Dagur - 20.12.1952, Qupperneq 1

Dagur - 20.12.1952, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á þriðjudags- morguninn — Þorláksdag. Auglýs. þurfa að berast f. h. á mánudag. DAGUR Þessu tölublaði fylgir jólalesbók, 32 bls. Síðasta tækifærið til þess að koma augl. og orðsendingum til bæjar- og héraðsbúa, fyrir jól, er í Degi á þriðjud.morgim XXXV. árg. Akureyri, laugardaginn 20. desember 1952 55. tbl. grundvelli lækkunartillö armnar Stðrbreyfiiig á sfefnu dómsmála- ráðherra í áfengismálunum Boðar afnám sérstakra vínveitingaleyfa og framkvæmd laganna um héraðabönn Áfengislagafrumvarpið nýja, er samið var að tilhlutan dómsmála- ráðuneytisins hefur haft mikil og snögg áhrif á stefnu dómsmála- ráðherrans í áfengismálum, cnda þótt með óbeinum hætti sé. Þau tíðindi gerðust um miðjan sl. mánuð, að frv. þessu var vísað frá umræðu með rökstuddri dag- skrá í Efrideild Alþingis og er það því úr sögunni í bráðina. — Barðist ráðherrann hart gegn frávísuninni og undi úrslitunum illa. Eftirköst frávísunarinnar. Á fimmtudaginn sl. kom í Ijós, að afdrif málsins á þingi mundu valda eftirköstum, því að þá til- kynnti ráðherrann nýja tilhögun á útsölu áfengis og framkvæmd hinna mjög umlöluðu héraða- banna. Er hér um algera stefnu- breytingu að ræða hjá ráðherr- anum. Frv. það, sem vísað var frá bj’ggðist á því sjónarmiði, að áfengisneyzla mundi verða hóf- legri með auknu frelsi. Aðgerðir dómsmálaráðherra nú eru að herða enn framkvæmd gildandi laga um áfengissölu. Samkvæmt tilskipuninni verður frá 1. jan. n.k. ekki veitt leyfi til vínveit- inga í veitingahúsum, þar mefr talið Hótel Borg, sem hefur haft sérréttindi á þéssu sviði síðan 1930. Þá munu og frá sama tíma koma til framkvæmda ákvæði r Askorun frá Rafveifunni Til þess að foröast skömmtun á rafmagni yfir hátíðina, er fólk vinsamlega beðið að takmarka rafmagnsnotkun sína eins mik- ið og hægt cr. Sérstaklega er fólk bcðið að nota ekki lausa ofna eða önnur tæki til upp- hitunar þann tíma, sem álagið er mest. — Ennfremur vili Raf- veitan taka það fram, að fólk á helzt ekki að nota heimilis- tæki þegar spennan er minni en 190 volt, cða á tímanum kl. 10—12 f. h. og kl. 6—7 e. h. — Fólki er bent á auglýsingu frá Rafveitunni á öðrum stað í blaðinu. Nýlega rak tundurdufl undan Leifsstöðum á Svalbarðsströnd og var fenginn maður frá landhelg- isgæzlunni til að gora það óv'irkt. Reyndist duflið af brezkri gerð og í lagi. áfengislaganna um héraðabönn, þ. e. að kaupstaðirnir geta al- mennri atkvæðagreiðslu róðið því, hvort áfengisútsala er í bæn- um eða ekki. Var í lögunum frá 1943 lagt á vald ráðherra, hvort þessi ákvæði kæmu til fram----- kvæmda, og hefur ekki til þess komið fyrr en nú að beita þeim. Tekjumissir ríkissjóðs. Framkvæmd ákvæðanna um héraðabönn geta sennilega haft í för með sér að áfengisútsölum verði lokað um land allt, er landsmenn fá aðstöðu til þess að segja vilja sinn um það, hvort þeir vilji hafa útsölur eða ekki. Gæti því svo farið að hin snöggu umskipti í stjórnarráðinu hefðu veruleg áhrif á tekjur ríkisins. Hér er ekki verið að harma það, að málin hafa nú tekið þessa stefnu, heldur aðeins bent á, að stefnubreytingin kemur óvænt og snöggt og um það bil er fjárlaga- um afgreiðslu er að ljúka. Orðsending frá pósfsfofunni Þeim, sem ætla að scnda jólapóst í bæinn, er hérmeð bent á það, að til þess að öruggt sé að hægt verði að koma hon- um til skilt á aðfangadag, þarf að póstleggja hann í allra síð- asta lagi mánudaginn 22. des- ember kl. 24. Þær