Dagur - 23.02.1955, Page 1
XXXVIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. febrúar 1955
9. tbl.
I dag er liátíðisdagur barnauna hér á Akureyri og munu há-
tíðaliöldin hér alvcg sérstæð hér á landi. Börnin búast ýmsum
kátlegum búningum og setja upp grímur, ganga í hópum um
bæinn, syngja í búðum og á götum úti, blása í lúðra og hafa í
frammi margvíslegan gleðskap. Áður en þessi skemmtun
Iiefst, eru hóparnir venjulega búnir að slá köttinn úr tunnunni
og kjósa sér kattakóng. Sjaldnast mun kötíur vera í tunnunni,
þykir vel að verið ef liægt cr að útvega dauðan hrafn í kattar '
stað. Myndirnar sýna börnin á öskudaginn í fyrra, og þessi
sýn er svipuð ár eftir ár.- Þessi hótíð barnanna er skeiumtilegt
sérkenni á okkar byggðarlagi.
hér um næsfu hefg
Sainvinnukvikmyndin „Viljans
*
merki“ verður væntanlega sýnd
á Akureyri um næstu helgi.
„Viljans merki“, hin nýja sam-
vinnukvikmynd, hefur verið
sýnd í Reykjavík Hafnarfirði og
á Akranesi við mjög góða aðsókn.
.Erlendur Einarsson, forstjóri
Sambands ísl. samvinnufélaga,
mun koma hingað, ef myndin
verður sýr.d, og flytja ávarp.
Búizt er við geysimikilli að-
sókn. Myndin verður að þessu
sinni sýnd fyrir samvinnumenn í
bæ og nágrenni. En fræðsludeild
KEA sýnir þessa sömu mynd á
mjófilmu í öllum deildum kaup-
félagsins í vor.
Urklippur úr sænskum blöðum,
þar sem getið er um sænsku
frumsýninguna á þessari mynd,
hafa nú borizt hingað. Fara blöð-
in mjög lofsamlegum orðum um
myndina og telja hana vera hina
ágætustu kynningu fyrir ísland.
Mennmgarsjóður
KEA gefur Amt-
bókasafni íestæki
í nýqíkomnum Félagcííðind-
um KEA er frá því skýrt, að
stjérn Menningarsjóðs KEA
hafi nýlega ákveðið að sjóður-
inn gæfi Amtsbókasafninu hér
á Akureyri tvö lestæki fyrir
míkró-filmu. Amtsbókasafnið á
þegar nokkurt fihnusafn af
skjölum í þjóðskjalasafni og
fleiri söfnum, en ekki néma eitt
lestæki. Hin nýju tæki munu
auðvelda fræðimömium að
notfæra sér bætta aðstöðu, sem
hin nýja filmutækni hefur fært
þeim. Þurfa menn hér ekki
lengur til Reykjavíkur til að
kanna heimildir heldur geta
unnið íræðistörfin hér í mörg-
um tilfellum með tilstyrk
míkró-filmu og lestækja. —
Menningarsj. KEA hefur hér
lagt menningarmáli goft lið.
Reynt að sprengja ísinn frá Torfunefi
?*#»■
Að undanlornu hefur verið reynt að sprengja rás í ísinn undan Torfunefi, svo að skip geti komist að
bryggjunni, en síðan siglingar hófust á ný, hafa skip verið afgreidd við Oddeyrartanga. I gærkvöld
var sprengingmn cnn haldið áfram og stóð til að Reykjafoss, sem kom í gær og lagði að Tangabrj'ggju
reyndi að brjóta sér leið að bryggjunni. Myndin sýnir sprengingamenn bæjarms að starfi á ísnum. —
Framkvæuidabankiim lofar 3 Vi
milljón króoa láni
Eyggingaframkvæmdir hmnu vænfanlega
hef iast í vor
Miklar líkur eru nú á því, að
svo greiðist úr fjárútvegun til
hraðfrystihússins, að urmt verði
að hefja byggingaframkvæmdir í
vor og koma húsinu í notbæft
ástand fyrir Iok þessa árs.
