Dagur - 21.11.1951, Síða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 21. nóv. 1951
Guðjósi Daníelssoii
frá Hreiðarsstöðum
Nokkiir ættmenn hans og áar
Á Búrfelli hann Árni minn
i þó aðstoð missi vina,
( fylgir honum frómleikinn
fram í eilífðina.
Jón á Karlsá.
Árni hét maður. Hann var Guð-
mundsson. Svo er frá Árna sagt,
að hann væri greindur í betra
lagi, maður siðheill og öðlingm- í
skapi. Kona hans hét Guðrún.
Hún var Halldórsdóttir. Árni
Guðmundsson bjó á Búrfelli í
Svarfaðardal á fjórða tug ára, eða
Á stundum urðu forráðamenn
svéita, að koma fjölskyldunni á
svéitarframfæri upi. Jengri eða
skemmri tíma. Föðurlausu börnin
voru sett niður hér og þar. Oft
varð ævi þeirra allgóð eða sæmi-
leg. Á stundum hin hraklegasta.
Fyrir ekkjmmi lá oft vinnu-
mennska og var þá algengt að
eitthvert yngri barnanna fylgdi
henni og yrði svo kaup hennar
meðgjöf með barninu. :
Guðrún í Tjarnargarðshorni
mun eigi hafa verið þessi kostur
frá 1798—1832. Nokkur voru börn
þeirra Árna og Guðrúnar, en að-
eins eitt þeirra kemur hér við
,sögu, dóttir. Hún hét Ragnhildur
(f. 14. júní 1795). Þótti snemma
væn kona og gervileg, ráðgjörn
nokkuð en drengur ágætur. — í
október 1829 giftist Ragnhildur
Jóni Guðmundssyni, Skagfirðingi
að ætt og uppruna. Jón mun hafa
verið snoturmenni, maður katt-
þrifinn en lítill skörungur. Þau,
Jón Guðmundsson og Ragnhild-
ur ÁrnadóttK, bjuggu lengst af
búskap sínum í Koti í Svarfaðar-
dal og löngum í tvíbýli. Fátæk af
veraldarauði en þó sjálfbjarga.
Börn áttu þau fjögur. Eitt var
Jón. Hann var faðir Árna á
ákeiði, Jóhannesar á Syðra-
Hvarfi og Ingibjargar er enn lifir
háöldruð á Hóli í Svarfaðardal.
.Annað var Sigríður. Hún var
amma Steindórs Sigurðssonar
.'iithöfundar og skálds og Sigtýs
bílstjóra á Dalvík. Þriðja var
.Anna. Hana átti Björn Sigurðs-
son bóndi á Atlastöðum. Hún var
hans fyrri kona. Fjórða var Guð-
rún. Hún átti Daníel Jónsson frá
Miðkoti. Þau bjuggu í Tjarnar-
garðshorni — nú Laugahlíð. —
Daníel Jónsson hvarf í hafi með
skipsfélögum sínum vorið 1875.
Þeir höfðu farið til hákarlaveiða
á skipinu Hreggvið. Skipstjórinn
var Zóphonías bóndi á Bakka.
Ekkja í kristnu landi.
Nú var Guðrún Jónsdóttir í
Tjarnargarðshorni orðin ekkja.
Hún sat eftir með sex börn og hið
sjöundá bar hún undir klæðum.
Ekki bjó hún á sjálfseign og bús-
efni voru heldur lítil. Þeir hafa
sjaldan verið skráðir sögupóstar
íslenzkra ekkna og mundu þeir
þó verða merkilegur þáttur í
þjóðarsögunni. Fátæk, barnmörg
ekkja átti sjaldan góðra kosta völ.
að skapf. Hún bjó kyrr á jörð-
inni með aðstoð eldri barnanna.
Var Júlíus sonur hennar elztur
þeirra og í þetta mund um 16 ára
að aldii. Hinn mesti garpur
snemma og síðar einn með dug-
mestu bændum í Svarfaðardal. Á
þennan hátt tókst Guðrúnu að
koma börnum sínurn yfir ómegð-
araldurinn að mestu leyti. Gædd
hetjulund og góðú hjafta beitti
hún kröftum sínum að ítrustu
getu. En heilsa hennar og þrek
lét undan og þær gersemar mun
hún aldrei hafa aftur heimt að
fullu. Hún hafði rekið mörg og
erfið þurftarerindi á vegum skyld
unnai'. Hemra jarðlífsins hafði
orðið henni áladjúp og köld. Hún
fékk að reyna það, hversu viðvék
um hagi barnmargra, fátækra
ekkna í kristnu landi.
Sorsur ekkjunnar.
