Dagur - 12.08.1943, Qupperneq 3
Fimmtudaginn 12. ágúst 1943
DAGUR
3
Hulda Benedikts-
dóttir
Fædd 2. febxiiar 1911.
Dáin 8. júlí 1943.
Blómkerið gullna er brostið,
og bliknuð liljan mín.
— Minningin er sú angan,
sem aldrei breytist né dvín.
* *
Þú hlýddir á skóhljóð í húrni,
þá hvíldin var öðrum vær.
Þú fannst með dvínandi degi,
að dauðinn þokaðist nær.
Án ótta, en ætíð með lotning,
þá allt var kyrrt og hljótt,
á fótatak hans þú hlýddir,
sem hefir þig unga sótt.
Til þess þarf hreinan huga
og heilbrigðrar sálar þrótt,
því löng er sjúkum og sárum
hin svartbrýnda andvökunótt.
Þú beiðst, unz hinn bleiki gestur
brjóst þitt sprotanum snart.
Og næturhúmið hljóða
um hvíluna þína varð bjart.
* *
Engli með ásýnd bjarta
réttirðu hægri hönd.
Frá lífi til lífs ertu gengin
að ljóssins furðusti'önd.
Sá friður, sem öllu er æðri,
og veröld fær ekki veitt,
er þeirra, sem deyja í drottni
og drottinn sinn elska heitt.
* *
Þótt blómkerið gullna bresti
og blikni liljan mín,
Drottinn! um aldir alda
er elskan og náðin þín.
F. H. B.
hefir náin kynni af þessum málum,
hefir tvö undanfarin ár haft á hendi
fræðslueftirlit fyrir Norðlendinga-
fjórðung og ferðast um öll skólahverfi
þar. Auk þess hefir hann langa
reynslu að baki í skólamólum.
Lausn þessara vandamála er ná-
tengd framtíð og hamingju íslenzku
byggðanna.
Jarðarför BRYNHILDAR BOGADÓTTUR, sem andaðist 6.
þ. m., hefst með bæn frá heimili hinnar látnu, Norðurgötu 36, Ak-
ureyri, föstudaginn 13. ágúst, kl. 1.30 e. h. — Jarðað verður að
Kaupangi.
Vandamenn.
Jarðarför sonar okkar, JÓNS GUÐJÓNSSONAR, Hreiðarstöð-
um, fer fram laugardaginn 14. ágúst frá heimili hins látna, kl. 1 e.h.
Anna Jónsdóttir. Guðjón Daníelsson.
VIÐSKIPTAMENN
vorir eru beðnir að skila pöntunum sínum á S í L D A R-
M J Ö L I fyiir 20. ágúst n.k. á skrifstofu vora.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
ÞURRKUÐ EPLI
fyrirliggjandi. — Kaupið þau, áður en það verður um seinan.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
NÝLENDUVÖRUDEILD
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi ltámarksverð á reykt-
urn laxi í smásölu:
í heilum eða hálfum laxi kr.17.25 pr. kg.
í bútum ............. kr. 19.50 pr. kg.
í sneiðum ........... kr. 24.00 pr. kg.
Ákvæði tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og
með 5. ágúst 1943.
Reykjavík, 28. júlí 1943.
Verðlagsstjórinn.
sýnir í kvöld kl. 9:
Fljótandi gull
Föstudag kl. 9:
r
Utlagarnir f rá Dakota
Laugardag kl. 9:
Fljótandi gull
Sunnudag kl. 3:
Smámyndir
fvl. 5:
Fljótandi gull
fvl. 9:
r
Utlagarnir f rá Dakota
Góður frakki
;1 meðalmann, til sölu
með tækifærisverði.
Gufupressun Akureyrar.
í b ú Ð.
Maður í fastri stöðu, með
þrennt í heimili, óskar eftir íbúð
frá 1. okt. n.k. — Fyrirfram-
greiðsla, ef óskað er. — Upplýs-
hjá afgreiðslu blaðsins.
að leggja byggðina í eyði og koma allri þjóðinni fyrir í kaupstöð-
um og þorpum á sjávarbakkanum. Með því eina inóti telja komm-
únistar sig örugga um trygga valdaaðstöðu í landinu. Þeir óttast
mest mátt bændastéttarinnar, ef hún stendur saman um rétt sinn.
Þeif vita, að bændurnir eru vanir átökum við harðhenta náttúru
og geta fylgt dæmi Ófeigs í Skörðum ef því er að skipta.
Kommúnistarnir hafa unriið skipulega að eyðingu sveitanna
mörg undanfarin ár. Rithöfundar þeirra hafa ár eftir ár lýst
byggðunum og því fólki, sem þar býr á liinn hraklegasta hátt.
Þegar bændur töluðu saman var hundahreinsun eða eitthvert
þvílíkt stórmál aðalatriðið. Stundum var svo mögnuð ólykt af
heimasætunni, að hundar hnerruðu ef þeir komu í nánd. Annað
fólk var eftir þessu.
