Dagur - 24.02.1954, Blaðsíða 4
4
D A G U R -
Miðvikudaginn 24. febrúar 1954
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa f Hafnarstræti 88 — Sími 1166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 50.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentvcrk Odds Björnssonar h.f.
ÞAÐ MÁ því benda þingmönn-
um Sjálfstæðisflokksins á, að það
er hægt að spara rikissjóði fé með
öðrum hætti en gert var ráð fyrir
í frv. þeirra ,er áður getur. Það er
hægt með því að gera það að skil-
yrði fyrir skattfrelsi Eimskipa-
félagsins, að félagið flytji vörur
á framhaldsfragt með strand-
ferðaskipunum til hafna úti á
landi. Með þeirri skipan mundi
Eimskipafélaginu gert að greiða
sanngjarnan hlut af kostnaði við
strandsiglingarnar og allur at-
vinnurekstur úti á landi mundi
njóta góðs af í greiðari vöruflutn-
ingum. Þarna er því um að ræða
ráðstöfun til þess að „viðhalda
jafnvægi í byggð landsins“. Von-
andi stendur ekki á flutnings-
mönnum þingsályktunartillagna
um þau málefni að fylgja fram
svo þýðingarmikilli ráðstöfun
fyrir landsfólkið allt.
FOKDREIFAR
Eiga allir Islendingar að búa í
borgum?
Ráðstöfun til að viðhalda „jafnvægi
í byggð landsins“
ALÞJÓÐ eru nú kunn afdrif frumvarps Sjálf-
stæðismanna um að afhenda Eimskipafélaginu
eignir Skipaútgerðar ríkisins og ofurselja hags-
muni fólksins úti á landi geðþótta forráðamanna
þessa stórgróðafyrirtækis í höfuðstaðnum. Alþingi
afgreiddi málið eins og verðugt var, felldi það
við 1. umræðu án þess að vísa því til nefndar. Var
árás Sjálfstæðismanna á samgöngumál fólksins
úti á landi þannig eftirminnilega hrundið. Eftir
að þessi málalok urðu kunn, hefur það verið
helzta ráð Sjálfstæðismanna á undanhaldinu að
telja frumvarp sitt til þess gert að spara ríkissjóði
Stórfé. í blöðum þeirra er mikið rætt um að rík-
isjóður verði að leggja fram nokkurt fé til þess að
halda uppi strandsiglingum, og þessi útgjöld megi
spara. Hinu er ekki á lofti haldið, að strandsigl-
ingarnar eru bein nauðsyn til þess að byggð hald-
ist á ýmsum stöðum, og þjóðfélaginu í heild ber
skylda tíl þess að halda uppi slíkri þjónustu sem
víðast um landið. Það er athyglisvert, að þ'að
eru sömu þingmennirnir, sem þannig vega að
hagsmunum landsfólksins með flutningi frum-
varps þessa og standa að sýndartillögunum um
„ráðstafanir til þess að viðhalda jafnvægi í byggð
landsins.“ Út á þær þingsályktanir er lítið komið
enn, enda eru þær loðnar og óákveðnar. En frum-
varpið um að afhenda Eimskipafélaginu strand-
ferðaskipin var áþreifanlegur hlutur oghefðikom-
ið í koll landsfólksins án tafar. Hljóta menn að
meta þá viðleitni meira en fimbulfamb í þingræð-
um og þingsályktunartillögum, sem ekkert verður
úr í raunveruleika lífsbaráttunnar.
EN FYRST ÞAÐ 'er nú yfirlýstur tilgangur
Sjálfstæðismanna að spara ríkissjóði útgjöld vegna
strandsiglinga má benda é, að það er hægt með
öðrum hætti en afhenda öðrum aðilum skip ríkis-
ins. Um þessar mundir liggur talsvert vörumagn
sem senda á út um land, í skemmum Eimskipa-
félagsins í Reykjavík. Verzlanir, verksmiðjur og
atvinnurekstur vantar þessar vörur. Þær eru
fluttar til landsins á vegum Eimskipafélagsins og
Gunnar Kristjánsson á Dag-
verðareyri skrifar blaðinu :
,,ÞAÐ ÞARF engan að undra
3Ó að spurt sé: „Iivað hugsar þú,
bóndi?“ Því að sjaldan heyrist
hljóð úr því horni, þótt ýmsar
blikur séu á lofti, sem boða vissu-
lega veðrabrigði, og gætu verið
undanfari skaðaveðurs, ef ekki
eru gerðar gagnráðstafanir.
