Dagur - 10.12.1947, Page 5

Dagur - 10.12.1947, Page 5
Miðvikudaginn 10. desember 1947 D A G U R 5 Frá bókamarkaðinum Loftur Guðmundsson: Þeir fundu lönd og leiðir. Þætt- ir úr sögu hafkönnunar og landaleita. Hlaðbúð. Rvík 1947. Þetta er önnur bók í bóka- flokki þeim, er Hlaðbúð gefur út og nefnir Væringja. í flokki þess- um eiga að birtast bækur, sem tileinkaðar eru hinni nýju kyn- slóð í landinu og eiga í senn að .vera henni til skemmtunar og fræðslu. í bók sinni segir Loftur rithöfundur Guðmundsson á ljósan og skemmtilegan hátt frá ævi og afrekum nokkurra hinna djörfustu, harðfengustu og þraut- seigustu sægai-pa og landkönn- uðar, svo sem Kólumbusi, Mag- ellan, Friðþjófi Nansen, Roald Amundsen, Sir Ernest Shackleton o. fl. er bókin prýdd fjölda mynda og snoturlega útgefin í hvívetna. Eva Hjálmarsdóttir: Það er gaman að lifa. — Bókaút- gáfan Norðri. Ak. 1947. Eva frá Stakkahlíð gaf í fyrra út bókina Hvítir vængir, sögur, ævintýri og ljóð, er sýndu skáld- hneigð hennar og fjölhæfni. Og nú kemur á ný frá hennar hendi allstórt safn af barnasögum, lið- lega 30 alls. Segir höfundur í for- mála, að sögurnar séu flestar sannar í öllum aðalatriðum og sums staðar orði til orðs. — „Mörgum kann að finnast það djarft af mér, sjúklingnum, að kalla bókina þetta, Gaman er að lifa, en tilfellið er, að það er gaman að lifa, jafnvel þó að mað- ur sé í sárum- og margt blási á móti Lífið er svo ríkt er fegurð, bara ef menn gefa sér tíma til að taka eftir því. Á eftir nóttu kem- ur dagur, sem ef til vill færir manni eitthvað gott og fagurt. --------Því miður get eg ekki skrifað sjálf nema endrum og eins.“ — Er þar skemmst frá að segja, að enginn sjúklegur böl- móðsbragur er heldur á þessari ágætU barnabók, heldur hið gagnstæða: Fagur og heilbrigður andi svífur þar yfir vötnum hug- Jjúfra bernskuminninga og hversdagslegra viðburða, ,er breytast í höndum Evu í heillandi ævintýri, er ljóma af látlausri einfeldni og heiðríku hjartalagi. Nolckrar fallegar Ijósmyndir af börnum og dýrum prýða kverið. Arthur Conan Doyle: Síð- asta galeiðan og fleiri sög- ur. Jónas Rafnar þýddi. — Útgefendur: Jónas og Halldór Rafnar. Ak. 1947. Höfundur þessa kvers var einn af kunnustu rithöfundur Breta á seinni tíð og auk þess heims- kunnur sálan-annsóknarmaður. Mesta frægð mun hann hafa hlotið fyrir leynilögreglusögur sínar, ævintýri Sherlock Holmes, sem þýddar hafa verið á íslenzku og njóta hér sem annars staðar mikilla vinsælda, svo sem al- kunnugt er. — Sögurnar sjö, sem nú hafa verið þýddar og gefnar út í fyrsta sinn hér á landi, eru hins vegar úr smásagnasafni, sem höf. kallaði „Sögur frá liðnum öldum“. Er þar á skemmtilegan og fróðlegan hátt brugðið upp lit- sterkum myndum af nokkrum þáttum menningar og atburða frá dögum Rómaveldis og þegar líður að endalokum þess. Eru sögur.