Dagur - 13.05.1953, Qupperneq 7
Miðvikudagiim 13. maí 1953
D A G U R
7
Jarðarför ÞÓKÐAR DANÍELSSONAR, bónda á Sílastöðum,
sem andaðist 11. þ. m., fer fram mánudaginn 18. maí n.k. og
hefst með húskveðju að heimili hins látna kl. 11 f. li. Jarðsett
verður að Munkabverá kl. 2 e. h.
Eiginkona og börn.
Hjartans bezta þakklæti til vina og ættingja, sem
sýndu mér ástúð og vinarloug með heimsókmtm, gjöfum,
blómum og heillaóskum á sextugsafmæli mínu 27. f. m.
Guð og gæfan fylgi ykkur öllum.
ANNA JÓHANNSDÓTTIR. g
Sy ðra-Garðshorni.
OOOOWOOOOOOOOOOOOOOOOttOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÍHSOOO
Gagnfræðaskóli Alatreyrar
Sýning verður á handavinnu og teikningum nemenda
í skólahúsinu á uppstigningardag (14. þ. m.). Ennfremur
verða sýndar teikningar Iðnskólanemenda. Sýningin
verður opin frá kl. 10 árdegis til kl. 10 að kveldi.
Gagnfræðaskóla Akureyrar, 12. maí 1953.
ÞORSTEINN M. JÓNSSON, skólastjóri.
Pantið í
SUNNUDAGSMATÍNN
á föstudögum.
Ekki svarað í síma á laugar-
dögum.
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Perlu þvottaduft . Kr. 3.40
Geysir þvottaduft . Kr. 2.85
Sápuspænir . Kr. 5.00
Blámasápa . Kr. 11.50
Rósarsápa . Kr. 3.45
Pálmasápa . Kr. 2.85
Savoh de París . Kr. 2.95
Baðsápa . Kr. 3.35
Idola . Kr. 2.75
Gólfbón . Kr. 7.50
Júgursmyrsl minni dósir . . Kr. 4.25
Júgursmyrsl stærri dósir . . Kr. 9.00
Hárþvottalögur . Kr. 8.50
Barnasápa . Kr. 3.35
Sailorsápa . Kr. 3.15
Raksápa . Kr. 2.50
Kaupfélag Éyfirðinga.
Nýlenduvörudeildin og útibúin.
AMLFUNDSJR
Útgerðarfélags Akureyringa h. f.
Verður háldinn í Skjaldborg (Bíósalnum) föstudaginn
29. maí 1953 kl. 21.00 e. ln
' " ’ . . v; v . ’■ ■ , :
DAGSKRÁ:, !!
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt. lögum
félágsins.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félags-
ins frá 26. maí.
STJÓRNIN.
Ný verðlækkun
á Sjafnarvörúm:
VERÐIÐ ER NÚ:
1
Nýtt
Hrefnukjöt
Kjötbúð KEA
og útibúin í bænum.
Zick-Zack
fætur
fyrirliggjandi
Járn- og glervörudeild.
LAUKUR
Kaupfél. Yerkamanna
Nýlenduvörudeild.
Tóbaksponta
merkt B S 1951 fundin.
Geymd á afgr. Dags.
Mótorhjól
ög mótorhjólskúr til sölu
Ennfremur þvottavinda á
grind. — Selst allt ódýrt.
Afgr. vísar á.
Barnavagn
Amerískur á háum hjólum
nýlegur til sölu.
Afgr. vísar á.
JEEP!
varahlutir — viðgerðir,
Umbjóðendur á Akureyri
ÞÓRSHAMAR h.f.
Sími 1353
I. O. O. F. = 13551581/2 =
l. O. O. F. — Rbst. 2 — 1015138y2
Messað í Akureyrarkirkju á
uppstigningardag kl. 2 e. h. —
F. J. R.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50
frá S. J. Mótt. á afgr. Dags.
Búnaðarfélag Saurbæjarhrepps
gekkst fyrir samkomu að Saurbæ
á laugardagskvöldið og var þar
margt manna saman komið. —
Finnur Kristjánsson bóndi í Ár-
túni setti samkomuna, en því
næst hófst kvikmyndasýning og
voru sýndar landbúnaðarkvik-
myndir frá Bandaríkjunum. —
Skýrði Ólafur Jónsson héraðs-
ráðunautur myndirnar. Síðan
flutti Ölafur Jónsson erindi og að
lokum var dansað.
Vaglaskógur kom vel undan
snjónum, sagði ísleifur Sumar-
liðason skógarvörður á Vögl-
um blaðinu í gær. Snjór er
nær horfinn úr skóginum og
ekki langt þangað til skógurinn
tekur að laufgast ef tíð verður
sæmilega góð.
