Dagur - 27.03.1957, Blaðsíða 2

Dagur - 27.03.1957, Blaðsíða 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 27. marz 1957 frá Reykjavík, Ólafsfirði, Ðalvík og Akureyri Eysteinn sigraði bæði í stökki og svigi Skíðamót KA er fjölmennasta og glæsilegasta skíðamót, sem haldið hefur verið á Akm-e,vri um langan tíma. — Utanbæjarmenn settu svip sinn á' mótið, fyrst og fremst skíðakappinn Eysteinn Þórðarson. Mótið hófst á laugardag með keppni í stökki. Færi var þungt, og náðu keppendur ekki nægum hraða í aðrennslinu til að geta stokkið eins langt og hægt er að stökkva í Miðhúsabrautinni. Ey- steinn sigraði örugglega. Áhorf- endur voru margir. Á sunnudaginn hófst stökk- keppnin kl. 2. Færið var nú mun betra en á laugardaginn, og náðu keppendur betri stökkum. Aðal- keppnin í A-fl. stóð á milli þeirra frændanna Eysteins og Jóns Ágústssonar, KA, og mátti vart á milli sjá hvor sigra mundi. Jón átti lengsta stökkið 27V2 m, en var svo óheppinn að detta og brjóta skíði sín. Eysteinn sigraði með 2 stiga mun. Þeir eru mjög svipaðir að getu, frændurnir, og stökkva báðir mjög vel. — Af öðrum keppendum má nefna Ein- ar Helgason, KA, sem er nýliði í stökki og á hann þar vel heima, og Kristinn Steinsson, Þór, sem er einnig góður. Matthí- as Gestsson, KA, stekkur langt, en hefur ekki góðan stíl. Bragi Hjartarson, Þór, er einnig góður. Af unglingum má nefna Björn- þór Ólafsson frá Ólafsfirði, sem stökk mjög vel og ívar Sigmundsson, KA. — Veður var prýðilegt til keppni, sólskin og blíða. — KA-félagar unnu þrekvirki að koma stökkbrautinni í nothæft ástand, og byggðu þeir turn við aðrennslið nóttina fyrir keppnina á laugardaginn, og eiga þeir þakkir skilið fyrir það fram- tak. Áhorfendur voru mjög margir og skemmtu sér prýðilega. Kl. rúml. 5 hófst svo svigkeppn- in í Knarrarbergsgilinu. — Þar komu margir áhorfendur, og hafa þeir sennilega ekki farið von- sviknir heim.. Eysteinn bar þar af óðrum keppendum, og er hann lang- bezti svigmaður sem hér hefur keppt. Ulfar Skæringsson, ÍR, var einnig mjög góður á okkar mælikvarða, en þó er mikið bil á milli hans og Eysteins. Það má segja að Eysteinn hafi verið alveg í sérflokki. Bragi Hjartar var ör- uggur að vanda og náði þriðja sæti. Hjálmar var óheppinn, fékk 2 víti í síðari ferð en var samt ekki langt á eftir Braga. Eg álít að hann standi Úlfari jafnfætis. Kristinn Steinsson vann B-fl., og er hann mjög öruggur svig- maður. C-fl. vann Stefán Jónas- son KA, og er hann efnilegur. Viðar Garðarsson fékk beztan brautartíma þar, 22,6 sek. — ívar Sigmundsson, KA, vann eldri drengjaflokkinn, og er hann mjög efnilegur. — Yngri drengjaflokk- inn vann Björn Guðmundsson, Ólafsfirði, og er hann mjög góður. Það má segja að þetta mót hafi verið KA til mjög mikils sóma, og stjórnaði formaður KA, Her- mann Sigtryggsson, því, af mikilli röggsemi. — Eitt vil eg minnast á að lokum, sem er nauðsynlegt að hafa á hverju skíðamóti, og KA- menn sáu vel um, en það er hafa sjúkrasleða til taks, ef einhver meiðist, sem alltaf getur komið fyrir hvort sem um lítil eða stór mót er að ræða. Á sunnudagskvöldið bauð svo KA keppendum og starfsmönnum til kaffidrykkju að Hótel KEA og þakkaði formaður Hermann Sig- tryggssön, utanbæjarmönnum komuna og óskaði þeim góðrar heimferðar. Úrslit urðu sem hér segir: LAUGARDAGUR: (Stökk.) Karlar 20 ára og eldri: Eysteinn Þórðarson ÍR 207.1 stig Jón Ágústsson KA 199.3 stig Kristinn Steinsson Þór 197.3 stig Karlar 17—19 ára: Mathías Gestsson KA 196.0 stig Bragi Hjartarson Þór 184.2 stig Reynir Pálmason 'KA 166.1 stig Uunglingar 15—17 ára: Björnþór Ólafss. Ólafsf. 