Dagur - 10.08.1950, Blaðsíða 8

Dagur - 10.08.1950, Blaðsíða 8
8 Bagujr Fimmtudaginn 10. ágúst 1950 Norrænir verkfræðingar skoða verksmiðjur SÍS og KEÁ á Akureyri Kaupfélagsstjóri stærsta kaupfélags Finníands er einn þeirra Frá Krossanesverksmiðjunni Verksmiðjan hefur nú tekið á móti rúmum sex þúsund málum síldar. f vikunni sem leið, sat sam- vinnunefnd norrænna verkfræð- inga fund í Rvík. Að fundinum loknum ferðuðust fulltrúarnir nokkuð um landið og skoðuðu ýmsa merkisstaði. Síðastliðinn sunnudag flugu þeir til Akureyrar. Var aðallega ætlunin að skoða síldarsöltun og síldarvinnslu hér nyrðra. En svo óheppilega vildi til, að engin síld harst á land um þær mundir. — Jakob Frímannsson, fram- kvæmdarstjóri og Steinn Stein- sen, bæjarstjóri, tóku á móti verkfræðingunum hér. Dagur hafði tal af Jakob og spurðist fyrir um ferðir verk- fræðinganna. Þeir, sem komu hingað norður voru: Frá Finnlandi: Gunnar Hernberg, Erik Hedman og Ilmar Voionm, frá Danmörku: P. E. Malmström og Nils Lichtenberg, frá Svíþjóð. Oskar Akemab og Sven A. Hansson. Norðmennirnir gátu ekki komið með norður. í fylgd með erlendu verkfræðing- unum voru Helgi H. Eiríksson, verkfræðingur, og Gústaf A. Pálsson, form. Verkfræðingfafél. íslands. Verkfræðingarnir borðuðu há- degisverð á sunnudag í boði KEA. Síðan skoðuðu þeir verksmiðjur SÍS og KEA. Þá óku þeir til Krossaness og skoðuðu síldar- verksmiðjuna. Þeim fannst mikið til um verksmiðjurnar með hlið- sjón af smæð þjóðarinnar. Þeir voru ákaflega heppnir með flug- veður. Dáðust þeir mjög að hrikalegri fegurð hálendisins. Sérstaklega fannst þeim mikið til um jöklana. Þeir voru og mjög hrifnir af hinum mikla gróðri hér á Akureyri og í grenndinni. Ilmar Voionm, kaupfélagsstjóri stærsta kaupfélags Finnlands, Elanto í Helsinki, var sérlega hrifinn af samvinnubænum Ak- ureyri, sem hann kannaðist við. Fræddi hann hina útlendingana á ýmsu, sem hann vissi um bæinn og sérstaklega hina fjölþættu starfsemi samvinnumanna hér. Finnarnir og Danirnir fóru Píanóhljómleikar Þórunn S. Jóhannsdóttir held- ur hljómleika í Samkomuhúsi bæjarins í kvöld kl. 9 e. h. Aðgöngumiðar að hljómleikun- um verða seldir í Sportvöru- og hljóðfæraverzlun Akureyrar. Þórunn er mjög ung ennþá og talin mjög efnileg. Hún er sann- kallað undrabarn. Akureyringar ættu því ekki að láta farast fyrir að sækja þessa gagnmerku hljómleika. suður á mánudag, en Svíarnir og Helgi H. Eiríksson fóru austur til Húsavíkur og áfram hringinn um Ásbyrgi.og Dettifoss. Þeir komu til bæjarins í gærkvöldi og halda síðan suður. Enginn þessara manna hefur komið til íslands áður. Fagna þeir mjög að hafa fengið svo gott tækifæri til að skoða ísland. Þeii fara mjög miklum viðurkenning- arorðum um íslenzka verkfræð- inga, og þykja mörg mannvirki hér bera þess merki, að þeir séu fullfærir í sinni grein. Norðurlanda- skákkeppnin Norðurlandameistaramótið í skák stendur nú sem hæst í Reykjavík. í landsliðsflokki er Baldur Möller efstur með 6 vinninga. Guðjón M. Sigurðsson er næstur með 5Vz vinning. Þriðji er Vestöl, Noregi, með 5 vinninga og eina biðskák, sem spáð er, að verði jafntefli. Nú er skákmótinu senn lokið, aðeins ein umferð eftir. Þá tefla þeir Baldur og Norðmaður- inn Vestöl. Má búast við, að sú skák valdi úrslitum. Líkur benda til þess, að Baldri takist að verja titilinn, en hann er núver- andi meistari fyrir