Dagur - 23.02.1955, Qupperneq 4
4
D AGUR
Miðvikudaginn 23. febrúar 1955
}$5$5S$$SSS55$5S$SSS5535S$555555S53S$S555S$SSS$SS*»
DAGUR
Riístjóri: HAUKUR SNOERASON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166.
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 60.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Hraðfrystihúsmálið
í RÆÐU þeirri, scm Eysteinn Jónsson, fjármála-
ráðherra, liélt í hófi bæjarstjórnar hér á Akurevri í
desember síðastiiðnum, hvatti hann eindregið til þess
að stofnað yrði til sem allra víðtækastra samtaka til
þcss að leysa hraðirystihúsmálið. At (Vlluin þeint verk-
efnum, sem hér lægi fyrir að leysa tif að skapa bæjar-
búum góð lífsskilyrði í framtíðinni, taldi hann að
bygging fullkomins hraðfrytihúss væri mest aðkall-
andi. Stofmin slíks fyrirtækis væri um ieið öryggis-
ráðstöfun fyrir togaraútgerðina, sem orðinn er mikill
þáttnr í atvinnulífi bæjarins.
HVATNINGARORÐUM ráðherrans í þessu máli
var vel fagnað liér nyrðra. Var og ljóst af þeirn, að
hriiðfrystihússmálið átti að fagna velvilja og skiln-
iiigi innan ríkisstjórnarinnar. Mátti kafla líklcgra en
áður, að uimt mundi reynast að sigrast á fjárhags-
örðugleiJ'unum og stofna tii framkvæmda.
Aktireyringar sýndu það einnig, að þeir vildu á
sig leggja nokkuð fyrir þetta mál. Á fjárhagsáætlun
bæjarins nú er 750 þús. króna framlag til málsins,
og greiði bæjarmenn upphæðina með útsvörum.
Auk þess hafa menn af frjálsum vilja lofað nokkur
inindruð þúsunda króna framlagi til hlutakaupa. —
‘Vafalaust er, að þcssi viðbriigð hér á síðastliðnu
hausti og nú um áramótin, að hopa ekki fyrir erfið-
leikum, heldur lcggja byrðar á bak, þótt þungar séu,
til þess að hafa handbært fé, hafa orðið málinu til
verulegs stuðnings.
ANNARS STAÐAR í þessu blaði er skýrt frá þvi,
áð alhniklu meiri horfur séu nú á því en áður, að úr
íjármagnsþörfinni greiðist. Ríkisstjórniri og Frarn-
kvæmdabankinn lrafa lofað þeirri fyrirgreiðslu. sem
nauðsynleg var, til þess að unnt væri að kanna til
, hlítar, hvort erlent hínsfé er fáanlegt. Eru nú taidar
góðar horftir á því, að þýzkt lán verði fáanlegt, og
þau loforð Framkvæmdabankans, sem nú liggja fyrtr,
jafngilda því, að þetta lán sé til svo langs tíma, að
það verði viðráðanlegt fvrir Utgerðarfélagið. F.n sú
fyrirgreiðsla, sem rnálið liefur hlotið hjá ríkisstjórn-
inni er því mjög mikilsverð og staðfestir það, að það
■oru meira en orðin tóm, sem Eysteinn Jónsson lét
1 falla liér í vetur, að ntálið þyrfti að Ieysa með sem
víðtækustum samtiikum. Fyrir þessi samtök hefur því
nú þokað verulega áleiðis.
SAMKVÆMT þeim kostnaðaráætlunum, sem fyrir
iggja, mun það lánsfé, er nú hillir undir, duga til
tð koma upp húsinu og búa það vélakpsti. En bæjar-
’élagið á eftir að skapa nauðsynlega aðstöðu með
bryggjugerð og uppfyllingu, og kostar hvort tveggja
mikið fé.
