Dagur - 27.01.1955, Síða 4

Dagur - 27.01.1955, Síða 4
4 D AGUR Fimmtudaginn 27. janúar 1955 ÐAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166. Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangurinn kostar kr. 60.00. Gjalddagi er 1. júlL Prentverk Odds Djörnssonar h.f. Nornin með eitraða eplið „Hin gamla góðkunna kaupmanns- verzlun.“ ! ALLIR kannast við söguna af Mjallhvít kóngs- dóttur og norninni, sem varð stjúpmóðir hennar, dulbjó sig og gaf henni eitrað epli, til þess að reyna að ráða hana af dögum, af því að Mjallhvít iþótti „þúsundfalt fríðari" en nornin. Sú saga endurtekur sig stundum í ýmsum efn- 'um, a. m. k. tilraunir nornarinnar. HINN 18. þ. m. segir Morgunblaðið frá því í leioara, að í Vestur-Skaftafellssýslu starfi tvö kaupfélög: Kaupfélag Skaftfellinga og Verzlunar- :?élag Vestur-Skaftfellinga. Þegar kaupmannsverzlunin í Vík gafst upp íyrir Kaupfélagi Skaftfellinga, af því að sam- /innufélagið sýndi mikla yfirburði, þá gekkst íSjálfstæðisflokkurinn fyrir því að reisa á rústum íaupmannsverzlunarinnar, — úr braki hennar ásamt timbri frá sér og sínum — Verzlunarfélag ’7estur-Skaftfellinga og kallaði það „kaupfélag". AJlir glöggir menn vissu, að þetta félag var kaupmannsverzlunin dubbuð upp og dulbúin, gerð it af „flokki braskaranna“, til þess, ef unnt væri, að byrla samvinnustefnunni í héraðinu eitur, af (pví að hún hafði reynzt „fríðari" eins og Mjall- ilvít. Nú segir Morgunblaðið, sennilega í ógáti, frá í því að það sé fagnaðarefni „að hin gamla, góð- itunna kaupmannsverzlun skyldi halda áfram í íbessu formi“, þ. e. dulbúa sig kaupfélagsklæðum. „KJARNI“ Sjálfstæðisflokksins er kaupmenn og heildsalar. Ekkert hatar þessi „kjarni“ meira en kaupfé- i ögin og samvinnustefnuna. Að sjálfsögðu hefur : lokkurinn reynt og reynir í lengstu lög að vernda ,kjarna“ sinn. Það er auðvitað lífsnauðsyn flokks- i ins. íhaldið, sem seinna tók upp nafnið Sjálfstæðis- : lokkur, hélt því fyrst fram, að kaupfélög ættu íngan tilverurétt. Kaupmenn væru þjóðfélaginu >g öllum almenningi miklu hollari. Allir vita líka uð flokkurinn hefur lagt sig fram um að hagræða ■ iitir beztu getu málefnum þjóðfélagsins til hags- bóta fyrir kaupmennsku. En þegar vonlaust er >rðið að telja fólki trú um, að það eigi ekki að /erzla í kaupfélögum og kaupmennirnir gefast jpp, þá grípur flokkurinn til þess að stofna verzl- ínarfélag, sem hann kallar „kaupfélag". Flokkurinn ætlast til að félagið njóti vinsælda i .,íormsins“. Að fólkið átti sig ekki á því, þótt það þoppaðist upp úr Morgunblaðinu, að þetta er ,hin gamla, góðkunna kaupmannsverzlun------í bessu formi“ — og kaupmaðurinn nú Sjálfstæðis- lokkurinn, pólitísk barátta hans, afbrýði og hat- jr gagnvart samvinnustefnunni. Dulbúin sérhags- nunanorn með eitrað epli að gjöf. ' VÍST er ánægjulegt hve glöggt sést á þessu i.ovílíkan ósigur kaupmennskuflokkurinn hefur beðið á sviði verzlunarmálanna. Hann þorir í bessum efnum eins og fleirum alls ekki að koma éil dyranna eins og hann er klæddur, heldur I liyggst dulbúa sig klæðum andstæðinganna. | Geta má nærri, að hann er ekki lítið hræddur, úr því að hann gerir þetta; bæði hræddur við andstæðingana og sjálfan sig. Það er gaman að sjá flokk braskaranna koma í samvinnu- klæðum og bjóða epli sín. LEIÐARI Morgunblaðsins 18. þ. m. er spaugilegt lesefni. Enginn samvinnumaður lætur blekkjast af slíku stundu leng- ur. Með söng í hjarta. ÍSLENDINGAR eru söngelsk þjóð. Má með nokkrum sanni segja að söngurinn sé þjóðar- íþrótt okkar. Við höfum líka átt því láni að fagna, að eiga óvenju- fögur kvæði eftir góðskáldin okk- ar. Ættjarðarkvæðin, sem sungin hafa verið, mann fram af manni, inn í hvers manns huga og hjai'ta, og ótal möi-g fleiri, sem svo að segja hvert mannsbarn á landinu hefur lært í vöggu. Þó virðast þessir gömlu og góðu söngvar vera farnir að þoka fyrir öðrum nýrri. Það bar til í höfuð- stað landsins fyrir stuttu, þar sem allmargt fólk var að gleðskap, að stungið var upp á því að „taka lagið“ Urðu menn ekki á eitt sátt- ir um, hvað syngja skyldi. Vildi þá einn miðla málum og gerði það að tillögu sinni að syngja „Elg vil elska mitt land . . .