Dagur - 15.07.1961, Side 1
CACN Fl AMSÓKNARM \NNA
Skuh Sívj; J * B- K MOI'A í I66.Sk L.l iVlí L.: k JJA v H AFN ARSTR.t 'MNCl' 0(1 PR föSSO'N- ti 90 L-NTUN
A* . nast P« KNTVERK Ol r u.r. Akur - .V m :vRi -
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, laugardaginn 15. júlí 1961 — 35. tbl.
Aui.i.’í siní.astjókt: Jó\ Sam-
ÓELhSUN . ÁKOA.N<;i!tUNN KOS1AR
KK. K'O.ÖO . CjALt>I)AOt F.R 1. )ÖU..
Bi.aii;ð Kt.\H.'K új' Á Mit>viK.t;i>öo
IHt <>(. Á J.Al,T.AKI(Öt;CM
M'CAK ÁSF.F.OA I>VKm TIL
Bjargaði dreng úr Akureyrarhöfn
í SÍÐUSTU VIKU datt 5—6
ára drengur í höfnina við Torfu
nefsbryggju á Akureyri, þar
sem hann og fleiri börn voru að
leik.
...
Næsiu feikir I
Ákureyringa (
í GÆR héldu knattspyrnu- |
mennirnir frá Akureyri suður |
á bóginn og áttu að keppa við 1
Akurnesinga í gærkveldi kl. 1
8.30. \
Liðið var óbreytt frá síðasta i
leik þess í fyrstudeildarkeppn i
inni við Fram úr Reykjavík, I
en lítilsháttar breytingar inn- i
byrðis á stöðum leikmanna. \
Á sunnudaginn kl. fimm I
leika Hafnfirðingar og Akur- |
eyringar hér á íþróttavellin- i
um. Er það von manna að leik \
menn og áhorfendur geri sitt i
bezta til að þar verði skemmt- \
an góð — er þessu einkum og i
vinsamlega beint til væntan- \
legra áhorfenda, sem vonandi \
verð.a margir. i
IMMMMMMMMMMMIMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMIr
En er þetta bar við, átti Stef-
án Karlsson, iðnnemi frá Hjalt-
eyri, sem mun hafa verið að
vinna við skipið Stjörnuna, leið
þarna um, heyrði hljóð og
barnagrát mikinn og flýtti sér
á slysstaðinn. Hann stökk nið-
ur í lítinn bát er þar var, og
tókst þegar að bjarga drengn-
um, er ekkert eða nær ekkert
hafði þá drukkið af sjó.
Börnin og höfnin.
Þetta tókst giftusamlega til,
drengurinn hresstist þegar og
sagðist ætla að flýta sér heim til
mömmu sinnar. Ekki er blaðinu
kunnugt um nafn hans eða
heimili.
Skammt er nú milli þess að
mannslífum er bjargað á þess-
um slóðum. í sambandi við
þann atburð, er að framan grein
ir, ætti að taka það til athugun-
ar, hvort aðrir leikvellir séu
ekki tiltækir fyrir börnin en
bátarnir og höfnin. Hér þurfa
lögregla og foreldrar að leggjast
á eitt og fjarlægja börnin frá
hinum hættulega stað. □
i NÚ ER tunnuþurð á Austurlandi og eru tunnur fluttar héðan á bifreiðum þangað austur. Þessi er
É að leggja af stað með nálega 200 stykki. Ekki svo ómyndarlegur flutningur það. (Ljósmynd: E. D.)
LÖNDUNARBID HAMLAR SlLDVEIÐUM
íþróttamót U. M. S. E.
Á STJÓRNARFUNDI í UMSE
10. þ. m. var tekin ákvörðun
um að halda eftirtalin mót nú í
sumar, ef næg þátttaka fengist:
6. ágúst sundmót. Keppt verð
ur í tveimur aldursflokkum. í
yngri flokki, 16 ára og yngri,
verður keppt í eftirfarandi
greinum fyrir pilta og stúlkur:
50 m. frjáls aðferð, 100 m.
bringusund, 50 m. baksund.
Eldri flokkur: Kónur: 50 m.
frjáls aðferð, 100 m. bringusund.
Karlar: 100 m. frjáls aðferð, 200
m. bringusund.
Þá er fyrirhugað, að drengja-
mót í frjálsum íþróttum verði
haldið 13. ágúst og héraðsmót
sambandsins 7. ágúst. Knatt-
spyrnumót hefst í byrjun ágúst
og verður með svipuðu sniði og
undanfarin ár.
Formenn ungmennafélaganna
eru vinsamlega beðnir að at-
huga um þátttöku í þessum
mótum og tilkynna hana í síð-
asta lagi tveimur dögum fyrir
auglýstan mótsdag til Stefáns
GOLFMÓT ÍSLANDS
stendur nú yfir hér í bænum,
og eru keppendur hálfur
fimmti tugur, héðan, frá Reykja
vík og frá Vestmannaeyjum.
í öldungakeppni vann Hafliði
Guðmundsson, Akureyri, og
tveir Akureyringar urðu næstir.
1 bæjakeppni sigraði Akur-
eyri, Reykjavík varð næst og
svo Vestmannaeyingar.
