Dagur - 15.09.1954, Page 1
GERlST ÁSKRIFENDUR!
Sími 1166.
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskriíendur!
XXXVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 15. september 1954
40. tbl.
Bandaríkjaforseti býður Tyrklandsforseta vel-
kominn í „Bvíta-húsið“
Miklar framkvæmdir í Ólafsfirði
Ráðamenn vestan járntjalds beina í æ vaxandi mæli athygli sinni
að vömum landanna við botn Miðjarðarhafs og í Litlu-Asíu allri.
Eitt nýjasta táknið um vaxandi vináttu og samstarfsvilja Banda-
rikjamanna og Tyrkja er hcimsókn Adnan Menderes Tyrklands-
forseta til Bandaríkjanna fyrr í sumar. Hann dvaldi m. a. 4 daga
í Washington og ræddi þar við ýmsa áhrifamenn um fjárhags- og
viðskiptamál milli ríkjanna. — Myndin sýnir Eisenhover forseta
bjóða Menderes forseta velkominn í heimsókn í Hvíta liúsið. Fór
hiö bczta á með Ijjóðhöfðingjunum tveim.
Nv fiskimið fundin
•/
Fyrir nokkru var frá því sagt
að togarinn Jón Þorláksscn
hefði fundið ágæt karfamið við
Grænland.
Nú í gær var togarinn að
landa öðrum karfafarminum
frá þessum nýju miðum, sem
liggja í námunda við Angmag-
salik. Þangað er 3G stunda sigl-
ing' frá Rcykjavík. — Karfi sá,
er verið var að landa í gær, er
taiinn sá bezti karfi er komið
hcfur á íand þar syðra.
Fleiri togarar eru nú konrnir
á Jónsmið, en svo eru þessi
nýju mið kölluð, og hafa þegar
aflast þar 6600 smálestir af'
karfa.
MOKAFLI SUNNANLANDS.
Mokafli er nú hjá reknetabát-
unum á Akranesi. I Miðnessjó og
Grundarsjó hefur líka verið
meiri afli og jafnari, en jafnvel
dæmi eru til. Síldin er stór og feit.
Valnr og atvinnurekendiir semja
Héraðssáttasemjari Þorsteiim M. Jónsson hefur
enn leyst vimmdeilu - Stórfelldum vandræðum
forðað frá bæ og héraði
Trúnaðarmannaráð Vörubíl-
stjórafélagsins Vals samþykkti á
fundi sínum 3. sept. sl., að félagið
lýsti yfir vinnustöðvun á Akur-
eyri frá og með 13. þ. m., hafi
samningar um kaup og kjör við
atvinnurekendur ekki tekist fyr-
ir þann tíma. Trúnaðarmannaráð
Verkamannafé. Akureyrarkaup-
staðar samþykkti á fundi sínum 7.
sept., að lýsa yfir samúðarverk-
falli 16. þ. m., ef ekki tækjust
samningar milli Vals og atvinnu-
rekenda, og átti að framkvæma
þá vinnustöðvun á þann hátt, að
bann yrði lagt á alla vinnu verka-
manna við losun og lestun skipa
og bifreiða, sem flytja vörur að
og frá bænum. Ennfremur hét
Alþýðusambandið Val stuðningi,
Þýzkt knattspyrnulið
í boði Akureyringa
Miklar líkur eru nú taldar til
að flokkur þýzkra knattspyrnu-
manna frá Bremen komi hingað
til lands í júnímánuði næsta sum-
ar í boði Akureyringa. Knatt-
spyrnusamband íslands mun vera
búið að veita nauðsynleg leyfi og
er gert ráð fyrir að Þjóðvarjarnir
keppi á Akureyri, Akranosi og
Jeiki auk þess tvo leiki í Reykja-
vík.
og liafði fengið loforð ýmsra sam-
bandsfélaga um stuðning. Og var
sýnt, að svo var um hnútana búið
af hálfu verkalýðssamtakanna, að
stöðvaði ryrðu gersamlega allir
flutningar að og frá bænum. —
Þegar komið var fram um miðja
síðustu viku, voru samningar
strandaðir milli Vals og atvinnu-
rekenda, og 12. þ. m. boðaði hér-
aðssáttasemjari, Þorsteinn M.