Guðjón Daníelsson var eitt af
börnum þeirra Daníels Jónssonar
og konu hans Guðrúnar Jóns-
dóttur. Guðjón var fæddur 18.
febr. 1865. Níu ára gamall missti
hann föður sinn og var hann á
vist og íraihfæri móður sinnar til
frumvaxta aldurs. Gerðist því
næst vinnumaður um nokkui' ár
en síðar lausamaður. Gegndi
landbúnaðarstörfum og sjó-
mcnnsku eftir árstíðum og tré-
smiður varð hann góður. Vegg-
hagur í bezta lagi, fnikilvirkur og
tvívii'kur. Varð snemma þrek-
mikill að burðum og karl-
mennsicu og um flest búinn geð-
lægum mannkostum. Varð Guð-
jón á þessurn árum formaður á
fiskibát í verstöðinni á Dalvík,
aflaði vel og urðu slysalausar og
farsælar veiðiferðir hans.
Um þetta leyti var móðir hans
þrotin allmjög að heilsu. Sá Guð-
jón fyrir framfæri hennar og
studdi einnig nokkuð yngstu
systur sína Daníelínu Daníels-
dóttur. Á þessum árum aflaði
Guðjón allmikils fjár með þrot-
lausri vinnusemi, en hitt dró
hann eigi skemur á leið, hversu
vel hann varði fjárhlut sínum.
Sást það brátt á, að þessi ungi
maður var líklegur til fjárfor-
ræðis vegna hagsýni sinnar og
grunlausrar atorku.
Þá er Guðjón var þrjátíu og
tveggja ára gamall kvæntist hann
og gekk að eiga Önnu Jónsdóttur
frá Hreiðarsstöðum Runólfsson-
ar. Kona Jóns var Elísabet Guð-
rún Björnsdóttir. Þau hjón, Jón
og Elísabet, höfðu búið vi§ all-
góðan efnahag og virðingar í hér-
aði. Anna dóttir þeirra var að
náttúru fríð kona og væn. Hafði
hún fengið heimamenntun meiri
en almennt gerðist um bænda-
dætur í þá daga. Hún var því um
flest í þetta mund, þó ung væri,
vegskona með Svarfdælum. Og
nokkur veit eg rök þess, að Guð-
jón muni eigi hafa gengið að
brúðarrekkjunni öfundslaus með
öllu.
En sonur ekkjunnar átti eftir
að sýna það, að fyrir fjölskyldu
sinni gæti hann ráð séð, eignazt
bú og gætt þess og haldið fátækt
og skorti utandyra með hyggind-
um, annförum og elju.
Bóndinn á Hreiðarsstöðum.
Guðjón Daníelsson setti bú á
Hreiðarsstöðum um 1897, eða ef
til vill það ár. Þar hafði þá búið
frá um 1884 Jón B. Runólfsson
tengdafaðir hans. Jón hafði orðið
þarna sjálfseignarbóndi, aukið og
bætt húsakost jarðarinnar að
miklum mun, byrjað túnsléttun
og að öðru leyti fært til hirðu og
þrifnaðar þetta óðal sitt. Það var
því síður en svo, að G.uðjón kæmi
þarna að auðn eða rústum einum
og má því að nokkru leyti segja
að honum væri þakkarlaust, þótt
eigi léti hann sér úr hendi ganga
það, er að honum var rétt. En
Guðjón hafði snemma sýnt að
hann vildi fyrst og fremst standa
á eigin fótum og afla matar síns
af rammleik þeirra lífsskoðana
og eðlisgjafa, er hann hafði í önd-
verðu þegið. Hann mun því varla,
hafa verið búinn að vera daglangt
húsbóndi á Hreiðarsstöðum, er
hann byrjaði með rögg og dáð og
með atfylgi konu sinnar að
byggja ofan á og bæta við um-
bætur þær, er tengdafaðir hans
hafði upp tekið. Guðjón byggði
peningshús og hlöður yfir mestan
hluta heyja sinna. Sléttaði, bætti
og jók stórum við túnið. Vakti
það athygli margra, er um garð
fóru að Hreiðarsstöðum, hversu
öllu var til þrifnaðar haldið. —
Bráðlega komst Guðjón í þau
efni að hvergi skorti nauðsynjar
til bús á heimili hans. Hey hafði
hann ætíð nóg, hvernig sem viðr-
aði. Og varð ekki séð að hallaðist
búhagur hans, þótt misært yrði.
Maðurinn var forsjáll meira en
almennt gerist og leit lengra fram
en til líSandi stundar. Hjúum
sínum hélt hann til vinnu, enda
hlífði sér ekki sjálfur við erfiði
og vökulli umhyggju um verknað
og framkvæmd alla í þarfir heim-
ilis og fjölskyldu. Ef til vill gat
hann verið bráðgeðja og allhávær
á stundum, en hann gat líka verið
hlýr og nærgætinn í geðblöndun
og viðskiptum við aðra. Maðui'
gestrisinn og greiðasamur, átti
og um slíka hluti til góðs að
hverfa, þar sem kona hans var.
Guðjón Daníelsson var skapheill
og fastráður. Hafði ekki uppi
ráðagerðii' eða bollaleggingar um
fyrirætlanir sínar, en fór sínu
fram, og í hvívetna þrekmenni
mikið. Hafði snemma lært að
þreyta leik við íslenzka náttúru,
mislyndi hennar og æsiveður.
