Dagur - 20.12.1952, Page 2
2
D AGUR
Laugardaginn 20. desember 191)2
Sigurjón frá Ási níræður
Elzti maður í Öxnadal og Bægis-
árprestakalli forna, Sigurjón Arna-
son á Þverá, fyrrum bóndi í .\si á
Þelamörk, verður níræður á morg-
un, sunnudaginn 21. desember.
Skulu hér rakin fáein æviatriði
þessa virðulega bændaöldungs og
mæta manns.
Sigurjón er fæddur á Hömrum
við Akureyri 21. des. 1862, sama ár-
ið og bærinn fékk kaupstaðarrétt-
indi og þar var reist kirkja fyrsta
sinni.
Annars mætti færa til mörg dæmi,
ekki ófróðleg, er sýndi hina öðru
atburðarás þcssa merkilega tíma-
bils, þær furðulegu breytingar, sem
hvarvefna hafa orðið á þessum níu
áratugum einnar mannsævi. En hér
verður ekki frekar farið út í þá
sálma.
Foreldrar Sigurjóns voru hjónin
Arni Arnason í Björgum, Jónsson-
ar, og Kristín Jónasdóttir, og eign-
uðust þau alls 10 börn, en að auki
voru 4 hálfsystkini Sigúrjóns sam-
feðra. Mun nú aðeins einn bræðra
hans enn á lífi, Stefán, er ungur
fór til Vesturheims, og frændur
lians liugðu raunar löngu fátinn,
}>egar lregnir komu af honum á ný
fyrir skömmu.
Foreldrar Sigurjóns bárust mjög í
bökkum með svo þunga ómegð, og
ólst hann upp við kröpp og stopul
kjör, sem að vísu var ekki sjaldgæft
á þeim tíma. En allt fyrir j)að, þó að
Sigurjón þyrfti frá fyrstu barnæsku
að vinna hörðum höndum fd að
framfleyta lífinu og færi margs á
mis, ]>css sem nú er talið nauðsyn-
legt til jíroska og menningar, varð
jrað honum engan veginn svo illt
lilutskipti, sem ætla mætti. Hann
lærði snemma áð byggja á sjáffum
sér og liagnýta eigin reynslu. Og
Jiailnig urðu æskuárin honum líka
skóli, j>ó að á stundum væri að vísu
nokkuð strangur ,og nam hann J)ar
margt, er síðar kom oft að góðu
lialdi á langri leið.
í fyrstu var Sigurjón með for-
eldrum sínum og síðar móður sinni
er liún varð ekkja, en ungur fór
liann til elztu systur sinnar, Ólafar
(móður Sfefáns Jóhanns alþm. og
þeirra systkina), er þá var byrjuð
búskap á Steðja með fyrra manni
sínum, Jóhanni Jóhannssyni frá
Fornhaga. Og með þeirn hjónum
íluttist hann litlu síðar að Glæsibæ,
er þau réðust þangað til búsforráða
með séra Arna, bróður Jóhanns, er
j)ar sat síðastur presta. En j)eir
bræður drukknuðu á Eyjafirði, við
þriðja mann, á heimleið frá Akur-
eyri liaustið 1880. Treystust þau
systkinin þá ekki til að halda jörð-
inni, sem þcim mun hafa staðið
til boða, enda Sigurjón aðeins 18
ára og Ólöf með þrjú börn í ómegð.
(Af þeim komst aðeins eift til full-
orðinsára, Katrín, kona Haralds
Pálssonar á Rauðalæk.) En ekki
mun það samt hafa verið að skapi
Sigurjóns að sleppa alveg liendi af
systur sinni, eins og á stóð, og fóru
j)au bæði að Gæsum vorið oftir
})ennan válega atburð.