sendingar, sem síðar berast, verða ckki bornar út fyrr en 3. í jólum. A.V. Látið ekki peningascðla eða mynd í almenn bréf. Það er óvarlegt og auk þess ÓLÖG- LEGT. — Frímerkið í hægra liorni að ofan. — Skrifið rétt heimilisfang, götu- og hús- númer. — GLEÐILEG JÓL! Kommíiiiistar átu að síðustu ofasi í sig öil hrcystiyrðin um „smánartilboð44 og grunnkaupshækkanir Reykjavíkurbær lofar lækkun útsvara á iágtekjum í gærmorgun var undirrituð miðlunartillaga í kjaradeilunni, er sáttanefnd ríkisstjórnarinnar bar fram, og varð samkomulag uni efni hennar að Iokum í milli nefndarinnar og fulltrúa deiluaðila. Er talið fullvíst að tillagan verði samþykkt af verkalýðs- og fag- félögum þeim, sem að verkfallinu standa og að verkfallinu ljúki ekki siðar en í dag. Undirstaða samkomulagsins er tillögur ríkisstjórnarinnar frá 16. desember um verðlækkim nauðsynjavarnings og auknar fjöl- skylduba tur. í alla 19 daga verkfallsins kom aldrei nein ákveðin tiilaga um slíkar aðgerðir fram frá foringjum verkfallsmanna. Þeir héidu sér við grunnkaupshækkanir lengst af og kommúnistar gerðu það ailt fram á síðasta fund sáttanefndar með deiluaðilum. En þá átu þeir öll hreystiyrðin um „smánartiIboð“ og gerðust aðilar að miðlunartillögunni, enda sáu þeir fram á einangrun í áframhald- andi upplausnar- og niðurrifsstarfi og gripu síðasta tækifærið til að söðla um. TiUögur ríkisstjórnarinnar cru undirstaðan. - í upphafi miðlunartillögu sinn- ar vitnar sáttanefndin til tillagna ríkisstjórnarinnar frá 16. des. (er raktar voru í síðasta tbl.) um verðlækkun ýmissa nauðsynja og auknar fjölskyldubætur. Er á þeim grundvelli hyggt í sam- komulaginu, að því viðbættu, að ekkjur og ógiftar mæður njóti einnig barnastyrks, en ákvæði það vantar í núgildandi tryggingalög. Þá rekur nefndin það, að ríkisstjórnin hafi lýst yfir að hún muni ekki afla fjár til þess að standa undir útgjöldum vegna niðurfærslunnar með skatta- og tollahaekkunum. Utsv.arslækkun í Reykjavík. Þá lá fyrir yfirlýsing bæjaryf- irvaldanna í Reykjavík um hækkun persónufrádrádrags og lækkun útsvara á lágtekjum. Er persónufrádrag hækkað um 50% og lágmark útsvarsskyldra tekna hækkað úr 7000 kr. í 15000 kr., auk þess lækkaður útsvarsstigi á tekjum frá 15000 til 30000 kr. Hjón með 6 börn og fleiri, með þessar tekjur, verður ekki gert að greiða útsvar. Orlof aukið í 15 daga. Þá felst í tillögunni ákvæði um að auka orlof verkamanna úr 12 dögum í 15 eða um 15%. Nýr kaupgjaldsvísitölu- reikningur. 1 tillögunni felst ný tilhögun kaupgjaldsvísitölureiknings. — Vísitala nóvembermánaðar er 163 stig. Þegar lækkunaraðgerðir ríkisstjórnarinnar koma til fram- kvæmda lækkar hún í 158 stig. Á meðan vísitalan er 153—158 stig, á skv. tillögunni að greiða kaup- gjald á sama hátt og nú er gert, en lækki vísitalan niður fyrir 153 stig, greiðist kaupgjald á sama hátt, reiknað eftir kaupgjalds- vísitölu, með 10 stiga álagi. Hækki vísitalan aftur á móti upp fyrir 158 stig, greiðist kaupið samkvæmt kaupgjaldsvísitölu með 5 stiga álagi. Þó mun gert ráð fyrir að lægsti launaflokkur taki fulla vísitöluuppbót við 158 stig. Kaupgjaldsvísitöluskerðing minnkuð. Á grunnkaup, sem eigi er hærra en kr. 10.60 á klst., 485 kr. á viku og 2200 kr. á mánuði, skal greiða fulla vísitöluuppbót (áður var miðað við 1830 kr. mánaðarkaup), en það sem umfram er bætist skv. sömu ákvæðum og áður. Vcruleg tekjuaukning fyrir launamenn. Grundvöllur sá, er ríkisstjórnin byggði tillögur sínar á, felur í sér Reynl að fá ávexfi og jólafré norður