Dagur - 12.08.1943, Blaðsíða 4

Dagur - 12.08.1943, Blaðsíða 4
4 DAGUR Fimmtudaginn 12. ágúst 1943. ÚR BÆ OG BYGGÐ Messur í Möðruvallaprestakalli: Bakka, sunnudaginn_22. ágúst, Myrk- á, sunnudaginn 29. ágúst, Glsesibæ, sunnudaginn 5. sept., Möðruvöllum, sunnudaginn 12. sept. Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam- an í hjónaband ungfrú Guðrún Frið- riksdóttir frá Efri-Hólum í Núpa- sveit og Steingrímur Bernharðsson (Stefánssonar alþm.), kennari. Dánardægur. Þann 1. þ. m. andað- ist hér í bæ Guðbjörg Jonsdottir, komin á níræðisaldur. Var hun eigin- kona Sigurjóns Þorkelssonar fyrrum bónda í Holti í Grundarsókn. Þau hjón eiga uppkomna syni hér í bæ, og auk þess á Guðbjörg roskna dóttur í Ameríku. Ferðafélaé Akureyrar og Hesta- mannafélagið Léttir raðgera sameig- inlega skemmtiferð um næstu helgi suður í Djúpadal. Síðdegis á laugar- dag verður farið á hestum að Árgerði og gist þar. Á sunnudagsmorgun verð- ur ekið á bílum frá Akureyri að Ár- gerði og síðan að Stóra-Dal og útvega félögin nokkra hesta á þessum bæj- um, til þess að þátttakendur geti far- ið á hestum suður um dalinn að eyði- bæjunum Strjúgsá og Kambfelli og ýmsum fornum seljum. Á þessum tlóðum er landslag víða stórfenglegt. Karl Siéurðsson bóndi á Drafla- stöðum í Fnjóskadal ó sjötugsafmæli n. k. föstudag, 13. þ. m. Virminéar í happdrætti Arskóéar- akóla: Dregið var hjá sýslumanninum í Eyjafjarðarsýslu 15. júlí 1943. Upp komu þessi númer: 27 Skíði. , 127 Bílferð milli Akureyrar og Akraness. , 217 Skjalataska. 466 Fótbolti. 602 Lindarpenni. 1331 25 kr. í peningum. 1447 50 kr. í peningum. 1708 6 silfurskeiðar. 1852 Fótboltaskór. 1870 Myndavél. 2191 12 manna kaffistell. 3214 Ávaxtastell. 3371 Kaffidúkur. 4021 Peningaveski. 4998 Saumavél. 5314 2 stoppaðir stólar. 5442 Skinnlúffur. 5488 Skinnhanzkar. 5599 Flugferð milli Akureyrar og Reykjavíkur. 5858 Dömuveski. Þeir, sem hafa í höndum vinnings- miða, snúi sér hið fyrsta til Jóhann- esar Óla, Árskógi, Árskógarströnd. Sími: Krossar, sem afgreiðir vinning- ana. Verði einhverra vinninga ekki vitjað,. áður en 3 mánuðir eru liðnir frá dráttardegi, falla vinningarnir happdrættinu sjálfu. Barnastúkan Samúð og Bernskan fara skemmtiferð í Reykjahverfi n.k. sunnudag, ef veður leyfir. — Þeir fé- lagar, sem ætla að taka þátt í ferð- inni, verða að tilkynna gæzlumönnum það fyrir föstudaéskvöld. Fargjald verður væntanlega 10—15 krónur. Kirkjuhljómleika hélt Eééert Stefánsson söngvari í Matthíasar- kirkju fimmtudaginn 5. þ. m. og end- urtók þá á þriðjudagskvöldið í þess- ari viku. Á söngskránni voru 14 lög eftir erlend og innlend tónskóld. Við hljóðfærið var Jakob Tryéévason organleikari, og lék hann einnig ein- leik tvö tónverk eftir Bach, Kóralfor- spil og fúgu í h-moll. Áheyrendur voru ekki margir, en munu hafa skemmt sér vel. „Alþýðumaðurinn" hér í bæ sagði um fyrri hljónjleikana, að það sé „mál áheyrenda, að þessir hljómleikar hafi verið einir þeir beztu og hetjulegustu, er Eggert hefir hald- ið hér“, og má vel vera að svo sé. Og hetjulegur var Eggert á síðari hljóm- leikunum líka. TILKYNNING til timburinnflytjenda Þeir, sem hafa í hyggju að festa kaup á tintbri í Ameríku, til innflutnings á síðari hluta þessa árs og fyrstu mánuðum