Samvinnan, aprflheftið, flytur
m. a. grein um starfsémi íslend-
ingasagnaútgáfunnar, ritstjórnar-
grein, sem heitir „Hvers vegna
kaupfélög?“, Annál landhelgis-
málsins, grein um samvinnustarf
í Danmörk eftir Kristinn Gunn-
arsson hagfræðing, Hvenær verð-
ur matvælabúri undirdjúpanna
lokið upp ?, framhald af þætti
Kristjáns frá Garðstöðum um
sögu verzlunarsamtaka við ísa-
fjarðardjúp, ýmsa fasta þætti,
framhaldssögu o. fl.
Undanfarna daga hafa götum-
ar í miðbænum verið þvegnar
snemma á morgnana og ér að
því veruleg bót og framför frá
þeim tíma, er verið var að sópa
þær í miðri umferðinni um há-
daginn.
Dánardægur. Látinn er, hinn
11. þ. m. Þórður Daníelsson,
bóndi á Sílastöðum, fyrrum bóndi
á Björk.
Mæðrastyrksnefrid biður þess
getið að hún muni starfa í sumar
á sama grundvelli og síðastliðið
sumar og kosta nokkur böm á
barnaheimilinu Pálmholti. Einnig
að þær mæður, sem óska eftir að
hafa þar börn á vegum nefndar-
innar, ættu að sækja um það sem
fyrst. Skrifstofan er opin á mánu-
dögum og föstudögum frá kl. 5—7
í Strandgötu 7.
Svigmót Akureyrar fer fram
við Ásgarð á morgun.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Hulda Bald-
vinsdóttir og Björn Hermannsson
leikfangasmiður.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 40
frá óþekktum. Mótt. á afgr. Dags.
Til Auðnafólksins í Svarfaðard.
Kr. 800.00 frá vinnuflokk Bjarna
Vilmundarsonar. Mótt. á afgr.
Dags.
Hjúskapur. — Sunnudaginn 10.
maí sl. voru gefin saman í hjóna-
band af sóknarprestinum í
Grundarþingum ungfrú Marse-
lína Jónasdóttir frá Hripkelsstöð-
um og Steingrímur Ragnarsson,
bóndi á Stekkjarflötum. — Ung-
frú Þorgerður Ragnarsdóttir,
vefnaðarkennari, frá Stekkjar-
flötum, og Kristján Jónasson,
trésmíðameistari, ísafirði. Hjóna-
vígslan fór fram í Munkaþverár-
kirkju.
Barnaleikvellirnir verða opnað-
ir um næstk. mánaðamót og er
gæzlustarfið auglýst laust til
umsóknar í blaðinu í dag. Um-
sóknarfrestur er til 26. þ. m. og
tekur form. Barnaverndarnefnd-
ar við umsóknum. Ýmsum finnst
bæjaryfirvöldin vera sein á ferð
hér sem oftar. Þegar tíð leyfir
ættu leikvellirnir að vera til taks
um miðjan maí.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins hér á Akureyri biður blaðið
að skilá þakklæti 'tií' haéjárbúa
fyrir undirtektir þéirra sl. sunnu’-
dag, er deildin seldi merki fyrir
Slysavamafélag íslands. — Alls
komu inn kr. 5.835.00. Deildinni
bárust skilaboð frá Slysavarna-
félagi íslands, að þessa peninga
skyldi ekki senda suður, heldur
leggja þá í björgunarskútusjóð
Norðurlands.
íkviknun. Á sunnudaginn, síð-
degis, var slökkvilið bæjarins
kvatt að Þrúðvangi hér ofan við
bæinn. Hafði kviknað í eldhúsi út
frá straujárni. Eldurinn var fljótt
slökktur og urðu skemmdir litlar.
Þetta er 11. útkall brunaliðsins
síðan Um áramót.
Eldri dansaktúbburínn. Síðasti
dansleikurinn verður að Lóni
laugardaginn 16. þ. m. kl. 10 e. h.
Mætið stundvíslega.
I. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjall-
konan heldur fund næstkomandi
mánudag á venjulegum stað og
tíma. Mælt með umboðsmönnum
o. fl.
Gæzlustarf við barnaleikvellina
er til umsóknar til 26. þ. m. ETmsóknum sé skilað
til formanns Barnaverndarhefndar, Þórunnarstr. 103
Akureyri.
Barnaverndarnefndin.
L
Gólfþveglar
°g
Svampar í þvegla
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.