Dagur - 27.01.1955, Side 8

Dagur - 27.01.1955, Side 8
8 Dagur Fimmtudaginn 27. janúar 1955 Áððlfundur Bændafélags Eyfirðinga Samjiykktir um verðlagsmál - Imiflutningur holdanauta - Askorun til allra bænda landsins Ymis fíðindi úr nágrannabyggðum Bændafélag Eyfirðinga hélt að- alfund sinn að Varðborg á Akur- eyri á bóndadaginn, 21. jan. sl. Auk aðalfundarstarfa samþykkti hann ýmsar tillögur í verðlags- málum. Árni Ásbjarnarson bóndi í Kaupangi hafði framsögu um verðlagsmál og margir aðrir tóku til máls. Samþykktir fundarins fara hér á eftir: „Aðalfundur Basndafélags Ey- firðinga, haldinn á Akureyri 21. jan. 1955, lýsir óánægju sinni yfir þeim ráðstöfunum Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins, að lækka verð á kartöflum til framleiðenda á síðastliðnu hausti um 20 krónur á tunnu, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að uppskeran sl. haust var víða fremur lítil og ennfremur þegar haft er í huga mjög slæm afkoma kartöflufram- leiðenda sl. ár, vegna söluörðug- leika. Ennfremur telur fundurinn geymslugjald af kartöflum of lágt.“ „Aðalfundur Bændafélags Ey- jan. 1955,, gerir svofellda ályktun varðandi verðjöfnun mjólkur: Fundurinn skorar á fram- leiðsluráð landbúnaðarins að hækka á þessu ári verðjöfnunar- gjald af mjólk, eins og lög og reglur heimila, þannig, að Mjólk- ursamlag KEA á Akureyri geti greitt til bænda sama verð og lægst er greitt á verðjöfnunar- svæðinu Suðvestanlands. Sam- kvæmt því hefði Mjólkursamlag KEA átt að geta greitt kr. 2,48 á lítra mjólkur árið 1953 í stað kr. 2,30. „Aðalfundur Bændafélags Ey- firðinga, haldinn á Akureyri 21. jan. 1955, ítrekar fyrri samþykkt- ir sínar, varðandi innflutning á nautgripum af holdakyni og skorar á Nautgriparæktarsam- band Eyjafjarðar og Búnaðar- samband Eyjafjarðar, að vinna í sameiningu ötullega að því, að fá innflutta, hið allra fyrsta, holda- nautgripi, til afnota á Sæðingar- stöð SNE.“ „Aðalfundur Bændafélags Ey- firðinga, haldinn á Akureyri 21. jan. 1955, skorar á stjórn Kaup- félags Eyfirðinga að leiðrétta mis- rétti það, sem kartöfluframleið- .endur á félagssvæðr þess hafa orðið fyrir, í sambandi við úthlut- un þess á niðurgreiðslu ríkissjóðs árfið 1953, þar sem allmargir hafa fengið fulla greiðslu en aðrir alls enga, þótt hlýtt væri tilskyldum reglum um uppgjöf á magni kar- taflna.“ „Aðalfundur Bændafélags Ey- íiroinga, haldinn á Akureyri 21. jan. 1955, harmar það að bændur skuli ekki bera úr býtum fyrir framleiðslu sina, nærri það kaup, sem gert er ráð fyrir í verðlags- grundvelli. Þá lýsir fundurinn óánægju sinni yfir því, að það skuli hafa komið fram ,að heimil- aðar afurðahækkanir hafa ekki komið til framkvæmda. Ennfremur vill fundurinn lýsa því yfir, sem skoðun sinni, að af- koma bændastéttarinnar er ekki nærri eins góð, og margir ráða- menn vilja vera láta. Fundurinn skorar því á Framleiðsluráð land- búnaðarins, að gæta framvegis betur hagsmuna bændastéttar- innar en verið hefur.“ „Aðalfundur Bændafélags Ey- firðinga, haldinn á Akureyri 21. janúar 1955, skorar á alla bændur landsins, að stofna hið fyrsta bændafélög, í hverju héraði landsins, sem hafa það fyrir aðal- tilgang sinn að vera málsvari bændastéttarinnar og vinna að kynningu bænda og efla hina gömlu og traustu bændamenn- ingu og taka til umræðu ýmis nýmæli og önnur mál er bændur varða.