næsta árs, þurfa að senda Viðskiptaráðinu umsóknir um gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir timbrinu fyrir 15. þ. m. Taka skal fram í umsóknum magn og áætlað verð. Einnig hvort um harðvið, furu eða krossvið o. þ. h. unnið timbur er að ræða. 6. ágúst 1943. VIÐSKIPTARÁÐIÐ TILKYNNING FRÁ DÓMSMÁLARÁÐUNEYTINU. Athygli almennings skal vakin á því, að óheimil för inn á bannsvæði herstjórnar eða óheimil dvöl þar varðar sektum, varðhaldi eða fangelsi, nema þyngri refsing liggi við að lögum, enda hafi bannsvæði verið auglýst og sé það afgirt eða för inn á það eða um það bönnuð með merkjum eða með öðrum glöggum hætti, sbr. lög nr. 60, 1943. DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 5. ági'ist 1943. STRIGASKÓR \ í öllum stærðum, nýkomnir. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA SKÓDEILD B0K HEIMILANNA Heilsurækt og mannamein, heitir ný bók, sem kernur út í haust. Er hún að mestu leyti sniðin eftir nýrri, amerískri lækningabók, og hafa 18 þekktir íslenzkir læknar unnið að henni. Bókin á að miðla þekkingu á læknisfræði nútímans og heilsuvernd. Er þess vegna ómissandi á hverju heimili. Áskriftarverð í bandi 95 kr. (Bókhlöðuverð 150 kr.). Tekið á móti áskrifendum í Fornsölunni Hafnarstræti 105. BALDVIN SIGVALDASON. „Heyrnarhjálp64 jTRINDREKI félagsins ,Heyrn- arhjálp', ungfrú Kristín Jónsdóttir frá Reykjavík, hefir verið á ferð hér um Norðurland undanfarnar vikur, til þess að gefa heyrnardaufu fólki kost á að reyna tæki þau, er félagið hef- ir útvegað frá Ameríku, og þeg- ar eru komin í notkun á nokkr- um stöðum. Dvaldist hún á Blönduósi, Sauðárkróki, Siglu- firði, Ólafsfirði, Akureyri og Húsavík, nokkra daga á flestum stöðunum. Alls vitjuðu hennar 119 manns og reyndu tækin 56 karl- ar og 63 konur. Reyndust 75 af þessum hóp að hafa nokkurt eða algert gagn að tækjunum (Sone- tone), en 44 virtust ýmist hafa þeirra lítið gagn eða ekki. Á Akureyri voru tækin reynd á alls 54 körlum og konum, og 29 reyndust að hafa þeirra nokk- urt eða gott gagn. Á Siglufirði varð árangurinn einna beztur. Af 21, sem komu þar til sköðun- ar fóru aðeins 5 erindisleysu. Erindrekinn tók við pöntun- um á 54 tækjum, og munu fleiri á eftir koma. Þeir, sem óska eftir að komast í samband við þennan félagsskap, snúi sér annað hvort til sóknarprests síns, eða beint til Félagsins Heyrnarhjálp í Reykjavík. Þó að heyrnartækin geti ekki öllum hjálpað hefir mjög margt heyrnarlítið fólk mikil not þeirra. Prýðin að brúnni. (Framh. af 2. síðu). ina, til viðbótar hinni stór- auknu atvinnu í landinu. Flokk- urinn fékk þessu ekki ráðið, og þegar svo var komið, að dýrtíð- ardraugnum var, illu heilli, leppt lausum og í algleyming í þjóðlífinu, var ekki eðlilegt né ^anngjarnt að ætlast til þess að Itvorki bændur né verkamenn ætu hjá og héldu að sér höncl- um í þeirn óþarfa og hættulega leik, sem þar með var hafinn en ekki endaður. ^LLVÍÐA á landinu hagar svo til, að stríð straumvötn falla um víða sanda eða sléttlendi. Erfitt er að brúa og beizla slíkar kemjur, og stundum hefir svo krið, þegar Jtað hefir verið eynt, að vötnin hafa flutt sig um set, undan brúnum, og hafa bá mannvirki þessi staðið ein eft- r á þurru landi, en farartálminn /erið jafn illur