Þótt sú fyrirgreiðsla, sem nú hefur verið veitt
’.ryggi væntanlega framgang málsins, mega bæjar
Jnenn ekki þar fyrir ætla, að þeir geti sleppt hend
fnni af því og það þurfi ekki frckari stuðnings með-
Líklegt er, að bæjarfélagið verði enn um sinn ao
:aka á sig einhverjar byrðar til að tryggja þessar fram
kvæntdir á Oddeyri og full afnot þeirra. En undir-
íektirnar til þessa sýna, að menn vilja leggja nokkuð
í sig til að veita nýju blóði í athafnalífið. Fyrirtæki
þetta er áhættufyrirtæki og gæti brugðið til beggja
/ona um rekstursgrundýöll. En öll framleiðsla á sjáv-
irafurðum hér á landi okkar er áhættusöm. Samt er
nin afl þeirra hluta, sem framkvæmdir hafa verið á
liðnum árum. Og svo mun enn vcrða, þó að yfir
j gangi erfiðleikatímabil endrum og eins .
Efling smábátaútgerðar.
TÍMARIT Fiskifélags íslands,
Ægir, kemur nú út í nýju formi
undir ritstjórn Davíðs Olafssonar
fiskimálastjóra. Er ritið hálfs-
mánaðarrit og flytur fréttir af
sjávarútvegsmálum og ýmsan
fróðleik, sem allir, er við fisk-
veiðar fást, hafa gagn og gaman
af. Nýlega er út komið annað
hefti Ægis síðan breytingin var
gerð, og er bar ýmislegt fróðlegt
efni. Þar er til dæmis rætt um
smábátaútgerð frá Hríseey. Birt
er mynd af þremur fiskibátum,
er Skipasmíðastöð KEA smíðaði
fyrir Hríseyinga á sl. ári, og í
framhaldi af frásögn af því segir
svo í Ægi:
„Þessa frétt væri út af fyrir sig
vart markverð (þ. e. smíði
þriggja 7 lesta báta) ef hún fæli
ekki í sér annað og meira. Hún
lýsir tímamótum, það mætti jafn-
vel kalla það afturhvarf í útgerð- i
arsögu Hríseyjar, og sömu þró,-
unar verður víða vart í verstöðv-
um umhverfis landið. Blómaskeið
smábátaútvegs virðist hafa hafizt
að nýju eftir alllangt hlé, Margir
þakka það hinum nýju fiskveiði-
takmörkunum.
Utgerðarsaga Hríseyinga.
ENN SEGIR SVO í Ægi: ..Hrís-
eyingar voru meðal brautiyðj
enda í vélbátaútgerð við Eyja-
fjörð, en hún stóð með miklum
blóma fram yfir 1930, og þekkja
víst flestir aðdraganda og orsakir
hnignunar smábátaútvegsins á
fjórða áratugnum og síðar. Flest-
ir smærri bátanna voru þá seldir
frá Hrísey eða þeim lagt. Nokkr-
ir framtakssamir Hríseyingar
réðust þá í kaup á stærri bátum,
er sótt gátu á fjarlægari mið og
sem hentugir voru til síldveiða.
En þeir fluttu flestir burt, er
þeim óx fiskur um hrygg, þangað
sem svigrúmið var meira. Næsti
þáttur í útvegsmálum Hríseyjar
hófst með stofnun útgerðarfélags
með þátttöku flestra eyjarbúa.
Keyptur var 65 lesta bátur, sem
þeim hélzt þó skammt á, ekki sízt
vegna aflabrests á síldveiðum
undanfarinna ára fyrir Norður-
landi. Sama félag hefur ráðist í
að kaupa 18 lesta bát, sem ásamt
smærri bátunum er meginstoð
atvinnulífs Hríseyinga, en með
komu þessara báta hafa þeir tek-
ið upp þráðinn, þar sem frá var
horfið 1930, og er það von manna,
að vel takizt.“
Þessi saga mun í öllum aðal-
atriðum rétt hermd, en hér
skortir þó alveg að geta um eina
„meginstoð atvinnulífs Hrisey-
inga“, en það er hraðfrystihúsið,
sem Kaupfél. Eyfii-ðinga byggði
þar og starfrækir. Sú fram-
kvæmd hefur gert eflingu. út-
gerðar frá þessari ágætu útgerð-
arstöð mögulega á nýjan leik.
Stórmál fyrir byggðarlagið.