Norðui'lönd. í meistaraflokki er Friðrik Ol- afsson efstur með 6 vinninga. — Hann er yngsti keppandi móts- ins en einhver efnilegasti skák- maður Norðurlanda og þótt víð- ar væri leitað. Tilhögupn meistaramótsins. Meistaramót Akureyrar í frjálsum íþróttum fer fram á Þórsvellinum 18., 19., 20. og 21. ágúst næstkomandi. Föstudaginn 18. ágúst. Kl. 8: 100 m. hlaup, riðlar. — Kl. 8.30: 800 m. hlaup. — Kl. 8.45: 200 m. hlaup, riðl- ar. — Kl. 9: 80 m. hlaup kvenna, riðlar. Laugardaginn 19. ágúst. Kl. 3: Skrúðganga íþrótta- manna (þátttakenda) frá íþrótta- húsinu út á völl. Kl. 3.15: Hátíð sett: Ármann Dalmannsson, formaður í. B. A. Kl. 3.30: 100 m. hlaup, úrslit. Kringlukast, hástökk. Kl. 4.15: 1500 m. hlaup. Dauft yfir síldveiðun- um. Síld veiðist 27 míl- ur út af Glettinganesi Mjög dauft hefur verið y&r síldveiðunum seinustu daga. — Þoka hefur lagst yfir síldarmiðin, svo að til vandræða horfir. Elztu sjómenn muna ekki svo miklar þokur hér nyrðra ó þessum tíma. Þó mun aðeins rofa til annað veifið, en þá sést lítil síld. Virðist vera lítið af síld á yfirborðinu ennþá. Síldin hefur nær eingöngu veiðzt á austursvæðinu. Aðeins kast og kast á Grímseyjarsundi og varla vart vestar. Togarinn ísborg fékk 300 tunn- ur 27 mílur út af Glettinganesi, sem er skammt norðan við Seyð- isfjörð. Sjómenn eru vondaufir um góða vertíð héðan af, þótt dæmi séu að vísu til að mikið magn hafi veiðzt eftir miðjan ágúst. Bandarísk gagnsókn í Kóreu Undanfarna daga hafa geysað mjög harðir bardagar í Kóreu. Norður-Kóreumenn hafa lagt alla áherzlu á að hrekja Banda- ríkjamenn af skaganum, áður en þeim tekst að flytja nægilegt lið á land. Hafa norðanmenn beitt ógrynni liðs og orðið nokkuð ágengt á nokkrum hluta víglín- unnar. Hins vegar hafa Bandaríkja- menn og aðrir þeir, sem berjast í nafni Sameinuðu þjóðanna, hafið sína fyrstu gagnsókn. Hefur hún borið góðan árangur og má vænta þess að senn líði að þáttaskiptum í Kóreustyrjöldinni. Fréttamaður einn, sem staddur er í Kóreu segir, að ef Bandaríkjamenn geti varizt í einn mánuð í viðbót, sé sigurinn tryggur. Kl. 40.30: Langstökk, 80 m. hlaup kvenna, úrslit. Kl. 4.45: 400 m. hlaup. Kl. 5: 4x100 m. boðhlaup. Sunnudaginn 20. ágúst. Kl. 3.30: 200 m. hlaup, úrslit, stangarstökk, spjótkast. Kl. 4.15: 3000 m. hlaup, kúlu- varp kvenna. Kl. 4.45: Kúluvarp, þrístökk. Kl. 5: 4x400 m.' boðhlaup. Mánudaginn 21 .ágúst. Kl. 8: Fimmtarþraut. Að öllu forfallalausu verður keppni hagað eins og hér greinir. Væntanlegir þáttakendur eru hvattir til að geyma dagskrána. Verðlaun verða afhent á staðnum. Leikstjóri verður Tryggvi Þor- steinsson, íþróttakennari. Aflahæstu skipin hjá verk- smiðjunni eru: Snæfell, 1561 mál, Auður, 1087, Stjarnan, 890, Marz, 629, Eldey, 566, Otur, 425. Frá því togararnir hófu veiðar í verksmiðjuna í vor hafa þeir aflað af þorski og karfa: Kaldbakur 3938 smálestir Svalbakur 3555 smálestir Jörundur 2342 smálestir SEXTUGUR: Þorleifur Þorleifsson Fyrra sunnudag átti Þorleifur Þorleifsson ökukennari hér í bæ sextíu ára afmæli. Var hann þá staddur að sumarheimili sínu að Grænhól. Var gestkvæmt þar þann dag, svo sem von var til, því að Þorleifur er vinmargur í bæ og héraði. M. a. heimsóttu söngfélagar úr Karlakór Akur- eyrar afmælisbamið og heiðruðu það með söng, en sá félagsskapur hefur verið Þorleifi kær og í honum hefur hann lengi starfað. Onnur