Dagur - 02.07.1952, Síða 7

Dagur - 02.07.1952, Síða 7
Miðvikudaginn 2. júlí 1952 DAGUR 7 Fokdreifar Framhald af 4. síðu) um það, hver þeirra riti hina einu og sönnu nýnorsku, og þurfi heila 30 manna þingnefnd til þess m. a. að skera úr þeirri deilu einhvern tíma í langri framtíð! Er það nú ekki annars dálítið fljótfærnis- legt að fullyrða annað eins og þetta, minn ágæti skólastjóri? Og mætti það ekki jafnvel heimfær- ast undir þessi spaklegu orð sjálfs fyrsta og æðsta höfuðprests og forvígismanns nýnorskunnar, skáldsins Ivars Aasen (og nú skilja íslenzkir unglingaskóla- nemendur málið sjálfsagt ákaf- lega greiðlega): ,,Me hpyra stundom so stort eit Ord um alt, som Folk tykkjast vita um Liv og Lagnad, um Himmel og Jord og alt, som Mann kan gita. Eg ottast, alt, som me vita fullt, er litet mot alt, som fyr’ oss er dult.“ FYRIR MÉR er það a. m. k. svo, að eg finn glöggt, að „vesle Vitet det rekk ikkje til“ að átta mig á því, að það sé brýn nauð- syn, ef efla skal „þann skilning og velvildarhug.... um gildi menn- ingarlegra samskipta milli frænd- þjóðanna" á Norðurlöndum, sem minn ágæti Þ. V. virðist svo alls- hugar feginn, að við skulum vera sammála um, — að fara mörgum kalsyrðum um Dani, „danska kúgun", „hrognamálið í Höfn“ og margt fleira í þá átt, og staðhæfa — án nokkurrar minnstu við- leitni til rökstuðnings eða sann- ana — að danskan sé „íslenzkum eeskulýð hvimleið." Það kann að Vera, að þetta sé sannað og vafa- laust í Vestmannaeyjum, en eg leyfi mér — án þess þó að telja mér skylt að ganga fremur fram fyrir skjöldu til -varnar þeirri þjóð né hennar tungu en öðrum norrænum þjóðum og málum — að þetta sé alls ekki sannað né vafalaust mál á ýmsum öðrum stöðum og skólum á landinu. Tore Segelcke og nýnorskan. EG NENNI ekki að eltast leng- ur við röksemdafærslur Þ. V., þótt vissulega séu þær fleiri á svipaða vísu og þær, sem þegar hafa stuttlega verið nefndar. En að síðustu aðeins þetta: Eg neita því alls ekki, að nýnorska kunni að vera fagurt og hreimmikið mál, sé hún vel rituð og töluð. En hið sama má vissulega með full- um rétti einnig segja um allar hinar norrænu þjóðtungurnar. — Við Akureyringar höfuð nýskeð kvöld eftir kvöld fyllt leikhúsið okkar, einkum þeirra erinda, hygg eg, að horfa og hlusta á norsku leikkonuna Tore Seg- elcke. Hún flutti hlutverk sitt á sínu máli, og eg hygg, að allur þorri leikhússgesta hafi skilið hana mjög vel og hrifizt af hinu hreimfagra tungutaki. En mundu þeir hafa skilið hana jafnvel, ef enginn þeirra hefði lært nokkurt orð í dönsku á skólaárunum, en aðeins nýnorsku? Því að ekki flutti leikkonan hlutverk sitt á því máli, heldur tungunni, sem Þorsteini Víglundssyni þóknast að kalla „norskuskotna dönsku" — máli þeirra Ibsens, Björnsons, Kiellands, Jónasar Lie, Ham- suns, og annarra slíkra höfuð- snillinga, — máli meginþorra norsku þjóðarinnar þann dag í dag, — málinu, sem vinur vor úr Vestmannaeyjum vill láta ís- lenzka skóla úrskurða, án nánari rannsóknar, stórum síður eftir- sóknarvert og girnilegt til fróð- leiks íslenzkum æskulýð en tung- una, sem reynt er nú að skapa og fullmóta þar í landi — m. a. með harðvítugum, jafnvel stórpóli- tískum