Hitt er annað mál, að flestir
íslenzkir bændur éru einyrkjar,
enda er það predikað fyrir þeim,
beint og óbeint, að eigi að reka
búskap á íslandi, þá skuli fjöl-
skyldan ein að honum vinna, ann
ars sé engin leið að tekjur og
gjöld standist á.
Um þetta ætla eg þó ekki að
ræða nú, eða hvaða áhrif þetta
búskaparlag muni í framtíðinni
hafa á það, sem kallað hefur ver-
ið sveitamenning, en aðeins
benda á það, að tími mun vera
takmarkaður til ritstarfa hjá
mörgum bóndanum.
ÞAÐ MUN vera nokkuð langt
síðan að tekið var að ræða það, að
Glerárþorp í Glæsibæjarhreppi
ætti ekki orðið samleið með
hreppnum, og bæri að sameina
það Akureyri. Mörg rök munu
hníga að því, að það sé réttmætt,
þó að þöríin geti verið vafasöm,
en á það ætla eg ekki að leggja
neinn dóm, aðeins ræða nokkuð
um hliðarráðstafanirnar eins og
stjórnmálamennirnir kalla það
Bæjarstjórn Akureyrar vill
gjarnan hirða Glerárþorp, en þó
ekki meðgjafarlaust.
Minnsta meðgjöf, sem til greina
getur komið, er land allt sunnan
mæðiveikigirðingar, er liggur um
Lónsbrú til efstu hnjúka, og
Glerárdalur að auki, — þó mun
það hafa verið orðað að ekki
mætti minna vera en Kræklinga-
hlíð öll út á bakka Hörgár og
strandlengjan allt að hinum forna
Gásakaupstað. Þannig löguð
landvinningapólitík kaupstað-
anna er að mínu áliti stórhættu-
leg fyrir sveitirnar og misskiln-
ingur að hún sé bæjunum til
ávinnings.
félagið á að sjá um að koma þeim til viðtakanda.
En það gengur seint nú sem áður, því að siglingar
skipa félagsins til hafna úti á landi eru strjálar og
óhentugar. Skip ríkisins halda uppi reglulegum
strandsíglingum samkvæmt áætlunum og þau fara
stundum margar ferðir til hafna úti á landi meðan
vörurnar bíða í Reykjavík eftir skipum Eimskipa-
félagsins. Fyrir atvinnurekstur landsmanna væri
það hentugt, að fá erlendu vörurnar afgreiddar úr
vöruskemmum Eimskipafélagsins um borð í
strandferðaskipin. Að sjálfsögðu ætti Eimskipa-
félagið þá að bera flutningskostnaðinn, því að vör-
urnar eru fluttar til landsins á þess vegum og það
er skuldbundið að koma þeim til viðtakenda. Með
þessari skipan mundu vöruflutningarnir taka
breytingum til bóta, og jafnframt væri tryggt að
strandferðaskipin hefðu nægan flutning hverju
sinni og þar með mundi dregið verulega úr þeim
halla, sem er á rekstri þeirra, og er svo mikill
þyrnir í augum Sjálfstæðismanna.
Á AÐ VINNA kalt og ákveðið
að því að allir íslendingar búi í
borgum?
Eg held að það sé heppilegri
þróun, að milli bæja og sveita sé
ákveðin verkaskipting en ekki sé
snúið við og soðinn upp sá hræri-
grautur sjósóknar, verzlunar, iðn
aðar og búfjárræktar, sem var í
bæjunum á meðan þeir voru smá
þorp. Einn og sami maður vasað-
ist í þessu öllu. Það sýnir sig
þegar, áður en af þessari samein-
ingu er orðið, að hagsmunir borg-
ara og bænda innan sama bæjar-
félags hljóta að rekast á.