fyrir jólin í gærkvöldi stóð til — ef vcrk- fallið leystist — að vinna yrði hafin í nótt við uppskipun í Reykjavíkurhöfn og jafnframt að hlaðfii yrðu sltip til að flytja varning út á land. Mundi þá verða hægt að hlaða smáskip, sem flytja varning út á land, á morgun. í ráði var í gærkvöldi að skip úr Reykjavík flyttu hingað til Akureyrar ávexti og jólatré og e. t. v. citthvað fleira og mundi það ná hingað síð- degis á mánudag ef allt gengi að óskum. Þctta eru þó aðeins ráða- gerðir, því að þegar þetta er ritað, er verkfallið sjálft óleyst bæði syðra og nyrðra og elcki vitað, hvernig atkvæðagreiðsla muni fara, þótt þess sé vænst, að verkfallinu létti. Hér á Ak- ureyri var t. d. unnið gegn samþykkt samninganna í gær- kvöldi á þeim forsendum, að bæjarstjórnin hefði ekki lýst yfir útsvarslækkun til jafns við Reykjavík. Ekki skal hér mælt gegn útsvarslækkun, en einkennilegt væri að lialda uppi verkfalii hjá atvinnurek- endum af þessum ástæðum, því að ekki segja þeir bæjarstjóm eða niðurjöfnunarnefnd fyrir verkum. Hins vegar er senni- legt að bæjarstjórnin hér telji rétt að samræma gjaldskrá sína og lækkanir bæjarstjórnar í Reykjavík, enda þótt Reykja- víli hafi þar allt önnur og margfalt betri skilyrði til þess að draga að sér hendina með skattheimtu, en bæjarfélögin úti á landi. sem öll eiga við fjárskort að stríða. verulega tekjuaukningu fyrir launamenn. í greinargerð sátta- nefndarinnar er gerð nokkur grein fyrir, hvað þetta þýðir í peningum. Er alls staðar miðað við Dagsbrúnar-verkamann, hjón með 3 börn. Verðkekkunaraðgerðir ríkis- stjórnarinnar eru taldar nema fyrir slíkan mann um 1100 kr. á ári. Hinar auknu fjölskyldubætur þýða í framkvæmd 1440 kr. ávinning á ári. Lækkun útsvarsins í Reykjavík er talin muni nema 600 kr. á ári. Hækkun orlofsfjár nemur fyrir verkamann, í fastri vinnu, 300 kr. á ári eða þessir liðir samtals fyrir slíkan verkamann 3440 kr. á ári. Auk þess nemur hagnaður af minnkun kaupgjaldsvísitöluskerð ingar, úr 1830 kr. í 2200 kr. um 1000 kr. á ári. Þá er ótalið það, er fram mun koma í lægra vöru- verði vegna lækkunar á farm- gjöldum, álagningu, benzíni o. fl. Er því hér um verulegt skref að ræða til þess að auka kaup- mátt peninganna, og byggist það á þeim ráðstöfunum ríkisvaldsins að sjá um verðlækkun á ýmsum nauðsynjum. í því sambandi er vert að minna á, að í alla 19 daga verkfallsins kom engin raunhæf tillaga um slíkar aðgerðir fram frá verkfallsforuslunni og allt fram á síðustu stund fullyrti blað kommúnista, að ekki yrði kvikað frá kröfunni um 15% grunn- kaupshækkun. En þegar komm- únistar sáu að þeir voru að ein- angrast og fólkið að snúa við þeim bakinu, urðu þeir hræddir og átu öll stóru orðin og hlupu til að samþykkja það, sem áður hét „smánartilboð“. Atkvæðagreiðsl- ur í félögunum hófust þegar í gærkvöldi. og er talið líklegast, að þessi nýi samningsgrundvöllur verði sam- þjTtktur og verkföllunum aflétt í dag. Niðurjöfnunamefnd hér spurð í gær sneri verkfallsforustan hér á*\kureyri sér til niðurjöfn- unarnefndar bæjarins og spurðist fyrir um, hvort hún gæti gefið fyrirhbit um lækkun útsvara á láglaunum í samræmi við yfirlýs- ingu niðurjöfnunarnefndar Rvík- ur. Mun samþykkt um slíka til- hliðrun við fjölskjddumenn hafa verið gerð í gærkvöldi. VALBJORK hið góðkunna húsgagnaverk- stæði hér i bæ, hefur gluggaút- stilingu á nokkrum nýjum teg- undum húsgagna að Hótel Norðurlandi þessa dagana. Eru þetta falleg og nýtízkul. húsgögn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.