þessar „spennandi“ á borð við hvern reyfara, en þó byggð- ar á traustum, sögulegum grunni. Er þar m. a. sagt frá hersetu Rómverja á Bretlandseyjum, inn- rás Húna í Austur-Evrópu, lífinu í hefbúðum Rómverja á dögum „hermannakeisaranna" og ýmsu fleiru, sem skemmtun og fróð- leikur er að. Þýðingin er lipur og röskleg Skautadrottningin Sonja Henie. Andrés Kristjáns- son þýddi og endursagði. Draupnisútgáfan. Reykja- vík 1947. Bók þessa ritaði Sonja Henie árið 1940. Rekur hún þar minn- ingar sínar frá bernskuárunum og allt til þess tíma, er hún hafði örugglega numið land í ævin- týraheimi kvikmyndanna, borg- inni við Kyrrahafið, og endar á brúðkaupi Sonju og Dan Topp- ings. Þýðandi bókarinnar segir svo í eftirmála: „— Saga Sonju ætti að vera kærkomið lestrar- efni öllum þeim, sem yndi hafa af skautaíþróttinni, en þó einkum ungum, íslenzkum stúlkum, er iðka skautaleik. Og vissulega er ferill þessarar glæsilegu íþfótta- konu lærdómsríkur og eftir- breytnisverður, ekki aðeins að því, er snertir iðkun hinnar fögru og hollu íþróttar, skautaleiksins, heldur er stefnufesta hennar og viljaþrek lýsandi fordæmi fyrir alla þá, sem stefna að settu marki, hvert svo sem það er.“ — Þýðingin virðist góð og bókin er prýdd fjölda mynda af skauta- drottningunni í alls konar stell- ingum og ýmsu fleiru, er snertir sögu hennar og íþrótt. S. N. Ilolck: Drengirnir í Mafeking. Andrés Krist- jánsson íslenzkaði. — Draupnisútgáfan. Reykja- vík 1947. Þótt þessi ágæta unglingabók sé skáldsaga, er hún þó reist á sögulegum grunni. Efni hennar er sótt í Búastríðið, og fjallar hún um vörn boi'garinnar Mafeking, er stjórnað var af Baden-Pawell, er síðai' varð heimskunnur sem höfundur og leiðtogi skátahreyf- ingai'innar. Stofnaði Baden-Paw- ell, sem þá var ungur höfuðsmað- ur í liði Breta, sveit drengja þar í borginni, er umsát Búa mséddi harðast á henni, og studdi sú sveit á margan þátt hina frækilegu vörn borgarinnar. Höfuðsmaður- inn valdi drengjunum kjörorðin: „Vertu viðbúinn“ og „Aldrei að gefast upp“, sem síðar urðu kjör- orð skátanna. Leikur naumast á tveim tungum, að rekja megi upphaf skátahreyfingarinnar til þessara atburða. Saga þessi er lipurlega þýdd á góða íslenzku og prýdd skemmtilegum teikningum eftir Baden-Pawell sjálfan, og frágangur' allur vandaður og smekklegur Er sagan ekki að- eins skemmtileg aflestrar, heldur MÓÐIR, KONA, MEYJA (Framhald af 4. síðu). En hvernig hefði verið hægt að afstýra þessu? Aðeins með því, að drengurinn hefði rétt út hend- ina og sýnt þar með, hvert hann ætlaði, það var öll kúnstin. Því geta ekki íslenzkir hjól- reiðamenn tekið upp þennan sið, finnst þeim það eitthvað hjákát- legar aðfarir, að rétta út hend- ina, aðeins til þess að vera viss um, að valda ekki slysi? Eg veit það að vísu ekki, en mér datt það í hug, aðeins vegna þess, að sjálf hefi eg orðið fyrir því að heyra stúlku segja: „O, það er svo asnalegt að vera að spenna hend- urnar svona út í loftið!“ Og nú langar mig til að spyrja að einu: Því er ekki skólabörn- unum kenndar almennar um- ferðareglur? Og því er ekki lög- reglan og hennar þegnar það strangir, að þeir fylgi eftir sínum eigin reglum og reglugerðum?“ ‘feif ' Sir A> - ‘ ÞAÐ ER ALVEG rétt hjá bréf- ritaranum, að bifreiðastjórar hér nota yfirleitt ekki leiðarörina, en hún mun þó vera á flestum bíl- um. Eftir því, sem eg bezt veit, eru þeir ekki skyldir til þess. — Ættu þeir að taka það upp hjá sjálfum sér, að nota hana, annars væri heldur ekkert athugavert við það, að skylda þá til þess. Þetta er ekki nema lítilfj örlegt handtak, en getur verið gangandi fólki og öðrum ökutækjum mik- ilsverð leiðbeining. Um umferða- reglurnar og barnaskólana er það að segja, að í nokkrum stærstu barnaskólunum, t. d. hér á Akur- eyri, munu kennarar leiðbeina börnum um helztu umferðaregl- ur, og