Dagur - 19.09.1956, Page 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 26. september.
XXXIX árg.
Akureyri, miðvikudaginn 19. september 1956
48. tbl.
Pyiswgerð KEA er elzta og stærsta
pylsugerð utan höfuðstaðarins
Allt frá 3 934 hafði KEA pylsu-
gerð í sambandi við kjötbúð sína.
Vegna vaxandi umsetningar var
horfið að því ráði að stofna sjálf-
stæða pylsugerð 1950.
Tilgangur Pylsugerðar KEA var
fyrst og fremst sá, að vinna verð-
mætari söluvöru úr ýmsum kjöt-
vörum, sem nauðsyn er að kjöt-
iðnaðurinn fjalli um.
Pylsugerðarvörurnar hafa selzt
mjög vel og eru til sölu bæði hér
á Akureyri og víðs vegar um landt
þar með taldar niðursuðuvörur,
svo sem pylsur og kindakjöt, og
standast fyllilega samanburð hlið-
stæðrar framleiðslu.
Pylsugerðin hefur unnið úr 120
—140 smálestum af kjöti árlega
og er verðmæti þess um 3,5 millj.
kr. Umsetningin er þó nær hálfu
meiri, því að þessi deild annast
kaup og dreifingu á eggjum
Um hálfönnur milljón fjár koma þessa
daga til réffa á landinu
smjöri, grænmeti og fleiri land-
búnaðarafurðum. Starfsmenn eru
16.
Fjórir faglærðir kjötiðnaðar-
menn starfa í pylsugerðinni, og
ætti það að tryggja vörugæðin að
nokkru. Annars er kjötiðnaðurinn
ný iðngrein hér á landi og er fyrsti
iðnneminn, samkvæmt þeim lög-
um, útskrifaður hér og starfar við
þetta fyrirtæki.
Pylsugerðarvörur eru orðnar
æði mikill og vaxandi þáttur í
daglegri neyzlu almennings, því að
alls staðar er kappkostað að hafa
sem minnst fyrir heimilisstörfun-
um og ekki sízt í matargerð.
Sennilega stendur hérlendur
kjötiðnaður á fremur lágu stigi.
Markmið hans alls staðar hefur
verið það, að gjöra verðmæta
söluvöru úr lélegra kjötinu. Er
(Framhald á 5. síðu.)
Ekið kringum Tjörnes
Húsavík í gær.
Verið er að leggja akveg kring
um Tjörnes. Búið er að undir-
byggja mest af þessum nýja
vegi. Fyrstu bifreiðirnar fóru
þessa leið nú um helgina. Var
það jeppabifreið Guðmundar Há-
konarsonar og lítil fólksbifreið
símastöðvarstjórans í Húsavík,
Friðþjófs Pálssonar.
Ferðafólkið rómaði mjög nátt-
úrufegurð á þessari leið og er
talið að hún verði mjög fjölfarin
þegar hún verður opnuð almenn-
ingi til umferðar.
Sauðfjárslátrun hefst hér á
sláturhúsinu á morgun og verð-
ur slátrað 28 þús. fjár þar og á
Ófeigsstöðum. En þar hófst slátr-
un á mánudag.
Frá sumarfrelsi til umönnunar bændanna
Undanfama daga hafa sveitamenn lagt leiðir sínar um fjöll
og firnindi. Búizt að heiman til langrar göngu með nesti og
og nýja skó, stundum með heimagerða leðurskó á fótum, því
að engir skór eru léttari. Það em fremur daufar göngur, ef
ekki er farið fyrsta spölinn ríðandi og tæplega fullgildur
gangnamaður, sem ekki hefur hund.
Framkvæmdir hafnar við upplök Laxár
: i
Framkvæmdabankinn lánaði 1 mill j til verksins
Hópur manna vinnur nú við upptök Laxár við Mývatn
Við stíflugerð. Koma á í veg fyrir hið ójafna rennsli árinnar,
með því að fjarlægja giunnstingul og snjó af grynningunum
með stíflugarði og með því að sprengja djúpan ál niður
í árbotninn.
Dutlungar Laxár.
Það var snemma sýnt að Laxá
gat verið æði dutlungafull til
virkjunar þótt sjálft Mývatn
væri þar vatnsgjafi, því þar á
Laxá upptök sín.
Reynslan hefur líka sýnt að
mjög skortir á hið jafna vatns-
rennsli árinnar. Ber einkum
tvennt til, sem því veldur, frost
og snjór. í frosthörkum botn-
frýs vatnið á hinum víðáttu-
miklu grynningum við upptök-
in og heftir framrás þess og í
stórhríðum leggst snjór og frost
á eitt og geta stíflur af þessu
tagi staðið dögum saman, því svo
er að sjá að Mývatn muni ekki
mikið um að bæta við sig nokk-
urra daga vatnsmagni árinnar,
enda er það stórt að flatarmáli og
gljúpt hraunið að því á alla vegu.