deilum, þingskipuðum sáttanefndum og á margan annan hátt — en kemst þó vissulega — jafnvel að dómi færustu og fremstu forsvarsmanna hennar þarlendra, sbr. prófessor Seip og ummæli hans, þau, er tilfærð voru hér að framan, — naumast úr deiglunni fyrr en eftir mjög langar og strangar fæðingarhríð- ir, ef það verður þá nokkurn tíma. krómaður skermur af barna- kerru tapaðist í gær, á Odd- eyri. — Finnandi góðfúslega geri aðvart í síma 1168. Niðurs. ávextir Perur Apricosur Ananas Plómur Ferskjur Jarðarber Hindber Kirsuber Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild, og útibú. Nýtt! Nýtt! Kirsuber í glösum. Kaupfélag Eyfirðinga N ýlenduvörudeild og útibú Rúsínur í pk. frá Californiu. Kr. 8.65 pakkinn. Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeildin og útibú. Munið ódýru Steina- Rúsínurnar Aðeins kr. 10.00 kílóið eða Kr. 125.00 kassinn á 12l/á kg. Y inniif atnaður Allls konar vinnufatnaður á börn, unglinga og fullorðna. Vefnaðarvörudeild. Kaupfélag Eyfirðinga N ýlendu vörudeild og útibú Band. ávextir Kr. 21.00 kílóið. Kaupfélag Eyfirðinga. Nýlenduvörudeild og útibú. Nærfatnaður ;; í fjölbreyttu úrvali. !; Vefnaðarvörudeild. :j '' Nýkomnir: Karlmanna- Strigasandalar Skódeild KEA. ÚR BÆ OG BYGGÐ Kirkjan. Messað á Akureyri sunnud. 6. júlí kl. 2 e. h. (Prest- vígsla). Hjónaband. Sigurbjörg Guðna- dóttir frá Höfn á Svalbarðsströnd og Sigurður Eyjólfsson, Guð- mundssonar hreppstjóra ó Hvoli í Mýrdal. Gefin saman 27. júní af séra Friðrik . Rafnar. Framtíðar- heimili brúðhjónanna verður á Hvoli í Mýrdal. Þrastahjónin. Kr. 20.00 frá Lilju. — Kr. 20.00 frá N. N. — Kr. 10.00 frá M. J. — Kr. 10.00 frá S. J. — Kr. 10.00 frá N. N. Mótt. á afgr. Dags. Prestvígsla. Sunnudaginn 6. júlí vígir vígslubiskupinn í Hólastipti, séra Friðrik J. Rafnar, guðfræðikandidat Ragnar Fjalar Lárusson, sem skipaður hefur verið sóknarprestur í Hofsós- prestakalli. Faðir vígsluþega, séra Lárus Arnþórsson á Miklaþæ, lýsir vígslu. Þetta er þriðja prestsvígslan, sem vígslubiskup- inn framkvæmir hér í kirkjunni. Áður hefur hann vígt séra Jó- hann Pálmason á Stað í Súganda- firði og séra Arngrím Jónsson í Odda. Til Minningarlundar Bólu- Hjálmars. Sveinn Stefánsson frá Tunguhálsi kr. 50.00. — Guð- björg Jónsdóttir, Eiðsvallagötu 9, kr. 25.00. — Zóphonías Jónasson, Eiðsvallagötú 9, kr. 25.00. — Guðvin Guðjónsson, kennari, Svalbarðseyri, kr. 50.00. — Svein björn Lárusson,. Bjarmastíg 1, kr. 25.00. — Friðfinna Hrólfsdóttir, Bjarmastíg 7, kr. 251)0. •y . “J I " '* - «-«• •» * A-V V * * I ——-------------- Kvenfélagið Framtíðin þakkar bæjarbúum Kvenfélagið Framtíðin þakkar þæjarbúum ágætar undirtektir þeirra við Jónsmessuhátíð félags- ins. — Oll skemmtíatriði og öll vinna var veitt án nokkurs end- urgjalds og fáum við aldrei full- þakkað þá drengilegu aðstoð. — Stjórnin. PRÓF í SKÓLUM (Framhald af 5. síðu). um fyrir 44 árum, en gera verður hins Vegar sívaxandi kröfur til hans, eftir því sem mannfjöldi þjóðarinnar og skólamenntun hennar eykst, vill aðalfundur S. N. B. leggja hina ríkustu áherzlu á það, að hafizt verði handa hið alli’a fyrsta í fyrirhugaðri endurbygg ingu kennaraskólans, sem veiti skólastarfseminni sem allra fullkomnust starfsskilyrði, og að jafnframt verði reistur æf- ingaskóli, sem til þessa hefur vantað. Skorar fundurinn á Alþingi, ríkisstjórn og þjóðina alla að veita þessu bráðnauð- synlega máli liðsinni, svo sem með þarf.