“ Gall þá í frú einni: Við skulum heldur syngja eitthvað sem allir kúnna. til dæmis: „Kátir voru karlar . . .“ og var það sungið. Þetta þótti ráðamanni sveitar- innar ekki allskostar rétt. Fannst honum húsráðanda skylt að gefa söngvaranum nokkrar áminning- ar fyrir hávaðann um leið og sættir tókust. Var þar nokkur meiningarmunur. Ekki fóru um- ræður þessar fram hjá konum þeirra, ráðamanns sveitarinnar og húsráðanda, en með því að þær eru hinar mestu stillingarkonur urðu ekki frekari ýfingar og skildu allir sáttir. Söngvarinn náði gleði sinni á ný, en söng nú ekki eins hátt og áðui'. En söngur hans var inni- legur. Hálfbrostnir tónar enduðu í skjálfta og brá fyrir kjökur- hljóði, þegar það átti við. Söngur hins nýja tíma. Merkisafmæli * Laugardaginn 8. janúar sl. átti Hallgrímur Þoi'bergsson bóndi að Halldórsstöðum 75 ára afmæli. — „Er þetta Jesús?“ spurði lítil stúlka Blaðinu barst nýlega úrklippa úr ameríska dag- blaðinu The Shreveport Times, sem gefið er út í Shreveport í Louisiana-fylki í Bandaríkjunum. Segir blaðið þar m. a. frá því, er Jóhann Svarf- dælingur heimsótti barnaspítala þar í borginni. Spítali þessi er fyrir fötluð og bækluð börn, og ber frásögnin með sér, að koma Jóhanns hefur vakið mikinn fögnuð barnanna. Birtir blaðið mynd af Jóhanni þar sem hann er íklæddur fornmanna- búningi og er að gera gælur við börnin. Blaðið segir, að þegar Jóhann kom inn í sal þar sem börnin voru, hafi þau rekið upp stór augu, enda er maðurinn ekkert smásmíði. Kallar blaðið hann „Risavíkinginn frá íslandi“, en ein þriggja ára telpa horfði á undrið og spui'ði síðan svo að heyrðist um allan salinn: „Er þetta Jesús?“ Jóhann Svarfdælingur hefur um mörg undan- farin ár átt heima á Florida og ferðast um ýmis fylki Bandaríkjanna og víðar með sýningarflokki og hefur verið á slíku ferðalagi, er hann kom til Shreveport. Barnaleikritið og Meyjaskemman sýnd í síðasta sinn um helgina Listsmekkurinn er ekki alltaf sá sami og nýjar greinar skjóta upp kollinum. Við eigum líka marga góða söngmenn. Sumir þeirra hafa get- ið sér frægðarorð á erlendri grund. Aðrir eru aðeins lands- frægir og enn aðrir syngja í sín- um bæ eða sinni sveit. Lengi var dáðst að hinum háu og björtu „tenórum" og einnig djúpum, hljómmiklum „bössum". Þetta er líka að breytast. Dægurlaga- söngvarárnir eru mest móðins um þessar mundir og eru orðnir eins konar hálfguðir meðal yngri manna og kvenna. Ríkisútvarpið hefur lfka dyggilega fylgzt með tímanum að þessu leyti eða jafn- vel verið á undan tímanurn og hellt yfir þjóðina í stórum skömmtum þessari dáðu lista- grein. Eitthvað mun gráum hár- um hafa fjölgað á höfðum hinna eldri og fastheldnari manna. En hvað um það. Hinna ungu er framtíðin. EN HVAÐ sem annars má um sönginn segja, og vissulega er það margt og gott, verða þó söng- mennirnir að taka fullt tillit til annarra. Það bar við á samkomu, í einni af nærsveitunum, að gætinn og góður þegn, tjáði tilfinningar sín- ar í söng, rétt framan við íbúð þar í húsinu. Þar var húsráðandi í fasta svefni. Ráðamaður sveit- arinnar var þar nærstaddur. Hann vildi ekki að óþörfu láta trufla næturfrið húsráðanda. — Mælti hann aðvörunarorðum til