Dagur - 15.03.1961, Blaðsíða 1

Dagur - 15.03.1961, Blaðsíða 1
f ' ; n 1 MAjujawj Vramsóknarmanna ! Rjtstjóiu: Erungur DavIbsson SKRIh'S 1()FA í Haknarstk.kti 90 Sími H66 . Sktningu og rrkntun ANNAST PrENTVERK OdBS Björnssónar h.i . Akurkvri ---------------------------- XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. marz 1961 — 13. tbl. AuGLVsI SGAST1ÓRI: ]ón Sam- ÚELSSON . ArCANOURINN KOST AR KR. 100.00 . GjALDDAGt ER 1. JÚÚ Bl-adid kemur út á mibvikudöc- UM OC Á I.AUOARDÓCUM Í-F.CAR ÁST.HIA UVS.IR Ttl. : ---------------------------V Harðar vítur á ríkisstjórnina AÐALFUNDUR Héraðssam- bands Suður-Þingeyinga hald- inn á Grenivik dagana 11. og 12. marz 1961, mótmælir harð- lega samningi þeim, sem ríkis- stjórn íslands hefur gert við ríkisstjórn Bretlands um fisk- veiðilandhelgi íslendinga. Harmar fundurinn að einhug ur þjóðarinnar um einhliða á- kvörðun hennar um 12 mílna fiskveiðilandhelgina skuli þann og rofin og hún leidd til sund- urþykkis og flokkadrátta um málið, jafnframt því sem mál- inu, og þar með framtíðarhag | GATA | STJÓRNARBLÖÐIN eru alltaf að birta brezkar og íslenzkar greinar um það hve Bretar hafi farið hroðalega út úr landhelg- issamningunum við Islendinga. En hvers vegna ráku Bretar svo hart eftir að samningar þessir væru gerðir, eins og raun ber vitni? Gerðu þeir það til að flýta. fyrir „stórsigri Is- Iánds“,?. □ •IIMIIMIIIIHIJIIIIIIMMtlllM'fllUIIIMItlMIIIIIMIIIIimrl* ) ÓÞOXK-A'R | 1 ÓFUNDNIR I NÍÐINGSVERK þau, er framin voru í fjárhúsi hér í bæ og áð- ur er frá sagt, eru enn óupplýst Þykir fólki að vonum tregt ganga málsrannsóknin og er það krafa bæjarbúa, að einskis verði látið ófreistað til að upp- lýsa málið hið allra fyrsta og komið verði í veg fyrir að slík- ir atburðir geti endurtekizt. □ íslendinga, er mjög teflt í tví- sýnu. Þá vill fundurinn ennfremur mjög ákveðið vara við þeirri hættu, sem þjóðinni er búin af spilltu stjórnmálasiðgæði ís- lenzkra stjórnmálamanna, eins og nú síðast birtist í gerð þessa landhelgissamnings, þar sem þeir virða að vettugi eigin orð og eiða við þjóðina, en lúta er- lendu ofbeldi. Telur fundurinn óhjákvæmilegt að upp hefjist með þjóðinni vakningaralda er stemmi stigu við slíku siðleysi, og álítur ungmennafélagshreyf inguna hafa hér stóru hlutverki að gegna í samræmi við stefnu skrá sína og kjörorð: íslandi allt. Mótmæli þessi voru sam- þykkt með 32 atkvæðum gegn 1, að viðhöfðu nafnakalli. □ Hornsteinninn lagður ao Bændahöliinni í Rvík Á LAUGARDAGINN lagði for seti Islands, herra Ásgeir Ás- geirsson, hornstein að Bænda- höllinni í Reykjavík, að við- stöddu mörgu stórmenni. Þorsteinn Sigurðsson, formað ur Búnaðarfélags íslands, á- varpaði gestina með ræðu og minntist þess, að Búnaðarfélag íslands væri elzti félagsskapur íslenzks landbúnaðar og 124 ára gamall. í gamla Búnaðarfélags- FRÉTTIR AF BÚNAÐARÞINGI ÁÐUR var sagt frá setningu Búnaðarþings og verður nú sagt frá nokkrum málum: Gjöf Halldóru Bjarnadóttur. Frk. Halldóra Bjarnadóttir gaf í fyrra Búnaðarfélagi ís- lands heimilisiðnaðarsafn sitt. Nú hefur