og ógreiður sem íður — en aðeins á öðrum stað. ?rýðin og gagnið að slíkum /egabótum hefir jafnan þótt tokkuð vafasamt. Kommúnistar hafa að vísu ítt verið kenndir við brúar- míði og vegabætur liér á landi ram að þessu. Slíkar umbætur - bæði í bókstaflegri merkingu ag í líkingum talað — hafa tíðast komið í hlut ann^rra manna og flokka. Þó hafa Jreir lengi og frá upphafi baksað við eina brúar- aníði: Þeir hafa reynt að brúa hina óstýrilátu elfi íslenzks at- v-innulífs á einn — og aðeins einn — hátt: með háurn kaup- töxtum á fínum pappir. Hitt hafa þeir svo látið sig litlu Hinir margeftirspurtfu, lieúnsfrægu SHEAFFER’S Lindarpennar og blýantar nýkomnir. Umboð á Akureyri: Bókaverzlunin EDDA Ferðatöskur ýmsar stærðir. Sjóstakkar Trollarabuxur Pöntunarfélagið. Gluggatjaldaefnin eru komin. Verzlunin Skemman Skipagötu 1. Vinnuskyrtur Vinnuskór (gúmmí) Vinnuvettlingar Sjóstakkar Vöruhús Akureyrar Tilboð óskast í 16 manna farþegabyrgi (,,Body“). Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Jóni Þorvaldssyni, Munkaþverárstræti 19, Ak., eða í síma 341. Tilboðum sé skilað eigi siðar en 18. þ. m. Réttur áskilinn að taka hvaða tilboði sein er, eða hafna öllum. Kaupum óskemmdar dósir undan neftóbaki (stærri tegundina) Sápuverksm. SJÖFN Regnhlífar Pöntunarfélagið. skipta, hvort sú elfur hefir breytt um farveg eða jafnvel þorrið með öllu. Það hefir helzt komið í hlut Framsóknarmanna að freista þess að halda þessu fallvatni í réttum farveg undir brúnni, Veita því til landsbóta á áður ófrjó svæði, og loks að beina þeyvindum góðvildar og samvinnu að fönnunum við upp- tök fljótsins, svo að eitthvert frjósamt vatnsmagn megi þó ávallt renna undir hinn fagra og skrautlega brúarsporð kommún- istanna. Sumum mönnum virð- ist, að ekki sé einsýnt, hvort þjóðinni hefði farnazt stórum verr, þótt nokkuð meiri vinna hefði verið lögð í þetta áveitu- starf, en minni áherzla lögð á skreytinguna og útflúrið á brúnni. J. Fr. ROTTUEITUR Stjörnu Apótek K.E.A. LANDLEIÐIR SUÐUR. (Framhald af 1. síðu). ekki ennþá haft dug til að yfir- stíga á skipulegan hátt, kemur mikill hluti vegakerfisins ekki að hálfu gagni nema yfir hásum- arið. Alla hina löngu vetrarmán- uði búa þúsundir landsmanna við svo lélegar samgöngur við aðra fjórðunga, að þær væru litlu verri, þótt enginn vegar- spotti hefði nokkru sinni verið lagður hér. Hér virðist ekki þurfa nema herzlumuninn, skipulegt átak og vilja samgöngumálastjórnarinn- ar til þess að búa betur að þeim, sem strjálbýlið byggja. Greiðfær leið til þess að lyfta einangrun- inni af J/essu liéraði og Jreim er næst liggja, er opin, ef vilji og dugur er fyrir hendi. NYTT! Krakkaskór Buxur Peysur Nærskyrtur, m. teg. Skriðföt Sokkar, fl. teg. Kjólar, fl. stærðir Smekkir Undirkjólar Kot, væntanl. m. næstu ferð VERZLUNIN L0ND0N Eyþór H. Tómasson. Sírni 359.. Tapazt hefir lauðstjörnóttur hestur, með hvltan annan afturhóf. Mark: heilrifað hægra, gagnbit- að vinstra. Sá, sem kynni að verða hans var, geri undirrituðum aðvart. Möðruvöllum í Hörgárdal, 10. 8. 1943. Gunnar Kristjánsson- Reölusamur ky^. skfftul O oskar eftir herbergi, einn eða ineð öðrum námsmanni. Trygg greiðsla. Upplýslngar í sím* 76.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.