barnaskólinn hér hefir um skeið haft svokallaða „umferða- viku“, og er þá sérstök áherzla lögð á þessa fræðslu, og er þetta til fyrirmyndar. En eg efast um að „leiðarörin“ komizt inn í þá fræðslu og væri þó þörf á því, ekki sízt fyrir drengi, sem gjarn- an bregða sér á bak reiðhjóli, — Bréfið hér að ofan er áminning, sem vert er að gefa gaum. FOKDREIFAR (Framhald af 4. sfðu). prentun er góð og frágangur í bezta lagi. Ríkisprentsmiðjan annaðist prentunina. Um höfund megintextans og eftirmálans er því miður ekki getið, en bókin mun vera gefin út á ábyrgð síma- málastjórnarinnar, enda lofar verkið meistarann. Amerísk Dósamjólk nýkomin Vöruhúsið h. f. Samkvæmiskjóll, á háa og granna stúlku, til sölu.. Uþpl. í síma 369. einnig svo hollt og heilbrigt lestr- arefni, að á betra verður naum- ast kosið ungum til handa. J. Fr. ÚR BÆ O □ Rún 594712106 = 2 Athv. - l. O. O. F. — 1291212814 — 9 —III KIRKJAN. Messað á Akureyri næstk. sunnudag kl 2 e. h. Sunnudagaskólinn kl. 11 f. h. Yngri deild, 5—6 ára, í kapell- unni. Eldri deild, 7—13 ára, í kirkjunni. Æskulýðsfundur næstk. sunnu- dag kl. 8.30 e. h. í kirkjunni. Til nýja sjúkrahússins: Áheit frá S. H. kr. 100. — Áheit frá S. B. kr. 100. — Áheit frá T S. kr. 50. — Áheit frá Steingerði Theodórs- dóttur kr. 50. — Áheit frá E. Ó. kr. 100. — Áheit frá N. N. kr. 10. — Gjöf frá Svölu kr. 500. — Gjöf frá S. K. kr. 100. — Með þökkum móttekið. G. Karl. Pétursson. Til nýja sjúkrahússins. Áheit frá B. Björnsdóttur kr. 50. Áheit frá Sigurbjörgu Guðnadóttur kr. 100. — Til minningar um Jenny Eyland frá eiginmanni og sonum kr. 3000. Með þökkum móttekið. G. Karl Pétursson. Trúlofun. Ungfrú Sveinbjörg Pétui'sdóttir frá Siglufii'ði og Sig- urður Haraldsson, iðnnemi, Ak- ureyri. Leiðrétting. Ranghermt var í síðasta blaði, er greint var frá bifreiðastjóranámskeiðinu, að Snæbjörn Þorleifsson hefði verið aðalkennari námskeiðsins. Hann veitti því forstöðu og sá um und- ii'búning, en Vilhjálmur Jónsson var aðalkennari. Leiðrétting. í frásögn í síðasta blaði af afmælishófi Geysis, féll niður, fyrir vangá, að geta um kveðjur og árnaðaróskir, er Geysir bárust frá. Karlakór Reykjavíkur, og Sverrir Pálsson flutti. Ársrit Skógræktarfélags íslands 1947 er nýlega komið út og hefir borizt hingað. í ritinu eru ýmsar greinar um skógræktarmál, með- al annars fróðleg grein eftir Há- kon Bjarnason um skóga í Fnjóskadal. Félagar í Skógrækt- arfélagi Eyfirðinga fá ársritið um leið og þeir greiða árgjald sitt, kr. 15,00. Geta menn vitjað þess til Þorst. Þorsteinssonar, sjúkra- samlagsskrifstofunni. — Styðjið skógræktarstarfsemina! Gangið í Skógræktarf gélagið! Hlín, ársrit norðlenzkra kvenna, 30. árg., er komin út fyrir nokkru og flytur að vanda mikinn fjölda ritgerða um hugðarefni kvenna. Ritið er 144 bls. að stærð. Ritstj. frk. Halldóra Bjarnadóttir. Heimili og skóli, sept.—okt. hefti 1947, flytur nl. a. þessar greinar: Uppeldi og ábyrgð, eftir Hannes J Magnússon, skólastj., Samvinnumöguleikar heimilis og skóla, eftir dr. Matthías Jónasson, Skólamál Kaupmannahafnar, eft- ir Ólaf Gunnarsson, Norrænt kennaranámskeið í Askov, efth' Eirík Sigurðsson, auk þess þætt- ina Ritstjórarabb, Til gamans og Úr ýmsum áttum o. fl. , Árbók Slysavarnafél. íslands 1947 hefir borizt blaðinu. Flytur margar greinar og frásagnir um hið merkilega starf félagsins og deilda þess og skýrslur um stai'f- semina á árinu 1946. Sjónarhæð. Sunnud.: Sunnu- dagaskólinn (skuggamyndir) kl. 1 e. h.; opinber samkoma kl. 5. — Þriðjud. kl. 8.30; laugard.: Biblíu- námsflokkurinn kl. 8.30. Allir velkomnir! Zíon. í kvöld (miðvikudag) kl. 8.30. Efnisskrá: Erindi, upplestur, tvísöngui', þrísöngur, orgelsóló. almennur söngur, kaffi. Sunnud. 