Dagur - 24.05.1945, Side 5
Fimmtudagur 24. maí 1945
BAGUR
5
AF SJÓNARHÓLINORÐLENDINGS
Bakeldagerðin.
Á þessum björtu maídögum,
þegar veðurspáin lofar okkur
blíðviðri á degi hverjum, er fróð-
legt að athuga, hvernig viðrar í
pólitíkinni. Eg var nýlega að
glugga í hinn pólitíska veður-
vísir nýsköpunarstjórnarinnar —
Morgunblaðið. Mér sýndist vís-
irinn standa lágt. I5að var engu
líkara en hauststormarnir væru
þegar byrjaðir að næða um
glugga hússins við Austurstræti.
Lægðin og lágkúran virðast una
sér í því nágrenni, hvernig sem
viðrar í öðrum landshlutum.
Mér þótti það bera vott um, að
skammdegi „nýsköpunarinnar“
væri furðulega nálægt sólstöðun-
um í ríki náttúrunnar,. þegar
þetta blað eyðir enn 15 smá-
letursdálkum á skömmum tíma
til þess að reyna að smala bænd-
um og öðrum „útskæklalýð" inn
fyrir grindurnar. — Tíðarfarið
skapar manninn, segir brezkur
veðurspámaður, og má r^unar
segja, að það eigi ekki síður við
um hið pólitíska veðurfar, að
minnsta kosti hefir það áhrif á
skapsmunina. Um það vitnar
Morgunblaðið. Orðbragðið þar
verður því ljótara, sem nær dreg-
FOKDREIFAR.
(Framhald af 4. síðu).
isstjórnarinnar, sem um getur í klausu
þessari, og fer því að gerast harla tor-
veld réðgáta, hvernig hægt sé að reka
„skipulagða skemmdastarfsemi‘‘ gegn
því, sem aldrei hefir til verið — ann-
ars staðar enn á pappírnum!
Sæla er það, að landinn skyldi
vera drepinn!
rrOMMÚNISTABLÖÐIN eru ágæt-
lega samméla um, að það sé aíls-
endis óþörf tilfinningasemi og jafnvel
„þjónustu við bornamorðingjana“, er
önnur íslenzk blöð kalla það „hörmu-
leg tíðindi" o. s. frv., þegar íslenzkur
ríkisborgari og jafnframt nafnfrægt
skóld og rithöfundur, er myrtur án
dóms og laga í fjölmenni og á opin-
berum veitingastað úti í löndum.
Slíkar aðferðir eru kommúnistum vel
að skapi, enda eru blöð þeirra ekki
spör á að láta fögnuð sinn í ljósi og
dæma samlandann réttdræpan hverj-
um þeim, sem gera vill „menning-
unni“ þann greiða að stytta honum
aldur. En svo kemur bara gustur
bölvaðra staðreyndanna og sker úr
um það, að engar sakir hafa verið á
þeim dauða og fulltrúar stjórnar
þeirrar þjóðar, sem „Þjóðviljinn“
og „Verkamaðurinn“ hér höfðu að
órannsökuðu máli fullyrt, að hann
hefði unnið gegn, og tilkynna tíðlega
við líkbörur hans, að honum verði
reistur minnisvarði í heiðursskyni af
þessari sömu stjórn og þessari sömu
þjóð. En blessaðir verið þiðl Komm-
únistablöðin hafa svo sem ekkert að
skammast sín fyrir: Landinn er dauð-
ur og það er gott, því hugsanlegt var,
að hann hefði eitthvað brotið af sér
einhvem tíma, ef honum hefði orðið
lífs auðið og enginn sannur byltinga-
maður má veigra sér við því að kveða
upp dauðadóma, jafnvel ekki yfir
löndum sínum, sem þeir hafa hvorki
heyrt né séð eða vita hið minnsta um
málavöxtu. Nei, góðir hálsar! Dauður
er hann, og það er bæði kveifarlegt
og skammarlegt að súta slíkt smáræði
eða telja það eftir, þótt hann hafi sak-
laus verið. drepinn! Fari þeir bara sem
flestir sömu leiðina! Það sýnir aðeins,
að mikið stendur nú til við „hrein-
geminguna" í heiminum, »vo sem
vera ber!
ur skammdegi nýsköpunar-
skrumsins. Nú síðast eru þeir,
sem ekki hlýta liinni pólitísku
veðurvísun blaðsins, kallaðir
„spellvirkjar”' og „skemmdar-
verkamenn" og leggur blaðið
eindregið til, að stjórnin'losi sig
við þessa vandræðamenn á þann
hátt, sem nú er algengastur í Ev-
rópu. Mun mega til sanns vegar
færa, að nýsköpunin verði meira
en orðin tóm, ef þessi fyrirheit
verða framkvæmd.