“ Fundinn sátu um 60 bændur. Hina nýju stjórn Bænadafélagsins skipa: Eggert Davíðsson, Möðru- völlum, Jón Guðmann, Skarði, Jóhannes Laxdal, Tupgu, Gunn- ar Kristjánsson, Dagverðareyri, og Árni Ásbjarnarson, Kaupangi. Fundarstjóri var Eggert Da- víðsson og fundarritari Egill Ás- kelsson, Ægissíðu. Húsavík Á næsta sumri er hugsað til flugvallargerðar í grennd við Húsavík. Ekki er enn ráðið, hvar hann verður byggður. Tveir staðir hafa komið til greina Er annar á Héðinshöfða, áVz km norðan við kaupstaðinn. Hinn er vestan Laxár, gegnt Laxamýri, í hrauninu, 12 km sunnan við Húsavík. Hentug flugvallarstæði þykja ekki nær kaupstaðnum. Húsvíkingar munu óska eftir flug vellinum á Héðinshöfða, en sveitamenn framan Húsavíkur vilja að hann verði heldur byggð- ur gegnt Laxamýri. Sæmilega aflast á Húsavík þegar á sjó gefur. En ógæftir hamla veiðum. Bæjarstjórnin í Húsavík hefur samþykkt að leyta tilboða í bruna tryggingamálum kaupstaðarins. Síðast þegar „Hekla“ var á ferðinni, s.l. laugardag, átti hún að koma við í Húsavík á vestur- leið. Stórviðri var úti fyrir og kom skipið ekki við. Á Húsavík- urhöfn var sæmilega gott veður og urðu þeir farþegar, er ætluðu að fara með skipinu ,að sitja eftir með sárt ennið, því áætlunarferð- ir með bifreiðum hafa lagzt niður vegna snjóa. Skipið bætti úr þessu og brá sér frá Akureyri austur og sótti farþega og flutning. Þingeyjarsýslubraut Þjóðvegurinn allt frá Reykjadal norður um Húsavík og til Jökuls- árbrúar (fyrir Tjörnes og gegn um Kelduhverfi) heitir Þing- eyjarsýslubraut. Á þessari leið er ógerður vegarkafli frá Máná á Tjöi-nesi að Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi, um 16 km leið. Þegar þessi leið verður opnuð, verður árlega bílfært á milli Norður- og Suður-Þingevjar- sýslu miklu lengur, en verið hef- ur til þessa. Eins og kunnugt er, verður Reykjaheiði oftast snemma ófær að hausti og seint fær að vori, þótt gott sé í;byggð. Er hún stundum alófær bifreið- um 8—10 mánuði ársins. Bangastaðir heitir býli á aust- anvex-ðu Tjöi'nesi, næstum miðja vegu á hinum vegarlausa kafia. Þar var búið til skamms tíma, og vex'ður í þjóðbj-aut þegai', er vegurinn er lagður og umfex-ð hefst kringum Tjöi'nes. Ráðgert er að vinna að þessum nýja vegi á næsta sumi'i, fyrir 300 þús. kr. Hyggja mai'gir gott til þessarar mikilvægu samgöngubótar er nú hillir undir. Félagsheimili á Tjör- nesi og í Bárðardal í ,-fyrra var ákveðið að byggja félagsheimili á Tjöi-nesi. Fjárfest- ingax'leyfi til þess fékkst þó ekki fyi-r en í haust sem leið og var þá of seint orðið að hefja fram- kvæmdir. Félagsheimilið mun eiga að standa hjá Hallbjarnar- stöðum. Samkomuhúsið í sveitinni er orðið lélegt, um 35 ára gamalt. Þótt Tjörneshreppur sé fámenn- ur, er þar þi’óttmikið ungmenna- félag, sem hefur haft forgöngu um málið. Fx-amkvæmdir verða hafnar að vori. Bárðdælingar hyggjast reisa félagsheimili að Stóru-Völlum, einu af höfuðbólum Báxðardals. Skjálfandafljót hefur klofið byggðina og gert allt samstarf örðugt. Nú er vei'ið að byggja brú yfir það, undan Stóru-Völl- um. Hefði því vei'ki verið lokið ef vei'kfræðingavei'kfallið hefði ekki tx'uflað vinnu á s.I. sumri. Með þessari brú, sem vexður mikil samgöngubót fyrir Bárð- dælinga, vei-ður þeim léttara en ella að sameinast um hið fyrir- hugaða félagsheimili Þar verður einnig barnaskóli fyrir alla sveit- ina. Fnjóskadalur Bændur í austanverðum fram- Fnjóskadal, hafa búið við övðug- ar samgöngur um langt skeið. Hafa þeir ekki haft akveg út dal- inn að austan, gegnum Vaglaskóg og á þjóðveg, enda veti'arvegur vai'la hugsanlegur um skóglendið vegna snjóa. En Fnjóská er mikill farariálmi og óbi'úuð þar fram- frá. Á s.l. sumri var mælt íyrir nýrri brú H]á Þórðarstöðum. Á Alþingi í vetur var samþykkt 200 þxxs. kr. fjárveiting til brúarbygg- ingar á þessum stað. En áætlað verð bi úaiinnar er 4—500 þús. kr. Virðist nú tx-yggt að brúin verði byggð mjög fljótlega. Ræoa hlut- aðeigendur um útvegun lánsfjár til ao flýta framkvæmdum, svo vei'kið geti hafizt strax á næsia vori. Þessi brú er hin mikilvæg- asta íyrir Fnjóskdæli. Þeir, er austan árinnar búa í sveitinni framanverði’i, fá lengi þráða sam- göngubót, sem þeir vissulega hafa fulla þörf fyrir. Bi'ixin er einnig áhugamál þeirra er að