Dagur - 13.06.1951, Síða 4
4
D AGUR
Mið'vikudaginn 13. júní 1951
r
D AGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 1166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Gjalddagi er 1. júlí.
Árgangurinn kostar kr. 40.00.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
„Lokasporið eigum vér aldrei
að stígaw
Á SUNNUDAGINN kemur minnist iglenzka
þjó'ðin ekki aðeins fæðingardags minnisverðasta
og merkSsta leiðtoga síns frá öndverðu, svo sem
vér áður höfum gert um tugi ára, heldur minnist
þjóðin einnig, og ekki síður, sjöunda afmælisdags
þess merkisviðburðar, er lýðveldi var endurreist
á íslandi og full þáttaskil urðu í hinu ævarandi
stríði hennar fyrir óskoruðu lýðfrelsi og lands-
réttindum. — „Leiðar nornir skópu oss langa
þrá,“ og eigi höfðu svefnfarir lýðsins ávallt verið
blíðar né hægar í þeim aldalanga frelsisdraumi,
sem nú hafði að lokum ráðist og rætzt með fullum
og glæsilegum sigri. Víst hafði sá sigur eigi unn-
izt í einu skyndiáhlaupi, heldur fyrir langa, sógú-
lega þróun og óhvikula baráttu beztu og fórnfus-
ustu sona og dætra þessa lands um margra alda
skeið.
hafa stéttirnar og flokkarnir að
vísu unnið ýmsa „sigra“ hver á
öðrum, en flestir munu þeir
mega kallast Pýrrusarsigrar ein-
ir, þegar litið er á hagsmuni
þjóðarehildarinnar allrar.
ENGIN ÞJÓÐ fær til lengdar
haldið stjórnarfarslegu sjálfstæði
sínu, ef hún reynist ekki fær um
að varðveita fjárhagslegt full-
veldi sitt og stendur óstudd á
eigin fótum á því sviði. Víst var
arfurinn, sem lýðveldið ný-
stofnaða hlaut að þessu leyti,
bæði illur og ógiftusamlegur,
enda verður því ekki neitað, að
ekki hefur betur til tekizt í efna-
hagsmálunum síðustu árin en
svo, að fjárhagslega værum vér
nú þegar fyrir alllöngu komnir í
full þrot og allsherjar hrun, ef
vér hefðum ekki einnig í þessum
efnum notið rausnarlegrar hjálp-
ar og ágætrar aðstoðar þeirra
hinna sömu þjóða, er bezt reynd-
ust málstað vorum í sambandi
við lýðveldisstofnunina sjálfa. En
hvorki er það líklegt né æskilegt,
að slík hjálp endist til langframa,
heldur verðum vér sem allra
fyrst að reynast þess umkomnir
EN ALLRA SÍÐASTI áfanginn hafði þó náðst
með skjótlega og auðveldara hætti að ýmsu Ieyti
en jafnvel hina bjartsýnustu hafði áður órað fyrir.
— Rás mikilla viðburða á heimsvísu réði vissu-
lega mestu um þá skjótu þróun, en að hinu leyt-
inu var hún að þakka þeirri gleðilegu staðreynd,
að þessari annars svo sundurlyndu og innbyrðis
ósamþykku þjóð auðnaðist að standa einhuga
saman á þeirri úrslitastund, þegar sjálfstæði vort
og þjóðarsómi var í veði. Og loks nutum vér, þeg-
ar mest reið á, vinsSmlegs skilnings, fyrirgreiðslu
og öflugs stuðnings annarra lýðfrjálsra þjóða og
mikilsmegandi. Brautargengis þess, er þær veittu
oss á slíkri örlagastundu, skilnings þeirra á mál-
stað vorum og vináttu þeirra í vorn garð skyldi
lengi og maklega minnzt, og þá einnig hins, hver
þau stórveldi voru, sem kusu á hinn bóginn að
halda að sér höndum við þetta tækifæri og hirtu
bersýnilega lítt um það, „hverjir þar drápusk.“
AF RÁÐNUM HUG var svo að orði komizt hér
að framan, að sjálfstæðisbarátta þjóðar vorrar sé
ævarandi stríð, og er þó enn vikið að þeirri hugs-
un, sem merkur forsætisráðherra íslenzkur orð-
aðin svo þrem misserum áður en lýðvéldi var
stofnað á Þingvöllum 17. júní 1944: „Með lýð-
veldismyndun stígum vér engan veginn lokaspor-
ið sjálfstæðismálinu. Lokasporið eigum vér aldrei
að stíga. Sjálfstæðisbaráttan er í fullum gangi.
