Dagur - 22.06.1960, Side 7
V
TILKYNNING
frá hestamannafélaginu Þjálfa í S.-Þingeyjarsýslu:
Eftirtaldir stóðlvestar eru til afnota á vegum félagsins
á þessu sumri:
]. Þjálfi, eign Þorsteins Sigurðssonar, Víðirhóli. —
Svaðastaðakyn. Er á Einarsstöðum í Reykjadal.
2. Mökkur Þjálfason, eign Jóns Stefánssonar, Stóru-
Laugum. Svaðastaða- og Einarsstaðakyn. Er á Ingjalds-
stöðum.
Folatollur er 150.00 krónur og óskast greiddur um
leið og hryssurnar eru leiddar til hestanna.
i NÝJA-BÍÓ
I Sími 1285 í
É Aðgöngumiðas. opin frá 7-9 |
| Myndir vikunnar. i
i Miðvikudag:
| Og sólin rennur upp j
iAðalhlutverk: i
i Tyrone Power, i
i Ava Gardner,
i Mel Ferrer,
i Errol Flynn, i
Eddie Albert.
STJÓRNIN.
SumarSeyfin eru byr
Höfum allan viðleguútbímað svo sem:
TJÖLD, 5 og 3 manna, fastur botn og rennilás
TJÖLD, 4 og 2 manna, laus botn
BAKPOKAR - SVEFNPOKAR
MYNDAVÉLAR - FILMUR, venjulegar
Enn fremui LITFILMUR
... 8 x 20
SJÓNAUKA
VEIÐISTENGUR og SPÆNI
REIÐHJÓL
Gjörið svo vel að atbuga úrvalið.
Póstsendum.
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
Löngumýri 34
§ ■ V
Ý >-'r
Ollum þeim.sem minntust min n fimmtiu dra afmœl-
j: inu 8. þ. m. d einn eða annan hdtl, sendi cg mínar hezlu
þakkir og árna þeim allra heilla í nútíð og framtíð.
Í ‘ f
% HERMAXN VILHJALMSSON, f
i
&
* §
j Bezlu þakhir til ykkar allra, sem minntust min n 60 %
g. dra afmœli mínu 11. juní sl.
&
| HLLGI DANÍELSSON,
é Björk
& ' |
±
©
?
j; Innilega þakka ég öllum, sem á margvislegan hátt, %
g, glöddu mig d 75 ára afmcelisdegi miínum 14. júní. ^
Kœrar kveðjur.
©
4
JUNIUS JONSSON
G\
Alúðar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu samúð og vin-
áttu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar og dóttur,
móður, tengdamóður og ömmu,
FJÓLU KATRÍNAR JÓNSDÓTTUR.
Alfreð Steinþórsson, Sigurlína Sigurgeirsdóttir,
börn, tcngdabörn og barnabörn.
Þessi heimsfræga stórmynd, é
tekin í litum og Cinema- i
scope, var páskamynd Nýja-1
\ Bíós í Reykjavík og byggist É
É á samnefndri sögu eftir Nó- \
\ belsverðlaunaskáldið Ernest 1
I Heminway, sem komið hefur É
i út í íslenzkri þýðingu. é
É Bönnuð börnum innan é
i 12 ára. i
Fimmtudag:
I GLERSKÓRNIR |
ÉAðalhlutverk:
LESLIE CARON, i
MICHAEL WILDING. \
i Gullfalleg og bráðskemmti- i
É leg ævintýramynd í litum og É
CINEMASCOP. |
5 Þetta er með betri myndum, §
sem hér hafa sést.
AUKAMYND: i
NÝ FRÉTTAMYND. í
• i ii iii n ii ii iii iiiii iii 1111111111111 iii iii if-inai ii ii iiiiiiiiiiii*
NÝKOMIÐ:
Kvensportbuxur
í úrvali og fallegum
litum.
Ailir komnir á veiðar
Dalvík, 21. júní. — Síðustu
bátarnir fóru héðan á síld í
nótt. Þeir eru þessir: Júlíus
Björnsson, Hannes Hafstein,
Baldvin Þorvaldsson, Bjarmi og
togskipin Björgvin og Björg-
úlfur.