En það hefir hent fleiri en þá
Morgunblaðsmenn, að kárna í
skapi, þegar haustrigningar
ganga í garð. Grettissaga mun
vera tiltæk þar á skrifstofunni.
Þar er sagt frá því, að Ásmundur
á Bjargi gerðist heitfengur mjög
er hausta tók. Fékk hann þá
Gretti syni sínum það starf, að
strjúka um bak sitt, og því fastar
vildi hann að strokið væri, sem
svalara blés um dali og skörð þar
vestra. Þeim fer eins, Morgun-
blaðsmönnum. Því meir, sem
svali staðreyndanna leikur um
nýsköpunarskrumið, því fastar
vilja þeir að bændur og aðrir
„útskæklamenn“ strjúki bak
stjórnarinnar. Væri þó synd að
segja, að nokkur vettlingatök
hefðu þar verið á áður. Það var
■til þess að eggja Eyfirðinga við'
bakeldagerðina,wsem Morgunbl.
birti hundaþúfupistilinn, sem
víðfrægur er. Ætlunin var, að
Iauma tréhesti inn fyrir varnar-
múra bændasamtakanna til þess
að blása þar að glóðum öfundar
og haturs. Takmarkið var sundr-
u.n kaupfélaganna og afnám
Framsóknarflokksins. Fyrr var
ekki nógu fast strokið um bakið
á Reykjavíkurhöfðingjunum. Eg
gat þess til, að þessj^ reiðskjóti
mundi verða gerður afturrækur
á Korpúlfsstaðatúnið. Þar er
sagður góður útigangur fyrir
gæðinga broddborgaranna. Þessi
von hefir ekki brugðizt.
„Óþekkti riddarinn“ í Mbl. hefir
fengið nýjan farkost, er hann
heldur norður um heiðar í annað
sinn. Svo geyst er nú farið á
hryssunni Kengálu, að ekkert hóf
er þar á. Riddarinn virðist hafa
fundið það í hinni fyrri ferð, að
samvinnumenn höfðu ullar-
kamba tiltæka, eins og Grettir
forðum, og skaplyndi til þess að
láta þá ganga ofan eftir bakinu á
slíkum útsendurum. Að minnsta
kosti hefir hann „hlaupið upp
og orðið óður við“ atlotin. Nú
nægja ekki illmælin og blekking-
arnar, heldur er stafprikið einn-
ig á lofti og því heitið, að ganga
milli bols og höfuðs á Framsókn-
armönnum og öðrum stjórnar-
andstæðingum. „Skemmdar-
verkamenn" og „spellvirkjar"
heita þeir á máli hans, og máls-
staður þeirra er „fjörbaugssök".
Minna kostar það ekki að vera í
stjórnarandstöðu á fyrsta ári hins
endurlieimta lýðveldis. Það voru
sannarlega orð í tíma töluð, sem
Bernharð Stefánsson viðhafði
hér í blaðinu fyrir skemmstu,
um einræðistóninn í stjórnar-
blöðunum. Aldrei hefir annað
eins ofstæki þekkzt á landi hér.
Landráðamenn er nafngift
,,Sjálfstæðis“lilaðsins, en „fasist-
ar“ hrópa konnnúnistar. Má með
sanni segja, að ekki hallist nú.
lengur á um málflutning þessara
flokka.
•
Það fer raunar að verða erfitt
að merkja hvorum flokknum,
kommúnistum eða sjálfstæðis-
mönnum, Kengáluriddarinn er
handgengari. Mönnum er enn í
fersku minni samþykkt komrn-
únistaflokksins frá 1942 um að
þrískipta samvinnufélögunum,
eftir stéttum, með valdboði. —
Þessi tillaga þeirra hefir ekki átt
að fagna fylgi annarra en æstustu
línudansara. Enginn annar af
stjórnarflokkunum hefir hingað
til ætlað sér þá dul, opinberlega,
að minnsta kosti, að knýja hana
fram. Það er því fyllilega þess
vert, að því sé gaumur gefinn af
samvinnumönnum um land allt,
er aðalmálgagn Sjálfstæðisflokks-
ins lýsir því yfir nú,. 15. þ .m., að
það sé fylgjandi þessari skipting-
arhugmynd kommúnista. Þarf
þá raunar ekki lengur vitna við
um tilgang þessara skrifa Morg-
unblaðsins. Yfirskynið er um-
hyggja fyrir bændum, en undir
býr sú ákvörðun flokksstjórnar-
innar, að knýja bændur til að
ganga inn í raðir stjórnarflokk-
anna, ella verði samtök þeirra
lögð í rústir með valdboði. TiL
frekari áréttingar leggur blaðið
til, að samtök eyfirzkra bænda
verði sett undir sérstakt ríkiseft-
irlit til þess að fyrirbyggja það,
að þeir, ásamt stéttarbræðrum
sínum um land allt, „taki fram
fyrir hendurnar á ríkinu" og fari
að verja eigin fé í að byggja
áburðarverksmiðju fyrir íslenzk-
an landbúnað. Það er málgagn
Eignaréttarflokksins hans Jóns
Pálmasonar, er svona mælir.
