Dagur - 13.06.1951, Side 1
Akureyringar! Áskrift að
DEGI er nauðsyn fyrir hvert
heimili. Hringið í síma 1166.
Fimmta síðan:
„Elsku Rut“ á senunni á
Akureyri. — Heimsókn
Leikfélags Akureyrar.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 13. júní 1951
24. tbl.
r
Aðalfuiidur Utgerðarfélags Akureyringa:
Kaldbakur og Svaibakur fluffu
10 miiijón króna verðmæii
að landi á síðasflii
Ágæt afkoma togaraútgerðarimiar hér
stjórn þeirra allra reynst giftu-
samleg og kom glöggt í ljós á
fundinum, að þeir njóta allir
fyllsta trausts félagsins. Var Sæ-
mundur skipstjóri Harðbaks sér-
staklega hylltur á aðalfundinum,
en hann sat hann nú í fyrsta
sinn.
Þá réðist félagið í byggingu
fiskverkunarstöðvar og er hún
mikið mannvirki, grunnflötur
1210 fermetrar. Er kostnaður við
byggingu þessa þegar orðinn nær
1 millj. króna, en henni ekki
lokið, enda þótt hluti hennar sé
tekinn í notkun. Netahnýtingar-
verkstæði félagsins starfaði með
svipuðu sniði og undanfarin ár.
Kosningar — forustumönnum
þakkað.
Á fundinum kvaddi sér hljóðs
Gísli Kristjánsson útgerðarmað-
ur og flutti framkvæmdastjóra
félagsins, Guðmundi Guðmunds-
syni, stjórn þess, yfirmönnum
togaranna, skipshöfnum þeirra
og öðru starsfólki félagsins þakk-
ir fyrir ágætlega unnin störf. —
Stjórn félagsins og endurskoð-
endur voru endurkosnir. Fram-
kvæmdastjóri félagsins þakkaði
öllum, sem stutt höfðu félagið á
árinu, og beindi þó einkum máli
sínu til Sæmundar Auðunssonar
skipstjóra, og tóku fundarmenn
undir með lófataki.
Örlög hans ákveðin
á sunnudaginn
Á sunnudaginn fara fram al-
mennar þingkosningar í Frakk-
landi og býður flokkur de Gaulle
hershöfðingja fram í nær öllum
kjördæmum. Takist hershöfð-
ingjanum ekki að tryggja sér öfl-
ugt fylgi á þingi nú, eru pólitísk
örlög hans talin ráðin og útséð
um að hann nái nokkru sinni
völdum í Frakklandi. — Horfur
þykja ekki vænlegar fyrir de
Gaulle.
SÝNING Á MYNDUM
FRÍSTUNDAMÁLARA.
Síðastliðinn sunnudag var opn-
uð í Gagnfræðaskólanum hér
sýning á myndum frístundamál-
ara, er haldið hafa myndlistar-
skóla hér í vetur. Er þarna margt
eftirtektarverðra mynda. — Sýn-
ingin er opin næstu daga.
Hlaupabrautin á nýja íþróttasvæðinu
verður vígð til afnota 17. júní
Heildarkostnaður við íþróttasvæðið orðinn
230 þúsund kr.
Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa h.f. — eigenda togar-
anna Kaldbaks, Svalbaks og
Harðbaks — var haldinn sl. laug-
ardag. Var þar birt skýrsla fé-
lagsstjórnarinnar um rekstur sl.
árs og leiddi hún í ljós, að út-
koman á rekstrinum var hin
glæsilegasta á sl. ári .Voru Kald-
bakur og Svalbakur afskrifaðir
um 1.450 þús. kr á sl. ári og auk
þess samþykkt að greiða 5% arð
tii hluthafa.
Þessi ársskýrsla fjallaði að
engu leyti um rekstui' Harðbaks,
sem kemur allur á þetta ár, enda
kom skipið ekki til landsins fyrr
en í árslok.
Rekstur togaranna.