Níu árum síðar giftist svo Ólöf
öðru sinni, Stefáni Oddssyni á Dag-
vcrðarcyri, og réðist þá Sigurjón
cnn til systur sinnar, sem 4ionum
var mjög kær, enda Ólöf frábær
kona. Varð dvöl hans á Dagverðar-
eyri alls 10 ár, fyrst með þeiin hjón-
um og síðar Ólöfu einni og líirnum
liennar, en Stefán mann sinn missti
liún einnig eftir mjög skamma sam-
búð, árið 1894. Hvarf ekki Sigurjón
til fulls frá Dagverðareyri fyrr en
Kalrín, dóftir Ólafar, tók j)ar við
búi móður sinnar, með manni sín-
um, Haraldi Pálssyni. Sýnir þetta
glöggt trygglyndi Sigurjóns og
drengjkap og væri raunar hægt að
nefna þess íleiri dæmin, eins og
j)egar hann, árið 1907, bauð mág-
konu sinni, Svanfríði Bjarnadóttur,
síðar í Skógum, sem þá var orðin
ekkja, til vistar með sér að Asi, á-
samt sex börnum hennar ungum.
Sjálfur kvæntist Sigurjón ekki, né
reisti bú, fyrr en laust fyrir alda-
mót. Sótti hann brúði sína alla leið
vestur að Gunnsteinsstöðum í
Langadal, en lnin var raunar ey-
firzkrar ættar. Sigrún Bjarnadóttir
frá Vöglum, Arngrímssonar prests
á Bægisá, g()ð og mikilhæf kona.
Hófu þau búskap á Grjótgarði, en
bjuggu síðan tvö ár i Stóra-Dun-
haga. Mun það hafa verið fyrr en
hér var komið, sem Sigurjón var
um skeið organisti í Möðruvalla-
kl.kirkju, en hann hafði hið mesta
yndi af tónlist og liafði ungur hlot-
ið nokkra tilsögn í orgelleik hjá
Magnúsi Einarssyni söngkennara,
þó að lítt iðkaði hann þá íjrrótt, er
tímar liðu fram.
Að Asi flytjast þau svo lijónin
árið 1904, og þar bjó Sigurjón síð-
an í nærfejlt 30 ár. En þaðan telur
hann sig óefað eiga flestar sælustu
og sárustu minningar sinnar löngu
æfi.
I Asi naut Sigurjón sín vel að
ýmsu leyti, gerðist góður bóndi,
sem með hyggindum og lorsjálni
bjó að sínu og sá öllu, sem honum
var til trúað, hið bezta borgið. Þau
hjónin höfðu eignazt tvær efnileg-
ar dætur og heimili þeirra var orð-
lagt að háttprýði og myndarskap.
En Sigrúnar nauf skammt, og
missti Sigurjón hana eftir aðeins 7
ára samitúð. Var það lionum eins
og nærri má geta, sár harmur, sem
hann þó fékk að nokkru bættan,
er hann kvongaðist öðrú sinni,
einnig ágætri konu, Elínu Jónas-
dóttur. Bjuggu þau sanian um 13
ára skeíð, farsælum hjúskap, en
sumarið 1921 missti Sigurjón.einnig
jiessa kojiu sína frá {)rem börnum
J)eirra ungum.
En þá voru dætur hans frá fyrra
hjónabandi, Anna og Sigurrós, upp
konniar og studdu föður sinn dyggi-
léga. Varð hann og })á, ári síðar,
fyrir ])eini sorg að missa ungan
son, svo að margt gekk í móti á
þeim árum. En Sigurjóni var ekki
æðrugjarnt, og karlmannlegá var
brugðizt við, [regar harðast blés.
Þar bjó hann og að jreirri dýru
reynslu, sem lífið hafði ofið í örlög
hans frá fyrstu þð. Andlegt j)rek og
þolgæði, hófsemi og stilling í hverj-
um hlut, einkenndi og Sigurjón, ef
til vill framar öllu öðru.
Og þessar dyggðir prýða enn þá
hinn rósama og kyrrláta öldung, er
alltaf er eins og hann sést, hægur
og prúður, fyrirmynd ungra og gam-
alla í öllum grandvarleik. A þó Sig-
urjón til heitar tilfinningar og
mikið skap, en hvort tveggja vel
tamið. Og fastur cr hann fyrir, ef
því er að skipta og óhvikull í skoð-
un, veit það vel liverjum hann trúir
og hverjum ekki.
Er hann og allra manna fróðast-
ur um sögu og gang þjóðmála um
árafugi, })ó að sjálfur hafi hann
haft sig lítt í frammi. Og harla vel
fylgist hann enn með öllu, sem er
að gerast, hefur aðeins tekið sér
hvíld frá blaðalestri nú í svartasta
skamradeginu.