Hvernig lízt mönnum á framtíð
eignaréttarins í þjóðfélaginu, ef
það gengur glæpi næst, að ein-
staklingar og félög ráðizt af sjálfs-
dáðum í stórframkvæmdir fyrir
eigin reikning? „Aðrar stéttir
leita ásjár ríkisins", segir Mbl.
Það er fyrirmyndin. Framtak
einstaklinganna í einkarekstri og
samvinnu er til viðvörunar.
Þessi ummæli í sjálfstæðisblað-
inu eru ekki síður furðulegt fyr-
irbrigði en haustrigningarnar
við glugga Morgunblaðsins í
sumarbyrjun.
Þegar stjórnarflökkarnir vís-
uðu áburðarverksmiðjumálinu á
bug á síðasta þingi,varþví haldið
fram hér í blaðinu, að ástæðan
til þess væri að verulegu leyti sú,
að meirihlutanum, sem Reykja-
vík hefir komið sér upp innan
veggja Alþingishússins, hefði
þótt nokkur hætta á, að fyrirtæk-
ið yrði sétt utan lögsagnarum-
dæmis bæjarins. Sérfræðilegar at-
huganir höfðu bent á aðra stað-
reynd, er hagkvæmari þóttu. Það
verður nú ekki lengur um það
villzt, að þetta sjónarmið hafi
verið gildur þáttur í ákvörðun
Alþingis. Engin frambærileg
mótbára er fyrir hendi af Al-
þingis hálfu, að neita samvinnu-
félögunum um leyfi til þess að
reisa fyrirtækið, eftir að bændur
um land allt hafa óskað jjess og
boðizt til að leggja fram fé til
framkvæmdanna. Þó er Morgun-
blaðið byrjað að undirbúa það,
sem koma skal. Kengáluriddar-
inn lýsir fullum fjandskap við
þessa fyrirætlun bænda. Her-
stjórn Sjálfstæðisflokksins hefir í
Mbl. lýst aðdáun sinni á þessum
forríðara. Ummæli hans verða
því ekki sett utan við ábyrgð
flokksins. — Staðarákvörðun
Reykjavíkurhöfðingjanna fyrir
áburðarverksmiðjuna á að
standa óhögguð, ella verður mál-
ið barið niður. Þeir, sem vilja
reisa áburðarverksmiðju fyrir
eigið fé þar á landinu, sem hag-
kvæmast er, eru með því að svala
„metnaði" sínum og „minni-
máttarkennd". Öfund yfir „við-
gangi Reykjavíkur“ er lyftistöng-
in undir þessar fyrirætlanir, seg-
ir Mbl.
Hér ber allt að sama brunni.
Enn er ekki nægilegt storkið urn
bakið á forréttindaklíkunni og
Kveldúlfsvaldinu. Enn eiga
mannskræfurnar, sent enn hald-
ast við um breiðar byggðir lands-
ins, að standa sveittar við bak-
eldagerðina. Þeim, sem finnst
ærið heitt orðið um hönd og
vilja snúa sér að eigin búverk-
um, gengur ekkert til nema öf-
undin og illgirnin, segir Mbl.
Það vill svo vel til, að nú eru
fyrir hendi óyggjandi staðreynd-
ir um það, í hvaða eldaskála
glaðast hefir logað á undanförn-
um árum. Hér í blaðinu hefir
því verið haldið fram þráfald-
lega, að yfirgangur Reykjavíkur
í verzlunar- og siglingamálum
væri að draga allan níátt úr fólk-
inu úti um land til framkvæmda
og sjálfsbjargar. Verzlunin er
nær öll komin þangað. Lands-
menn verða að sækja undir högg
heildsala og stórgróðamanna þar
daglegt brauð og viðurværi.