Togararnir tveir fóru samtals
9 söluferðir til útlanda á sl. ári,
en þegar markaður brást, tók fé-
lagsstjórnin Krossanesverksmiðj
una á leigu og hófu togararnir
karfaveiðar í aipríl með ágætum
árangri. Voru þær veiðar rekn-
ar þar til í byrjun desember. —
Aflamagnið var samtals 14.400
lestir. Auk þess saltfiskur, 481
lest. Samanlagður afli togaranna
var að verðmæti tæpar 10 millj.
króna.
Vinnulaun er félagið greiddi á
sjó og á landi námu alls á Akur-
eyri og Glerárþorpi (Krossanes)
kr. 4,5 millj. króna.
Framkvæmdir félagsins.
í maí á sl. ári var ákveðið að
auka hlutafé félagsins og ráðast í
að kaupa þriðja togarann og
hlaut málið mikið fylgi í bænum.
Kom nýji togarinn hingað um
jólin, og fór í fyrstu veiðiför 4.
janúar. Þrír bræður stjói'na nú
togurunum: Sæmundur Auðuns-
son Harðbak, Þorsteinn Svalbak
og Gunnar Kaldbak. Hefur skip-
Jakob Frímannsson
sæmdur riddarakrossi
sænsku vasaorðunnar
Fyrir hönd konungs Svíþjóðar
hefur sænski sendiherrann af-
hent sænska ræðismanninum á
Akureyri, Jakob Frímannssyni,
riddarakross Konunglegu Vasa-
orðunnar. (Fréttatilkynning frá
sænska sendiráðinu í Reykjavík.
Fyrsta áfanganum við gerð
hins nýja íþróttaleikvangs á Ak-
ureyri, austan við Brekkugötu
má nú heita lokið, þar sem
hlaupabrautin kringum aðal-
völlinn er nú að mestu fullgerð.
Verður hún tekin í notkun í
sumar og fer fyrsta hlaupa-
keppnin fram á brautinni í sam-
bandi við hátíðahöldin 17. júní.
Brautin er 400 m. löng og tæp-
lega 5 m. á breidd. Undir innri
brún er lokræsi úr steyptum
í'örum og grjótmöl yfir upp að
yfirborðslögum brautarinnar. —
Allt undirlag brautarinnar er
einnig úr grjótmöl 20—30 sm. að
þykkt. Yfir því koma þrjú lög,
fyrst um 20 sm. lag af hraunmöl, I
þar yfir þunnt lag af grófum
sjávarsandi og efst um 7 sm.
þykkt slitlag blandað úr mold,
leir og sigtuðum hraunsalla. 16
niðurföll eru við innri brún
brautai'innar til þess að taka móti
yfirborðsvatni af brautinni og
vellinum.
Framkvæmdir við íþrótta-
svæðið voru hafnar haustið 1944
og um síðastliðin áramót var
heildarkostnaður við svæðið orð-
inn um 230 þús. kr. Verið er nú
að vinna að jöfnun á leikvellin-
um innan hlaupabrautar og búa
hann undir sáningu.
greiddu 17,6
í vinnulaun á
millj.
Akur-
eyri á síoastliönu ári
Aðalfmidur KEA samþykkti tillögur stjórnar-
innar um endurgreiðslu til félagsmanna
Kaupfélag Eyfirðinga og Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga
og fyrirtæki þeirra hér á Akur-
eyri, greiddu samtals kr.
17.635.319.09 í föst laun og
verkalaun hér á Akureyri á ár-
inu 1950. Er hlutur KEA af
þessari upphæð kr. 9.535.501.28,
en Sambandsins kr. 8.099.817.81.
Má af þessum tölum ráða, hver
hlutur samvinnufyrirtækjanna
er í atvinnulífi bæjarins.
Til samanburðar má geta þess,
að Útgerðarfélag Akureyringa
mun hafa greitt í vinnulaun alls
3,6 millj. króna hér á Akureyri
á síðastl. ári.
Upphæðin sundurgreinist nán-
ar þannig: KEA greiddi kr.
6.732.719.43 í föst laun, en til
verkamanna fyrir lausavinnu kr.