Þessi úrslit urðu kunn að af-
lokr.um fundum, sem fram-
kvæmdastjóri Útgerðaríélagsins,
Guðmundur Guðmundsson, bæj-
arstjórinn, Steinn Steinsen, og
Helgi Pálsson, form. Útgerðar-
félagsstjórnarinnar, áttu með
ráðherrum og bankastjóra Fram-
kvæmdabanka íslands í Reykja-
vík nú í vikunni. Skýrðu þeir
Helgi og Guðmundur biaða-
mör.num hér frá þessum málum í
gær.
Þýzkt Ikn og lán frá
Framkvæmdabankanuin.
Eins og áður er getið hér í hlað-
inu, eru taldar líkur til að fá megi
þýzkt lán til framkvæmdanna, að
upphæð 6 millj. króna, en aðeins
til 5 ára. Til þess að gera þá lán-
töku mögulega varð að tryggja
lánsfé hér heima til langs tíma til
þess að heildarlánstími Útgerðar-
félagsins til framkvæmdanna yrði
viðráðanlegur. Þessi trygging
hefur nú fengist með yfirlýsingu
Framkvæmdabankans um að
hann muni lána 3V2 millj. króna
á árunum 1957—1959 til hrað-
frystihúss hér, enda fáist erlent
lán að upphæð 6 millj. kr. Út-
gerðarfélagið hefur begar að
kalla tryggt sér 1.5 millj. króna
hlutafjáraukningu, og hefur því
þegar innlent fé um 5 milljónir
til að tryggja þýzka lánið og er
það talið nægilegt að sinni. Láns-
tími félagsins hjá Framkvæmda-
bankanum mun verða 15 ár.
Lan Framkvæmdabankans,
3I4 milljón króna, mun vera
stærsta lán til hraftfrystihúss-
byggingar sem innlend láns-
stofnun veitir og nemur 00% af
stofnkostnaði. Hafa ríkisstjórn
og Framkvæmdabanki veitt
þessu franlkvæmdamáli bæjar-
ins mikið liðsitmi og raunveru-
lega tryggt, að málið komist í
höfn.
Að vísu er þýzka lánið enn ófeng-
ið. þótt horfur séu taldar líklegar,
en forráðamenn Útgerðarfélags-
ins töldu í viðtalinu við blaða-
menn í gær. að málið væri eigi að
síður komið á þann rekspöl nú, að
framkvæmdir mundu í öllu falli
hefjast í vor.
Fjárfestingarleyfi veitt.
Það er Gísli Sigurhjörnsson,
sem vinnur að lánsútveguninni,
og er í ráði að Haínfirðingar taki
sams konar lán. enda hafa þeir nú
hlotið sams konar fyrirgreiðslu
ríkisstjórnarinnar og Fram-
kvæmdabankans. Hélt Gísli til
Þýzkalands á sunnudagsmorgun
í þessum erindum, en er væntan-
legur aftur snemma í marz.
Hér mun um að ræða lán til
vörukaupa í Þýzkalandi, en lík-
legt. talið, að ekki þurfi að binda
þau kaup við hraðfrystihússvélar,
enda vilia forráðamenn Útgerð-
aríélagsins fremur búa húsið ís-
lenzkum vélum, sem hér hafa
gott orð, sé bess kostur.
Jafnframt því, sem Fram-
kvæmdabankinn gaf skuldbind-
andi loforð um lán, veitti Inn-
flutningsskrifstofan yfirlýsingu
um að fjárfestingarleyfi fyrir
húsbyggingu mpndi veitt, og yf-
(Framhald á 7. síðu).
Hin sérkennilegu háfíðahöld barnanna á Ákureyri á öskudaginn
Fylgist með því, scm gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Bag!
ÐAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 26. febrúar.