Dagur - 27.01.1955, Side 1

Dagur - 27.01.1955, Side 1
XXXVIII. árg. Akureyri, fimintudaginn 27. janúar 1955 4. tbl. Frelsi í hrunafryggingunt færir Icigjöld húseigenda í Vík í Mýrdal lækka um 40% þegar þorpsbúar fá að skipta við Samvimiutryggingar Davíð veitir viðtöku lieiðursborgarabréfinu í afmælishófi því, er lialdið var í Reykjavík 22. þ. m. í tilefni af 60 ára afmæli Davíðs skálds Stefáns- sonar afhcnti forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri, Davíð heiðursborg- arabréf frá bæjarstjórninni hér og flutti skáldinu ávarp við það tækifæri. Er það birt á 5. síðu blaðs- ins. Myndin sýnir Þorstein M. Jónsson afhenda skáldinu heiðursskjalið í veizlunni, á myndinni sjást einnig Steingrímur J. Þorsteinsson prófesson, Páll ísólfsson vcizlustjóri og frú hans. Nánar er sagt frá afmælishófinu á 5. síðu. (Ljósm. P. Thomsen). Nauðsynlegt að gerðar séu nákvæmar rannsókn- ir og síðan hafist handa til að fyrirbyggja rafmagnsti’uflanir Hreppsnefnd Hvammshrepps í Vestur-Skaftafellssýslu hefur fyrir nokkru gert samning við Samvinnutryggingar um bruna- tryggingar á öllum húsum í Vík í Mýrdal, og lækka allar húsa- tryggingar í Vík um 40%, þegar samningurinn gengur í gildi 15. október 1955. Er Víkurkauptún þar með orðið fyrsta kauptún eða kaupstaður á íslandi, sem notfærir sér heimild Iaganna, sem sett voru á s.l. ári, þess efnis að sveitarfélög utan Reykjavíkur mættu semja við hvaða aðila, sem Jónas Þorbergsson sjötugur Jónas Þorbergsson fyrrveiandi útvarpsstjóri og ritstjóri varð sjötugur 22. þ m. Hann var rit- stjóri Dags árin 1920—1928 og þá þegar í hópi ritfærustu og álhrifamestu blaðamanna lands- ins. Nutu mörg góð málefni stuðnings hans og Dags og var blaðið áhrifamikið í höndum hans. Héðan hvarf Jónas suður og varð ritstjóri Tímans og síðan útvarpsstjóri fiá 1930 til 1953. Mörgum öðrum trúnaðarstörfum hefur hann gegnt, var m. a. al- þingismaður fyrir Dalasýslu um tíma. Dagur sendir þessum fvrrv. ritstjóra og þjóðkunna merkis- manni árnaðaróskir og kveðjur á þessum tímamótum í ævi hans. þeim þóknaðist, um brunatrygg- ingar. Jafnframt var sanvið um bruna- tryggingar húsa í Hvammshreppi, sem eru utan kauptúnsins, og fengu þau öll 16—25% lækkun, enda voru tryggingariðgjöld í sveitum miklu lægri en í kaup- túnum, og ríkti í þeim efnum óeðlilegt ósamræmi, þar sem brunavarnir í sveitum eru engar, en slökkvitæki til í flestum eða öllum kauptúnum og kaupstöð- um. Þessi kjör á brunatryggingum, sem stórlækka brunatrygginga- gjöld, standa af hálfu Samvinnu- trygginga öllum kauptúnum og kaupstöðum til boða, svo og til— boð um mikla lækkun í sveitum landsins. Hefur þannig skapazt grundvöllur fyrir lægri bruna- tryggingarkostnaði um land allt og réttlátara samræmi milli trygginga hvar sem er á landinu, þannig að enginn einn hópur manna greiði fyrir tryggingar annarra. Félagsráðsfundur KEA vcrður haldinn áð Ilótel KEA niánudaginn 14. febrúar n. k. og hefst kl. 1 e. h. Sr. Ragnar F. Lárusson prestur í Siglufirði Kirkjumálaráðherra skipaði 24. þ.m. séra Ragnar Fjalar Lárusson til