En skemmtilegast er að heyra
hann sjálfan segja frá, helzt löngu
liðnum atburðum, á sínu kjarnyrta
og kröftuga alþýðumáli, með tungu-
taki þeirrar kynslóðar, scm kunni til
hli'tar hið talaða orð. og hafði á
valdi sínu, þó að aldrei hefði í
skóla gengið.
Þá er hægt að gleyma stund og
stað í návist liins níræða öldungs,
sem man í fyllsta skilningi tímana
tvenna í þjóðlífinu, og líka sinnar
eigin ævi, allt frá hrakningsárum
æskunnar, í fátækt og allsleysi, og
að friðstóli hægrar og góðrar elli
við arin minninganna og ást og
hlýju umhyggjusamra/vina.
Hefur nú Sigurjón dvalið á Þverá
í röskan hálfan annan áratug, en
$5$$$$$$$$$5$$$$$$$5$$$$$$$$$$$$$5$$$5$$5$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$í$$$5$$$$$$$$$$57
Samvinnufélag Fljótamanna
S. F. H. — Haganesvík — Sími 3 A
Heiðraðir viðskiptamenn.
Vér viljum minna yður á það, að vér höfum alla jafnan fyrirliggj-
andi: Allar algengar matvörur, nýlenduvörur, vefnaðarvörur, tóbaks-
og sælgætisvörur. Leikföng, Búsáhöld og leirvörur. Smávörur ýmiss
konar. Seljum ennfremur: Áburð og sáðvörur, fóðurvörur, vélar og
verkfæri, málningarvörur, útgerðarvörur, byggingarvörur, kol og salt.
Benzín, ljósaolíu, gasolíu og hina ágætu ESSO-smurningsolíur.
Bókasala. — Útsala Viðtækjaverzlunar ríkisins.
Tekur fisk og alls gonar landbúnaðarvörur í umboðssölu.
Starfsrækir: Sláturhús. Umboð fyrir Samvinnutryggingar. Umboð
fyrir Ullarverksmiðjuna Gefjunni og Saumastofu Gefjunar. Afgreiðsla
fyrir Skipaiitgerð Ríkisins og afgreiðsla fyrir „Póstbátinn“. Bifreið til
vöruflutninga.
★ -K ★
S. F. H. óskar félagsmönnum sínum og öðrum viðskiptamönnum
gleðilegra jóla og alls velfarnaðar i nútíð og framtíð.
Í55555555555S5555S5555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555Í5Í55555555Í5555555Í*
»555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555557
Kvensokkana
- fjölbreyft úrval -
. 09
Undirfötin
og
Náttkjólana
fáið þið í
V efnaðarvörudeild
þangað íluttist liann með dóttur
sinni, Önnu Ijósmóður, og manni
hennar, Ármanni Þorsfeinssyni frá
Bakka, og J)ar er einnig önnur
dóttir hans búandi, Sigrún, kona
Kára, bróður Ármanns. En þriðja
dóttirin, mikil atgjiirvisstúlka, Sig-
urrós, missti heilsuna fyrir mörgum
árum og er sjúklingur á Akureyrar-
spítala.
Einkasonur Sigurjóns, Hörður, er
kvæntur syðra.
Og svo aðeins að lokum:
Það er einlæg ók allra, sem
jrekkja Sigurjón og sögu hans,
þeirra, sem virða að makleikum
þennan vammlausa öldung og góða
dreng, að honum megi sem bezt
farnast, það sem eftir er og endast
þróttur og heilsa til liinztu stund-
ar. Þá afmæliskveðju flyt eg honum
með línum þessum frá öllum vin-
um hans, um lcið og eg óska hon-
um sjálfum, heimili hans og börn-
um, gleðilegrar jólahátíðar.
Sigurður Stejánsson.
UM JÓLIN
verða mjólkurbúðir vorar opnar sem hér segir:
Miðvikudaginn 24. des. til kl. 3 síðdegls.
Jóladag 25. des. lokað allan daginn.
2. jóladag, 26. des., opið frá kl. 10—1.
Gamlársdag, 31. des., opið til kl. 3.
Nýársdag, 1. jan., lokað allan daginn.
ATHUGIÐ: Alla aðra daga jólavikunnar verður
mjólkurbúðunum lokað á vénjulegum tíma.
Mjólkursamlagið.
75555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555'