Dagur - 29.06.1955, Page 1
á Ákureyri nema 10,9
króna aS þessu sinni
Samvinnumenn ryðja braulina lyrir sjáll-
algreiðslu í verzlunarbúðum landsmanna
Sami útsvarsstigi og í fyrra notaður - auknar
tekjur og mannfjölgun stendur undir mi|ljón
króna hækkun á heildaruppliæð
Útsvörin hér í bæ eru um |
niilljón krónum hærri í ár en í
fyrra, en samt var sami útsvars-
stigi notaður. Hækkunin náðist
vegna hærri tölu gjaldenda og
álagi á hærri tekjur gjaldenda en
í f.vrra.
Nú er í fyrsta sinn lagt á Glerár-
þorpsbúa sem borgara kaupstaðar-
ins, og nema útsvör þeirra um 500
þús. kr. Auk útsvaranna er nú birt
skrá um tekjuskatt er nemur 2,6
millj., og eignaskatt, er nemur 174
þús. kr. Auk þess stríðsgróð'askatt-
ur um 43 þús., og viðbótartekju-
skattur á félög 91 þús. Þá greiða
samvinnufélögin samvinnuskatt er
nemur um 230 þús. kr., til bæjar-
félagsins.
Hæstu útsvör.
Hæsta útsvar, sem jafnan áður,
ber Kaupíélag Eyfirðinga. Sjálft
útsvarið er kr. 230.700.00, að auki
greiðir félagið rösklega 150 þús.
kr. til bæjarins í samvinnuskatt,
eða samtals 380 þús. kr. i raun-
verulegt útsvar. SÍS greiðir 108
þús. kr. samkvæmt niðurjöfnún-
inni, og að auki um 80 þús. kr. sam-
Þorsteinn Hannesson
syngur hér í kvöld
Klukkan 9 í kvöld hefur Þor-
steinn Hannesson óperusöngvari
söngskemmtun hér í Nýja-Bíó,
með aðstoð frk. Guðrúnar Krist-
insdóttur pínaóleikara. Þorsteinn,
sem er fastráðinn við Covent
Garden óperuna í London, hefur
verið hér heima í leyfi, og m. a.
Þorsteinn Hannesson í hlutverki
Canio í óp. Pagliacci eftir Leon-
cavallo í Þjóðleikluisinu sl. vetur.
sungið aðalhlutverkið í óperunni
Pagliacci í Þjóðleikhúsinu. — I
kvröld syngur Þorsteinn lagaflokk
eftir Beethoven, ýmis íslenzk lög,
og aríur eftir Puccini, Beethoven,
Handel og Weber. Þorsteinn er nú
einn kunnasti og mikilhæfasti
söngvari landsins og vekur hvar-
vetna mikla athygli.
vinnuskatt, eða um 190 þús. kr. í
raunverulegt útsvar. Að öðru leyti
eru hæstu útsvör, sem hér segir:
Kaupfclag Eýfirðinga 230.700
Útgerðarfél. Akureyringa h.f. 123.650
Sámband ísl. samvinnufélaga 108.000
Amaró h.f. 59.000
Súkkulaðivcrksm. Lincla h.f. 53.750
Kaffibrennsla Akureyrar h.f. 46.800
Valhjörk h.f. 38.900
Kr. Kristjánsson, Brekkug. 3 35.950
O. C. Thorarensen, Hafn. 104 32.700
l’áll Sigurgeirsson, Eýrarl.v. 24 31.200
Byggingarviiruverzl. Tómasar
Iijiirnssonar h.f. 31.100
Guðm. Jiirundss., Eiðsvallag. 5 30.250
Electro Co. h.f. 27.800
Olíuverzlun lslands h.f. 26.950
Atli h.f. 26.550
Prentv. Odds Björnssonar h.f. 26.050
Valhöll h.f. 24.450
Slippstöðin h.f. 23.650
Bernharð I.axdal, Eyrarl.v. 8 23.450
Hafnarbúðin h.f. 23.000
Valg. Stefánsson, Oddeyrarg. 28 22.400
Bílasalan h.f. 22.150
Shell h.f. bcnzín og olíusala 22.050
Axel Kristjánsson h.f. 21.300
Páll Friðfinnss., Munka. 42 21.000
Helgi Skólason, Möðruv.str. 2 20.750
Su'in. Auðunsson Þór.str. 113 20.750
Tómas Steingrímss., Hafn. 18 20.550
Sverrir Ragnars, l'ingv.str. 27 20.300
Smjörlíkisg. Akureyrar h.f. 20.250
Jakob Frímannss., Þingv.str. 2 20.050
Nýja Kjöthúðin s.f. 19.600
Bygg.vöruverzl. Akureyrar h.f. 19.550
Úgerðarfélag KEA h.f. 19.500
Brynj. Sveinsson, Skólastíg 13 19.050
Bernhárð Stefánss. Strandg. 5 18.900
Kristján N. Jónss., I'ingv.str 20 18.450
Eriðrik Magnúss., Aðalstr. 15 17.800
Tómas Björnss., Gilsbakkav. 9 17.650
Torfi Maronss., Laxagötu 5 16.300
Ragnar ólafssoh h.f. 16.250
Þorst. Auðunss., Þór.str. 113 16.150
