Dagur - 04.04.1946, Side 5
Fimmtudaginn 4. apríl 1946
D A G U R
5
Frú
Dómhildur Jóhannesdóttir
Hinn 27. f. m. var til grafar
borin frá Akureyrarkirkju, frú
Dómhildur Jóhannesdóttir,
ekkja Magnúsar Kristjánssonar,
fjármálaráðherra. Jafnframt voru
þá um leið jarðsettar líkamsleif-
ar manns hennar, en hann and-
aðist í Kaupmannahöfn 8. des.
1928. Var líkið brennt, en duftið
sent heim og varðveitt hér.
Mikill mannfjöldi var við-
staddnr jarðarför þessara þjóð-
kunnu sæmdarhjóna. Vígslubisk-
upinn flutti bæn í heimahúsum
og ýtarlega mimjingarræðu í
kirkjunni. í heimahúsum voru
sungin minningarljóð, er ort
hafði Jóhanna Magnúsdóttir í
Ólafsfirði, dóttir þeirra hjóna.
Frú Dómhildur var fædd í
Yztuvík á Svalbarðsströnd 25.
júlí 1863. Voru foreldrar hennar
Jóhannes Jónsson l'rá Yztuvík og
kona hans, Jóhanna Jóhannes-
dóttir í Núpufelli. Til Akureyr-
ar fluttust foreldrar hennar árið
1871 og átti frú Dómhildur
heima hér í bænum óslitið síðan.
eða í 75 ár.
Dómhildur Jóhannesdóttir
giftist Magnúsi Kristjánssyni ár-
ið 1887. Stundaði hann þá verzl-
unarstörf hér í bænum, en síðar
varð hann kaupmaður, bæjarfull-
trúi og alþingismaður, og síðast
ráðherra. Þau hjón eignuðust 7
börn og lila þrjú þeirra: Kristín,
ógift, dvaldist með móður sinni,
Jóhanna, gift Árna Bergssyni,
kaupmanni í Ólafsfirði, og Frið-
rik héraðsdómsfögmaður, kvænt-
ur Fanneyju Guðmundsdóttur,
Akureyri.
Frú Dómhildur var um margt
óvenjuleg kona. Hún nant mik-
illa vinsælda og virðingar alla
tíð í bæ og héraði, sakir mann-
kosta og glæsimennsku. Með
henni er fallinn einn hinna
traustu stofna, er um langt skeið
settu svip á bæinn.
Hvað kostar maturinn?
Eftir Gunnar Jónsson, sjúkrahússgjaldkera.
c . 1
I hinum deglegu skrifum og ein. Verður nú gerð tilraun til að
finna út hvað þessar 3089 hita-
einingar kosta yfir árið.
Sundurliðuð neyzla á ári
(karlmannsíæði).
Segldúkur
tali um verðbólguna, eru það
fæðutegúndirnar, sem mest er
rætt um og Jaá aðallega landbún-
aðarafurðirnar. Eg hefi livergi
séð þess gerð glögg skil hvað
rnikill hluti af tekjum manna fer
til kaupa á þessum lífsnauðsynj-
um. Skal það nú hér lagt hlut-
laust fyrir til athugunar:
Lífeðlisfræðingarnir Sherman
og König o. fl. telja, að hitaein-
ingaþörf á sólarhring sé: (Sam-
anb. Árb. Læknafél. ísl.).
1. Andleg vinna, skrifstofu-
fólk, embættismenn o. s.
frv., 2200-2800. hitaein.
2. Hæg vinna, klæðskerar,
prentarar, kennarar, úr-
smiðir o. s. frv. 2600—2800
hitaein.
3. Miðlungs vinna, skósmið-
ir, bókbindarar, bakarar,
póstmenn, sendlar o. s.
frv), um 3000 hitaein.
4. Erfiðisvinna, málarar, tré-
smiðir, járnsmiðir o. s.
frv., 3400—3600 hitaein.
Nr. 4, 6, 7, 8, 9, 10 og 11.
Ávallt fyrirliggjandi!
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
KHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKHKHKHKHKhK
CHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHWHlHWHWHWHWHWHWHí
TIL SÖLU
Viljum selja matjurtagarð okkar við Brunná, ef viðunandi
boð fæst. Stærð ca. 1 dagslátta. Ágæt kartöflugeymsla á staðn-
um fyrir 80—100 tn. Útsæði getur fylgt, ef óskað er. Tilboðum
sé skilað fyrir 10. þ. m. — Réttur áskilinn að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum. Allar nánari upplýsingar gefa
undirritaðir.
Akureyri, 2. apríl 1946.
Gestur Jóhannesson.
Magnús Gíslason.
ÍKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKKKKHKKHKKHKHKÍ
WWHWHWHWHjiKHWHWHKHWKWHWHWHKHWHKHWHWHWHWHKHWHWHWWHWHj^
Fiður
Höfum fengið mjög gott enskt fiður,
af ýmsum grófleikum
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild
CHKHKHKHKHKHKHJIKHKHKHJíKHKHKHJIWKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK
bKhKhKhKhkhkhKhKhKhkhkhkhKhKhkhkhKhKhKhkhkhkhKhKhkhKC
Barnavagnar
Ódýrir barnavagnar, 3 tegundir
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild
KHKHKhKhKhKhKhKhKhKhkhKhKhKhKhkhKhKHKhKhKhKhKKhkhKhk
0.
r> Mjög erfið vinna
5000 hitaein.
4000-
Til þess nú að finna verð fæð-
istegundanna verður að finna út
hitagildi þeirra. Liggur rann-
sókn fyrir um Jiað efni í hinni
merkilegu bók „Mataræði og
heilsufar á íslandi" eftir dr. Júlí-
us Sigurjónsson.