Ef bóndi á íslandi byggði sér fátæklegt býli með éigin atorku,
þá var hann hlægilegur bjánj. Ef sami bóndi byggði með aðstoð
þjóðfélagsins hús úr steinsteypu, þá var hann enn hlægilegri fyrir
það. Síðan byrjuðu kommúnistar að senda bændum bækur sínar
og tímarit. í skjóli við úrvalsljóð eftir Stephan G. Stephansson og
sögurit eftir Sigurð Nordal læddu forystumenn kommúnista inn
á heimili sveitafólks, sem þeir ætla að koma á liálan ís, eins konar
fí'æðiritgerðum, að landið væri lítt hæft til búskapar. Bústofn ís-
lendinga væri liinn vesalasti. íslenzkt kjöt og rnjólk tæplega
hundamatur. Vinnubrögð sveitamanna væru hin lélegustu.
Menning sveitanna orðin lítils eða einskis virði. Á þennan hátt
átti að brjóta niður í augum sveitafólksins trú á gildi byggðanna
og koma í þess stað inn i hugi þess vantrú og lítilsvirðingu á öllu,
sem kom byggðunum við. Kommúnistum þótti ekki nóg að gera
sem minnstan veg þeirra.sveitamanna, sem nú lifa. Þeir leituðu
aftur til fornaldarinnar. íslendingasögur, Edda og Heimskringla
voru ritaðar í íslenzku byggðunum. Sú staðreynd mátti ekki vekja
trú fólksins á að byggðin hefði varanlegt gildi. Þess vegna tóku
kommúnistar upp á því að gefa íslendingasögur út í afbökuðu
formi, létu fylgja afþáralegar skrípamyndir af söguhetjunum,
bæði konum og körlum. Með þessu rnóti átti að vekja sams konar
óbeit og lítilsvirðingu á sveitafólki fornaldarinnar og sveita-
menningu þeirra alda eins og bændafólkinu sem nú lifir. í sama
skyni er það gert, þegar kommúnistar neita að Snorri Sturluson
hafi verið íslenzkur bóndi og þegar þeir níðast á því nútíma-
skáldi, sem ort hefir ódauðlegt hvatningarljóð til fólksins í byggð-
unum, eins og glögglega kom fram við síðustu skiptingu á ríkis-
verðlaunum til rithöfunda. Að lokum hafa kommúnistar sagt
samvinnufélögum landsins stríð á hendur og byrjað þar fimmtu-
herdeildarstarfsemi, þótt lítinn árangur hafi borið.
Hernaður kommúnista gegn íslenzku dreifbýli er þáttur í alls-
herjarsóknaraðgerðum byltingaflokksins. Gereyðing dreifbýlisins
er stefnumarkið, af því að íslenzk sveit getur aldrei orðið lyfti-
stöng fyrir sameignarbúskap. í stað þess á að koma véliðjuræktun
við kaupstaðina, með Korpúlfsstaði sem fyrirmynd, af því að lífs-
kjörin á því stóra heimili eru þroskavænleg fyrir kommana.
Sveitin má ekki fá nema sem minnstan stuðning frá samfélaginu
svo að hún komist sem fyrst í eyði. Efling dýrtíðarinnar er þáttur
í þessari viðleitni. Hrakdómslýsingar af sveitafólkinu og kjörum
þess er annarr þáttur. Svokallaðar fræðiritgerðir um ræfildóm
byggðanna í einu og öllu eru þriðja sóknargagnið, en hið fjórða
er krafan um eyðileggingu samvinnufélaganna, af því að þau
hafa orðið lyftistöng sveitalílsins um tveggja mannsaldra skeið.
Kommúnistar óttast samtök íslenzkra bænda framar öllu öðru
og fara ekki dult með það 1 blöðum sínum. Þeim mun verða að
trú sinni. Sú byggð, sem dafnað hefir í dölum og á ströndum ís-
lands í þúsund ár mun ekki líða undir lok fyrir moldvörpustarf-
semi og fimmtudeildarbrögð kommúnista. Hér á landi verður
búskapurinn aldrei þjóðnýttur. íslenzkar byggðir munu á ókomn-
um árum verða afltaug þjóðarinnar eins og hingað til. Sendi-
sveinar kommúnista, sem ætlað er að draga lokur frá hurðurn í
sviksemis skyni, munu falla óhelgir á verkum sínum eins og títt
var um þess háttar afbrotamenn í fornum sið,
Milli fialls og fjöru
Koramúnistar hafa nú hafið sókn á
tveim víglínum, til að bæta úr dýrtíðinni.