EFLING smábátaútgerðar hér
við Eyjafjörð er stórmál fyrir
héraðið allt. Með aukinni fisk-
gengd á grunnmið opnast hér
möguleikar til sjálfbjargar sem
ekki voru til áður. Hér ei'u dug-
legir sjómenn, sem fullan hug
hafa á að nota þau tækifæri, sem
friðun grunnmiðanna fyrir tog-
urum hefur skapað En þeir eiga
erfitt um vik. Þá skortir fé til að
koma fótum fyrir sig. Beina þarf
lánsfé til dugandi manna, sem
vilja hefja eigin útgerð, og bæta
þarf aðstöðu þeirra, sem aldrei
hafa látið merkið niður falla, þótt
í móti hafi blásið. Smábátaút-
gerðin á það skilið, að málefnum
hennar sé sinnt. Hún leggur
drjúgan skerf í þjóðarbúið.
Umræður um bindindismál
og skemmtanahald.
Bæjarbúi skrifar blaðinu á
þessa leið í gær:
„í GÆRKVELDI fór eg að
hluta á erindi um bindindismál,
sem séra Jakob Jónsson flutti á
vegum Góðtemplarareglunnar
hér, í Félagsheimili templara,
Varðborg, öðru nafni hótel Varð-
borg. Líklega á síðara nafnið
meiri rétt á sér. Erindi séra Jak-
obs var í alla staði hið prýðileg-
asta, bæði hvað efni og flutning
snerti; ræddi hann um hina svo-
kölluðu hófdrykkjumenn, of-
drykkjumenn og algjöra bindind-
ismenn. Fannst mér á dæmum
sem hann tók og rökum í sam-
bandi við hpfdrykkjumennina, að
vandratað yrði meðalhófið í því
tilliti. Erindi séra Jakobs átti
sannarlega erindi til allra, yngri
sem eldri, því að hann er áreið-
anlega kunnugur þessum málum,
afleiðingum dx-ykkjuskapar hjá
einstaklingum og fjölskyldum. —
En í sambandi við komu séra
Jakobs hingað og komu Guðna
Þórs Ásgeirssonar í sumar,
langar mig að minnast á fram-
komu Góðtemplara hér. 1 vor,
þegar Guðni Þór var hér á ferð,
en hann er form. félagsskapar
sem kenndur er við ofdrykkjuna,
hélt hann fyrlrlestur í Sam-
komuhúsinu. Eg var þar líka
ásamt ca. tuttugu sálum. Erindi
Guðna var ágætt, lýsing á baráttu
hans við að sigrast á ofdrykkj-
unni sem hafði þjáð hann í 15 ár.
En alveg á sama tíma og þetta
erindi er flutt, halda Góðtempl
arar sjálfir ,,ball“ í Varðborg og
fá skemmtikrafta lengra að til að
auka aðsóknina sem mest. Þar
var líka troðfullt hús og nóg til
að gleðja sálina með! Hvað rak
þessa menn (Góðtemplara) til að
halda þennan dansleik í Varð-
borg sama kvöld og á sama tíma
og þeir þykjast vera að glæða og
efla bindindisstarfsemina héi ? —
Eru það peningarnir. sem gilda
miklu meira en hugsjónin í bind-
indishreyfingunni? ■—. f gær
kveldi áttu þeir heldur EKKI að
hefja sýningu á nýrri kvikmynd:
„Á kvennaveiðum" á sama tfma
og séra Jakob hóf flutning er
indis síns. Þótt fyrirlesturinn
væri sæmilega sóttúr, þá gátu og
áttu margir fleiri að njóta hans.
Stórhríðarmót Akur-
eyrar uin sl. helgi
Svigkeppni Stórhríðarmóisins
fór fram sl. sunnudag í Snæhól
um. Færið var mjög erfitt, laust
nýfenni og bloti.
Fyrstur í A-flokki varð Hjálm-
ar Stefánsson, Siglufirði, 2.
Magnús Guðmundsson, KA, 3.
Sigtryggur Sigtryggsson KA.
í B-flokki varð Skjöldur Tóm-
asson, KA, fyrstur.
í C-flokki sigraði Jón Bjarna
sön, Þór.
Skíðasamband íslands stendur
í samningum við Bjarne Arents
reyndan, norskan Olympíusvig-
mann, Standa vonir til að hann
komi til að þjálfa undir næstu
Olympíuleika. Mundi hann þá
hefja starf sitt á Akureyri 21
marz næstk. — Arents er talinn
ganga næst Eriksen, hin
um fræga Olympíumeistara.
Skíðamót Norðurlands átti að
fara fram á Siglufirði, en á því
eru örðugleikar vegna fólksfæðar
þar. Ekki er enn vitað hvei-jir
munu verða til þess að taka mót
ið að sér að þessu sinni.
