Dagur - 27.06.1953, Side 5
Laugardaginn 27. júní 1953
D AGUR
5
Morgundagurmn er
Nú eiga kjósendur leikinn
Á morgun eigum við Akureyringar þess kost að veita Sjálfstæðis-
flokknum verðuga ráðningu fyrir frammistöðu hans undangengna
áratugi í þjóðmálunum í heild og þó ekki sízt — að því er okkur
varðar sérstaklega — fyrir slælega forstöðu þessa flokks fyrir brýn-
um og aðkallandi hagsmunamálum þessa bæjarfélags á Alþingi.
dagur reikningsskilanna
Verður messufall
á íhalds-annexíunni?
En fyrir þvf hafa áður og iðu-
lega verið færð gild rök og óhrekj-
andi hér í blaðinu, að íhaldið hef-
ur að undanförnu og yfirleitt látið
Akureyri og málefni hennar sitja
mjög á liakanum á þeim vettvangi
fyrir þá eina sök, að því er virðist,
að flokkurinn hefur litið á þennan
bæ sem svo sjálfsagt pólitískt her-
fang sitt og örugga annexíu, að þess
gerðist engin sérstök þörf að vaka
yfir né hygla hjörðinni hér á sama
liátt og þessir menn leggja á sig and-
vökur og ærið erfiði — að minnsta
kosti svona rétt fyrir kosningar —
i því skyni að finna máleíni, er
þeir geti tileinkað sér og sýnt ein-
hvern lit á að vinna fyrir og þykjast
hafa áhuga á, — er ganga mundu
í augu kjósenda í „vafakjördæmun-
um“ svokölluðu og eins þeim kjör-
dæmum, þar sem foringjarnir sjálfir
og helztu áhrifamenn flokksins eru
í kjöri.
Eini möguleikinn
EKKI GETUR nokkrum heil-
skyggnum manrii blandast hugur
um það,að eini möguleikinn til þess
að hrekja „Sjálfstæðið" a£ þessari
hjáleigu sinni og velgja því verulega
undir uggum,. .syo að það gleymi
ekki eftirleiðis bænum og málefnum
hans algerlega í ljóma þingsalanna,
— er sá, að allir liugsandi og á-
byrgir andstæðihg'ar íhaldsstefn-
unnar hér í btenum sameinist að
þessu sinni um þann frambjóðand-
ann, sem lang-líklegástur er til þess
allra frambjóðenda andstöðuflokk-
anna að ná því kjörfylgi, er endast
mætti til þess að velta íhaldinu af
valdastóli. Ber þar margt til, að
dr. Kristinn Guðmundsson kemur
einti til greina í þessu sambandi.
Ekki aðeins það eitt, að flokkur sá,
er að framboði hans stendur, Fram-
sóknarflokkurinn, liefur um langt
skeið verið vaxandi flokkur hér í
bænum sem annars staðar í landinu,
— forustuflokkur, sem sýnt liefur
Ijóslega á löngu og glæsilegu starfs-
skeið, að hann er ábyrgur urnbóta-
flokkur, sem er fyllilega þeim vanda
vaxinn að veita málefnum þjóðar-
innar sterka og örugga forstöðu og
það jafnvel á hinum hættulegustu
umróts- og krepputímum, svo sem
tíðum hefur komið í hans hlut,
þegar aðrir brugðust og lilupu frá
stýrinu, gleymdu allri ábyrgð og
níddust á því, sem þeim liafði
verfð til trúað.
Beztu meðmælin
EN FLEIRA ber og til, er myður
og aílir kjörfylgi dr. Kristins. Allir,
Mi eitthvað þekkja til mannsins,
véta, að hann er ekki aðef«s glæsi-
manni og kempa á að líta og í
framgöngu allri, gáfaður og dug-
mikill maðjur, hámenntaður, lífs-
reyndur og þaulvanur hvers konar
opiaberum störfum og félagsmála-
baráttu. Að öllum liinum frambjóð-
endunum ólöstuðum mui hann, að
dómi þeirra, er bezt til þekkja og
ekki eru haldnir neins konar póli-
tískri starblindu, sameirm langbezt
frambjóðendanna alla þá miklu
kosti, er nú voru taldir. En langmest
kann þó, þegar öllu er á botninn
hvolft, að vera um það vert, að
allir, sem nokkuð þekkja til dr.