Neytendur á orkuveitusvæði
Laxár hafa oft fengið að kenna
á þessum dutlungum þótt trufl-
; anir yerði einnig af öðrum völd-
um, svo sem krapastífluni neðan
við virkjunina.
Framlcvæmdabankinn
lánaði 1 milljón.
Árði 1953 voru vinnuská'lar
reistir við Mývatn, þar sem áin
rennur úr því og einnig var unn-
ið nokkuð við sprengingar í ánni,
en fé hefur vantað til frekari
framkvæmda.
En nú hefur Framkvæmda-
bankinn lánað 1 milljón króna
til að halda megi verkinu áfram
og ei' unnið af kappi við stíflu-
gerð nálægt Geirastöðum. Þar
verður áin stífluð svo vatnsborð
hennar hækki og verði jafnt
yfirborði Mývatns.
Síðan verður sprengdur djúp-
ui' áll frá stíflunni og upp í Mý-
vatn. Á stíflugarðinum verða
lokur miklar, smíðaðar í Sviss.
Á þá að vera hægt að „hafa í
hendi sér“ rennsli árinnar og
útiloka grunnstingul, jakaburð
og snjó.
Áætlaður kostnaður er talinn
4—5 milljónir króna. Enn vantar
verkamenn austur og er búist
við að unnið verði á meðan tíð
og peningar leyfa.
Síðan verður svo að dæla botn-
leðju á svonefndri Breiðu og er
það kostnaðarsamt verk og ekki
í fyrrgreindri kostnaðaráætlun.
Verkstjóri er Georg Karlsson,
en umsjón með verkinu hefur
Ásgeir Markússon. Sigurður Thor
oddsen gerði teikningar og
áætlanir. Formaður Laxárvirkj-
unarstjórnar er Steinn Steinsen.
Sjálfboðavinna við
Skíðaskálann
Kjötbúðarstj. KEA og forstj.
Valbjarkar hafa farið með starfs-
fólk sitt upp í skíðaskálann í
Hlíðarfjalli og unnið vel þegna
sjálfboðavinnu. Munu væntan-
lega fleiri koma á eftir.
Að leggja af stað í göngur.
Gaman er að leggja af stað í
göngur í góðu veðri, helzt langar
göngur á góðum hesti, með tjald
og nesti til margra daga og í glöð-
um kunningjahópi, undir leiðsögn
gangnaforingjans, sem er einvalds-
konungur á sinu svæði á heiða-
löndum og öræfum.
Sums staðar eru fjárlöndin að
vísu svo nærliggjandi, að þau eru
gengin á einum degi. Þar er eng-
inn leitarkofi og þar er engihn
með trússahest í taumi og valið
nesti til margra daga. Þar er
undirbúningur lítill og tilhlökk-
unin minni.
Þegar ekki er horft af
heimahlaði.
En hvergi eru göngur þó svo
fátæklegar, að ekki sé farið upp á
fjall, eitt eða fleiri, og á hverju
hausti mun einhver fara þá leið í
fyrsta sinn. Og það er ekki lítill
viðburður að fara í fyrsta sinn
hátt til fjalla. Þar opnast nýr
heimur og þegar horft er til baka
yfir sveitina og nærliggjandi
sveitir, opnast annar heimur, því
að nú er ekki horft af heimahlaði.
Ekki fyrir tildursmenn.
Enginn skyldi þó ætla, að göngur
séu yfirleitt einhver sunnudags-
eða sólskinsganga. Því fer fjarri
og hentar ekki tildursmönnum
eða þeim, sem ekki geta einir
verið nokkra stund. Hver verður
aj5 treysta á sjálfan sig og hundinn
sinn, hvort sem þokan byrgir út-
sýn, regnið streymir úr loftinu,
stórhríð brestur á eða þíðir haust
vindar og mikið sólfar hefur orð-
ið við óskum gangnamanna.
Fjallafrelsi lokið.
Ærnar taka venjulega strax á
rás með dilka sína við fyrsta hó
eða hundgá og renna síðan í hala-
rófu í átt til byggða. En þar eru
þó vissulega undantekningar. —
Sumum fullorðnu ánum finnst
sumar og fjallafrelsi enn ekki orð-
ið nógu langt og beita þá bæði
slægð og þráa, og enginn er öf-
undsverður af því að elta forystu-
fé, sem ekki vill hlýða.
.1
Safnið rekið til réttar.
Þeir sem heima bíða, horfa
(Framhald á 5. síðu.)
Tungiirétt í Svarfaðardal
TungureU i Svaríaaardal cr á dalamotum. Þangað kemur ijöídi íjár úr Sýarlaðar- cg Skiðadal. S.I.
mánudag var cslitin fjárbreiða alla Icio frá Dæli að réttinni og margt vel ríðandi manna á báðar
hliðar. — Fjölmenni safnaðist að Tungurétt, cr á dagiim leið og naut veðurblíðunnar í ríkum mæli.