnir". Pét- ur sagði: „Mér hefir aldrei orðið að slysi að treysta mönnum". — Nú er það glöggt, hvað þeir megna, hinir bjartsýnu menn, sem treysta hver öðrum. Það sýnir Samband ísl. sam- vinnufélaga eftir 40 ára starf. TÍMITIL KOMINN AÐ LANDLEIÐUM SUÐOR SE HALDIÐ OPNUM YFIR VETRARMÁNUDINA Það er hægt, ef vilji er fyrir hendi CJENN líður að liausti. Innan tveggja mánaða má búast við.fyrstu ' snjóum. Kannske fyiT. Úr því dregst aldrei lengi, að fannir loki þjóðvegum liéðan aústur og suður. Tímabili hinna greiðu sam- gangna við aðra Landshluta lýkur. Hinar strjálu skipaferðir, og óreglubundnu flugferðir verða aftur um meginhluta ársins eina samband þessa héraðs við umheiminn. Hinar miklu framfarir, sem orðið hafa í samgöngum öllum síðustu áratugina ná vart til þessa liéraðs og þeirra, sem austar liggja, nema fjóra mánuði ársins. Hinn tíma þess búa þau við samgöngur, sem raunverulega eiga lieima á annarri öld. — Hvað veldur þessu ófremdarástandi? Eru það óyfir- stíganlegir erfiðleikar fjallveganna í vetrarbúningi eða er það fvamkvæmdaleysi landsmanna? j^ÍTUM þá á staðreyndirnar. Reynsla undanfarinna ára hefir sannað að þjóðvegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar er fær bifreiðum allan árshring- FLOGINN Fimmtuéur varð Halldár Áséeirs- son sölustjóri hjá K.E.A. s.l. fimmtu- dag. Sjötuésaimæli átti Stefán Steíáns■ son að Svalbarði, fyrrum bóndi á , Syðri'VarSgjá, s.1, mánudag. Fréttir í stuttu máli Þýzk flugvél skotin niður. — Tveir Akureyringar kaupa Þjórsártún. — Læknastyrkir Rockefellerstofnunarinnar. í tilkynningu frá herstjórn- inni segir s.l. föstudag: Þýzk flugvél af Focke-Wulf gerðinni var á sveimi fyrir norð- an ísland í gær, þegar amerísk orustuflugvél réðist á hana og skaut hana niður. Sjö menn af áhöfn þýzku flugvélarinnar björguðust í gúmmíbát, og skip úr brezka flotanum var sent á vettvang og setti flugmennina á land á Norðurlandi. Flugmenn- irnir, sem skutu niður flugvél- ina eru: lst Lieutenant Richard N. Holly frá Glenvale, Arizona og lst Lieutenant William E. Bethea frá Jenly, North-Caro- ina. Amerísku orustuflugvél- arnar urðu ekki fyrir neinum skemmdum. Herstjórnin vill geta þess um leið og þessi fregn er birt, að þessi orusta átti sér stað á sömu slóðum og þar sem Focke-Wulf flugvél réðist á ,,Súðina“ þann 16. júní 1943 og varð að tíana tveirn íslendingum og særði fimm af áhöfn „Súð- arinnar". þEIR Stefán Gunnbjörn Egils- son, ráðsmaður Menntaskól- ans hér, og Ölver Karlsson, bif- reiðastjóri, hafa fest kaup á sam- komustaðnum og veitingahús- inu að Þjórsártúni í Rangár- vallasýslu og munu hafa í hyggju að flytja suður þangað og reka gistihúsið eftirleiðis. QLAFLJR læknir Sigurðsson, Guðmundss. skólameistara hér, hefir nýlega hlotið fram- haldsnámsstyrk frá Rockefeller- stofnuninni í Bandaríkjunum og mun á förum vestur um haf. Fjórir aðrir íslenzkir læknar hafa hlotið þenna námsstyrk að þessu sinni, inn að kalla, þegar veturinn er sæmilega snjóléttur, nema tveir kaflar: Vatnsskarð og Öxnadals- heiði. Af þessum tveimur farar- tálmum er Öxnadalsheiði mikl- um mun erfiðari viðfangs, en báðiE'eru þannig vaxnir, að þess er ekki að vænta, að þar yfir verði vetrarbraut fyrir bifreiðar á næstu árum. En það er engu líkara, að þegar bifreiðarnar eru úr sögunni, finnist þeim, sem stjórna samgöngumálunum, að allir landvegir séu lokaðir. Nú vita það allir í þessu hér- aði, að Öxnadalsheiði er vel fær ferðamönnum alla mánuði árs- ins í sæmilegu veðri. Menn fara í bifreiðum eins langt og þær komast eftir Öxnadalsveginum, en grípa síðan til þess samgöngu- tækisins, sem fylgt hefir íslandi frá landnámstíð, en nú virðist vera að falla í gleymsku, — fara ríðandi þar til hægt er að ná til bifreiða Skagafjarðarmegin tor- færunnar. Með þessu móti komast menn greiðlega vestur og suður á bóg- inn, en með ærinni fyrirhöfn þó. Hver einstaklingur, sem Jrarf að fara þessa leið, og þeir gerast nú margir síðan samgöngur á sjó gerðust jafn