Dagur - 15.07.1961, Blaðsíða 8
8
Kom heim eflir fimmfiu ár
STÓR KÖST
hef ég komið í framkvæmd. Það
er langt síðan ég ákvað að heim
sækja gamlar slóðir. Nú hef ég
gert það, og þetta er síðasta á-
kvörðun mín, sem einhvers var
verð, enda er lífsverki mínu að
verða lokið.
Heimkoman er ánægjuleg.
Framfarirnar eru miklar, en
þær koma mér ekkert á óvart
og ekki heldur það, hve fólki
líður hér vel. Þetta vissi ég allt
Aflaskipið Víðir II. GK 275 undir löndunarkrana síldarverksmiðjunnar á Hjalteyri. (Ljósm.: E. D.)
MIKIÐ SlLDARMAGN -
Rætt við Eggert Gíslason skipstjóra á Víði II
VÍÐIR II. er oftast nefndur í
aflafréttum, þegar þær eru ein-
hverjar, enda er hann aflahæst-
ur á síldarvertíðinni fyrir Norð-
urlandi, eins og nú er. Hann hef
ur aflað 11000 mál og tunnur
síldar, þar af um 6000 tunnur í
salt. Skipstjóri er hinn kunni
aflamaður Eggert Gíslason.
í fyrradag kom hann með full
fermi til Eyjafjarðarhafna, á
þriðja hundrað tunnur í salt og
frystingu á Ólafsfirði og afgang
inn í bræðslu til Hjalteyrar.
Alls hafði hann um 1500 tunnur
í þetta sinn.
Blaðið náði tali af skipstjór-
anum á Hjalteyri og spurði
hann frétta. En hann er víst
fundvísari á síld en fréttaefni í
blöðin.
Hvernig er síldveiðiútlitið?
Það er mikil síld núna á stóru
svæði, allt frá Digranesflaki og
suður úr. Suður á Tangaflaki
fengu nokkur skip ágæt köst.
Síldin óð þar töluvert og við
fengum þetta þar.
Virðist þér meira síldarmagn
en í fyrra?
Um það veit maður lítið, seg-
ir skipstjórinn, en leitartækin
gerast stöðugt fullkomnari og
næturnar stærri.
Af hverju einkennast veið-
arnar einkum nú?
í sumar nást góð köst. Torf-
urnar eru mjög stórar.
Hvers vegna komstu alla leið
hingað með síldina?
Á Austurlandi er nú víðast
a. m. k. sólarhrings löndunarbið
og því engu spillt að fara hing-
að. Kannski eyði eg nokkrum
klukkustundum í að athuga mið
svæðið á austurleið.
Hver er hásetahluturinn orð-
inn?
Um það verður ekkert haft
eftir mér, en það má kannski
segja að hann sé sæmilegur.
Umfram allt, ekkert auglýsinga
skrum um mig, það vil eg ekki,
og enga mynd, segir skipstjór-
inn, þegar myndavélin er stillt,
Aflakóngurinn Eggert Gíslason.
nema að Bjarni Jóhannesson
standi hérna við hliðina á mér.
Eg er hræddur um að maður sé
lítið að hugsa um að halda sér
til þessa dagana. Fingrunum
rennir hann samt í gegnum hár-
(Framhald á bls. 6)
FYRIR RÉTTUM 50 árum fór
18 ára stúlka frá Neðri-Rauða-
læk á Þelamörk út í heiminn í
hamingjuleit. Nafn hennar var
Sigrún Sigvaldadóttir — nú
Nordal. Hún fór slóð hinna
mörgu íslendinga í vesturátt og
dvaldi fyrsta árið hjá frænku
sinni í Klettafjöllum í Kanada.
Jón Sigurðsson, sunnlenzkur
piltur, 17 ára gamall, hafði líka
farið vestur. Nokkru síðar lágu
leiðir þeirra saman og þau stofn
uðu heimili og eignuðust 12
börn, sem öll eru á lífi, hafa
góða atvinnu og hafa fest ráð
sitt nema yngsti sonurinn. Þau
bjuggu skammt frá Gimli.
Þegar Sigrún missti mann
sinn, giftist hún öðru sinni.
Maður hennar er Friðrik Nor-
dal frá Akureyri. Hann var ak-
uryrkjumaður í Selkirk og þar
er heimili þeirra.
Hvernig vegnar fslendingum
vestra?
Þeim vegnar vel. Mjög marg-
ir íslendingar eru í ábyrgðar-
stöðum. Þeir eru flestir nám-
fúsir, og það gildir þar að hafa
kunnáttu á einhverju sviði til
að komast vel áfram.
Elzta kynslóðin, sem vestur
flutti, átti erfitt, eins og allir
landnemar, og samlagaðist
naumast landi og þjóð, lærði
ekki einu sinni málið nema af
skornum skammti. Þessi kyn-
slóð er horfin. Næsti ættliður
kann bæði íslenzku og ensku.
En sá þriðji er kanadiskur. Mín
börn skilja tæplega íslenzku,
segir frú Sigrún. Ennþá höldum
við þjóðræknisþing og þjóð-
ræknisfélög starfa, við fylgj-
umst með flestu, sem heima
gerist og við stofnuðum emb-
ætti við háskólann í Winnipeg
með miklum peningaframlög-
um. Rentur af þeim peningum
nægja til að launa kennara við
skólann í íslenzkum fræðum
framvegis.
Hvernig finnst þér heitnkoman?
Flestu, sem ég hef ætlað mér,
Frá landsmótinu að
Laugum
Frú Sigrún Nordal frá Þelamörk
áður. En það er þó gaman að
sjá þetta allt með eigin augum.