Bændum þeim, sem búa á þessu
svæði, sem hugsað er að Akur-
eyri fái, hefur verið boðið að
bærinn leggi til þeirra rafmagn,
ekki endurgjaldslaust heim. að
húsvegg, eins og hjá öðrum borg-
urum, nei, heldur er þeim gert
það broslega tilboð, að þeir eigi
að borga um 5 þúsund krónur að
meðaltali á býli.
Hvernig mundi tilboðið hljóða
um vegi, vatn, skólp, snjómokst-
ur o. fl.? Hvaða áhrif geta svo
þessir fáu bændur haft á bæjar-
mál og hvernig eiga þeir að gæta
sinna sérhagsmuna?
Er það ekki líka umhugsunar-
efni handa okkur öllum, eyfirzk-
um bændum, ef að Akureyringar
hefðu það bak við eyrað að verða
sjálfum sér nógir með fram-
leiðslu á kjöti, mjólk og kartöfl-
um?
Iðnaðarmenn, verzlunai-menn,
sjómenn og verkamenn reyna
með öllum ráðum að gæta hags-
muna sinna. Hví skyldum við þá
ekki, bændur, einnig vera á verði
og láta ekki grafa undan atvinnu-
vegi okkar, án þess að við gefum
því gaum, eða trúum við því að
bezt sé að allir íslendingar búi í
borgum, og aðeins næsta ná-
.grenni þeirra sé þrautræktað, en
annað land, sem fjær liggur, ein-
göngu notað sem afrétt?
NEI, BORG OG SVEIT á að
vera aðskilin, en reka sín á milli
greið og vinsamleg viðskipti.
Borgin sér um verzlun, sigl-
ingar, fiskveiðar og stóriðnað og
hefur gott af ofurlitlu aðhaldi um
landrými, svo að hún sói því ekki
undir dreifðar byggingar, sem
meira líkjast kofum en húsum.
Sveitin nýtir landið til fram-
leiðslu matvæla og selur til bæj-
anna, eða á erlcndan markað,
eykur ræktunina, fegrar landið,
tengir byggðina saman og vill fá
að vera hluti af þjóðfélagsbygg-
ingunni.
Akureyri hefur ekki sýnilega
með meira land að gera í bráð,
nema Akureyringar hyggi á bú-
skap í stórum stíl. Hér skortir
ekki þúvöru, og mundi okkur og
þeim hagkvæmara að beina at-
hafnaþrá sinni eitthvað annað en
að landbúnaði.
Að mínum dómi er algjörlega
þarflaust að gefa nojjkuð með
Glerárþorpi, og eg tel það vafa-
samt fordæmi, að leggja margar
bújarðir að nauðsynjalausu undir
bæinn.
Að endingu þetta: Hver er
ástæðan fyrir því, að bæjarstjórn
Akureyrar hefur áhuga á því að
koma miklum hluta af Glæsibæj-
arhreppi undir lögsagnarumdæmi
Akureyrar?
Manni dettur ósjálfrátt í hug
þetta, sem strákarnir sögðu
stundum í gamla daga, — eg hef
ekki heyrt þá segja það lengi: —
„Við skulum plata sveitamann-
• „ íí U
ínn .
Á föstudaginn:
Bútasala
og
ódýrar kápur
Verzl. R. Laxdal.
Soðið og framreitt í Pyrex-skálum
Pyrex-glerföt og skálar eru orðin algeng heimil-
istæki hér á landi og komst fólk hér upp á að nota
úessi ágætu tæki á stríðsárunum. í Bandaríkjun-
um hafa pyrex-glerílát verið í notkun og hafa
reynst vel. Þessi glerílát þola mikinn hita, eru auð- •
veld í meðförum og þvotti, og þau eru til í ýmiss
konar gerðum, sem skálar, föt, jafnvel skaftpottar.
Og maturinn lítur vel og lystuglega út þegar hann
er borinn á borð í þessum ílátum, beint úr bökun-
arofninum í eldavélinni. Þar að auki er sannað, að
næringargildi fæðunnar helzt betur með því að
sjóða ýmsan mat í ofni heldur en er í venjulegum
potti. í glerskál má útbúa allan matinn í einu og
spara tíma og fyrirhöfn — og rafmagn. Þá má
geyma leifarnar í sömu ílátunum og framreitt er í
og þannig má einnig minnka uppþvottinn að máltíð
lokinni og það mun húsmæðrum ekki finnast
einskisvert. Hér fara á eftir „uppskriftir" af mið-
dagsréttum, sem ætlast er til að lagðir séu í pyrex-
glerskálum og bakaðir eða soðnir í ofni.
