Dagur - 24.05.1945, Side 7
Fimmtudagur 24. maí 1945
7
Ð AGUR
IíÁNÚIBOÐ
í dag og næstu daga tökum vér á móti pöntun-
um á allt að kr. 300.000.00 af skuldabréfum Siglu-
fjarðarkaupstaðar vegna Skeiðfossvirkjunarinnar.
Lánið er að upphæð kr. 2.500.000.00 og er af-
borgunarlaust árið 1945 og 1946, en greiðist síðan
með jöfnum afborgunum á 23 árum samkvæmt
útdrætti.
Skuldari hefir þó rétt til að segja láninu upp til
útborgunar eftir 2. janúar 1955.
Upphæð skuldabréfanna er kr. 5000.00 og kr.
1000.00 og bera þau 4% ársvexti, sem greiðast
eftir á 2. janúar ár hvert.
Landsbanki fslands annast greiðslu vaxta og út-
dreginna skuldabréfa.
Ríkisábyrgð er til tryggingar skilvísri og skað-
lausri greiðslu höfuðstóla og vaxta skuldabréfanna.
Skuldabréfin bera vexti 1. apríl s.l. og miðast
vaxtagreiðslan við það.
Pantanir verða afgreiddar í þeirri röð, sem þær
berast og verða bréfin seld fyrir nafnverð til
þeirra, sem gera pantanir fyrir 1. júní n.k., eftir
því sem upphæðin hrekkur til.
Fasteigna- & verðbréfasalan
(LÁRUS JÓHANNESSON, hrm.)
Suðurgötu 4 — Reykjavík — Símar 4314 og 3294
>Wm><H><B><H>*H>i><H><H><H><H><B><H><BKB><B>i><H><B><B>^^
AÐALFUNDUR
Flugfélags Islands h. f.
verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 31. maí, kl.
1.30 eftir hádegi.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
STJÓRNIN.
Smjörskömmtun
Mjólkursamlags K.E.A.
verður aukin um helming frá 1. júní n. k.
og þar til öðruvísi vejrður ákveðið. Smjör-
skömmtuninni verður hagað á sama hátt
og verið hefir, að öðru leyti en því, að út
á hvern 250 gramma skömmtunarseðil fást
500 gr.
■Akureyri, 16. maí 1945.
Mjólkursamlagið.
Aðvörun
Fjáreigendur á Akureyri eru hér með alvarlega minntir
á', að það er stranglega bannað að láta fé ganga laust innan-
bæjar. Sama gildir um annan kvikfénað, svo sem kýr og
hesta. — Skemmdir þær, sem slíkar gæzlulausar skepnur
valda, verða eigendur að greiða auk sekta, sb. VII. kafla
lögreglusamþykktar kaupstaðarins.
Akureyri1, 16. maí 1945.
♦ BÆJ ARSTJÓRI.
Gefið börnunum hinar hollu
Clapp’s niðursuðavörnr
Alls konar grænmeti
Mjög holl barnafæða
Kðupf jelag Eyf irðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.
4«545455554Í4«5«544545«5454555«45«55454«Í55455445«54555«54544$5545^
Bílferðir
milli Húsavíkur og Akureyrar
Vér höfum, eins og undanfarin ár, áætlunar-
ferðir milli Húsavíkur og Akureyrar tvo daga
í viku, mánudaga og föstudaga.
Farið er frá Húsavík kl. 8 f. m. og frá Akur-
eyri kl. 6 e. m.
Bíllinn flytur bæði fólk og vörur. Afgreiðsla
á Húsavík hjá oss, sími 31. Á Akureyri hjá
Bifreiðastöðinni Bifröst, sími 244.
Fólk, sem ætlar að fá far með bílnum austur,
panti það þar. Þangað ber einnig að skila
flutningi, sem óskað er eftir að verði fluttur
með bílnum. Sömuleiðis að spyrja þar eftir
sendingum, sem fólk á von á að fá héðan að
austan.
Húsavík, 11. maí 1945.
Kaupfélag Þingeyinga.
&4
Til Guðna Þorsteinssonar
hreppstjóra í Lundi á sjötugsaf-
mælii hans 1. maí 1945.
Vandi er á verði að standa,
vaka yfir lýðsins málum,
mörg því hafa mönnum orðið
misstig, á þeim vegi hálum.
Ólík viðhorf, allra vilja
erfitt muni til greina að taka,
svo að þá, sem fremstir fara,
fólkið oft um margt vill saka.
Heill sé þeim, sem heilir mega
hættustigu slíka ganga.
Heill sé þeim, sem tállaust traustið
trúlega fylgir æfi langa. —
Þú heíir notið þeirrar auðnu,
þú hefir urtnið vel og íengi,
á þann veg, að allar minjar
aðeins snerta hlýja strengi.
Heim í Lund á liðnum árum
Ijúf hefir mönnum gangan fundizt,
hér hefir minning yls og yndis
ætíð vitund gestsins bundizt.
Og á þessum merku mótum
minjadegi æfi þinnar,
færa memi þér fyllstu þakkir
falslaust vitni hlýju sinnar.
Óskir hníga að einu marki,
enginn þarí sinn hug að skoða:
að megirðu enn í starfi standa,
stýra á milli skers og boða. —
Um þig geislar Ijúfir leiki,
lánsældin þér krans sinn bindi,
sæla friðar, sólarhlýja
sveipi kvöldið tign og yrtdi.
Jórunn Ólaísdóttir, Sörlastöðum.
Ávalt fyrir-
Hattar
Húfur
Manchettskyrtur
Bindi
Nærföt
Sokkar
Sokkabönd
Axlabönd
Vasaklútar
Kaupfélag Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.
By F. H. Cumberworth
Billi
og
Balli
ABCMfM