Magnússonar, íþróttakennara,
og gefur hann nánari upplýs-
ingar um mótin. Þáttaka í knatt
spyrnumóti tilkynnist fyrir
júlílok. □
Síldarleitin á Raufarhöfn kl. 9
í gærmorgun.
Frá kl. 7 í gærmorgun til kl.
7 í morgun hafa 57 skip með 49
þúsund mál og tunnur meldað
sig á Raufarhöfn.
Til Seyðisfjarðar á sama tíma
19 skip með 11—12 þúsund mál
og tunnur.
Síldin veiddist mest á norð-
anverðu austursvæðinu eða í
Bakkaflóadýpi og út af Bjarn-
arey.
Kl. 6 í morgun biðu 19 skip
á Raufarhöfn með 10—11 þús.
mál. Mörg skip eru á leið til
Siglufjarðar og Eyjafjarðar-
ÞESSA dngana er verið að breikka Eyrarlandsveginn, Húsið
Rósenborg er þar „hin óbilgjarna klöpp“. (Ljósmýnd E. D.)
IMMMIlMMMMMMMMII'fMMIMM'MMMMMMMMMMMMMMMMI
hafna. Lítilsháttar hefur verið
saltað en mest farið í bræðslu.
Sildarleitarskipið Fanney hef
ur leitað á vestursvæðinu í nótt,
en ekkert orðið síldar vör.
Veiðiveður er mjög gott á
miðunum.
Sildarleitarflugvélin leitaði
vestursvæðið í gærkveldi og
varð ekki síldar vör.
Raufarhöfn í gær.
Nú er landburður af síld.
Síldin hefur fært sig nær landi
og veiðist á Bakkafjarðardýpi,
frá Langanesi og suður á móts
við Digranes.
Búið er að salta um 40 þús.
tunnur og 90—100 þús. mál eru
komin í land. Þróarpláss er 65
—70 þús. mál. Allt er fullt og
20 skip bíða löndunar. Afköst
bræðslunnar eru 4 þús. mál á
sólarhring. Torfurnar eru svo
stórar, að flest skip fá fullfermi
í einu kasti.
Hér var saltað í gær, nótt og í
dag, en nú er nær tunnulaust.
Á Austurlandi er tunnuskortur
tilfinnanlegur og hvarvetna bið
á löndunum. í nótt var ofurlítil
bræla, en nú er ágætt veður um
allan sjó.
Húsavík.
1 dag eru þessir bátar á leið-
inni til Húsavíkur, sagði frétta-
ritari blaðsins þar í gær: Héð-
inn og Pétur Jónsson, um afla
þeirra er ekki kunnugt og Hall
dór Jónsson, Ólafsvík, með 1100
tunnur.
Búið var í gær að salta í nær
9500 tunnur.
Eins og blaðið skýrði frá síð-
ast, var síldaraflinn um síðustu
helgi orðinn 351.866 mál og
tunnur, miðað við laugardags-
kvöldið 8. júlí.
Á sunnudag og mánudag
veiddust um 90 þús., á þriðju-
dag 65 þús., miðvikudaginn 58
þús., fimmtudag og í gær um
hádegi, föstudag, var vitað um
78 skip með um 60 þúsund mál
og tunnur. Heildaraflinn ætti
því að vera um 625 þúsund mál
og tunnur.
Um 9 þús. mál eru komin í
bræðslu á Hjalteyri og 3560
tunnur í salt.
Aska og Talis, leiguskip Hjalt
eyrar- og Krossanesverksmiðja
eru á leið frá Noregi til íslands
með 12 þúsund tómar tunnur.
Þessi skip eru nú illa fjarri,
því loks kom verkefni fyrir þau,
þ. e. síldarflutningar af miðun-
um til síldarverksmiðjanna við
Eyjafjörð.
Söltun er mikil á Austfjarða-
höfnum: Fáskrúðsfirði 1048 tn.,
Seyðisfirði 2299, Vopnafirði
4851, Þórshöfn 1463 og Nes-
kaupstað 4500 tunnur.
Átta þúsund mál bíða lönd-
unar á Eskifirði (í gærmorgun).
Þar er búið að salta 2600 tn.
Til Dalvíkur kom í gær:
Björgvin með 1300 mál. Saltað-
ar voru um 200 tunnui'. Baldur
kom líka með 900 tunnur og er
saltað eitthvað af síldinni, en
hitt fer til Hjalteyrar. Baldvin
Þorvaldsson fór til Grímseyjar
með 8—900 tunnur og verður
saltað þar, það sem söltunar-
hæft er.
Krossanesverksmiðjan hefur
tekið á móti 5500 málum, auk
nokkurs magn millisíldar og haf
síldar, sem veiðzt hefur á Poll-
inum undanfarið. Súlan kom
til Krossaness í fyrrinótt með
1240 mál, Gunnar frá Reyðar-
firði með 1030 og Björgvin frá
Dalvík með 1114 mál. □
IDagurI
kemur ekki út á meðan sutnar-
leyfi í prentsmiðjumii standa
yfir, til 8. ágúst. — Lesendur og
velunnarar blaðsins, sem senda
vilja því greinar og fréttir, eru
beðnir að hafa þetta í ltuga.