2.802.781.85, en SÍS greiddi föst
laun og verkamannalaun við
Gefjun og nýbygginguna, Iðunni,
Saumastofuna, silkiiðnaðinn, ull-
arþvottastöðina og fataverksmiðj
una kr. 8.099.817.81.
Þessar markverðu upplýsing-
ar, sem komu fram í ræðu, er
forstjóri KEA, Jakob Fi'ímanns-
son flutti á aðalfundi KEA sl.
miðvikudag. Taldi forstjórinn, að
ýmsir bæjarmenn gerðu sér eng-
an veginn ljóst, hverja megin-
þýðingu atvinnurekstur sam-
vinnufélaganan hefur fyrir þetta
bæjarfélag og minnti á, að furðu-
lega hljótt sé um þessa hluti í
bæjarblöðunum. En þessar tölur
sýndu svo glögglega, svo að ekki
verður um villzt, að framkvæmd
ir samvinnufélaganan hér á
staðnum, eru beinlínis undir-
staða atvinnulífsins hér og sá
grundvöllur, sem vöxtur og við-
gangur bæjarins hvílir ó.
Tillögur um endurgreiðslu
samþykktar.
Aðalfundurinn samþykkti til-
lögur stjórnarinnar um að end-
urgreiða 3% af viðskiptum til
félagsmanna ,5% arð af brauð-
um, 6% af lyfjum og 5 aura af
hverjum benzíni- og olíulítra. —
Fundurinn kaus Ingimar Eydal
einróma heiðursfélaga og er nán-
ar greint frá því annars staðar.
Kosningar.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Björn Jóhannsson á Lauga
landi, og var hann endurkjörinn,
og Ingimar Eydal, sem baðst
undan endurkosningu. — Var
Brynjólfur Sveinsson, Akureyri,
kjörinn í hans stað. Varamenn
voru kosnir: Halldór Guðlaugs-
son, Hvammi, og Jón Jónsson,
Böggvisstöðum. Endurskoðandi
var endurkjörinn Hólmgeir Þor-
steinsson og varaendurskoðandi
Elías Tómasson. í stjórn Menn-
ingarsjóðs KEA var Snorri Sig-
fússon endurkjörinn.
Fundarstjói'i á þessum 64. að-
alfundi KEA var Hólmgeir Þor-
steinsson, en fundarritarar Garð-
ar Halldórsson og Björn Þórðar-
son.
Þessi aðalfundur var í alla staði
hinn ánægjulegasti og bar vott
um samheldni og samhug félags-
manna.
Anna Borg vakti hrifn-
ingu í París, segir
Politiken
Politiken segir frá því sl.
sunnudag, að hjónin Anna Borg
og Paul Reumert hafi vakið
hrifningu á hátíðakvöldi því, er
sendiráð Norðurlanda efndu til
í-París í tilefni af 2000 ára afmæli
borgarinnar. Viðstaddir voru
fulltrúar fró mörgum þáttum
fransks menningarlífs. Reumert
lék hlutverk úr leikritum Molí-
ers og las úr ævintýrum H. C.
Andersens, en frú Anna Borg
kom fram „í dýrum íslenzkum
búningi, sem hún hafði með sér
frá Reykjavík, og tókst listilega
að vekja hrifningu áheyrenda
með lótlausum upplestri úr
Gunnlaugsu sögu Ormstungu, og
fagnaðarlætin sýndu, að frúnni
tókst hlutverk sitt,“ segir blaðið.
Snjókoma um Norður-
land í gær og fyrradag
Á mánudagsnóttina byrjaði að
snjóa hér um slóðir og liélzt
slydduhríð allan mánudaginn
og fram um hádegi í gær. Snjó
hefur lítt fest í byggð, en fjöll
og heiðar voru hvít í gær. Ekki
mun þó koma til samgöngu-
truflana vegna snjókomu þess-
arar. Hiti hefur verið um frost-
mark liér um slóðir, en nætur-
frost eru á hvcrri nóttu hér
austur undan.