Dagur - 21.11.1951, Síða 11
Miðvikudaginn 21. nóv. 1951
D A G U R
11
Fokdreifar
(Framhald af 6. síðu).
geðveikradeild, en á óheppileg-
um stað, því að brjálað fólk ætti
helzt að vera fjarri bænum og
einangrað frá öðrum sjúklingum.
Taugasj úklingar héðan verða
að leita til Reykjavíkur, með
miklum kostnaði og erfiðleikum,
því að hér er enginn taugalæknir.
Þetta getur ekki gengið svona
lengur, það verður, eftir því sem
mögulegt er, að koma í veg fyrir
að þessir sjuklingar verði krón-
iskir.
Hér í Eyjafirði þarf að koma
hressingarhæli á friðsælum og
fallegum stað, og það eru margir
búnir að sjá þörf á því, en það
þarf að hefjast handa. — Menn
munu eflaust spyrja: Fyrir hvað
á að byggja? Það á að byggja það
fyrir gjafir og áheit, og ef að
menn verða eins fúsir að heita á
þetta hæli eins og t. d. Strandar-
kirkju, þá mundi fljótt safnast fé
til framkvæmdanna.
ÞAÐ ER NÚ orðinn þjóðarsið-
ur, ef það á að koma einhverju
máli í framkvæmd, að efna til
happdrættis, en ekki er sú starf-
semi þjóðinni til góðs. Við þurf-
um ekki að stofna til happdrættis
til þess aö líkna bágstöddum, við
þurfum aðeins að eiga hið rétta
hiigarfar, hjartalag mannsins,
sem sagt er frá í gömlu sögunni,
sem alltaf hefur jafn mikið gildi
þess, er tók upp hinn særða
mann, er lá við veginn, og bar
umhyggju fyrir honum, greiddi
fyrir hann, án þess að þekkja
nafn hans.
Hjálpum þessum sjúklingum
til þess að eignast lífs- og starfs-
gleði á ný.. Verum ekki sein til
góðra verka!“
Lax í Eyjafjarðará.
Hannes frá HÍeiðargarði send-
ir blaðinu. eftirfarandi:
„FYRíR STUTTU skýrði Dag-
ur frá því, að stofnað væri félag í
Eyjafirði til að reka fiskirækt í
Eyjafjarðará. Þar er líka sagt, að
áður en laxaseiðum var sleppt í
ána ,stuttu fyrir 1940, hafi laxs
ekki oroið vart í ánni. Þetta er
ekki með öllu rétt. — Gamall
maður, sem eg þekkti á unglings
árum mínum, sem lagt hafði
stund á silungsveiði í mörg sum
ur, eingöngu með lagnetjum,
sagði mér, að nokkrum sinnum
hefði hann fengið lax í net sín, og
í eitt sinn 18 punda lax. — Sjálf-
ur stundaði eg silungsveiði í ánni
framanverðri í allmörg sumur
ásamt öðrum. Fengum við þá
æði oft lax 12—15 punda, en urð-
um oftiega varir við enn stærri
lax, sem við náðum ekki, réðust
þeir venjulega á netin, þar sem
dýpið var mest, og ekki hægt, að
þeim að komast, og rifu göt á
þau. — Var stundum gaman að
sjá, hve kænlega þeir vörðu sig
fyrir hættunni, sem að þeim
steðjaði. Lágu þeir þá gráfkyrrir
í botninum og létu netið renna
yfir sig, en tóku svo sprettinn
beint í strauminn. Fyrir kom að
þeir blátt áfram stukku yfir net
in og komu þá alveg upp úr. -
Var ekki ósjaldan að við áttum í
langri og harðri baráttu við
þennan fallega og föngulega fisk
en urðum langoftast að láta í
minni pokann. — Blaðið segir
líka eitthvað á þá leið, að nú eigi
aftur að gjöra Eyjafjarðará að
góðri silungsá. — Eg held hún
liafi nú í langan aldur verið
fremur léleg veiðiá, hvað sem
áður hefur verið. — Frá því að
eg man fyrst til hefur aðeins eitt
sumar verið gott veiðisumar. Það
var „mislingasximarið“ 1882. Þá
var gnægð silungs og eitthvað af
lax í henni. Þótti þetta furðulegt
á þessu afar kalda og ömurlega
sumri. — Eg tel þó, 'af réynslu
minni á veiðiskap í ánni í mörg
sumúr, að þar séu góð skilyrði til
vaxandi veiði, og því gleðiefni, að
nú skuli hafizt handa að nota þau.
Það ,sem eg hef sagt hér á undan,
er því sagt fyrir það, að jafnan er
betra að hafa það er sannara
reynist.“
Hlustandi skrifar:
„FYRIJI NOKKRU síðan var
leikið í hádegisútvarpinu lagið
Svíalín og hrafninn „eftir Karl O.