179.4 stig Heiðhr Árnas. Dalvík 151.2 stig Jón Halldórsson Dalvík 150.8 stig Unglingar 13—15 ára: ívar Sigmundsson KA 150.3 stig Vignir Kárason KA 150.0 stig Björn Guðmundss. Ól.f. 143.4 stig SUNNUDAGUR: (Stökk.) Karíar 20 ára og eldri: Eysteinn Þórðarson ÍR 216.7 stig Jón Ágústsson KA 214.8 stig Einar Helgason KA 201.0 stig Karlar 17—19 ára: Matthías Gestss. KA 204.0 stig Bragi Hjartarson Þór 195.9 stig Jóhann Tryggvas. Dalv. 177.5 sfig Unglingar 15—17 ára: Björnþór Ólafsson Ól.f. 191.7 stig Jóhann Halldórss. Dalv. 171.3 stig Heiðar Árnason Dalvík 168.5 stig Drengir 14 ára og yngri. Björn Guðmundss. Ól.f. 180.5 stig ívar Sigmundsson KA 170.8 stig Guðm. Tulinius KA 165.9 stig (Svig.) A-flokkur: Eysteinn Þórðarson ÍR 77.8 sek. Úlfar Skæringsson ÍR 85.6 sek. Bragi Hjartarson Þór 86.9 sek. B-flokkur: Kristinn Steinsson Þór 77.3 sek. Gunnl. Sigurðss. Sigluf. 80.6 sek. Páll Stefánsson Þór 83.6 sek. C-flokkur: Stefán Jónsson KA 46.9 sek. Hörður Sverrisson KA 50.9 sek. Grétar Ingvarsson KA 51.8 sek. Drengir, eldri flokkur: ívar Sigmundsson KA 35.5 sek. Jón Halldórsson Dalvík 37.1 sek. Hallgrímur Jónsson KA 37.3 sek. Ðrengir, yngri flokkur: Björn Guðmundss. Ól.f. 39.3 sek. Þórarinn Jónsson KA 42.5 sek. Sigtr. Benediktss. KA 46.2 sek. Á næstunni fer fram firma- keppni í svigi, og sér KÁ um það mót. Þau firmu, sem hafa hug á að vera með, snúi sér til Her- manns Sigtryggssonar. Keppnin verður með líku sniði og hjá Golíldúbbnum. S. O. Frá bæjarráði Tekið fyrir erindi frá Fisk- vinnslunni h.f. undirritað af Stein þcri Helgasyni, þar sem tilkynnt er að vélskipið Haukur I hafi verið fluttur til Akureyrar og skýrt Kópur E.A. 33. Telur um- sækjandi nauðsynlegt að skipta um vél í skipinu til þess að hægt sé að gera það út á togveiðar. — Vegna þessa hefur félagið sótt um lán úr Atvinnubótasjóði að upphæð kr. 160.000.00 og biður um meðmæli bæjarstjórnar með þessari beiðni. Bæjarráð gerði svofellda samþykkt: .,Bæjarráð Akureyrar ínælir eindregið með því að Fiskvinnsl- an h.f., Akureyri, fái 160 þús. kr. lán úr Atvinnubótasjóði til kaupa á vél í vélskipið Kóp E.A. 33.“ Frá Hafnarncfnd. Þá var mættur á fundinum Skafti Áskelsson til viðtals um leigu á dráttarbrautunum. Nefndin leggur til að SIipp- stöðin h.f. verði leigð stöðin áfram þar til togaradráttarbraut getur tekið til starfa, þó ekki lengur en til 5 ára. Ársleiga fyr- ir núverandi dráttarbrautir og hús verði kr. 200.000.00 — tvö hundruð þúsund krónur — og auk þess helmingur af því sem uppsátur og stöðugjöld fara fram úr eitt hundrað tuttugu og fimm þúsund krónum á ári. Hvor aðili getur krafizt endurskoðunar á leigusamningnum að 2 árum liðn- um og verður þá leigan fyrir það sem eftir er af samningstímabil- inu ákveðin með samkomulagi eða mati þriggja dómkvaddra manna. Við matið skal tillit taka til þeirra verðbreytinga, sem orð- ið hafa á samningstímabilinu. Að i öðx-u