hún, að sér látinni, gefið innbú í 1 eða 2 herbergi í hinu nýja gistihúsi, sem bændasamtökin í landinu eru að hyggja í Reykjavík og for- seti íslands lagði hornstein að á laugardaginn. Búnaðarþing, er nú situr, hefur ályktað að þiggja gjöfina og var það fyrsta málið á þinginu, er afgreiðslu hlaut. Hlutdeild landbúnaðarins’. Á 6. fundi búnaðarþings voru tvö mál tekin til fullnaðaraf- greiðslu. Var annað þeirra er- indi frá Búnaðarsambandi Suð- ur-Þingeyinga um að skora á búnaðarþing „að láta rannsaka svo sem unnt er, þátttöku land- búnaðarins í þjóðarframleiðsl- unni í hlutfalli við aðra atvinnu vegi.“ Hitt var frumvarp til laga um innflutning, sölu og meðferð jurtalyfja. Fjöímörg blöð á Norðurlöndum NORÐURLONDIN eru í hópi mestu blaðaútgáfuþjóða heims — miðað við fólksfjölda. Síð- asta UNESCO-útgáfan af „Basic Facts and Figures“, sýn ir að Bretar eru fremstir í flokki. Þar koma út 573 dag- blaðaeintök á hverja 1000 íbúa til jafnaðar. Næst er Svíþjóð með 464 eintök, siðan Luxem- burg 429, Finnland 420, ísland 489, Noregur 468, Danmörk 357, V.-Þýzkaland 300, Sviss 296, Holland 264, Frakklend 246 og írland 235. □ húsinu við enda Tjarnarinnar, hefði lengi verið nægilegt hús- rúm og meira en það. Nú þyrftu bændasamtökin hinsveg ar að leigja sér húsnæði hér og hvar um bæinn. Árið 1941 var samþykkt á búnaðarþingi að byggja nýtt hús yfir starfsemi félagsins, höf uðból bændasamtakanna í land inu, í höfuðstað landsins. Árið 1947 var fyrsta bygginganefnd- in kosin. Árið 1948 fékkst hent ug lóð við Hagatorg. Árið 1953 gerðist Stéttasamband bænda aðili.að byggingunni og 11. júlí 1956 tók Steingrímur Steinþórs son, ráðherra, fyrstu skóflu- stunguna. Nú er lokið við að byggja upp kjallara og 7 hæðir, en 8. og efsta hæðin er í smíðum. Rúmmál hússins er 42 þús. ms og er þetta eitt stærsta hús, sem reist hefur verið hér á landi. Framkvæmdastjóri bygging- arinnar er Sæmundur Friðriks son, en arkitekt er Halldór H. Jónsson. Auk þess sem ætlazt er til að Bændahöllin, en svo heitir hið nýja hús, verði miðstöð alls búnaðarfélagsskapar í landinu, (Framhald á bls. 5) Garðar Halldórsson alþingism.| lézt sl. laugardag í Reykjavík GARÐAR HALLDÓRSSON, bóndi og alþingismaður á Rif- kelsstöðum í Eyjafirði, andaðist á Landakotsspítala á laugardag inn var, liinn 11. febrúar. Ilann hafði átt við nokkra vanheilsu að stríða siðustu árin, en síðan um áramót, nú í vetur, var hann sjúklingur og lá fyrst á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri, en síðan á Landakots- spítala þar til yfir lauk. Þessa mæta manns og góða drengs verður minnzt liér í blaðinu síðar. □ HÉR birtist uppdráttur af landinu, þar sem sýnd eru fiskveiðitakmörkin eins og þau cru nú, eftir § samninginn við Breta. Á fjórum svæðum, sem m erkt eru með svörtum lit, eru grunnlínur færðar I út. En til þessara grunnlínubreytinga og fleiri, á ttu íslendingar fullan rétt, sem þeir gátu notað = með einhliða útfærslu hvenær sem var, samkv æmt úrskurði síðustu hafréttarráðstefnu 1958. □ §

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.