Runólfsson“, að því er þulur til-
kynnti, að vísu ekki í miðju lagi,
en bæði á undan og eftir. Lagið
var sungið af kvenmanni, Guð-
mundu Elíasdóttur, að því er mig
minnir, og eg gat ekki annað
heyrt en þetta væri gamla, ís-
lenzka þjóðlagið., að vísu með
einhverju ókennilegu undirspili.
Getur hver sem er raddsett eitt-
hvert íslenzkt þjóðlag og .öðlazt
svo á því höfundarréttinn? Gam-
an væri, ef hin ástsæla tónlistar-
deild útvarpsins skýrði þetta
fyrirbæri fyrir hlustendum.“
Hveiti
ÚR BÆ OG BYGGÐ
í 10 lb. pokum.
Kr. 15.85 pokinn.
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 6. síðu).
auðvelt verkefni að leysa fyrir
fjölmennt félag. Peningagjöfum
er veitt móttaka hjá yfirhjúkrun-
arkonunni í sjúkrahúsinu.
Bregðist bæjarmenn vel við
þessari málaleitan mun verða
hægt að koma upp einhverju af
sængum, áður en mestu kuldarn-
ir halda innreið sína.
A. S. S.
Unglingsstúlka
óskar eftir atvinnu við að
sitja hjá börnum á kvöldin,
1—2 kvöld í \ iku.
Afgi'. vísar á.
Hraðsuðopottar
Járn- og glervörudeildin
Toiletpappír
Járn- og glervörudeildin
Kaupfélag Eyfirðinga
Nylenduvörudeild
og útibú.
Myíidarammar
Járn- og glervörudeildin
Spegl
ar.
litlir og stórir.
Járn- og glervörudeildm
Svört kvíga,
á að gi/.ka tæpl. ársgömul
er í óskilum hjá undirrituð
um, sem vantar aðra kvígi
samlita en eldri.
Sigurðtir Slefánsson.
Möðruvöllum.
Sóyjabáúnir
Soyjabaunamjöl
Súputeningar
Sætar möndlur
Kafragrjón í pk.
V2 kS- °g 1 kg.
Hrísgrjón í pk.
Riismjöl í pk.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Ný epli
Kr. 9.25 pr. k«
Þurrkuð epli
Kr. 22.50 pr. kg.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Kremkex
með fíkjukremi.
Kaupfélag Eyfirðinga,
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Strásykur
Molasykur
Púðursykur
Florsykur
Kandissykur
Skrautsykur
Vanillesykur
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Heilhveiti
Heilliveitikex
Hafrakex
Kaupfélag Eyfirðinga
Ný lend uvörudeild in
og útibú.
St.: Andr.: M HULD, 595111216,
IV/V, Átkv., 1, Frl.:
Hjúskapur. Hinn 14. nóvember
voru gefin saman í hjónaband af
séra Friðrik J. Rafnar Guðlaug
Helgadóttir frá Ólafsfirði og
Snorri Halldórsson, Hvammi í
Hrafnagilshreppi. Heimili þeirra
verður í Hvammi.
Systkinabrúðkaup. Hinn 17.
nóv. voru gefin saman í hjóna-
band af séra Friðrik J. Rafnar
Þorbjörg Helgadóttir og Friðjón
Pálsson frá Ártúni í Glerárþarpi.
Einnig Helga Margrét Pálsdóttir
frá Ártúni og Ásgeir Oddsson,
Glerá.
Barnastúkan „Sakleysið". —
Enginn fundur verður í Skjald-
borg næsta sunnudag. En félög-
um stúkunnar er boðið á afmæl-
isfund hjá barnastúkunni „Sam-
úð“, sem hefst kl. 2 á sunnudag-
inn í Samkomuhúsi bæjarins: •
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 10
frá S. E. — Kr. 25 frá Rögnu
Hannesdóttir. Móttekið á afgr.
Dags.
Ujálpræðisherinn, Strandg. 19B.
Föstudaginn 2J. nóv. kl. 8.30 e. h.:
Almenn samkoma. Þrír ’fyrrver-
andi foringjar í Hjálpræðishern-
um stjórna. — Sunnudag kl. 11 f.
h.: Helgunarsamkoma. Kl. 2 e. h.:
Sunnudagaskólinn. Kl. 8.30 e. h.:
Hjálpræðissamkoma. Lautinant
Karl Nilsen stjórnar. — Mánud.
kl. 4 e. h.: Heimilasambandið. Kl.
8.30 e. h.: Æskulýðsfélagið.
Barnastúkan „Samúð‘ ‘nr. 102
minnist 20 ára afmælis síns með
fundi í Samkomuhúsinu sunnu-
dagínn 25. þ. m. kl. 2 e. h. Þar
verður til skemmtunar: Ávarp,
leikþáttur, upplestur, söngur með
gítarundirleik, einleikur á píanó
og skrautsýning. Foreldrum
barnanna er boðið á fundinn.