leyti gildi ákvæði núverandi leigumála eftir því sem við á. í grennd við boi-gina Kristian- sand í Noregi kom fyrir sjaldgæft og leiðinlegt atvik um daginn. Gömul kona hafði dáið á sjúkra- húsi í Kristiansand, og rétt fyrir jarðarförina óskaði ættindi nokk- ur að fá að sjá gömlu konuna í síðasta sinn. Kistan var opnuð en hún var þá tóm! Líkið hafði gleymzt á sjúkrahúsinu. Það varð að fi'esta útförinni þar til daginn eftir. Kvikmyndahátíðin i Cannes vei'ður á þessu ái'i frá 2.—17. mal Sú breyting hefur verið gerð á fyrirkomulaginu, að hvert land fær aðeins að sýna eina kvik- mynd. Bandai'íkjamenn sýna „Umhverfis jörðina á 80 dögum“, en Danir Grænlandskvikmyndina „Qivitoq“. Þrjátíu og fimm kvik- rnyndir munu keppa um verð- launin að þessu sinni, en í fyrra voru þær 100. Bandarískir bílar fara nú lækkandi með hvei'ju ári, og í dönskum blöðum er talað um, að þeir séu orðnir of lágir fyrir Dani. Eru þeir enn nógu háil' fyr- ir.íslenzka vegi? Arbejderbladet í Osló segir frá því 6. mai'z'áð nú rhuni Norð- menn framvegis fá að kaupa ferðagjaldeyri fyrir 1500 ki\ í stað 700 kr. áðui'. Verð hefur nú lækkað svo undanfarna daga á dönsku svína- kjöti í Englandi að Danir frá 4V2 millj. kr. minna á viku nú en áð- ur fyi-ii' þessa útflutningsvöru sína, og er. þetta alvarlegt áfall fyrir danska þjóðarbúið. Orsök verðfallsins er mikið fi'amboð af brezku svínakjöti, en framleiðsla þess er styrkt af brezka í'íkinu með fjárframlögum. Frá 8. apríl hafa 213 læknar í Gautkboi'g'ságt upp stöðum sín- um. Eiga þeir í deilu við borgar- yfirvöldin um launakjör. Er búizt við að ríkisstjórnin grípi í taum- ana og skipi séi'staka sáttanefnd. Vestur-Þjóðvei'jar geta hi'eyft sig úr stað. Um ái'amótin síðustu áttu þeir (Saar og Vestur-Berlín meðtalin) 2,5 millj. mótoi'hjól 2,3 millj. fólksbíla, um hálft sjö- unda hundi'að þúsund vörubíla, um 590 þús. dráttarvélar, allt um 6,1 millj. vélknúin farartæki. Er það 8,6% aukning á einu ái'i. Skinfaxi, tímarit ungmennafélaganna, er nýkomið út. Af efni má sér- staklega nefna: Afmælishátíð U. M. F. í. eftir Stefán Ól. Jónsson, Noi'ræna æskulýðsvikan í Forn- by eftir Axel Jónsson, Félags- heimilið Hlaðir eftir Sveinbjörn Beinsteinsson Bjai'ni M. Gíslason og íslenzku handi'itin, Axel Jóns- son ski-ifar um íþróttir á lands- móti U. M .F .í. á Akureyi'i, og margt fleira er til fi'óðleiks og skemmtunar. Ritstjóri er Stefán Júiíusson. f. rafmagu, 4 stærðir, nýkomnir. Véla- og búsáhaldadcild. úr ryðfríu stáli. Véla- og búsáhaldadcild. Nú er tækifærið! 4 manna bíll til sölu. Hag- kvæniir greiðsluskilmálar el samið er strax. Uppl. í síma 2090. B.alló strákar! Af sérstökum ástæðum er nýtt hjálparmótorhjól (Gör- icka) til sölu strax. Afgr. vísar á. Tékkneskir kvenstrigaskör í litaurvali. Enn fremur uppreim. strigaskór karlm. og unglinga. ílvaiinbcrgsbræður NÝKOMIÐ: Nylonblúnda í skírnarkjóla Gluggatjaldaefni með pífu Einnig alls konar HANNYRÐAVÖRUR mcð sérstöku tækifærisverði. ANNA & FREYJA Fermingin nálgast Vér bjóðum yður úi-val nyt- samra fermingargjafa: Undirfatnað, allskonar úr prjónasilki og nylon Töskur, lianzka, slæður Snyrtitöskur Sokkamöppur Umstein, ilmvatn o. fl., o. fl. ANNA & FREYJA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.