söngvarans. Söngvarinn, sem ekki átti sér ills von eða þess að söngurinn hefði valdið spjöllum, varð hryggur mjög. Söngurinn breyttist í grát með þungum ekka, og söngvarinn krafðist þess að fá að biðja húsráðanda afsökunar. Varð svo að vera, enda ekki gott að synja grátandi manni um ekki stærri bón. Svaf húsráðandi enn þegar til hans var farið, en var vakinn.Hann brást vel við og huggaði söngvarann með því að fullvissa hann um að söngurinn hefði ekki vakið sig og skildu þeir vinir. Hallgrímur er þjóðkunnur mað- ur, fjárræktarfi-æðingur, gildur bóndi, ágætlega ritfær, gleðimað- ur og skemihtinn í viðræðum. — Gestrisinn er hann og hjálpsam- ur, enda mjög vinsæll. Hann hef- ur komið mjög við sögu félags- mála bænda um búnað og rrekt- un. Hetja er hann í lund og á velli, enda glæsimenni og ber.ald- úi* sinri með ágætum. Nánásta vártdafólk hans heimsótti hann á afmælinu. Giftur er Hallgrímur Bergþóru Magnúsdóttur, hinni mestu ágætiskonu. Eiga þau eina dóttur, búsetta í Húsavík. — Munu fjölmargir vinir þeirra hjóna hugsa hlýtt og með þakk- læti til þeirra í tilefni afmælisins og árna þeim allra heilla. Hinn 14. jan. sl. átti frú Kristín Kristjánsdóttir á Brautarhóli í Svarfaðardal 75 ára afmæli. — Frú Kristín missti mann sinn, Kristján Tr. Sigurjónsson, 15. sept. 1944, en í Brautarhól flutt- ust þau hjónin árið 1906. Þegar Kristján heitinn lézt, hafði Sigur- jón sonur þeirra hjóna tekið við búi þar, en móðir hans mun hafa verið bústýra hans í 11 ár. Börn þeirra Brautarhólshjóna voru þessi: Gísli, ritstjóri „Freys“, í Reykjavík; Sigurður, cand. theol., skólastjóri Laugaskólans; Sigur- jón, bóndi á Brautarhóli; Svan- fríður, gift í Reykjavík; Filippía, skáldkonan (Hugrún), gift á Ak- ureyri; Lilja, stúdent búsett í Reykjavík. — Frú Kristín er sér- stök dugnaðar- og sómakona og mjög vinsæl. í tilefni af afmælinu bárust henni margar vinakveðjur og gjafir. Einnig heimsóttu hana mai'gir. Fyrir þetta allt biður hún blaðið að skila hjartansþakklæti, með hlýjum óskum um gæfuríkt nýtt ár og blessun guðs. Fimnitugsafmæli átti Svein- björn Níelsson bóndi á Skálda- læk hinn 14. jan. sl. — Svein- björn er fæddur og uppalinn á Svalbarðsströnd, en flutti að Skáldalæk fyrir 6 árum. Hann er sonur Níelsar heitins, sem lengi bjó á Hallanda. Ákveðið hefur verið að hafa cina sýningu enn á barnaleikritinu Hans og Gréta vegna áskorana fró heimilum í bænum og verður sýningin laug- ardaginn 29. þ. m. kl. 4 síðdegis. Verða aðgöngu- miðar að þeirri sýningu seldir í leikhúsinu frá kl. 3 þann dag. Á sunnudaginn verður svo síðasta sýning á Meyjaskemmunni og má panta áðgöngumiða að þoirri sýningu í síma 1639, en taka verður mið- ana í afgr. Mbl. við Hafnarstræti kl. 4.30—6 leikdaginn. Þetta eru því síðustu forvöð að sjá þessi vin- sælu leikrit bæði, en að þeim loknum mun Leik- félagið snúa sér að öðrum verkefnum. ■ Sigurður Jónsson, Bakka Kveðja. | Þökk af hjarta, þér eg sendi, þú mig gladdir, lítið barn, oft þó væri örðug gangan, | einum þér, í myrkri um hjarn. I Samt þú komst, og kveiktir yndi, kertaljósa ylinn við, sálmalögin söngst þá glaður, í sönntun jólanæturfrið. Oft var glatt í gamla bænum, er góði frændi kominn var, I um það geymi, í hljóðum huga, hlýjar endurminningar. Breyting mikil á er orðin, yfir um sál þín flogin er. En vinur þinn, sem lengur lifir, líkamann til grafar her. ! Bak við tjaldið, dauðans, dimma, í dýrð, mun biða á ljóssins strönd, móðirin, sem viðkvæm vermdi, I visna og kalda, þína hönd. ' Þrautum öllum þínuni, frændi, í þessum heimi, lokið er. Inn á landið lífs og friðar, lýsti nýárssólin þér. Birna Friðriksdóttir.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.