Siglingamálunum hefir verið
komið þannig fyrir til hags fyrir
Reykjavíkurstefnuna, að bærinn
er orðin nær eina innflutnings-
höfn landsins, en sveitir og þorp
verða að gjalda ærinn skatt þang-
að í hafnargjöldum, umhleðslu-
gjöldum og heildsalaálagningu,
löglegri og ólöglegri. Hér hefir
ekki orðið nein smávegis bylting
síðan í stríðsbyrjun. í nýútkomn-
um verzlunartíðindum er greint
frá því, að í árslok 1943 hafi
Reykjavík haft nær 90% af inn-
flutningi landsins og hafði þessi
hlutfallstala af heildarinnflutn-
ingi landsins þá hækkað um
nærri 30% á þremur árum. Allir
aðrir staðir á landi hér, sem telja
þó 2/s þjóðarinnar, höfðu 10%
rösk af innflutningsmagninu í
árslok 1943 og er þá meðtalinn
innflutningur til síldarverk-
smiðjanna hér norðanlands, svo
sem kol og olía, en sá innflutn-
ingur nemur verulegum hluta a:
þessurn 10%. Samfara þessari
þróun varð vitaskuld önnur á
sama tímabili. Sextíu nýjar
heildverzlanir risu upp í höfuð-
staðnum og sízt mun þeim hafa
fækkað síðan. Á sama tíma verða
þau tíðindi, að fólki, sem vinnur
í opinberri þjónustu þar, fjölgar
svo, að það verður fleira en þeir,
sem stunda fiskveiðar, og starfs-
mannaskari þessara verzlana
allra er orðinn 1/5 bluti íbu-
anna. Samfara J:>essu kemur svo
alræði Reykjavíkur innan Al-
jingis eftir kjördæmabreytina;-
una 1942.
Andspyrnuna gegn þessari þró-
un, sem m. a. lýsir sér í undir-
búningi fjórðungsbandalága og
samtökum kaupstaðanna utan
Reykjavíkur, nefnir Mbl. öfund
yfir „viðgangi Reýkjavíkur". Þar
með er sýnt hverjar viðtökur við-
leitni fólksins úti urtr laiid til
þess að rétta sig úr kútnum og
taka í sínar hendur eðlilegan
skerf af verzlun landsmanna,
muni fá. Forréttindaklíkan syðra
og allt það lið, sem hefir viður-
væri sitt af viðhaldi J>essa farg-
ans, mun ekki ætla að sleppa
neinu af því, sem hrifsað hefir
verið úr höndum landsmanna á
undanförnum árum. — Heiftin
5égn samvinnufélögunum hefir
hlotið endurnæringu af þessum
baráttuhug.
Þau eru einu félagssamtökin í
'andinu, sem hafa ennþá afl og
vilja til þess að gera hér breyt-
ingu á. Mbl. virðist ekki ætla að
hirða um stefnumál flokks síns
um viðhald eignaréttar og per-
iónufrelsis, heldur gera ríkið að
allsherjar skildi til þess að brjóta
réttmætar kröfur landsmanna
um jafnrétti. „Aðrar stéttir leita
ásjár ríkisins," segir Kengálu-
burtreiðarmaðurinn, er bændur
ætla sér að ráða því sjálfir, hvað
þeir gera og hvernig þeir verja
þVí fé, sem þeir hafa eignast á
iiðnum árum. Það eru þessi sjón-
armið, sem virðast ráða í innsta
hring Sjálfstæðiseflokksins í
Reykjavfk. Landráðabrigzl til
Framsóknarmanna eru úr hand-
raða Jaessarar klíku. Það er aug-
Ijóst, að einskis verður svifist til
þess að halda í forréttindin í
lengstu lög.
•
Það er vonlaust verk fyrir
Mbl., að ætla sér að vinna mikið
fylgi fyrir þennan málstað úti
um byggðir landsins, hvaða
flokki sem menn fylgja þar. Það
er hætt við því, að svo muni fara
fyrir blaðinu, sem fyrir Ásmundi
á Bjargi, að „illt muni að treysta
merinni“ Kengálu og þótt það
orð hafi leikið á kostum hennar,
að hún væri „svo vís um veðr og
vatnagang" að aldrei brygðist,
getur Mbl. gengið að því sem
vísu, að hún muni leita h’éitn.
undir hús á Korpúlfsstöðum fyrr
en vonir þess standa til, með
burtreiðar-flugumanninn ein-
samlan í hnakknum.
Gamla rógsiðjan, blönduð
kommúnista-lævísi, mun hafa
þær afleiðingar einar að opna
augu æ fleiri landsmanna fyrir
þeim málum, sem hér er raun-
verulega deilt um, hvað sem
Mbl. hefir að yfirvarpi. Stærsta
mál allra byggða landsins nú, er
framsókn til jafnréttis um lífs-
kjör og afkomumöguleika. Með-
(Framhald ó 8. síðu).