Núverandi styrjöld og síðustu tímar hafa fengið
oss ný og mikilvæg viðfangsefni í sjálfstæðismál-
inu, viðfangsefni, sem vér verðum að glíma við á
komandi árum.“ — Því miður verður það engan
veginn fullyrt með nokkrum rétti, að vér höfum
að öllu leyti tekið svo á þessum viðfangsefnum
þau fáu ár, sem síðan eru liðin, að frelsismálum
vorum og sjálfstæði hafi þokað langt fram á leið
til fyllra öryggis en áður. Þjóðareiningin, sem
lýsti sér svo fagurlega með atkvæðagreiðslunni
um niðurfelling dansk-íslenzka sambandslaga-
samningsins frá 1918 og lýðveldisstofnunina 1944
var fljót að afklæðast spariflíkum friðarins, þégar
síðasta fagnaðarskálin hafði verið tæmd og
hinzta húrrahrópið var þagnað, en íklæddist óðar
í þeirra stað herklæðum stéttastríðsins og flokka-
baráttunnar hversdagslega og landlægu. Síðan
að hjálpa oss sjálfir ,einnig á
þessu sviði, þó auðvitað í eðli-
legu og æskilegu samstarfi og
viðskiptasambandi við aðrar lýð-
frjálsar þjóðir.
NÝ HERSETA í landinu vek-
ur ýmsum — og ekki að ástæðu-
lausu — þungan geig þessa
björtu vordaga. En þess ber að
minnast í því sambandi, að ekki
er þar um sjálfskaparvíti að
ræða, heldur eðlilega og sjálf-
sagða viðurkenningu þeirrar
ömurlegu staðreyndar, að allur
hinn siðmannaði, lýðfrjálsi heim-
ur á yfir höfði sér ægilega og
miskunnarlausa árás austrænnar
einræðisstefnu og framandi kúg-
unar heimsvaldasinna, er einkis
svífast, ef öll lýðfrjáls lönd snúa
ekki bökum saman og leggja á
sig sameiginlegar fórnir til þess
að undirbúa í tæka tíð öflugt
viðnám gegn þeim meginvoða.
En vonandi líður sú hætta hjá,
svo að vér getum aftur, fyrr en
síðar, búið einir í landi, sem ekki
þarfnist annarrar herverndar en
þeirrar, sem fólgin er í sameigin-
legri friðar- og frelsisþrá alls
mannkyns.
FOKDREIFAR
Veitirigasala:í. leikhúsinu.
.Blaðið hefur fengið margar upp-
hringingar í sambandi við veitinga-
söíu í leikhúsiriú, ög er enginn vafi
á, að nijög almenn óánægja er yfir
því, að í hinu endurbætta leikhúsi
bæjarins skuli ekki vera hægt að fá
keyptar sómasamlegar veitingar.
Áður fyrr, meðan leikhúsið var
miklu lakari samastaður en það nú
er orðið, var hægt að fá keypt kaffi
og gosdrykki, auk sælgætis, tóbaks
o. s. frv. Núverandi liúsráðendur
hafa skýrt blaðinu svo frá, að ætl-
unin sé að selja kaldá drykki á litla
salnum á efri liæðinni, strax og sá
salur er tilbúinn til þess, en vegna
breytinga á honum er það ekki
að þessu sinni, því að Jreim er ekki
lokið. Hins vegar skýra Jieir svo frá,
að með breytingunni Jtar sé loku
skotið fyrir að kaffisala geti farið
Jtar fram, og sé ekkert rúm fyrir
hana í húsinu, fyrr en þá að það
fengist á neðri hæðinni. Hins vegar
telja þeir ekki fært að selja gos-
drykki og öl í fatageymslulierberg-
inu — hvorki nú eða á væntanleg-
um bíósýningum — og mun ekki
vcrða leyft að leikhús- eða bíógestir
taki gosdrykki með sér inn í aðal-
salinn, og munu víst fáir sakna Jjess.