Kristins, vita gjörla, að hann er
drengur góður og hjartahlýr, sem
í engu má vamm sitt vita og á
engu vill níðast, því, er honum er
til trúað. Ef til vill sannar sú stað-
reynd betur en allt annað, að hér
er rétt frá skýrt og í engu ýkt, að
þrátt fyrir einörð og mikil afskipti
sín af opinberum málum — oft
heitum og hörðum deilumálum —
og þrátt fyrir skattstjórastarf sitt —■
sem öðru jöfnu mun líklegra til
tortryggni, ýfinga og vanþakklætis
en flest, ef ekki öll, önnur störf —
hefur dr. Kristni tekizt að verða
einhver vinsælasti borgari í bænum
og halda sem maður og drengur
fyllsta trausti og hylli samborgara
sinna úr öllum stéttum og úr öllum
pólitískum flokkum.
Allir eru þeir
frambærilegir menn
UM FRAMBJÓÐANDA hins
nýja „Þjóðvarnarflokks“ er það
að segja, að í augum okkar Akur-
eyringa er hann óskrifað blað, þar
sem við þekkjum á honum engin
deili, fremur en landsmenn yfirleitt,
enda má liann og flokkur hans
gjárnan liggjá hér alveg milli liluta,
þar eða hann á hér einskis kjörfylgis
von, er nokkru máli skipti. — Fram-
bjóðendur hinna flokkanna þekkj-
um við hinsvegar vel, og fúslega
skal það hér játað og viðurkennt, að
þeir eru allir meeta vel frambari-
legir menn, sem liver um sig hefur
sér til ágætis nokkuð, persónulega
og hver á sínu sviði. Og um fram-
bjóðarida Sjálfstæðismanna, Jónas
Rafnar, er blaðinu ljúft að taka
fram og leggja á það áherzlu, að
hann er sérlega geðfelldur og mynd-
arlegur ungur maður, greindur, vel
menntaður og háttvís, enda mun
hann vel metinn í hvívetna, vin-
sæll og vafalaust drengur góður,
svo sem hann á kyn til. En á hinn
bóginn getur hann heldur enginn
skörungur kallast, né lieldur sérlega
líklegur til áhrifa eða leiðsagnar í
þjóðmálabaráttunni, enda reynslu-
lítill enn á því sviði, og víst það
sánnasta orða, aðþingsætiðhér hlaut
hann með nokkuð svipuðum hætti
og gerist um erfðaprinsa, sem setj-
ast án eigin verðskuldunar í valda-
stólinn, þegar liann losnar, eða upp
úr honum er staðið af þeim, sem
áður sátu þar í náðum og héldu að
sér höndum.
Gegn flokki,
en ekki persónu
SÓKN OKKAR Framsóknar-
manna og annarra þeirra kjósenda
liér á Akureyri, er nú munu veita
dr. Kristni fylgi sitt á kjördegi,
beinist þannig alls ekki gegn Jón-
asi Rafnar persónulega, heldur er
áhlaupinu beint gegn flokki þeim,
sem styður hann til valda, stefnu
lians, eða þó kannske öllu lieldur
eins og nú er komið málum —
algjöru stefnuleysi. — Ekki er sér-
lega langt um liðið, á mælistiku
þjóðarsögunnar, að íhaldsflokkur-
inn gamli skipti um nafn og tók
að kalla sig Sjálfstæðisflokk. Nafna-
breytingin var aðeins auglýsinga-
bragð, sem Kommúnistaflokkurinn
apaði síðar eftir, er hann tók upp
hið langa og leiða heiti, er
hann nú ber, en fæstir muna annars
eða nota: — í hvorugu tilfellinu
var um að ræða nokkra breytingu
aðra en nafnaskiptin: Mennirnir,
stefnumálin, baráttuaðferðirnar —
allt sat við sama keip og áður, öld-
ungis á sama hátt og þess er naum-
ast að vænta, að maður, sem áður
liefur heitið Júdas, taki nokkrum
eðlisbreytingum, þótt hann láti
skíra sig upp og heiti eftir það
Símon Pétur!
