Dagur - 13.06.1951, Síða 6
6
DAGUR
Miðvikudaginn 13. júní 1951
ÍÞRÓTTIR
17. júnímótið í frjáslum íþróttum
fer fram dagana 16. og 17. júní.
Á þjóðhátíðardaginn hefur
ávallt verið keppt í einhverjum
íþróttum, en aldrei verið neitt
ákveðið mót þann dag, þar til nú,
að Frjálsíþróttaráð hefur tekið
það upp í mótaskrá sína, og verð-
ur það háð árlega héðan í frá.
Fyrri daginn verður keppt í:
kúluvarpi, kringlukasti, spjót-
kasti, langstökki, þrístökki, há-
stökki og undanrásum í 100 m.
hl. Þessar greinar fara fram á
Þórsvellinum. — 17. júní hefst
keppnin á nýja íþróttavellinum
með vígslu hinnar nýju hlaupa-
brautar og á henni verður keppt
í: 100 m .hl., úrslitum, 400 m. hl.,
1500 m. hl. og 1000 m. boðhl. —
Verðlaunaafhending fer fram að
lokinni hverri keppni.
í spjótkasti má búast við harðri
keppni milli Ófeigs Eiríkssonar
og Kristjáns Kristjánssonar,
báðir öruggir 50 m. menn og
nálgast 60 m. óðum. í kringlu og
kúlu stendur keppnin milli Guð-
mundar Amar, Garðars Ingjalds
og Kristjáns Kr. Guðmundur er
í mikilli framför, og ætti ekki að
verða í vandræðum með sitt eig-
ið met. Á stökkunum leiða saman
hesta sína Baldur Jónsson, Garð-
ar og Jón Arnþórs. Baldur hefur
undanfarin ár verið leiðandi í
þessum greinum, og er þess
skemmst að minnast, að í vetur
setti hann nýtt íslenzkt met í
þrístökki án atrennu. Þó mun
Garðar geta komið þarna á óvart.
í 100 m. hl. ætti keppnin að geta
orðið hörð ,ef Kjartan Jóhanns-
son lendir á móti Baldri, og
væntanlega stenzt metið ekki
þær hamfarir.
Einar og Hreiðar berjast um
sigurinn í 400 m. hl. og Óðinn og
Kristinn Bergsson í 1500 m. hl.
En þessir hlauparar hafa stað-
ið sig með mikilli prýði tvö síð-
astliðin sumur, t. d. jafnaði
Hreiðar íslenzka drengametið í
800 m. síðastliðið sumar. Gert er
ráð fyrir Óðni Ámas. í lándsliðii
þessa árs.
Bæjarbúar ættu ekki að láta
hjá líða, að fylgjast með skemmti
legri og tvísýnni keppni, jafn-
framt því að þeir hvetja hina
upprennandi íþróttamenn til
bættra afreka.
— X. —
Kaupakonu
vantar um næstu mánaða-
mót eða fyrr.
Afgr. vísar á.
Kauputn
BROTAJÁRN
Móttaka í po'r.ti iTómasar
Björnssonar, Gleráreyrum.
SINDRI hi., Reykjavík
Frá Golfklúbb Akureyrar.
Úrslit í Gunnarskeppninni urðu
þau að efstur varð Jóhann Guð-
mundsson með 332 högg. Annar
Jakob Gíslason með 338 högg og
þriðji Hafliði Guðmundsson. —
Úrslit í Miekey-cupkeppninni:
Efstur Sigtr. Júlíusson 171%,
annar Jakob Gíslason með 174V2
högg. Næsta keppni næstk. laug-
ardag kl. 1,45.
Döimi-undirföt
úr hinu heimsfræga
Courtaulds prjónasilki.
Kr. 92.10 pr. sett.
AMARO-búðin
Akureyri.
Karlmanna-nærföt
Síðar buxur stakar.
Stuttar buxur stakar.
Vinnuskyrtur, köfl. flónel.
Estrella-skyrtur.
Sportskyrtur. x
Sportbolir, hvítii'.
AMARO-búðin
Akureyri.
Gnmmístígvél
fyrir börn og fullorðna.
Vinnufatnaður alls konar,
fyrir börn og fullorðna.
Stormjakkar m. loðkraga.
Khaki-efni í vinnufatnað.
AMARO-búðin
Akureyri.
Sokkabanda-teygja,
hvít og grá.
Stfengteygja, nœrfatateygja.
Mjaðmabelti, st. og lítil no.
AMARO-búðin
Akureyri.
Nærfata satín
Nœtjala silki.
'Nœrfata blúndur.
Bendlar, smellur, mislitur
tvinni og alls konar smá-
vörur í miklu úrvali.
AMARO-búðin
Akureyri.
Gardínuefni
Dúnhelt léreft.
Laka-léreft, einbr. og tvíbr.
Flónel, mislitt og rósótt.
Peysufala-salín, svart.
Ndttfata-efni, Popplín.
Silki-sokkar. Nylon-sokkar.
AMÁRO-búðin
Akureyri.
- Dagskrármál
landbúnaðarins
(Framhald af 2. síðu).
rétt til að njóta friðhelgi
sumardaga, þegar landið skartar
svo heillandi fegurð, að vart
finnst annars staðar slíkt, en ein
mitt þá hafa allir íslendingar í
sveitum landsins, serri gátu vald-
ið hrífu og eitthvað var varið í,
frá landnámsöld til þessa dags,
keyrt sig áfram með svipu
skyldurækni og trúmennsku og
varla leyft sér að horfa til fjalla,
hvað þá meira. Þessi aðferð er
nothæf fyrir fátækan mann með
orf, kerru og einn hest, fyrir
samvinnulipra bændur með
vélasamstæður, sem hirða meðal
tún á fáeinum dögum', koma öll-
um íslendingum, sem ekki vilja
fljóta að feigðarósi vegna and-
legrar leti, að gagni.