Jónsson, fulltrúa deiluaðila á
fund með sér og hélt hann með
þeim 2 fundi þá um daginn, og á
síðari fundinum óskuðu fulltrúar
atvinnurekenda eftir því við full-
trúa Vals, að verkfalli því, sem
hér var boðað frá og með 13. þ.
m., yrði frestað um 14 daga í því
skyni að tóm gæfist til þess, fyrir
atvinnurekendur, að fá úrskurð
Félagsdóms um það hvort Vöru-
bílstjórafélagið Valur sé stéttar-
félag í skilningi laga nar. 80, frá
1938, og hvort félagið hafi lög-
lega heimild til að knýja fram
með verkfalli, ef til kæmi, kröfur
þær, sem felast í samningsfrum-
varpi því (einkum 6. grein þess),
sem félagið sendi sáttasemjara,
Þorst. M. Jónssyni og atvinnu-
rekendum, með bréfi, dags. 26.
ágúst sl. Jafnframt óskuðu full-
trúar atvinnurekenda eftir því að
Vörubílstjórafél. Valur féllist á
að atvinnurekenndur bæru fram-
angreint atriði undir Félagsdóm
áður en til vinnustöðvunar kæmi
(sbr. lög nr. 80 1938). Fulltrúar
Vals féllust á að bera framan-
greinda málaleitun undir alm.
fund í félaginu og skýra sátta-
semjara frá niðurstöðum fundar-
ins að honum loknum. Fund
þennan héldu svo Valsmenn sl.
laugardagskvöld og felldu þar
með öllum atkvæðum framan-
greinda málaleitan atvinnurek.
Fundir hófust síðan hjá sátta-
semjara kl. 10 á sunnudagsmorg-
un og stóðu með litlum hvíldum
þar til kl. 3 um nóttina. Auk full-
trúa atvinnurekenda héðan úr
bænum sátu fundina lögfræðing-
arnir Barði Friðriksson og Guð-
mundur Ásmundsson. Barði frá
Vinnuveitendafél. ísl. og Guðm.
Ásmundsson frá Vinnumálasam-
bandi atvinnufélaganna. Og á
sunnudagsfundinum mætti Jón
Þorsteinsson, sem lögfræðilegur
fulltrúi Vörubílstjói'afél. Vals.
Að lokum tókust samningar og
var aðalbreytingin, frá því sem
verið hefur, sú, að vinnuveitend-
ur þeir er að samningum þessum
standa skuldbinda sig til að láta
fullgilda meðlimi Vals hafa for-
gangsrétt til bifreiðaleigu og alla
flutninga með vörubifreiðum
handa nefndum vinnuveitendum
á félagssvæðiVals og öllum akstri
út af því svæði, en það er lög-
sagnarumdæmi Akureyrar. —
Vinnuveitendur hafa ávallt frjálst
val um það, hvaða meðlimi Vals
þeir taka til vinnu, sbr. 4. málsgr.
þessarar greinar:
Framhald á 2. síðu).
Borað eftir heitu vatni með nokkrum árangri -
Síldarleysið \ eldur voiibrigðum - Múlavegurinn
kominn yfir Bríkargil - Ynnri höfnin dýplmð -
Sauðfénu fjölgar og Ólafsfirðingar kaupa ekki
lengur mjólk frá Akurcyri
Blaðið átti samtal við bæjar-
stjórann í Olafsfirði, Ásgrím
Hartmannsson, nú fyrir fáum
dögum, og leitaði frétta af fram-
kvæmdum í bænum. Varð hann
góðfúslega við þeim tilmælum og
eftirfarandi er fært í letur að
samtalinu loknu:
Ólafsfirðingar hafa nægilegt heitt
vatn til upphitunar íbúðarhúsa.
Ólafsfirðingar leytuðu í sumar
að heitu vatni. Létu þeir bora 3
holur. Tvær 50 metra djúpar og
eina holu grynnri. Fengu þeir úr
þeim nokkurt vatnsmagn. Sú
aukning var þó ekki hreinn
ávinningur, því jafnhliða minnk-
aði heita vatnið í þeim borholum,
er gerðar voru á árunum 1947 og
1948. Jarðboranir ríkisins fram-
kvæmdu verkið þá, eftir athug-
anir með þeim fullkomnustu
tækjum, sem þessi ríkisstofnunu,
Jarðboranir ríkisins, hefur yfir
að ráða. En Ólafsfirðingar vildu,
ef unnt væri, auka heitavatnið
og freysta þess að fá það heitara.