Nýja nafnið
á gamla flokknum
MÖRGUM GÓÐUM manni hef-
ur hins vegar veitzt erfitt að bera
hið nýja lieiti flokksins sér í munn,
því að ekki er fortíð þessarar sveitar
slík í sjálfstæðisbaráttu þjóðarihnar,
að hún réttlæti þessa nafngift á
honum fram yfir aðra flokka, nema
síður sé. Og ekki er sjálfstæðinu
fyrir að fara í þjóðmálabaráttunni
og stefnumálunum Iieldur, nema ef
vera skyldi, að drabbið og hring-
landahátturinn gæti kallast sjálf-
stæði! Af þessum sökum verður
mönnum það oft á, að kalla flokk-
inn enn sínu gamla heiti, íhalds-
flokk, en raunar skal það játað, að
sú nafngift er heldur engan veginn
rétt, nema að vissu marki. — Öllum
þjóðum, sem fast vilja halda í
forna og fræga arfleifð sína, menn-
ingareinkenni, þjóðerni, tungu og'
gamla og góða siðu, er nauðsynlegt
að sýna nokkurt íhald og aðgát um
öll þessi verðmæti, svo að þau fari
ekki forgörðum. Heilbrigð og fram-
sýn íhaldssemi og varfærni getur og
átt fyllsta rétt á sér á sviði fjármála
og atvinnuþróunar. íhaldsflokkur-
inn enski ber þannig ílokksheiti
sitt með réttu og lxeldur því stoltur
á lofti sem sæmdarheiti. Það liefði
íhaldsflokkurinn gamli hér á ís-
landi einnig getað gert enn þann
dag í dag, ef hann hefði skilið sinn
vitjunartíma og ekki atað skjöld
sinn svo út, að flokknum var nauð-
syn að fleygja honum frá sér og
reyna að flýja frá fortlð sinni og
sögu — freista þess að dyljast í ryk-
skýi nýrrar og falskrar nafngiftar.
Þá hefði „Kosningablaðið" þing-
eyska heldur ekki talið sig tilneytt
að birta svo óskammfcilið níð um
látna menn — beztu menn síns eig-
in flokks, frá öndverðu — sem það
gerði nú á dögunum, né heldur svo
smekklaust skrum um hið nýja
„sjálfstæði":
„Jón Þorláksson vildi mynda hér
ihaldsflokk að enskutn sið (eftir
þessu orðalagi að dæma er það
enskur siður að mynda íhalds-
flokka!), en fljóll kom i Ijós, að
slik stefna samrýrndisl ekki frjáls-
lytidu eðlisfari Islendinga. (Þar liafa
menn dóminn um Jón heitinn Þor-
lákssoii og íhaldsflokkinn gamla,
kveðinn upp af ný-íhaldsblaði!) —
— Stofnendur Sjálfstœðisflokksins
völdu sér þvi frjálslynda stefnu og
öfgalausa, Jtar sem reynt var að
meeta rótgrónu eðlisfari Islend-
inga." (!)-------„Sjálfstœðismenn
treysla svo mjög á frelsið vegna þess,
að þeir trúa, að það góða, sem býr
i hverjum m.anni, tiái bezt yfirhönd-
inni undir heiðskírum himni frelt-
isins(!) — Ef þetta er ekki skrtim
og kokhreysti, ja, livað er þá skrum
og fagurgali, góðir liálsar?