Svínakótelcttur með grænum baunum. Steikt epli.
Tekur 2 klst. að útbúa, þar af bökunartími 1
klst. — Svínakótelettunum er velt upp úr raspi og
eggi og þær eru brúnaðar lítið eitt á pönnu eins og
venjulega. Því næst eru þær látnar í stóra pyrex-
skál, eða fat, með loki. Kartöflurnar eru nú flysj-
aðar og skornar í sneiðar, og sneiðarnar lagðar í
skálina með kótelettunum, undir kjötið. Ofurlitlu
vatni er hellt á. Vökvinn, sem fram kemur þegar
steikt er í ofninum, er notaður í sósu.
Eplin. Tekin eru stór epli, ekki of þroskuð. Eplin
eru þvegin rækilega, kjarnahúsið skoi'ið burt og í
iað látnar rúsínur, matskeið af púðursykri og ofur-
lítil smjörlíkisflís. Eplin síðan látin í aðra pyrex-
skál með loki, %—1 bolli af vatni hellt yfir, eftir því
hvort eplin eru meyr eða ekki. Bak-að í ofni ca.
1 klst. Þetta er ágætur eftirréttur ,og er hægt að
bera fram í pyrex-fatinu eins og kóteletíurnar.
Eplin eru góð, hvort heldur sem er heit eða köld,
og með eða án rjóma.
Svikinn héri, bakaðar gulrætur, bakaðar kartöflur
(í hýðinu). Eplabúðingur með smjörkrcmi.
Tekur 2 klst. að útbúa, þar af 1 klst. til 1 klst. og
25 mín í ofninum.
250 gr. nautakjöt, 250 gr. svínakjöt, 4 tvíbökur
hakkaðar einu sinni, 2 matskeiðar rjómi, 1 egg, salt,
allt sett saman og sett upp eins og hérahryggur,
gjarnan má setja yfir um 50 gr. svínaspæk, í sneið-
um. Kjötið er nú látið í vel smurða, aflanga pyrex-
skál og vætt með 3 dl. mjólk. Bakað í 1 klst. Rjóma
bætt í safann í skálinni. Borið fram í fatinu.
Bakaðar kartöflur. Bezt er að nota stórar kartöfl-
ur, helzt aflangar. Þær eru hreinsaðar mjög vel,
þvegnar og skrúbbaðar, og hýðið er rist langsum á
2—3 stöðum með beittum hníf til þess að útgufun
geti farið fram meðan á bökuninni stendur. Kar-
töflurnar eru bakaðar í ofninum í 1 klst. Áður en
þær eru bornar fram ,er skorinn kross á hverja
kartöflu og kartaflan því næst tekin og þrýst á hana
með fingrunum 'eins og til standi að brjóta hana.
Við þetta kemur sprunga í hýðið og gufan fær út-
rás. Þetta er bezta leiðin til þess að láta kartöfl-
urnar halda næringargildi sínu. Þær tapa miklu af
því er þær eru soðnar í potti.
Bakaðar gulrætur. Gulræturnar eru þvegnar,
skafnar og rifnar niður með raspi, en ekki of fínt.
Raspinu er hellt í pyrex-skál, i það látið salt og
ofurlítið af pipar og flís af smjörlíki. Efst eru settar
2—3 þunnar skífur af bacon og skálin er sett í ofn-
inn með hinum réttunum. (Þetta má allt baka í
einu). Athuga þarf að gulræturnar verði ekki of
þurrar eða brúnist um of að ofan.
Eplabúðingur. 75 gr. hveiti, 50 gr. smjörlíki, 60
gr. púðursykur, blandað saman. 3 stór epli (eða
fleiri minni) flysjuð, kjarnhúsið skorið úr, epliu
skorin í þunnar skífur, sem eru lagðar í vel smurða
(Framhald á 7. síðu).