Á opnu 42—43 í nefndri bók
sýnir tafla XXIII raunverulega
neyzlu í karlmannsfæði í 6 kaup-
stöðum og kauptúnum á íslandi.
— Sýnir rannsókn þessi, að
magn karlmannsfæðis í kaupstöð-
um hefir orðið 3089 hitaeining-
ar-á dag, en í sveitum 3553 hita-
Kr.
1. Mjólk 247,85 kg. á kr.
1/60 .................... 396.56
2. Smjör 5,66 kg. á 21/00 120,84
3. Kjöt 48,33 kg. á 10/85
styrkur 174/00 frádr. . . 350,38
4. Fiskur 94,94 kg. á 1/00 94,94
5. Síld 1,02 kg. á 1/50 . . . 1,53
6. Harðfisk. 4,12 kg. á 5/50 22,66
7. Slátur 10,77 kg. á 6/00 64,62
8. Jarðepli 80,30 kg. á 1/25 100,37
9. Rabarbari 4,27 kg. á 0/75 3,20
10. Kál 1,53 kg. á 3/00 .... 4,59
11. Ávextir 2,74 kg. á 6/00 16,44
12. Rúgbr. 32,47 kg. á 1/70 55,19
13. Hveitibrauð 54,79 kg. á
2/40 .................... 131,96
14. Sykur 27,16 kg. á 1/68 45,63
15. Hafragrjón 13,17 kg. á
1/27 ..................... 16,73
16. Egg 3,80 kg. á 15/00 . . 57,00
17. Smjörlíki 9,45 kg. á 5/00 47,25
18. Áskurður 5,58 kg. á 12/00 66,85
Kr. 1569,85
Hér er um ársneyzlu að ræða.
Fyrir Jaessar kr. 1569,85 fást
1,127,485 hitaeiningar, sem er
meðal ársneyzla karlmanns í
Jressum 6 kaupstöðum, eða 3089
hitaeiningar á dag. En við þetta
efni í fæðunni verður að bæta
ýmsu, svo sem kaffi, tei, kryddi
o. fl. og reiknast mér til að það
nenii um kr. 62,00 og verður sem
næst efni í karlmannsfæði kr.
1631,85 á ári eða kr. 4,47 á dag.
Út frá þessu má draga ýmsar
ályktanir. Til dæmis er vert að
athuga hvort verð á fæði er í
nokkru samræmi við þessar nið-
urstöður. Reglur virðast vanta
um Jrað ,hvað margar hitaeining-
ar fæðissölum er skylt að láta
fæðiskaupendur fá í daglegri
fæðu. Eins er það áberandi, live
misjafn matur er að gæðum og
tilbúningi á gisti- og matsölu-
stöðum í landinu, en er þó selt
fyrir sama verð. Væri Jrað Jress
vert, að setja reglur um þetta
með matseðlum.
Eg hefi haft fæðissölu í 21 ár
og hefir mér reynst að blöndun
fæðntegundanna væri mikilvægt
atriði í sambandi við kostnað og
ekki síður til þess að fæðið líkaði
vel.
Þá má af tölurn Jressum gera
sér dálitla grein fyrir Jjví, hve
mikill hluti af tekjum ínanna fer
til efniskaupa í fæði, og einnig,
hve mikill hluti fer til kaupa á
hinum margumdeildu, en hollu
fæðutegundum, sem landbúnað-
urinn leggur til. Mun láta nærri
að sú upphæð, sem fer til kaupa
á landbúnaðarafurðum í karl-
mannsfæði, ásamt verzlunar-
álagningu, kostnaði sláturhúsa,
mjólkurvinnslustöðva o. s. frv.,
sé um 1100 krónur, eða sem sam-
svarar einum fatnaði og einum
frakka, en saumalaun á þessar
tvær flíkur eru kr. 670,00.
Að síðustu má geta þessa til
samanburðar:
Efni í karlmannsfæði kostar
samkv. ofangreindu kr. 134,10 á
mánuði. Matsöluhúsin selja það
á kr. 480,00. Kostar matreiðslan
Jrá kr. 345,90 á mann. í karl-
inannsföt og frakka fer ull fyrir
kr. 69,50 ,en þegar þessar flíkur
eru fullgerðar kosta þær 1100 til
1200 krónur. Það sýnist því þess
vert, að gera leit að verðbólgunni
víðar en í herbúðum bænda-
stéttarinnar.
SWt^HKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKf
Stálvírar
5/8” og 2”
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeild
SWKhkhkhkhkhkhkkhkhkhkhkhkhkhkkkkhkhkhkhkhkhkhkhkh><«
JÍHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKKHKKKHKfttSHKKKKKKKKKKKKKKKKKKKK
Skotfæri
Haglaskot, nr. 12 og 16
Riffilskot
Messingpatrónur
Perlur
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Véla og varahlutadeild
MttHKKKHKKHKHKKKHKKKHKHKKKKHKKKHKKKHKKHKHK^^
5ÍHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKKHKHKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKH;
Kjólföt
nýkomin
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild
IKKKHKhKhKhkhkhKhKhKHKhKhKhKhKhkKHKhKhkKhKhkKKKhKKhKK
NÝJA BÍÓ
Finimtiidagskvöld kl. 9:
Gatan
Sænsk kvikmynd a£ skáldsögu
Ivar Lo-Johansson
Föstudagskvöld kl. 9:
Prinsessan og
sjóræninginn
Laugatdag kl. 6:
Kátir karlar
Laugardagskvöld kl. 9:
Gatan
Sunnudag kl. 3. 5 og 9:
Undir austrænum himni
Nýkomið
Hrökkbrauð
Mariekex, danskt
Sýróp í glösum
Hrísmjöl
Ávaxta Jelly
Marmelade
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild og útibú.