íhaldið -
dauðahaldi í sérréttindi
EN AÐ EINU leyti a. m. k. hef-
ur þessi flokkur þó ávallt reynzt í-
haldssamur og ber því lieiti með
réttu að vissu marki, þegar liann er
við íhald kenndur: — Hann hefur
ávallt haldið fast í sérréttindaað-
stöðu braskaralýðs Reykjavíkur, er
ætíð hefur verið kjarni flokksins
og uppistaða, enda ráðið þar öllu
að tjaldabaki. Til þess að þjóna
þcssum „hugsjónum" hefur flokk-
urinn því alltaf lialdið dauðahaldi
í sín pólitísku völd og aðstöðu, —
kropið við rekkjustokk kommúnista
og fengið enda að skríða undir póli-
tísk nærklæði þeirra, þegar það hef-
ur þótt lienta, — fjandskapazt eink-
um og sér í lagi við samvinnuhreyf-
inguna sem erfðafjanda sérhyggj-
unnar og einstaklingsgróðans, —
heimtað í orði kveðnu frjálsa verzl-
un og afnám hvers konar hafta, en
í íeyndinni og bak við tjöldin stutt
livers konar höft og einokunarað-
stöðu (sbr. fisksölumálin), enda er
það deginum ljósara, að sú eina
stétt, sem hefur grætt á höftunum
og vill því í leyndum lijarta síns um
fram allt viðhalda þeim, þótt ekki
þyki henta að flagga þeirri afstöðu
framan í kjósendum, — er einmitt
heildsalaklíkan i Reykjavík, svarta-
markaðsbraskararnir og allur sá lýð-
ur, sem kringum þá herra lifir og
hrærist.
Spámaður leikaranna
rís upp!
ÞESSARI KLÍKU hefur jafnan
verið ljóst, að til þess að viðlialda
sérréttindaaðstöðu sinni varð hún
að lialda hinum pólitísku völdum í
landinu, hvað sem það ltostaði. En
til jress að svo gæti orðið, dugði
auðvitað ekki, að braskararnir sjálf-
ir kæmu til dyranna eins og þeir
eru klæddir — í tötrum eiginglrn-
innar og sérhyggjunnar liið innra,
en ytri maðurinn jafnvel skrýddur
viðhafnarflíkum, með hvítt um háls-
inn og enda með silkihanzka á
höndum, þær stundir sem þeir eru
þá ekki að kafa inni í „rottuholurn-
ar eftir stríðsgróðanum", eins og
Ólafur Thors orðaði þetta einu
sinni! — Nei, ekki mundi nein
skrautsýning í þeim stíl stoða, er á
liólm kosningabardagans kæmi. Þeir
yrðu að hafa um sig mikla hirð —-
stóran pólitískan flokk í landinu —
og til þess að svo mætti verða, yrðu
þeir að beita öðrum fyrir sig —- og
hvergi koma sjálfir fram úti á með-
al fólksins. Til þess að ná þessu
takmarki var allt til vinnandi, og
fyrst og fremst mátti ekki spara lýð-
skrumið, loforðin og blekkingarnar.