að verða sóknarprest í Siglu- firði frá 1. febr. þessa árs að telja, en hann var atkvæðahæstur í prestskosningunum, sem fram fóíu í Siglufirði fyrir áramót. Verulegt tjón í eldsvoða í Grenivík Á laugardagskvöldið í fyrri viku, kviknaði í tveggja hæða geymsluhúsi á Grenivík. Var það í eigu Þorbjárnar Áskelssonar. Var þetta mikið hús og nýlega viðgert. Þar voru geymd verkfæri og vélar, þar á meðal dráttai-vél svo og reknet og fleira og nokkur hráolíuföt. Eldurinn varð strax mjög magnaður cg féll húsið eft- ir litla stund og varð engu bjarg- að. Tvær Ijósavélar brunnu þarna inni og er ætlun manna áð kviknað hafi útfrá þeim. Logn var og þess vegna hægt að verja næstu hús. Húsið mun hafa verið lágt vátryggt. Flest af því sem inni brann var lágt tryggt og sumt ekki brunatryggt. Hefur Þor- björn útvegsbóndi því orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Sigurjón Rist starfsmaður Raf- orkiimálaskriSstofunnar í Reykja vík, kom hingað norður á rneðan rafmagnstruflaniniar voru, að tilhlutan Laxárvirkjunarinnar og athugaði krapastíflurnar við Laxá. Mældi hann og merkti yfir- borð og rennsli árinnar, eins og það var þá. En síðar verður unnið úr þeim athugunum, áður en hafizt verður handa um fram- kvæmdir til að fyrirbyggja er.d- urteknar rafmagnstruflanir af krapastíílum ef íært þykir. Nýr farvegur? Blaðið átti tal við Slgurjón að þessari rannsókn lokinni og spurði um álit hans á málinu. Hann sagoi að mælingar þær, er hann hefði gert að þessu sinni þar austurfrá, gætu gefið ýmsar upplýsingar, þegar úr þeim væri unnið og enníremur yrðu stað- hættir athugaðir betur, begar snjóa leysti. Sigurjón benti á að ef til vill þyrííi að búa ánni nýan farveg, sem nota mætti til vara og hleypa ánni í þegar eins stæði á og nú. Myndun kraps. Laxá er straumþung allt frá upptökum sínum í hlývatni og þar til hún hefur runnið gegnum aflvélar virkjunarinnar. Þá tekur við flatlendi. Ána leggur sjaldan á þessari leið. Þegar frost og hríð- ar ganga. ber hún með sér krap og íshröngl. Algengast er að áin fari undir ís nokkrum km neðan við virkjunina. Þar hleðst krapið upp, og í langvarandi frostum safnast það fyrir allt upp að virkjuninni og hækkar vatns- (Framhald á 7. síðu). Framsóknarmenn ræða f járkagsáætlunina á aiámidagskvöldið Framsóknarféíag Akureyrar hcfur almennan umræðufund næsík. mánudagskvöld og er aðalumræðuefni lundajins fjárhagsáætlun Akureyrar 1955, sem íekin inun verða íil loka- afgreiðslu í bæjarstjóm innan skamms. Málshefjandi verður Jakob Frímannsson fram- kvæmdastjóri, fulltrúi Fram- sókuannaiina í bæjarráði. Fundurinn verður að Hótel KEA og heíst kl. 8.30. e. h. Bavíð [íaíikar heiðorinn Myndin er frá afmælishófi Davíðs Stefánssonar í Reykjavík, er skáldið flutti þakkir sínar fyrir heiður og vinsemd á 60 ára afmæl- inu. Flutti skáldið snjalla og efnismikla ræðu við þetta tækifæri og Iýsti m. a. viðhorfum sínum til listarinnar á eftinninnilegan hátt. Forsetahjónin sátu veizluna og sjást þau á myndinni (Ljósm. P. Thoinscn).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.