Varla hefur nokkur þjóð nú
á dögum jafn mikla möguleika
til að vinna afreksverk eins og
einmitt þessi kynslóð. Þúsund
ára andleg og líkamleg einangr-
un er horfin. Fimmti hver ís-
lendingur stundar nám, sem þarf
til þess að hagnýta sér reynslu
annarra manna og fella saman
við lifsspeki horfinna íslnedinga.
Vélar og hugvit geta breytt þessu
landi í eitthvert bezta kjöt- og
mjólkurvöruland Norðurálfu og
vélaaflið er til og þjóðarandinn
nógur, en þá megum við ekki
haga okkur eins og skipbrots-
maður, sem náð hefur sér í björg
unarbelti og finnst hann vera
meiri maður, þegar félagar hans
sökkva .Eftir áliti búnaðarmála-
stjóra er eg sennilega fyrsti
bóndinn hér á landi, sem hef
reynt skurðgryfjuverkun og frá
mínum bæjardyrum séð getur
reynsla erlendra bænda orðið
sterkur hlekkur í þeirri keðju,
sem bændur þurfa til þess að
draga sig og íslenzkan landbúnað
upp úr því eymdarástandi, sem
hann raunverulega er í.
(Framahld).
Skemmtisamkoma
verður haldin á Þverá laugar-
daginn 16. þ. m., til ágóða
fyrir Minningarlund Jóns
biskups Arasonar. Skemmti-
atriði: Verðlaunagáta, skop-
saga. Dans. — Veitingar seldar
á staðnum. — samkoman hefst
kl. 10 síðdegis.
Nefndin.
Kýr,
nýelga borin, er til sölu.
Afgr. vísar á.
Eikarborð,
12 manna, til sölu í
Hafnarstrœti 66, norðan.
Skandiavél,
7—8 hestafla, í góðu lagi,
til sölu, með eða án skrúfu-
öxuls.
Þorvaldur*Árnason.
Víkurbakka.
Sími Krossar.
Fimmtugur:
Ólafur Tómasson
Garðshorni
Á dögum fyrr þú dvaldir
í dölum Skagafjarðar.
f æsku var þín iðja
að efla gróður jarðar .
Og enn þig á að starfi
arðsöm gróðrar-jörðin.
Þú helgar þig nú henni
í Hlíð við Eyjafjörðinn.
Eg veit, að vel og lengi
verk þín metur sveitin.
Þú byggðir bústað traustan
og breikkaðir græðireitinn.
Við búalið og bændur
í bræðralag þig sagðir.
Þú greiddir mörgum götu
og gott til mála lagðir.
Vorglaðasti vinpr,
á vori hlýju fæddur.
Vorsins maður vertu,
vorhug björtum gæddur!
Þér gefist gegnum árin
grósku happafengur.
Lifðu við fremd og fögnuð-
fimmtugi sómadrengur.
Gunnar S. Hafdal.
Kristján Jósefsson
Fæddur 28. maí 1878.
Dáinn 27. maí 1951.
-JWIM'JMVitn........ ....uU'UHJM
KVEÐJA.
Þegar síðast sá eg þig,
tókstu hlýtt í hendi mína,
hýrt úr augum sá eg skína
ættrækni og ástúð þína,
er þú kvaddir mig.
Vissi eg að fetin fá,
óstigin þú eiga mundir
og að naumar mundu stundir,
viðræður og vinafundir
okkar vegum á.
Nú er runnið skapaskeið;
ævidagur langur liðinn,
lokið þreytu, horfinn sviðinn.
Með geislum vorsins fékkstu
friðinn.
Fluttir bjarta leið.
Þér eg frændi þakkir ber,
fyrir tryggð og ástúð alla,
er þú lézt í hlut vorn falla.
— Vini horfna heyri eg kalla:
Ljósið lýsi þér!
F. H. Berg.
f—'- ■ ' Svart sí í PEYS Góð te Brauns itín UFÖT gund. verzlun
íslenzki Margar stæi Sendum gei Brauns r fánar ðir. >n póstkröfu. verzlun
Gummit lússur
Verð: Vöruhú Kr. 148.00. sið hi.
Norsku Verð: Vöruhú V : — Ijáirnir Kr. 10.45. sið h.f. —*
Veiðimenn
LAXALÍNUR
SILUNGALÍNUR
FLUGUBOX (alúmíníum)
FLUGUKÖST
LAXAFLUGUR no. 8-2/0
LAXAFLUGUR no. 8-2/0
SPÆNIR, smáir og stórir
SIGURNAGLA og
HRINGIR.
Brynjólfur Sveinsson hf.
Svefnpokar
Bakpokar, 3 teg.
Tjöld,
2, 4 og 6 manna.
Brynjólfur Sveinsson hf.
Nýtt GEFJUNAR-kambgarn!
Nýja GEF JUNAR-kambgarnið er lang merk-
asta framför í garnframleiðslu þjóðarinnar.
Það er mjúkt og áferðarfallegt eins og gott
erlent garn, en það er mun ódýrara en allt
annað garn, sem nú er fáanlegt á íslenzkum
markaði.
Fæst í öllum kaupfélögu landsins og víðar.
Reynið sem fyrst nýja GEFJUNAR-kamb-
garnið.
Ullarverksmiðjan GEFJUN
Akureyri.