Af þessu má vera ljóst, að með
breytingunni og Jjví ráði að leigja
leikhúsið fyrir bíórekstur, var loku
skotið fyrir kaffisöluna á efri hæð-
inni. Þar liggur hundurinn grafinn.
En væntanlega liefst sala kaldra
drykkja á efri hæðinni áður en
næsta leikrit verður tekið til sýn-
ingar hér.
Ljótur hrekkur.
Bæjarbúi skrifar blaðinu:
„Sá atburður gerðist eitt sinn
seint um kvöld í vetur, að hringt
var í síma, þar sem gömul, lasburða
kona var ein heima. Komst hún
að [)ví, að þetta var stúlka, sem hún
þekkti, og sagðist stúlkan vera veik
en ein heima. Gömlu konunni varð
mjög bilt við, gat samt náð sam-
bandi við fólk í næstu íbúð og feng-
ið Jrað til að vitja um stúlkuna.
Þegar þangað kom, var hún ekki
lieima og ekkert hægt um hana að
vita. Urðu nú allir, sem Jjetta vissu,
ótta slegnir, og var hafin leit að
stúlkunni. Lauk Jjví svo, að til
hennar náðist, hafði hún gengið út
til kunningja sinna fyrr um kvöld-
ið og ekkert um Jjctla vitað, enda
verið alheil, sem betur fór.
Nú alveg nýverið hittist svo á, að
gamla konan var enn ein heima.
Endurtekur Jrá Jressi saga sig á lík-
an hátt, nema að nú er í símanum
nefnt nafn fjarverandi nákomins
ættingja hennar, er segist vera í
bænum og í vandræðum. Gömlu
konunni varð í fyrstu mjög bilt við
þetta, en fanrist Jjó við nánari at-
íiugun grunsamlegt símtalið.
Enn er svo hringt. síðar Jjennan
sama dag og leikinn einn skrípa-
leikurinn enn,
Margir munu geta rennt grun í,
hver áhrif annað eins og Jjctta kann
að hafa á aldrað fólk, sem tæplega
getur nokkuð komizt nema innan
síns heimilis og eiga einskis völ
ncma að bíða og liugsa sig hrætt,
því kannske leynist einhver sann
leikur í Jjessu, dettur því ef til vill
í hug.
En hver er svona innrættur að
skemmta sér við slíkt? Fer varla lijá
[jví, að slíkt fólk, fullorðnir eða
unglingar, láti sér annað meira lítt
fyrir brjósti brenna en liræða gamla
einmana góðviljaða konu, sem
einskis á sér ilfs von.
Því miður er ekki hægt að hand-
sama slíka símaníðinga, enda
fremja þeir „skemmtunina" í skjóli
þess.
Bæjarráð hefur hafnað
tillögunni um að veita
Glerá í Jötunheima
Bæjarráð hefur samþykkt að
leggja til að bæjarstjórn hafni til
lögu Halldórs Halldórssonar um að
veita Glerá úr núverandi farveg
sínum norður í Jötunheima. Mun
álit bæjarráðsmanna, að höfnin í
Krossanesi og Jötunheimum niundi
brátt fyllast af framburði Glerár.
og sé ]>ví flutningur árinnar óráð-
Iegur af Jjeini sökum.
Húsmæðraskóli lýkur störfum
Húsmæðraskólanum hér í bænum var saj;t upp í
gær, og í morgun lögðu námsmeyjar af stað í
skemmtiferð til Hóla. í vetur hafa 22 fastir eða
reglulegir nemendur stundað nám í skólanum, en
87 óreglulegir, þ. e. á námskeiðum. Auk þssa hafa
56 nemendur úr verknámsdeild Gagnfræðaskólans
notið kennslu í matreiðslu í skólanum.
Handavinnusýning.