vestan búa. Til dæmis má benda á, að þá fá þeir aðstöðu til upprekstrar á Austurdali. En eins og kunnugt er, hafa Eyfirðingar afnot þess afréttar, er liggur fram af byggð vestan Fnjóskár, og heitir Vestri Bleiksmýrardalur. Sumarvegur yfir Flat- eyjardalsheiði Arið 1953 var mælt fyrir sum- arvegi yfir Flateyjardalsheiði, milli Fnjóskadals og Flateyjar- dals. Kostnaðurinn var áætlaður 70 þús. kr. Með þessari fram- kvæmd fengju Fiateyingar sum- arvegasamband, stytztu leið á þjóðveg. Þá telja sumir ekki útilokað að FÍateyjardalur byggðist að nýju. Þar eru landkostir góðir og útræði var þar allmikið fyrr á árum. Þá er þar silungsveiði og reki. Nokkur húsakostur er enn í dalnum ,svo sem á Brettings- stöðum og Jökulsá. Á hinum fyrrnefnda var búið til haustsins 1953. Tún eru þar með kafgrasi á hverju sumri og sums staðar eru góðar engjar. Nú er ákveðið að hefja verkið á næsta sumri. Það er miðað við ruddan en ak- færan sumarveg. Litli kálfurinn á Brekku í bréfi úr Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu segir meðal ann- ars frá litlum kvígukálfi, sem fæddist að Brekku 9. jan. s.l. Hann fæddist 7 vikum fyrir tím- ann, enda er hann smávaxinn. Hann var 9 kg að þyngd og 60 sm langur, frá „háenni og aftur á tortu“. Hæðin 47 sm á miðjan hrygg. Hausinn var eins og gefur að skilja heldur ekki stórvaxinn, eða frá grönum að háenni, 16 sm. Þeim, sem séð hafa þennan litla kálf, þykir hann með ólíkindum smár og hafa ekki séð neinn svo lít'inn. Litli kálfurinn á Brekku, sem er svartijr að lit, dafnar vel og ætlar bóndinn, Bragi Jónsson, að láta hann lifa. Bóndinn á Hafralæk fótbrotnar Það slys vildi til fyrir nokkr- um dögum, að bóndinn á Hafra- læk í Aðaldal, Þórhallur Andrés- son, datt út af heystabba og fót- brotnaði. Liggur hann á sjúkra- húsinu í Húsavík. Þung færð er orðin á flestum vegum Þingeyjarsýslu. Flutn- ingar hafa þó ekki teppst á lág- lendi. Á mánudaginn var ekið mjólk frá Mývatnssveit í samlagið í Húsavík, en færið þá orðið mjög vont. Myndarleg samkoma framsóknarmanna á Dalvík Á laugardaginn var, hélt Fram sóknarfélag Dalvflcur, myndar- lega samkomu, í samkomuhúsinu í Dalvík. Formaður félagsins, Magnús Jónsson bóndi í Hrappstaðakoti, setti samkomuna með ræðu og bauð gesti velkomna. Þá flutti Bernharð Stefánsson alþingism. ræðu, Steingrímur Bernharðsson sýndi 2 fræðslumyndir og*enn- fremur var farið með gamanþátt. Allir samkomugestir fengu ókeypis kaffi. Að lokum var stiginn dans. Samkoma þessi var mjög fjölmenn og sótt úr nær- sveitunum, auk Dalvikinga. Var hún í alla staði hin myndarleg- asta. Kljómleikar í Akureyrarkirkju Einar Sturluson þjálfar kirkjukór Akureyrar- kirkju og syngur einsöng á hljómleikum kórsins Einar Sturluson óperusöngvari hefur dvalið á Akureyri að und- anförnu og þjálfað Kirkjukór Einar Sturluson óperusöngvari Akureyrar. Hann starfar nú hjá Kirkjukórasambandi íslands og ferðast milli kóranha eftir því sem tími vinnst til. Fer hann héðan til Akraness og æfir kirkju kórinn þar. Kirkjukór Akureyrar, undir stjórn Jakobs Ti-yggvasonar org- anleikara, hefur miklu menning'- arhlutverki að gegna. Það er bví öllum bæjarbúum fagnaðareíni að hann nýtur um hríð, leiðbein- inga hins vel menntaða og vin- sæla söngvara auk söngstiórans. Einar Sturluson telur Kirkju- kór Ákureyrar, prýðisgóðan og þakkar það vandvirkni og áhuga söngstjórans. Kórnum haía líka bætzt nýir söngkraftar og það er æft af kappi. Ákveðið er að halda kirkjuhljómleika í kvöld. Einsöngvarar með kórnum verða: Kristinn Þorsteinsson, Matthildur Sveinsdóttir og Karl Óskarsson. — Auk þess syngur Einar Sturluson einsöng, en hann er kunnur söngvarioghefur kom- ið fram í óperum á Norðurlönd- um, auk þess haldið hljómleika hér heima við góðan orðstír.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.