Hattarnir mega vera litlir og án
skyggnis, en þeir mega líka vera
sthórir og undirskálalaga eins og
þessi hér, frá Dior í París, sem er
úr náttúrlegu strái og með upp-
hafsstafi meistarans í kollinum.
r
A þessu vori duga nær öll tízkufyrir-
bæri í kvenfatnaði
PARÍS.
Ekki er hægt að halda því fram, að nokkur sér-
stakur klæðaburður þyki henta öðrum betur á
jessu komandi vori heldur ríkir sú skoðun, að flest
tízkufyrirbæri síðustu tíma séu nothæf. Engin sér-
stök „lína“ er annarri ofar.
Litlir hattar er
kjörorð tízku-
meistarans Fa-
biennes, en koll-
egar hans segja
bara í staðinn:
stórir hattar og í
þeim hópi eru
sumir stærstu
tízkukóngarnir,
Sannleikurinn
er, að það er góð
tízka að ganga
meða stóra eða
smáa hatta eftir
vild og hattur-
inn frá í fyrra er
jafngóð tízka og
hatturinn í ár.
Konur geta svo
stælt Marilyn
Monroe ef þeim sýnist svo, og fyllt vel út í fötin,
þ.-e. a. s. ef þær hafa vöxt til þess, en það þykir al-
veg jafngóð tízka að vera þunnvaxin og „flöt“ á la
Audrey Hepburn, því að á þann stíl leggur tízku-
kóngurinn Christian Dior megináherzlu enn í dag,
enda þótt ekki sé eins áberandi og var meðan H-
línan var og hét, en tíð H-línunnar í fyllingu er
liðin. Hinir nýju brjóstahaldarar frá París eru sama
gerð og hausttízkan, það er hálfskála-gerðin, sem
er sú tízka, sem ræður.
Nota má pils og víðan jakka, en líka þröng
pils og kjóla, að nær líkist vafningum. Hið fyrr-
nefnda er vitaskuld auðveldara fyrir þá, sem
kaupa tilbúinn fatnað, því að jafnan er auðveld-
ara að grípa upp víða kjóla og pils, sem vel fara, en
þau föt, sem eiga að falla þétt að vaxtarlaginu.
Og síddin má vera eins og hverjum þóknast hún
helzt, enginn tízkumeistari í París hefur gert
minnstu tilraun til að breyta síddinni í ár. Balen-
ciage sýnir fremur síða lcjóla nú undir vorið, en
Dior fremur stutta kjóla ,en þetta er alveg sama
og sl. vor og hér er engin breyting.
Einasta breytingin, sem nokkuð kveður að, er
ei-marnar, sem allar eru blátt áfram og eðlilegar nú,
gagnstætt því sem stundum sást í fyrra og erma-
lengdin má vera að smekk hvers og eins jafnt og
kjólasíddin, fulllangar ermar, hálfermar og jafnvel
stuttar, enda þótt Dior hafi nýlega i blaðaviðtali
sagt, að ermar eigi að hylja olnboga og kjóll hné,
sem séu sá hluti kvenlíkamans, sem helzt stingi í
stúf við fagra byggingu hans.
Þannig virðist vortízkan vera óvenjúlega frjáls-
lynd að þessu sinni og þykir væntanlega góð tíðindi.
Hrogn sem ofanálegg !
Nú nálgast sú tíð, að maður eigi völ á að fá hrogn
í fiskbúðum og er það tilhlökkunarefni. Hrogn eru
ágætur matur, í senn ljúffengur og hollur og nær-
andi. Danir eru snillingar í matreiðslu, og í dönsk-
um kvennadálki nú nýlega eru þessar fyrirskriftir
um þorskhrogn §em ljúffengt ofanálegg á brauð:
Súrar agúrkur eru hakkaðar gróft og blandað
saman við soðin þorskhrogn. í hræruna er bætt
niðurskornum, soðnurn kartöflum, sem skornar eru
í smáteninga. Síðan er ofurlitlu asíuediki héllt yfir.
Þetta er sérlega gott á ristað franskbrauð.
Harðsoðin eggjahrauða er hrærð út í ofurlitlu af
tómatsósu (ketchup). Síðan eru hrognin hrærð
(Framhald á 7. síðu).