Múrarar i Rvík voru búnir að koma
kaupi sínu upp í ca. 200 kr. á dag. Að lil-
hlutun ríkisstjórnarinnar voru sett há-
marksákvæði, sem dró nokkuð úr hófleysi
um kaup múrara. Þeir brugðu þá við og
* lögðu niður vinnu, og töldu sig fara í
sumarfrí. Sennilega hættir öll bygginga-
vinna í Reykjavík, og það því fremur, sem
skortur er á byggingarvötum. Litlu síðar
brugðu konifnúnistar á Siglufirði á leik
og létu rúmlega 20 menn, sem gæta elda
í ríkisverksmiðjunum hætta vinnu skyndi-
lega og heimta „kjarabætur". Eru þetta
önnur samningsrof kyndaranna í verk-
smiðjunum á þesstt sumri. Alltaf brugðið
við að stöðva vinnu, þegar mikil síld er
í þrónum, til að geta gerL sem mestan
skaða.Ef eitthvert kaupafólk væri á sveita-
bæjum, myndu kommúnistar skipa því að
fara í spariföt á morgnum einsýnna
þurrkdaga, og heimta kjarabætur af
bændum.
ns
Eftir nokkra daga sezt Alþingi á rök-
stóla. Fróðlegt vcrður að vita, hvort ;i-
hugamenn í ölltim þrem borgaralegu
flokkunum verða jafn fúsir að ganga í
stjórnmálasæng með óvinum atvinnulífs-
ins, eins og í haust sem leið.
Tveir dánir menn tefla nú um lán og
líf Alþýðuflokksins. Annars vegar er Hin-
rik Iljelke, höfuðsmaður Dana, er sveigði
Islendinga með vopnavaldi í Kópavogi
undir skaðsamlegt veldi danskra konunga.
Hins vegar er Jón Baldvinsson, hinn ný-
látni íoringi Alþýðuflokksins, sem var
hinn eindregnasti frelsisvinur. Jón Bald-
vinsson lét flokk sin heita því á Alþingi
1928, að vinna að afnámi hins danska
konungdæmis á íslandi eigi síðar en þegar
sáttmálinn frá 1918 væri útrunninn til
fulls, en það er unt næstu áramót. Jón
Baldvinsson átti mikinn þátt í, að skiln-
aðarmálið var tekið upp með miklum
dugnaði á Alþingi 1937. Kópavogshöfðing-
inn, Hinrik Bjelke, hefir í bili náð valdi
yfir aðstoðarkaupamanni við Alþýðublað-
ið, Jóni nokkrum Blöndal. En ósennilegt
þykir, að giftuleysi þess viðvanings verði
þyngra á metunum en fordæmi og fyrir-
lag Jóns Baldvinssonar.
Skólastjóri garðyrkjuskólans á Reykjum,
Unnsteinn Ólafsson frá Ásgeirsá í Húna-
þingi hefir nolað gamlar bændaaðferðir í
skólastjórn sinni. Garðyrkjuskólinn var
stofnaður á tímum, þegar Alþingi liafði
mikinn framfaraályiga, en litla peninga.
Margir ungir menn, sem á þeinr tíma og
stðar hafa gengið í þjónuslu landsins við
ný fyrirtæki, hafa verið fjárfrekir í mesta
lagi við ríkið. Unnsteinn Ólafsson fór
öðruvfsi að. Hann hefir lagt meginstund
á, að koma garðyrkjuskólanum áleiðis
með þvi að vinna sem allra mest sjálfur,
og ætlast til rnikils starfs og áhuga af
nemendum. Á fáum árum er Unnsteinn
búinn að koma upp mörgum ágætum
gróðurhúsum með vinnu sinni og pilta
sinna. Hefir ríkið þurft tiltölulega minna
fram að feggja á Reykjum en við nokkrar
aðrar umbótaframkvæmdir á þess vegum.
Af ]>\ í að framkoma Unnsteins er svo ó-
venjuleg, þar sem hann leggur mcst á sig,
nokkttð á samstarfsmenn sfna, en minnst
á ríkissjóð, hafa latir menn og vitgrannir
tekið saman ráð sín um að lortryggja
þessi gamaldags vinnubrögð. Verður gam-
an að vita, livort þjóðin metur meira
framsýni og óeigingirni hins unga skóla-
stjóra, eða gagnstæða eiginleika hjá af-
brýðisömum óvildarmönnum. J. J.
Bókagjafir til bókasafns
Kristneshælis
Bókasafn sjúklinga í Kristnesi hef-
ir nýlega borizt rausnarlegar gjafir
frá þeim: Eggert Stefánssyni, heild-
sala, er sendi því ca. 20 bindi af
skáldsögum eftir ýmsa höfunda, og
Otto Tulinius, fyrrv. útgerðarm., sem
faerði safninu kr. 100.00 í peningum.
Béðum þessum mætu Akureyringum
vottum við innilegt þakklæti fyrir
téðan stuðning við bókasafn okkar
og þá.hugulsemi og vinsemd, er þeir
jafnframt sýna sjúklingum hælisins.
Kristneshæli, 10. ágúst 1943.
F. h. Bókasafns Kristneshælis.
B ókasafnsnefndin.