Mörg sunnanskip fara héðan
á miðin. Þau hafa hér góða að-
stöðu hvað snertir vélaverk-
stæði, netaverkstæði og kost.
Ennfremur er hér lítil síldar-
verksmiðja og 3 söltunarstöðv-
ar. Skipin fá því sæmilegustu
afgreiðslu í mörgum þeim
greinum, sem síldarskipum er
mest nauðsyn.
Sláttur er hafinn á einum bæ
aðeins. Vatnavextir eru gífur-
legir.
•iiimiii4)iiiiiiMiiiiiiiitiiiiiiiiiiitiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiii»
} Uppboð á skinmim j
Seint í marz sl. var uppboð á
minkaskinnum í Osló. Var að-
sókn mikil og salan mjög ör. —
40.000 Pastell-skinn seldust óð-
ara. Læðuskinn að meðaltali
fyrir 94 kr. (norskar), og högna
skinn 178 kr. Hæsta verð var
280 kr. 6000 safírminkaskinn
seldust á ákvæðisverði. 10.000
hvít minkaskinn voru einnig
seld, læðuskinnin fyrir 105 og
högnaskinnin 199 kr. Hæsta
verð 300 kr. Flest þessara
skinna seldust á einum degi.
□ Rún 59606247 — Frl.: Rós.:
Kirkjan. Vegna prestastefn-
unnar í Reykjavík verður ekki
messað n.k. sunnudag. En næst
verður messað í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 3. júlí og
predikar séra Birgir Snæ-
björnsson.
Frá Ferðafélagi Akureyrar.
Farið verður í Þeistareyki n.k.
laugardag. Væntanlegir þátttak-
endur snúi sér til Álfheiðar
Jónsdóttir, Skóverzlun Lyng-
dals, sími 2399, fyrir fimmtu-
dagskvöld. Árbók F. í. 1960
verður afgreidd í skrifstofu fé-
lagsins, Hafnarstræti 100, þessa
viku kl. 20.30—21.30.
Sjálfsbjörg á Akureyri heldur
almennan fund miðvikudaginn
22. júní n.k. að félagsheimilinu
Bjargi kl. 8.30 e. h. Dagskrá:
Sagt frá sambandsþingi. —
Skemmtiferð. — Fleiri mál. —
Stjórnin.
Akureyringar og nærsveita-
menn/ Sumarmót hvítasunnu-
manna verður haldið í Akur-
eyrarkirkju dagana 26. júní til
3. júlí. Biblíulestrar hvern dag
kl. 4 e. h. og almennar samkom-
ur hvert kvöld vikunnar kl.
8.30. Margir ræðumenn, kór-
söngur, hljóðfæraleikur o. fl. —
Ath.: Mótið verður sett sunnu-
daginn 26. júní kl. 4 e. h. í Ak-
ureyrarkirkju. Allir hjartanlega
velkomnir. Hvítasunnumenn.
Auglýsingar þurfa að
berast fyrir hádegi dag-
inn fyrir útkoxnudag.
Hjónaefni. — Opinberað hafa
heitbindingu sina ungfrú Guð-
björg Sigurðardóttir, Patreks-
firði, og Kristinn G. Jóhanns-
son, listmálari, Akureyri. —
Ennfremur ungfrú Guðlaug Jó-
hannsdóttir og Sigþór Ingólfs-
son, bæði á Akureyri.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Edda Þor-
steinsdóttir, Ránargötu 1, Akur-
eyri, og Steinn Þór Karlsson,
Litla-Garði.
Hjúskapur. — Þann 17. júní
voru gefin saman í hjónaband
brúðsjónin ungfrú Svava Dagný
Svavarsdóttir og Garðar Pétur
Ingjaldsson plötusmiður. Heim-
ili þeirra er að Noi'ðurgötu 31,
Akureyri. — Sama dag ungfrú
Jóhanna Haildóra Steindórs-
dóttir og ívar Baldvinsson
rennismiður. Heimili þeirra er
að Brekku 4, Akureyri.