Á vegum sama fyrirtækis og eftir
endurnýjaðar rannsóknir var svo
verkið hafið í sumar að nýju.
Er talið að vatnið hafi aukizt
um allt að 2 sekúndulítra og hitn-
aði lítilsháttar. Vatnið er 53—54
gráður. Þetta vatnsmagn, sem
orðið er samtals fast að 9 lítrum
á sek. nægir Ólafsfirðing-
um til að hita upp öll hús kaup-
staðarins. Telur Gunnar Böðv-
arsson verkfræðingur ekki lík-
legt að mikil von sé á meira vatni
í þessum tveimur vatnsæðum er
náðst hafa.
Atvinna treg — Stúlkurnar vant-
aði atvinnu.
Heldur hefur atvinna verið lítil
í Ólafsfirði í sumar. Sérstaklega
hafa stúlkurnar haft lítið að gera.
Síldarleysið olli vonbrigðum þar
eins og annars staðar og hrað-
frystihúsið var ekki tilbúið að
taka á móti fyrstu síldinni. Það
er nú eftir endurbyg'ginguna orð-
ið með fullkomnustu hraðfrysti-
húsum landsins. Allmikið er
byggt af smáíbúðum í kaupstaðn-
um og fram í firði er verið að
byggja upp á þeim eina bæ er
eftir var að húsa, af þeim sem í
byggð eru.
Kúm og ldndum fjölgar — Erfið
hcyskapartíð.
Ólafsfirðingar keyptu áður
fyrr töluvert af mjólk, héðan frá
Akureyri, en bændurnir þar ytra
fullnægja nú eftirspurninni sjálf-
ir, því ræktunin vex jafnt og þétt.
Sauðfénu hefur fjölgað aftur og
er nú orðið nær jafnmargt og var
fyrir fjárskiptin. Fjölgaði því
mjög mikið í fyrra enda gott
heyskaparár þá. Nú í sumar hefur
gengið erfiðlega að þurrka hey í
Ólafsfirði og eru víða hey úti þar
eins og annars staðar hér nyrðra.
Brikargil yfirunnið.
Unnið hefur verið við Múla-
veginn í allt sumar og hefur þegar
verið gerður 600 metra langur
vegur og hið illræmda Bríkargil
yfirunnið. Það gil var talið erfið-
ast allra torfæra á leiðinni, að
Ófærugjá einni undanskilinni. Er
nú um 300 metra langur kafli eft-
ir þangað. Á þeirri leið eru að
vísu torfærur eða 3 gil, en ekkert
þeirra mjög erfitt. Vegurinn sem
lagður er í sumar er 7 metra
breiður. Vegalagningin í sumar
hefur, samkvæmt áliti Jóhanns
Hjöi'leifssonar gengið mikið bet-
ur en búizt var við og kostnaður
minni. Er nú sýnt að Múlavegur-
inn, þessi margumtalaða vega-
gerð, nær fram að ganga og verð-
ur sennilega ekki eins erfið og
ætlað var. Verða það fleii'i en
Ólafsfirðingar, sem njóta góðs af
honum þótt hanri sé fyrst og
fremst Ólafsfirðingum lífsnauð-
syn.
Hafnarbætur.
Innri höfnin í Ólafsfirði hefur
verið dýpkuð í sumar. Grettir
hefur mokað upp höfnina og lok-
(Framhald á 7. síðu).
Smárakvartettinn fékk
ágætar viðtökur á
Suðurlandi
Smárakvartettinn frá Akur-
eyri, sem verið hefur í söngför
sunnanlands, fékk hvarvetna
hinar ágætustu viðtökur og
góða dóma fyrir söng sinn. —
Kvartettinn hefur bæði sungið
í Reykjavík, Hafnarfirði, Hlé-
garði, Njarðvíkum og víðar. —
Jóhann Konráðsson söng inn á
plötur hjá Ríkisútvarpinu og
kvartettinn söng inn á hljóm-
plötur hjá Tonika í Reykjavík.
Þeir félagar ætla að syngja í
Nýja-Bíó hér á Akureyri á
sunnudaginn kemur kl. 3 e. h.