14. þ. m. sunnudagaskólinn kl. 10.30 f h. Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir. St. Brynja nr. 99. Fundur í Skjaldborg n. k. mánudag 15. þ. m. kl. 8.30 e. h. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. Hagnefnd fræðir og skemmtii'. Frá Heimilisiðnaðarfélagi Norð- urlands. Næstk. sunnudag 14. GRYGGÐ des. verður höfð sýning frá sauma- og bókbandsnámskeiðum félagsins í Brekkugötu 3, kl. 2— 6 síðd. Allir velkomnii'. Barnastúkurnar Sakleysið og Bernskan halda fund n. k. sunnu- dag kl. 1 e. h. í Skjaldborg. Fund- arefni: Venjuleg fundarstörf, upplestrar, söngur og leikstykki. Karlakór Akureyrar hefir söng- skemmtun og Lucíuhátíð — með svipuðu sniði og í fyrra — næstk. laugardagskvöld kl. 9 e. h. í Nýja-Bíó. Einsöngvarar verða Guðrún Tómasdóttir, Sverrir Pálsson og Jóhann Konráðsson. Styrktarfélagar vitji aðgöngu- miða í Skóbúð KEA á fimmtudag og föstudag og greiði um leið framlag sitt fyrir árið 1948. Lesið götuauglýsingar! Hjónaband. Laugardaginn 6. desember voru gefin saman í hjónaband á Finnbogastöðum í Strandasýslu ungfrú Matthildur Sófusdóttir og Magnús Andrés- son, bóndi á Finnbogastöðum. Dánardægur. í fyrradag lézt að heimili sínu í Ólafsfirði Þoi'vald- ur Friðfinnsson útgerðarmaðui', héraðskunnur athafnamaður um langt skeið. Hann hafði átt við langvarandi vanheilsu að stríða. Vegna þrengsla bíður mjög mikið efni næsta blaðs. Kunnur Húsvíkingur látinn Húsavík í gær. Um hádegisbil í dag varð bráð- kvaddur að heimili sínu hér í bæ Tryggvi Indriðason fiskimats- maður, kunnur borgari um sex- tugt, vel virtur í héraði Samgöngur í Þingeyjarsýslu eru mjög erfiðar vegna snjóa og nálega hvergi fært bílum um héraðið. Bændur brjótast með mjólk sína á sleðum til mjólkur- búsins og hefur það nægt til neyzlu fyrir þorpsbúa. Kvikmyndir í bænum Nýja-Bíó sýnir um þessar mundir ameríska kvikmynd, sem heitir Jeríkó og leikur negra- söngvarinn heimskunni Poul Robeson aðalhlutverkið. Þessi mynd á sammerkt öðrum kvik- myndum ,sem frægir hljómlista- menn leika í, að hún er að efni til ómerkileg, en söngur og leikur Robesons heldur henni uppi. — Poul Robeson er mikill persónu- leiki og ágætur söngvari og leik- ari og er myndin þess virði að sjá hana hans vegna. — Skjaldborg- arbíó sýnir einnig ameríska kvik- mynd, þar sem heimsfrægur snillingur er með í spilinu. Er það píanóleikarinn Arthur Rubin- stein, sem leikur kunn tónverk í myndinni. Mikið er og af annarri góðri hljómlist í henni og að efni til mun hún skemmtileg, enda hefir hún hlotið óvenjulegar vin- sældir hér á landi, t. d. munu um 20 þúsund Reykvíkingar hafa séð hana, en hún var frumsýningar- mynd Austurbæjarbíós. — Dagur hefir leitað frétta hjá kvikmynda- húsunum um jólamyndir þeirra í ár. Líklegt má telja, að Skjald- borgarbíó sýni Töfrabogann, mynd um líf Paganini, en óráðið er um jólamynd Nýja-Bíós enn- þá.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.