Fimmtugur verður á morg-
un, 23. þ. m., Karl Magnússon
járnsmíðameistari, Skipagötu 5,
Akureyri.
Jóhann Jónsson skósmíða-
meistari á Akureyri verður 75
ára á föstudaginn, 24. þ. m.
Slysavarnakonur, Akureyri!
Lagt verður af stað í Siglu-
fjarðarferðina kl. 1.30 á laugar-
daginn þ. 25. þ. m. Sækið far-
miðana sem fyrst í Kaupfélag
Verkamanna — Kjörbúð. —
Nefndin.
:Syndið 200 metrana. Sund-
laugin opin frá kl. 8 f. h. til kl.
10 e. h.
Nonnahúsið er opið á sunnud.
frá kl. 2.30 til 4 e. h.
Öxndæiir héldu Bei nharSi Stefánss.
og homi hans myndarlegt samsæti
Laugardagskvöldið 11. júní sl.
hélau Framsóknarfélögin í
Skriðuhreppi, Öxnadalshreppi
og á Þelamörk Bernharði Stef-
ánssyni, fyrrverandi alþingis-
manni og bankastjóra, samsæti
í þinghúsi Skriðuhrepps. Sam-
sætið var haldið í þakklætis- og
virðingarskyni við Bernharð og
Hrefnu Guðmundsdóttur hús-
freyju hans, en hann hefur nú
horfið að mestu leyti frá langri
og farsælli þátttöku í opinber-
um störfum. Samkvæmisgestir
voru um níutíu að tölu, gamlir
menn og ungir, karlar og kon-
ur, þar á meðal nokkrir póli-
tískir andstæðingar Bernharðs.
Formenn Framsóknarfélag-
anna önnuðust undirbúning
samsætisins, en Einar Sigfús-
son, bóndi í Staðartungu, for-
maður Ffamsóknarfélags
Skriðuhrepps, var veizlustjóri.
Hélt hann og aðalræðuna fyrir
minni heiðursgestsins, en Anna
Sigurjónsdóttir, húsfreyja á
Þverá, minntist Hrefnu Guð-
mundsdóttur, konu Bernharðs.
Auk þess fluttu ýmsir sam-
kvæmisgestanna ávörp, þar á
meðal var Ingólfur Guðmunds-
son, bóndi í Foi-nhaga, sem vei'-
ið hefur frambjóðandi Alþýðu-
bandalagsins við nokkrar und-
anfarnar alþingiskosningar. —
Lauk hann sérstöku lofsorði á
Bernharð fyrir drengilega fram
komu í stjórnmálabaráttunni og
heiðarlegan málflutning' fyrr og
síðar. Nokkurra sárinda gætti
hjá sumum ræðumanna yfir því
að Bernharði hefði verið vikið
til hliðar af stjórnmálasviðinu
að ástæðulausu, en hann hefur
enn krafta og heilsu til þess
að vera þar hlutgengur eigi síð-
ur en aðrir. Þórir Valgeirsson
bóndi í Auðbrekku flutti kvæði.
Milli ræðuhaldanna sungu sam-
kvæmisgestirnir gamla, is-
lenzka söngva undir stjórn
Baldurs Guðmundssonar á
Þúfnavöllum, tóku þá flestir
undir, þeir er rödd höfðu. —
Bernharð þakkaði með fynd-
inni, bráðskemmtilegri ræðu,
sem vakti góðan fögnuð meðal
gestanna.
Samkvæmissalurinn var blóm-
um skrýddur á snyrtilegan og
smekkvísan hátt. Hafði Anna
Einarsdóttir, húsfreyja á Auð-
brekku, haft veg og vanda þar
af. Setið var undir borðum
nærri fjórar klukkustundir við
rausnarlegar veitingar. Vín var
veitt eins og hver vildi hafa, og
glösin fyllt jafnóðum og lækk-
aði í þeim. Ölvun sá ekki á
nokkrum manni, hvorki karli
né konu, svo að of væri. Að lok-
um var dansað um hríð. Sam-
kvæmið fór fram hið bezta á
allan hátt. Var það þeim, sem
sáu um stjórn þess og skipulag,
til sóma, og almenningi til
óblandinnar ánægju.