erfiðar og nú er raunin á, — verður að búa út leiðangur, líkt og hér tíðkaðist fyrir hundrað árum. Hér virðist ekki Jrurfa nema einfalda skipulagningu af hálfu póststjórnarinnar og Jreirra er stjórna samgöngumálum. Halda uppi bifreiðaferðum a. m. k. tvisvar í viku frá Reykjavík norð- ur, og héðan suður, það sem bif reiðarnar komast, og hafa síðan nægilega rnarga hesta á taktein- um til þess að ferðamenn og póstur geti komizt greiðlega yfir fjallvegina. Á þennan hátt gætu þeir, sem Norðurland byggja, ferðast eins greiðlega og krefjast verður af Jyjóð, sem vill búa í menningarlandi og búið við póstsamgöngur, sem ekki eru með marki frumstæðra Jrjóða. Hver borgari landsins greiðir ærna skatta á ári hverju til vega og brúagerða. Vegna einstakra torfæra, sem landsmenn hafa (FramhaJd i i síðu). VESTTJR VM HAF. Lundúnaútvarpið tilkynnti s.l. þríðju- daéskvöld,að CHURCHILLværi enn kominn vestur um hai, ásamt æðstu heriorinéjum Breta, til fundar við ROOSEVELT oé MACKENZIE- KING, forsætisráðherra Kanada. — Þetta er sjötti fundur þeirra Roose- velts oé Churchill síðan stríðið hófst. Minning Jóns Arasonar pYRIR nokkru kusu Skagfirð- ingar nefnd til Jiess að ann- ast nndirbúning að minning- ingarhátíð Jóns biskups Arason- ar á 400 ára aftökuafmæli hans og sona hans árið 1950. Efnir nefnd þessi til hátíðahalda að Hólum í Hjaltadal næstk. sunnudag til Jress að kynna mál- ið og afla því fjár. Hefst hátíðin með messugerð í Hóladóm- kirkju, þar sem biskup landsins mun prédika. Að messu lokinni verður flutt erindi urn Jón Ara- son, og gerir það sennilega Brynleifur Tobiasson mennta- skólakennari, sem nú starfar að samningu og útgáfu á sögu Skag- firðinga o. fl. Verður svo ýrnis- legt annað til fróðleiks og skemmtunar. Prestar Hólastiptis hins forna munu verða þarna flestir viðstaddir. Mánudagsmorguninn 16. þ. m. hefst svo, einnig á Hólum, prestafundur Hólastiptis, og mun standa þann dag. Verður biskup landsins þar einnig við- staddur. Nýtt leikrit eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi Öll Ijóð skáldsins í heildarútgáfu LEIKRIT hefir DavíÖ skáld frá Fagraskógi samið og verður það að líkindum leikið í Reykjavík af Leikfélagi Reykjavíkur á komandi vetri. Um leið mun leikritið koma út á forlagi Þorsteins M. Jónssonar hér, en hann hefir gefið út öll rit skáldsins. Landsmönnum munu fiessi tíðindi góð. þykja Danðaslys af áf engis eitrun í Vestmanna- eyjum þAU hörmulegu tíðindi gerð- ust í Vestmannaeyjum um s.l. helgi, að margir menn veikt- ust hættulega af áfengiseitrun og hafa níu þeirra látizt síðan. — Nokkrir menn eru ennjrá Jrungt haldnir. Mennirnir munu hafa neytt vökva, er annað tveggja hefir rekið eða fundizt á floti og álitið vera spíritus. Hefir senni- lega verið um lianvænan tré- spíritus að ræða. Málið er í rann- sókn. Ýmsa hluti rekur nú á fjör- ur landsmanna af völdum stríðs- ins á hafinu, en varast skyldu all- ir að notfæra sér, eða neyta nokkurs þess, sem þeir hafa ekki fullvissu fyrir hvað er. Marg- ítrekaðar aðvaranir til almenn- ings um þetta efni hafa verið bjrtav í blöðurn og útvarpi. Skáldið mun verjast allra frétta um efni og byggingn Jiessa nýja leikrits. En Jrað mun vera táknrænt nútímaleikrit í mörg- um sýningum og taka til með- ferðar ýms helztu viðfangsefni, sem nú eru efst á baugi. Félagar í Leikfélagi Reykja- víkur munu hafa kynnt sér leik- ritið nokkuð og telja það af- burða snjallt. Menn munu bíða með óþreyju eltir því að fá að sjá og heyra Jretta nýja leikrit Davíðs Stefáns- sonar. Þá hefir Þorsteinn M. Jónsson skýrt svo frá, að í haust muni koma á bókamarkaðinn öll ljóð Davíðs Stefánssonar í heildarút- gáfu. Heildarútgáfan verður í þremur bindum. Er pappfrinn mjög vandaður skrifpappír og bandið vandaðasta skinnband, sem völ er á. Eyrsta bindið er fullprentað og annað bindið er í prentun. KIRKJAN. Ekki messað sunnudag- inn 15. ágúst vegna fjarveru sóknar- presýsins.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.