ól. Thorarensen, Brekkug. 11 16.050
Finnur Daníelss., Helgam.str. 27 15.850
Verzlunin Eyjafjörður h.f. 15.650
Gísli 5f. Kristinss. Eyrarv. 14 15.300
Sig. Guðmundss., Helgam.str. 26 15.300
Gunnar Auðunss., Möðruv.str. 3 15.100
Jóhann Snorras., Byggðav. 99 15.050
Friðj. Skarphéðinss., H.m.str. 32 14.950
Guðm. K. Péturss., F.yrarl.v. 22 14.750
1. Brynjólfsson og Kvaran útibú 14.750
Þóishamar h.f. 14.700
Brauðgcrð Kr. Jónss. og Co. 14.600
Skarph. Asgeirss., Hafn.str. 1 14.450
Þorst. M. Jónss., Hafnarstr. 96 14.450
Steinn Steinsen, Hafnarstr. 20 14.150
Hvannhergshra'ður útihú 14.100
Valtýr Þorsteinss. Ejólug. 18 13.750
Bergur P. Sveinss., JVorð.g. 50 13.200
Sig. K. Árnason, Gra'nug. 8 13.100
Viktor Kristjnnssón h.f. 12.850
Jón E. Sigurðss., Hafn.str. 94 12.700
Anna l.axdal, H.m.str. 26 12.650
Steind. Steindórss., Munka. 40 12.600
Bjarni Jóhanness., H.m.str. 44 12.550
Jónas Sna'björnss., Möðruv. 5 12.400
Odtli h.f. 12.100
Jóhann Þorkelss., Ránarg. 19 12.050
Bjargey Pétursd., Ráðhúst. 5 12.050
Bifreiðast. Akureyrar h.f. 12.050
Sigr. Aðalsteinsd., Þór.str. 113 12.000
Guðm. Guðlaugss., Munka. 25 12.000
Framhald á 7. síöu.
© Kaupfélögin og Sambandið sterk og
áhrifamikil f járhagsleg heild - Frá
aðalfundi SÍS í s. 1. viku
Stytta af Jóni Arasyni
Þannig lítur út frummyndin af
Jóni biskupi Arasyni, er gert hef-
ur Guðmundur Einarsson frá
Miðdal. Gibsmyndin verður nú
send til Danmerkur og myndin
steypt í máltn. Myndin hefur ver-
ið til sýnis á Hótel KEA að und-
anförnu.
Síldveiðihorfur svip-
aðar og uiidanfarin ár
Hinum sameiginlegu rannsókn-
um á hafssvæðunum milli Austur-
Grænlands og Noregs, og Hjalt-
lands og Jan Mayen, er íslending-
ar, Danir og Norðmenn hafa stað-
ið að að undanförnu, er lokið, og
hefur verið birt sameiginleg til-
kynning um árangurinn. Af henni
er ljóst, að ástand sjávarins er
svipað og verið hefur, og mörkin í
milli kaldra og hlýrra hafstrauma
svipuð og undanfarin ár. Virðast
horfur um síldargöngur á Islands-
mið vera svipaðar og sumarið
1953. Síldveiðiflotinn býr sig nú til
síldveiða. Veitist erfitt að fá mann-
afla á skipin, þótt færri séu en
undanfarin ár. Héðan frá Eyjafirði
mun verða svipaður skipafjöldi
og áður.
Mikið jökulhlaup varð undan
Mýrdalsjökli á laugdagskvöldið, og
var óttast að Kötlugos væri í að-
sigi, en ekki er það orðið enn. -—■
Hlaupið er sjatnað, en tók brýr á
Múlakvísi og Skálm.
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga hafði á árinu 1954 heildar-
veltu sem nam um 550 milljón-
um kr. og er þetta 10% aukning
frá árinu á undan. Frá þessu
skýrði Vilhjálmur Þór fvrrver-
andi forstjóri SS er hann gaf að-
alfundi Sambandsins skýrslu um
liðið ár í Bifröst í Borgarfirði sl.
miðvikudag.
í tilefni þess, að Vilhjálmur Þór
hefur nú látið af forstjórastarfi
SÍS, gerði hann mjög ýtarlega
grein fyrir eignum, fjárhag og
stöðu samvinnuhreyfingarinnar
allrar, og rökstuddi rækilega þá
ályktun sína, að SÍS og kaupfélög-
in væru hvert um sig og í heild
sterk, traust og örugg fjárhagsleg
heild.
Aðalfund SÍS sóttu 100 fulltrúar
56 kaupfélaga víðs vegar um land,
auk stjórnar SIS, Erlendar Einars-
sonar forstjóra, og ýmissa starfs-
manna Sambandsins. A þriðjudag
héldu allir kaupfélagsstjórar lands-
ins fund með sér og ræddu ýtar-
lega mörg hagsmunamál kaupfé-
laganna, en árdegis miðvikudag
var aðalfundur SIS settur af Sig-
urði Kristinssyni, formanni þess.