Gekk þó jafnan um langa ævi
heill af þeim hólmi. Mundi eigi
þurfa til slíkra afreka mannvit og
þrek? Það hefur sagt mér Svein-
björn bóndi á Hreiðarsstöðum,
sonur Guðjóns, að faðir sinn tæki
aldrei á ævinni peningalán,
hvorki hjá einstöku mönnum eða
opinberum lánsstofnunum. Þetta
atriði úr ævi Guðjóns sýnir
metnað hans og hviklausan vilja.
Sjálfur mun hann þó hafa greitt
skilvíslega skatta og skyldur að
sínum hlut og eigi látið undir
höfuð leggjast að borga hjúum
sínum og verkafólki umsamið
kaup og ætíð fyrr en seinna.
Bóndinn á Hreiðarsstöðum var
hvorki bókmennta- eða skóla-
maður. Hann hafði fengið lítils
háttar kennslu í skrift og reikn-
ingi um hálfsmánaðar tíma ein-
hvern tíma fyrr á árum. Með þá
bókfræði lagði hann út á vegi og
vegleysur lífsins og farnaðist hið
bezta. Hann sótti menntun sína
fyrst og fremst í skóla reynsl-
unnar. Og hann hafði tileinkað
sér hið forna spaklega heilræði:
„Sjálfur leið þú sjálfan þig“ og
hvergi út af brugðið.
Efri árin. — Evilok.
Efri órin munu . hafa orðið
Guðjóni hvort tveggja og ýmist,
ljúf eða sár. Þegar hann lét af
búskap tóku við jörð og búi tveir
sona hans, Jón Baldvin og Svein-
björn. Þeir tóku upp merki föð'-
ur síns og önnuðust fi'amkvæmd-
ir til batnaðar og framhalds því
er áður var gert. Þeir voru báðir
ókvæntir og hafði móðir þeirra
forráð innan dyra fyrir þeirra
hönd. Smekklegar og traustar
umbætur sona sinna mun hinn
aldni höldur hafa látið sér vel
líka. Sjálfur lét hann eigi af að
rétta hendur hvarvetna til gagns,
það sem heilsa hans leyfði. Guð-
jón Daníelsson var einn þeirra
manna er aldrei setjast í helgan
stein. Og fram að því síðasta
munaði um handtök þessa aldr-
aða aðfara og verkhaga manns.
Hvatning, umsjá og varúð hafði
'iann á hraðbergi og skyggnu bú-
mannsauga duldist fátt.
Árið 1943 andaðist Jón Baldvin
frá búi og félagi við Sveinbjörn
bróður sinn. Má fara nærri um
hvílíkt tjón og harmur þetta varð
öldruðum foreldrum og systkin-
um hins látna og því fremur, sem
Jón Baldvin var vinsæll og ágæt-
lega metinn. Þó að hér yrði skarð
fyrir skildi, er ófullt stóð og opið,
brast ekki flótti í lið þeirra
Hreiðarsstaðamanna. Sveinbjörn
Guðjónsson hefur síðan haldið
uppi framkvæmdarsömum bú-
skap á jörðinni, en móðir hans og
systur stutt hann að því ráði.
Síðustu æviárin var Guðjón
Daníelsson mjög bilaður að
heilsu. Þoldi hvorki mikil átölc
eða langa og hraða 'göngu. En
teinréttur stóð hann fram á síð-
asta ævidag, hörundsljós og
bjartur á svip. Með stærri
mönnum á vöxt, þrekinn um
herðar og hvelfdur barmurinn,
rög'gsamlegur og vasklegur.
Hann-andaðist í svefni að kveldi
hins 30. septemþer síðastliðinn.
Hönd lífsins hafði lyft honum
fram og yfir helstríð og banasótt.
Nú var umsjá hans og varygðar-
málum lokið. — En yfir andvana
líki öldungsins hvíldi þögn og
friður.
Runólfur í Dal.
1
Stóreisnaskattur
samkvæmt lögum nr. 22, 1950, og síðari breytingum á
þeinr lögum, féll í gjalddaga 15. þ. m.
Þeim gjaldendum, er hafa kr. 2000.00 og þar fyrir
neðan í stóreignaskatt, ber að greiða hann nú þegar.
Þeirn, sem hafa hærri skatt, ber einnig að greiða kr.
2000.00 og 10% af eftirstöðvum nú þégar, en geta sótt
um að greiða afganginn á allt að 20 áriim, en gefi þá
út eigin skuldabréf með veði í hinum skattlögðu eign-
O
um. —
Eyðublöð undir umsóknir um gjaldfrest skattsins og
upplýsingar þar að lútandi eru gefnar í skrifstofu minni.
Sérstök athygli er vakin á því, að það er.skilyrði fyrir
veitingu gjaldfrests, að fyrsta greiðsla sbr. hér að ofan
sé innt af hendi nú þegar, og að frá skuldabréfum sé
gengið fyrir 91. jan. n. k.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar,
19. nóvember 1951.