Og sjá! í fyllingu tímanns reis upp
sá spámaður, sem þessir menn sér-
staklega þurftu á að halda, og var
raunar sjálfur úr þcirra innsta
hring að uppruna og leyndum liags-
munum: Leikarinn mikli, er kunni
allar þessar listir lýðskrumsins, aldr-
ei flökraði við neinu, sem tunga
hans sjálfs talaði, aldrei hikaði á
braut lientistefnunnar og hinnar
pólitísku spákaupmennsku — sjálf-
ur Ólafur Tliom — gekk fram á
sviðiS og klappaíi sér sjálfur ákaft
lof í lófa, rneðan kastljósum Morg-
unblaðsins og annarra íhaldsmál-
gagna var að honum beint, — og
skrautlýsing sýndarmennskunnar
ljómaði um sviðið
^eir, sem látið hafa
jlekkjast
MARGT ágætra manna og dug-
andi þjóðfélagsþegna hefur ávallt
fyllt flokk Sjálfstæðismanna og
stutt hann til valda. Segja má, að
aessu fólki hafi verið mikil vor-
kunn, að það hefur látið blekkjast,
jví að þrátt fyrir allt hefur sjón-
leikurinn verið vel upp færður á
ýmsa grein og því orkað sannfær-
andi á ýmsa opna og lirekklausa
hugi, enda mikill og snjall kunn-
áttumaður í hinni pólitísku leik-
tjaldaíþrótt ekið til „kúlissunum"
og annazt leikstjórnina alla. Þessu
góða fólki hefur og verið ljóst, að
hófsamur, gætinn og ábyrgur íhalds-
ílokkur (að enskum sið!), umbóta-
sinnaður og sæmilega frjálslyndur —
flokkur eins og Jón heitinn Þor-
láksson vildi hafa sinn flokk (sem
hann er nú dæmdur fyrir!) — getur
átt fyllsta rétt á sér sem hæfileg
kjölfesta í ungu og óráðnu þjóðfé-
lagi. En nú hefur leikaraskapurinn,
sýndarmennskan og spákaupskapur-
inn gengið svo langt, — glamrið,
tvísöngurinn og hundavaðsháttur-
inn í hverju máli keyrt svo úr hófl
fram — að æ fleiri þessara manna
eru teknir að átta sig á því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er alls ekki slikur
flokkur, sem þeir höfðu vænzt, en
alveg hið gagnstæða. — Það er því
þetta fólk, sem farið er að svipast í
kringum sig eftir nýjum úrræðum.
Það er þetta fólk, sem hagskýrslur
um kosningaúrslit síðustu ára sýna,
að er nú sem óðast og í æ stærri
stíl að yfirgefa „The Show Boat“,
og leita skiprúms lijá öðrum og á-
byrgari flokkum. Og verði það ekki
á morgun — sem sízt er ósennilegt —
þá líður þó óðfluga að þeirri stund,
að augu svo marga kjósenda hér á
Akureyri opnast fyrir þessari stað-
reynd, að bæjarbúar verðlauni ekki
oftar frammistöðu liins reykvíska
farand-leikflokks með þvf að senda
honum aðra eins rós eins og Rafnar
upp á sviðið, þegar tjaldið fellur.
★ ★
ÓHEIÐARLEIKI
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS.
(Framhald af 8. síðu).
skattamál í blaði Lýðveldis-
flokksins, Varðbergi.
KOTROSKINN UMBÓTA-
MAÐUR.
Það er því ekki að furða, þótt
Magnús Jónsson og Heimdelling-
ar hans á flokksskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins séu kotrosknir nú
yfir þessum dæmalausu skatta-
málaumbótum Sjálfstæðisflokks-
ins. Hér er um að ræða einhvern
þann allra furðulegasta skrípa-
leik, sem um getur í stjórnmála-
sögu seinni ára, og það er þó
nokkur vitnisburður um mat
Sjálfstæðisfl. á þingmönnum
sínum og lipurheitum þeirra í
áróðursmálum, að athuga, hvaða
menn voru valdir úr þingliði
flokksins til að standa að þessum
dæmalausa áróðai. Og að því at-
huguðu, hefði flestui* fundirf
hyggilegt af „ísl.“, að láta MbL
um að reyna að blekkja áhang-
endur Lýðveldisflokksias í Rvík,
en sýna Eyfirðingum þá virðingu,
að bera ekki blekkingar af þesgp.
tagi á borð fyrir þá. Skattalög-
gjöfin er nú í endurskoðun og
munu allir sammála um, að þörf
sé á róttækri endurskoðun á
henni. Það er ekkert sérmál
Sjálfstæðisflokksins og engum
góðum málstað ' er þjónað með
svona loddarabrögðum.
KjósiS Krislin GuSmundsson