félagsmál hefur Þorleifur látið til sín tkaa. Hann hefur lengi verið ágætur starfskraftur í Framsóknarfélagi Akureyrar og um langa hríð stjórnað hinum vinsælu Framsóknarvistum fé- lagsins, og farið það sérlega vel og ánægjulega úr hendi. Dagur sendir hinum glaðværa og góða dreng beztu árnaðaróskir á þessum tímamótum í ævi hans. Laxárvirkjunin (Framhald af 1. síðu). bjóðandi og ákvað stjórnin að taka tilboði þess. Reiknað var með að ljúka mætti virkjuninni í árslok 1951 og var þá miðað við að vinna hefðist í byrjun maí sl. Verður enn stefnt að þessu marki, en þar sem nú er orðið áliðið sumars eru hins vegar líkur til þess að ekki takist að ljúka verkinu fyrr en sumarið 1952. Miðað við verðlagið síðastliðið vor er áætlað að virkjunin kosti 45 milljónir króna, þar af inn- lendur kostnaður 21,7 milljón kr. og erlendur kostnaður 23,3 millj. kr. Er innanlandsfjáröflun með þeim hætti, að Akureyrarbær leggur fram 3 millj. kr., en til- ætlunin er sú, að annað innlent fjármagn fáist úr mótviðrissjóði. Hvað erlenda fjáröflun snertir hefur þegar verið veitt lán frá Marshallstofnuninni að upphæð 18,1 millj. kr. til kaupa á aðalvél- um, rafbúnaði og fleira frá Bandaríkjunum og mismunurinn, 5,2 millj. kr.4 sem nota á til kaupa á efni í Evrópu, er ráðgert að fá annað hvort frá greiðslubanda- lagi Evrópu eða frá Alþjóða- bankanum. Fjörðum“, svo sem Látra-Björg um í fyrradag. F ramleiðsla verksmið j unnar nemur nú: 2000 málestir af mjöli, 300 smálestir af karfa- og þorska- lýsi og 120 smálestir af síldarlýsi. Bílfær vegur rudklur út „í Fjörðu“ Félagsskapur nokkur hér í bæ, er nefnist „Veiðimenn h.f.“ hefur tekizt á hendur að ryðja bílfæran veg úr Höfðahverfi um Leirdals- heiði út „í Fjörðu“. Hefur félag- ið látið starfa nokkuð að þessu með jarðýtu nú að undanförnu, og um mánaðamótin síðustu var svo komið, að bílfært var orðið frá Grýtubakka í Höfðahverfi út að innsta eyðibýli í Hvalvatns- firði, eða um 20 km. löng leið, og 30. júlí sl. var ekið á bifreiðinni A—9 þangað út eftir og mun það í fyrsta sinn, sem bíll kemur „í Fjörðu“. Bifreiðastjóri í þessari för var Árni Bjarnarson bóksali á Akureyri, en hann og Björn Halldórsson lögmaður á Akureyri önnuðust verkstjórn við vega- lagningu þessa fyrir sína hönd og annarra „Veiðimanna“. Mun fé- lagið hafa í hyggju að koma sér þarna upp veiðimannaskála og ryðja bílfæran veg víðar um þetta forna byggðarlag, sem nú er allt komið í eyði. Má það vel kallast nokkrum tíðindum sæta, að ferðamönnum opnast nú leið að sumarlagi út í þennan lítt kunna en veiðisæla útkjálka landsins, því að „fagurt er í Gjörðum", svo sem Látra-Björg kvað á sínum tíma. Danska ríkisstjórnin baðst lausnar í gær- morgun Ríkisstjóra Danmerkur lagði til, að aukið yrði mjög mikið framlag til hervarna. Var ætlun stjórnarinnar að afla fjárins með sköttum, tollum og lántökum. — Þingið álítur hins vegar réttara að láta kjósa um málið, þar sem fjáröflun þessi væri svo gífurlega mikil. Gerpir, júlíhefti, ný- komið Flytur m. a.: Kvæði eftir Jó- hannes Arngrímsson, Gullfossi heilsað, 30. maí 1950. Stéttabar- áttan, grein eftir Gunnl. Jónass. Seyðfirzkir hernámsþættir eftir Hjálmar Vilhjálmsson. Frá fyrri tímum eftir Sig. Vilhjálmsson. Ur Gerpisröstinni o .fl. Meistaramót Akureyrar í frjálsum íþróttum hefst 18. ágúst

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.