Félögum barnastúkunnar Sak-
leysisins er einnig boðið á þenn-
an fund. Templarar bæjarins vel-
komnir.
Zion. Samkomur næstu viku.
Sunnudag kl. 10.30 f. h. sunnu-
dagaskóli. Kl. 1 e. h. drengja-
fundur (yngri deild). Kl. 2 e. h.
drengjafundur (eldri deild). Kl.
8.30 e. h.: Almenn samkoma.
Þriðjúdag kl. 5.30 fundur fyrir
telpur 7—13 ára. Miðvikudag kl.
8.30 e. h.: Biblíulestur. Fimmtu-
dag kl. 8 e. h. fundur fyrir
ungar stúlkur.
Áheit á Flateyjarkirkju. Frá S.
J. kr. 100.00. Kærar þakkir Jó-
hannes Bjarnason.
Stúkan Brynja nr. 99 heldur
fund í Skjaldborg næstk. mánu-
dagskvöld kl. 8.30. — Þessi fund-
ur er sérstaklega ætlaður til inn-
töku nýliða og óskað er eftir að
félagar stúkunnar mæti vel og
sem flestir með innsækjendur. —
Að afloknum stuttum fundi verð-
ur samsæti til heiðurs Sigurgeir
Jónssyni í tilefni af 85 ára afmæli
hans. — Félagar Isafoldar eru
velkomnir til þátttöku í fundin-
um og samsætinu.
BÆNDUR!
Messau í Akurcyrarkirkju kl. 5
e. h. næstk. sunnudag.
Aðalfundur Knatt-
spyrnufélags Ak-
úreyrar verður
haldinn í fþrótta-
húsinu sunnudag-
inn 25. þ. m. og hefst kl. 1.30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Áðalfundur skíðadeildarinnar er
í kvöíd kl. 8 e. h. í íþróttahúsinu.
Mætið allir og stundvíslega. —
Stjórnin.
Frjálsíþróttafólk! — Aðalfundur
frjálscíþróttadeildar verður hald-
inn í kvöld kl. 9 í íþróttahúsinu.
Mætið vel! — Stjórnin.
Æskulýðs-
félag Akureyr-
arkirkju. —
Yngsta deild.
Fundur næstk.
sunnudag kl.
10.30 f. h. Afhending á félags-
skjölum. Myndataka. — Mið-
deild. Fundur sunnudaginn kl.
8.30 e. h.
Brúðkaup. Þann 17. nóv. síðastl.
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Sonja Emma Plumm og
Jón Heiðar Kristinsson bóndi í
Möðrufelli, Eyjafirði. — Sama
dag voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Karolína Kristjana
Kristinsdóttir og Sigurður Sig-
Valdi Sigurðursson ,rakari, Ak-
ureyri.
Mcgðlimir NLFA. Hvítlaukur-
inn er kominn. Hann verður seld-
ur í Vöruhúsinu h.f. gegn fram-
vísun félagsskírteina, sem eru af-
greidd hjá frk. Önnu Laxdal. Þar
er einnig tekið á móti nýjum
félagsmönnum.
Eins og auglýst er á öðrum stað
í blaðinu halda stúkurnar Brynja
nr. 99 og Ísafold-Fjallkonan nr. 1
sameiginlegt skemmtikvöld í
Skjaldborg fimmtudaginn 22.
nóv. kl. 8.30 e. h. Til skemmtunar
verður félagsvist og Dans.
Höfnin. — 10. nóv. kom „Jör-
undur“ af veiðum. — 11. nóv.
kom Brúarfoss að sunnan. — 12.
nóv. kom Esja að austan, hring-
ferð. — 15. nóv. kom „Harðbak-
ur“ af veiðum. — 15. nóv. kom
Þyrill með olíu. — 16. nóv. kom
„Svalbakur“ af veiðum. — 18.
nóv. kom Hekla að austan, hring-
ferð. — 18. nóv. hætti Snæfell
togveiðum. — 19. nóv. „Kaldbak-
ur“ af veiðum.
Fíladelfía. Samkomur í Lund-
argötu 12 sunnudaga og
fimmtudagá kl. 8.30 e. h. Allir
velkomnir. — Sunnudagaskóli
hvern sunnudag kl. 1.30 e. h.
Öll -börn velkomin. — Sauma-
fundir fyrir ungar stúlkur
hvern miðvikudag kl. 5.30 e. h.
Skógræktarfél. Tjarnargcrðis
hefur bazar að Hótel Norðurland
sunnudaginn 25. nóv. kl. 1.30. —
Nefndin.
Höfum fengið sendingu af
amerísku fóðurblöndunni.
Reynsla sl. vetrar héfur sann-
að gæði fóðurblöndunnar. —
Verðið mjög hagstætt!
Verzlimin Eyjafjörður h.f.