Breytingarnar eru miklar á ís-
landi. Þær eru líka miklar
vestra síðustu 40 árin. Þar geta
allir komizt vel áfram, ef vilji
er fyrir hendi.
Það er ekki að sjá að 12 börn
hafi orðið þér of erfitt hlut-
skipti.
Nei, nei, en nú er það að fara
úr tízku að eiga mörg börn. Það
breytist eins og svo margt ann-
að, segir frú Sigrún Nordal og
brosir, og sú breyting virðist
einnig vera hér.
Blaðið þakkar viðtalið og
óskar hinni kjarklegu konu og
örtvaxandi afkomendahópi
hennar góðs gengis.
. .............................................
HALÐSI
| RÍKISSTJÓRNIN hugsar nú næsta leik sinn á taflborði 1
l stjórnmálanna. Sókn hennar rann út í sandinn eftir fáa í
j misheppnaða leiki. Engar áætlanir stóðust, né loforð hennar j
j um bættan hag, framþróun og heilbrigðara efnahagslíf. 1
í verkföllunum versnaði taflstaða stjórnarflokkanna enn 1
j að mun, einkum vegna þess, að bæði báru þeir ábyrgð á i
i þeim, svo ekki verður um villzt og torvelduðu síðan lausn i
| þeirra í margar vikur og bökuðu þjóðinni milljónatjón, sem j
j þeir eru ekki megnugir að bæta fyrir. Þetta veit öll þjóðin i
j og ber þyngri hug til núverandi ríkisstjórnar en svo, að =
j hún geti við unað. j
Nú er verið að hugsa út mótleikinn, því ósigurinn í vinnu- j
i deilunum er stjórninni þungur áfellisdómur. Og ríkisstjórn- \
j in hugsar upphátt, svo hægt er að fylgjast með ráðagerðurp. j
j Hún hefur fengið það á heilann, að það þurfi að hegna fólk- =
j inu fyrir óþægðina, taka aftur af því kjarabæturnar með i
i því t. d. að setja af stað nýja óðaverðbólgu með gengisfell- j
j ingu íslenzku krónunnar. Þetta er þó mjög vanhugsað, og j
j íhaldsættað. Með því eru lífskjörin enn rýrð hjá almenn- j
i ingi, en verðbólgubx-.askarar og skuldakóngar græða.
Menn bíða og sjá hverju fram vindur. Verði gengið fellt j
i öðru sinni, hefur ríkisstjórnin tapað taflinu og þó brotið j
j leikreglur áður en upp var staðið. □
NÆSTI LEIKUR
Starfsíþróttirnar voru fyrst teknar upp sem
keppnisgreinar á landsmótinu í Hvergerði 1952
HÉR FARA Á EFTIR úrslitin í
starfsíþróttum á landsmóti U.
M. F. í. að Laugum í Reykja-
dal. Marselina Hermannsdóttir
H. S. Þ. varð stigahæst.
UMFÍ hefur haft á sínum veg
um tvo kennara, Stefán Ólaf
Jónsson og Vilborgu Björnsdótt
ur, sem hafa ferðazt milli hér-
aðssambandanna og kennt og
þjálfað ungmennafélagana í
hinum ýmsu starfsgreinum.
Keppt var í eftirtöldum grein-
um á Laugum: nautgripadóm-
um, hestadómum, dráttarvéla-
akstri, jurtagreiningu, gróður-
setningu, trjáplöntun, mat-
reiðslu, saumi og línstroki.
Keppt var bæði í flokkum ung-
linga og fullorðinna.
Þeir sem keppa í þessu, verða
að vera vel heima í greinunum,
og má t. d. geta þess, að í jurta-
greiningu, urðu unglingarnir að
þekkja 24 tegundir jurta og full
orðnir 40 tegundir.
Stjórnendur keppninnar að
Laugum voru Stefán Ólafur
Jónsson og Steinunn Ingimund-
ardóttir, ráðunautur, Akureyri.
Urslit í einstökum greinum
urðu þessi:
NAUTGRIPADÓMAR;
Unglingar: Stig
1. Ari Teitsson HSÞ 92.25
2. Davíð Herbertsson HSÞ 90.75
3. Árm. Gunnarss. UMSE 90.05
Fullorðnir:
1. Baldur Vagnsson HSÞ 93.00
2. Brynj. Guðm.sson HSK 92.75
3. Ævar Hjaltason UMSE 92.50
HESTADÓMAR; unglingar:
1. Ari Teitsson HSÞ 84.25
2. Aðalst. Steinþ.son HSK 80.25
3. Birgir Skúlason UMSE 79.50
Fullorðnir:
1. Jón G. Lúthersson HSÞ 90.00
2. Theodór Árnason HSÞ 84.25
3. Grímur Jónsson UNÞ 81.75
DRÁTTARVÉLAAKSTUR;
Unglingar:
1. Birgir Jónsson HSÞ 130.5
2. Erlendur Jónsson HSK 127.0
3. Guðm. Steinþ.s. UMSE 115.0
FuIIorðnir:
1. Stefán Kristjánss. HSÞ 137.5
2. Steingr. Árnason UMSB 127.0
3. Kristján Jónsson HSÞ 125.0
JURTAGREINING; Unglingar:
1. Ari Teitsson HSÞ 24 rétt
2. Björn Teitsson HSÞ 23 rétt
3. Sigríður Sæland HSK 20 rétt
Fullorðnir:
1. Guðm. Jónsson HSK 40 rétt
2. Hjörtur Eldjárn UMSE 39 rétt
+ 10 í aukakeppni.
(Framhald á bls. 7)