Síðastl. sunnudag var opin í skólanum sýning á
vinnu námsmeyja. Mikill fjöldi bæjarbúa skoðaði
sýninguna, enda var hér um að ræða smekklegar og
vel unnar hannyrðir af ýmsu tagi. Alls voru saum-
uð 374 skyldustykki, en það er mest megnis barna-
fatnaður, sem mikil áherzla er lögð á, að stúlkurn-
ar lær.i að sauma .Þá var og mikið af kvenfatnaði
ýmiss konar, svo sem kjólum, blússum og pilsum,
og var flest mjög snoturt, ekki íburðarmikið, en
smekklegt. Stúlkunum er einnig kennt að sníða og
taka mál, og er það mjög mikils virði, því að í raun
réttri er það mesti vandinn, þegar koma á upp
flík. Umfram skyldu voru saumaðar 60 flíkur af
ýmsu tagi. Þá voru og til sýnis 110 munir heklaðir
og prjónaðir ,og virtist mér flest af því vera mjög
fallegt og smekklegt, sérstaklega barnafatnaðurinn.
Utsaumur ýmiss konar, líklega mest dúkar, var og
til sýnis og voru 40 munir saumaðir af því tagi.
Hvítsaumurinn var mjög fallegur, einnig einlitir
kaffidúkar með einlitum saum (etamín, held eg).
Það verður oft á tíðum mjög falleg útkoma, þegar
saumað er með einum og sama lit í dúk t. d. Niður-
röðun margra lita er mikið vandaverk, sem oft vill
mistakast ,en einlitur saumur verður oftast smekk-
legur. Til sýnis voru einnig 35 munir útsaumaðir,
sem unnir voru á námsskeiðum.
Ekki gat eg komið auga á nokkurn mun saumað-
an með forn-íslenzka saumnum. Ættum við ekki
að halda honum í hávegum með því að kenna hann
við skólana?
I sérstakri stofu var vefnaðurinn til sýnis, en
námsmeyjar höfðu ofið 320 muni alls. Var þar
margt smekklega og fallega unnið, sérstaklega
þóttu mér fallegir þunnir dúkar og gluggatjalda-
efni ýmiss konar .Þá var skemmtileg nýbreytni að
sjá ofið þverbekkjótt kvenpils, að vísu úr tvisti, en
mætti ekki líka reyna úr ull?
Níu mánaða skóli.
Skólinn starfar nú í níu mánuði, og skiptist náms-
tíminn jafnt á milli matreiðslu og ýmiss konar
heimilisstarfa (s. s. þvottur, ræsting o. fl.) annars
vegar, og sauma og vefnaðar hins vegar, en vefn-
aðurinn hefur nú aftur verið tekinn inn í skólann,
sem föst námsgrein. Auk forstöðukonunnar, sem
kenndi matreiðslu að nokltru, heilsufræði og bók-
hald, voru þessar kennslukonur starfandi við skól-
ann: Valgerður Árnadóttir kenndi fata- og útsaum,
Ólafía Þorvaldsdóttir vefnað og Guðrún Sigurðar-
dóttir matreiðslu.
Þá kenndi Þorbjörg Finnbogadóttir, nemandi úr
G. A., matreiðslu og hafði með höndum kennslu á
kvöldnámskffiðum fyrir stúlkur úr bænum, og
Kristín Sigurðardóttir kenndi á útsaumsnámskeiði
fyrir bæjarkonur, sem haldið var á vegum skólans.
Stundakennarar voru Þórhalla Þorsteinsdóttir, sem
kenndi leikfimi, Áskell Snorrason söng og Egill
Þórláksson hélt fyrirlestra um uppeldismál. For-
stöðukonan var ánægð með árangur af vetrarstarf-
inu og kvað það hafa gengið ágætlega, enda hafi
heilsufar verið mjög gott í skólanum í vetur.
Forstöðukonuskipti.
Frú Helga Kristjánsdóttir, sem veitt hefur skól-
anum forstöðu frá þv íað hann tók til starfa, lætur
nú af þeim störfum og mun flytjast til Skagafjarð-
ar, þar sem hún ætlar að hefja búskap með manni
sínum. Ekki er vitað hver muni taka við skólan-
um ,enda munu engar umsóknir um starfið hafa
borizt enn.