“ Kosning stjórnar S. N. B. Formaður Jón Þ. Björnsson, ritari Garðar Jónsson, gjaldkeri Hersilía Sveinsdóttir. Varastjórn Gísli Gottskálksson, Magnús Bjarnason, Pála Pálsdóttir. Endurskoðendur: Marteinn Steinsson og Guðjón Ingimarsson. Fundurinn kaus Jón Þ. Bjöms- son, skólastjóra á Sauðárkróki, heiðursfélaga sambandsins, en hann lætur af störfum á þessu ári, vegna aldurs. Kennaramótinu hárust árnað- aróskir frá fræðslumálastjóra, Helga Elíassyni, og biskupi ís- lands, herra Sigurgeir Sigurðs- syni. Hjónaefni. Erla Tsaustadóttir, Akureyri, og Ólafur Oddsson, Brúnalaug. Unglingaheimilið við Ástjörn. Við ráðgerum að fara með ungl- inga austur til Ástjarnar í Keldu- hverfi í sumar, eins og undanfar- in ár. Sennilega verður farið um næstu helgi. Til mála getur kom- ið, að unglingar dvelji þar fjórar vikur, ef óskað er. Væntanleg iátttaka tilkynnist helzt sem fyrst í síma 1050. Arthur Gook. Gjöf í kapellusjóð göinlu kirkj- unnar: Kr. 500 00 frá N. N. í Inn- bænum. Þakkir, Á. R. Þrastahjónin. Kr. 25.00 frá Bernharði Sigursteini. Áheit á Sólheimadrenginn. Kr. 50.00 frá A. S. Mótt. á afgr. Dags. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 20 frá ónafngreindum. Mótt. á afgr. Dags. Sjötugur: Halldór Friðriksson Hinn 23. maí sl. átti Halldór bóndi Friðriksson í Hleiðargarði fimmtugsafmæli. Á þeim degi heimsóttu hann fjölda margir, bæði ættingjar og vinir og færðu honum gjafir, og mörg heilla- skeyti bárust honum. Veittu þau, Halldór og kona hans, Rósa Sveinbjarnardóttir, gestum §ín- um, ; af> hihni' 'mestu rþu^n, o'g skémmtu menn’ sér hið bezta fram eftir bjartri vornóttinni, en þá blés þýður sunnanblær um sveitina. Margan gestinn ber að garði hjá þeim Halldóri og konu hans, á öllum tímum árs, og eru þau hjón samhent í því að veita gestum sínum vel og láta þeim líða vel, meðan þeir dvelja á heimili þeirra. Halldór hefur búið á hálfri jörðinni Hleiðargarði í nær 20 ár góðu búi, og rekið það af miklum dugnaði. Þau hjón eiga 4 mann- vænleg börn, nú uppkomin, það yngsta fermt í vor. Halldór hefur tekið töluverðan þátt í hreppsmálum. Hann á sæti í hreppsnefnd og skólanefnd, og er í stjóm búnaðarfélags hrepps- ins (Saurbæjarhrepps) o. fl. Þá er hann og í sóknarnefnd, og hef- ur verið meðhjálpari við Saur- bæjarkirkju í mörg ár og tekið mikinn þátt í sönglífi sveitarinn- ar, bæði kirkjusöng og í söng- félögum, því að söngmaður er hann góður. Halldór er félagslyndur maður. Gleði og fjör er ríkur þáttur í skaplyndi hans. Hann hefur jafn- an verið mönnum kærkominn þáttakandi á skemmtisamkom- um í sveitinni og ætíð lagt sig fram um að allir gætu notuð ein- hverrar skemmtunar, einkum þeir, sem hafa fá tækifæri til að skemmta sér. En einnig hafa þau hjón oft veitt mönnum liðsemd, sem hart hafa orðið úti í baráttu lífsins vegna veikinda eða á ann- an hátt. Við kunningjar hans óskum honum og fjölskyldu gæfu og gengis á ókomnum tíma. Sveitungi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.