Fundarstjóri var kjörinn Jör-
undur Brynjólfsson, varafundar-
stjóri Þórarinn Eldjárn. Ritarar
voru kjörnir Jón Baldurs og Ragn-
ar Pétursson. Sigurður flutti
skýrslu stjórnar SÍS og rakti ýms-
ar framkvæmdir, sem stjórnin
hafði fjallað um, svo og hinar
miklu breytingar, sem urðu um
áramótin í liði forráðamanna
stofnunarinnar.
Skýrsla Vilhjálms Þór.
Vilhjálmur Þór flutti síðan
skýrslu sina um starfsemi ársins
1954 og rakti ýtarlega deild fyrir
deild. Mest var velta Innflutnings-
deildar, 186 milljónir, þá velta Út-
flutningsdeildar 184 milljónir en
Véladeild og Dráttarvélar til
samans veltu 65 milljónum, og
varð aukningin þar langmest.
Skipadeild bættust 2 kaupslcip á
árinu, en ítrekaðar tilraunir til að
fá leyfi til kaupa á olíuflutninga-
skipi, voru árangurslausar. Iðnaður
SIS jók einnig verulega sölu sína,
en Vilhjálmur hvatti til átaka á
sviði stóriðju, sem hann taldi
þjóðinni nauðsynlega, fyrst og
fremst með innlendu fjármagni, ef
það fæst með kjörum, sem íslend-
ingar geta við unað. Af nýjum
starfsgreinum nefndi Vilhjálmur
Samvinnusparisjóðinn, sem vaxið
hefur á fyrsta ári sínu hraðar en
nokkur gerði sér vonir um, og svo
undirbúning að sjáfsafgreiðslu-
verzlun í Reykjavík. Hann hvatti
samvinnumenn til að auka og efla
fræðslustarf sitt, til að styrkja
mátt samvinnuhugsjónarinnar og
gat þess að SÍS hefði á árinu
stofnað fræðsludeild til að starfa
á því sviði.
Að lokum kvað Vilhjálmur það
hafa verið sér mikla gleði að taka
þátt í samvinnustarfinu, vera með
í því að byggja upp og færa út kví-
arnar, fjölga verkefnum og auka
starfið. Þakkaði hann samstarfs-
mönnum sínum og öllum stuðn- •
ingsmönnum um land allt.
Fyrsta sjálfsafgreiðslubúðin.
Við stofnun fyrstu sjálfsaf-
greiðsluverzlunar á Islandi geta
orðið þáttaskil í matvæladreifingu
hér á landi, sagði Erlendur Einars-
son forstjóri SIS, í ræðu á aðal-
fundi SIS á fimmtud.kvöld. Hann
skýrði frá því, að þessi fyrsta bú3,
sem er í Austurstræti 12 í Reykja-
vík, væri teiknuð af einum færasta
húsameistara danskra samvinnu-
manna og muni taka til starfa
næsta haust, verði notuð til að
þjálfa starfsfólk frá kaupfélögum,
sem geta tekið upp hina nýju
verzlunarhætti og mun SÍS á
margvíslegan hátt ryðja brautina
fyrir þessari nýjung, sem Erlendur
kvaðst fullviss um, að mundi gera
vörudreifingu hagkvæmari og
ódýrari fyrir neytendur.
Erlendur flutti ýtarlegt yfirlit
yfir starfsemi SIS, og áformaðar
framkvæmdir. Hann skýrði frá því,
að nú stæði aðeins á endurnýjun
fjárfestingarleyfis, til þess, að SIS
hæfi byggingu kjötvinnslustöðvar
á Kirkjusandi í Reykjavík, en sú
stofnun mundi mjög bæta kjöt-
dreifingu í höfuðstaðnum.
AukiS fjármagn.
Erlendur lagði í ræðu sinni meg-
ináherzlu á verzlunina, sem verið
hefur og er höfuðviðfangsefni
samvinnufélaganna. Kvað hann
margt mundi verða gert til þess að
tryggja verzluninni aukið fjár-
magn, sem hún þyrfti til þess að
geta gegnt hlutverki sínu vel, svo
og að skapa henni sem fullkomn-
Framhald á 7. síðu).
r
Lesstofa Isl^ameríska
félagsins í nýju
liúsnæði
SI. föstudagskvöld var opnuð
lesstofa Isl.-ameríska félagsins hér
á Akureyri í nýju húsnæði, í
Geislagötu 5. Er þar rúmgott, og
hægt að sýna kvikmyndir. Form.
félagsins, Haukur P. Olafsson
frystihússtjóri, flutti ávarp, en síð-
an talaði sendiherra Bandaríkj-
anna, Mr. John J. Muccio, og af
hálfu Ísl.-ameríska félagsins í
Reykjavík Gunnar Sigurðsson
flugumferðarstjóri. Síðan var sýnd
kvikmynd. Margt manna sótti fund
þennan. Bókavörður og umsjónar-
maður við lesstofuna er frk. Irene
Gook.