Dagur - 20.09.1961, Blaðsíða 1
| ,\! 'vi.CACN Framsóknarmanna
VR rSTJÓRj: Kxungvr Daa'Íhsson
SKRn-.SrOFA i HAK.\ARSTRÆ'n 90
Sí.MI 1 H)6 ; Set.ninou og pkentun
ANNAST FrF.NTVERK OdUS
Björnssonar h.f. Akurkvri
V——.........................,
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 20. september 1981 — 44. tbl.
r------------------------------
Aúíi.vmsgast i óri : Jón Sam-
ÚEJLSSON . ÁrOANGURINN KOSI AR
KR. 100.00 . (i ) AI.DDAGI F.R 1. IÚLÍ
' BlaÐÍÐ KtMI.R Ú T Á M inVlKODÖG-’
UM OG Á I.AUGARDÖGUM
I'EOAK Á> r.F«A ÞVKIR TII.
i_____________________________J
Dag Hammarskjöld látinn
| Hörmulegt sjóslys )
I ÞAÐ hörmulega slys várð á Færeyjabanka sl. föstu- i
É dag, að Aélskipið Helgi frá Hornafirði fórst og með I
i honum 7 menn en 2 komust lífs af. Skipinu hvolfdi i
i í aftakaveðri og vannst ekki tími til að senda út neyð- e
Í arskeyti eða fara í björgunarbát. — Björgunarbátur- i
i inn losnaði þó frá skipinu og náðu þeir tveir, er af i
i komust til hans og bröktust síðan í bonum, blautir, i
| vatnslausir og matarlausir í 22 klst. Þá var þeim bjarg- i
I að af skozka togaranum Verbena. Þeir heita Helgi \
Í Símonarson og Gunnar Ásgeirsson. i
Þeir sem fórust voru: Ólafur Runólfsson skipstjóri i
Í Hornafirði, Bjarni Runólfsson Reykjavík, Trausti i
Í Valdimarsson Kópavogi, Olgeir Eyjólfsson, Einar i
Í Pálsson 1. vélstjóri, Bragi Gunnarsson, allir búsettir i
Í í Höfn í Hornafirði, og Bjöm Jóhannsson Suðursveit. i
HaillHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIa
Hin nýja Piper Cub kcnnsluflugvél Tryggva Helgasonar, flugmanns á Akureyri. (Ljósmynd: L. H.)
TRYGGVI HELGASON, flug-
maður á Akureyri er í þann veg
inn að hefja flugkennslu.
Kennsluvélin er af gerðinni
Piper Cub J-3, sem keypt var
í Bandaríkjunum, og nýlokið er
við að setja saman.
Vélin er tveggja sæta og eru
sætin hvert aftur af öðru. Vélin
er með 65 hestafla hreyfli.
Venjulegur flughraði er 112 km
á klukkustund en lendingar-
hraði er 59 km. Hámarksflug-
hraði er 195 km. Þessi flugvéla
tegund er mikið notuð í kennslu
flugi.
Tryggvi kennir bæði undir
einkaflugpróf og atvinnuflug-
próf. Til einkaflugs þarf a. m. k.
40 flugstundir, en til atvinnu-
flugs er lágmarkstími 200 flug-
stundir. Flugstundin kostar 270
krónur.
Margir ungir menn á Akur-
eyri og í nágrenni bíða eftir
þessari kennslu og er hún mun
hagkvæmari hér á staðnum en
að þurfa að sækja hana til
Reykjavíkur. Hér þurfa menn
hvorki að sleppa atvinnu eða
fara að heiman og getur það
munað mikilli fjárhæð.
Kennt verður alla daga þegar
veður leyfir, en mest á kvöldin
og um helgar vegna þeirra, sem
eru í fastri vinnu.
í íslenzka flugflotanum eru
margir Akureyringar og hafa
sæti þeirra þótt vel skipuð. □
Á mánudagsnóttina, 18.
þ. m., fórst Dag Hammar-
skjöld framkvæmdastj. Sam-
einuðu þjóðanna í flugslysi
skammt frá borginni Ndola
í Norður-Rodesíu. Hammar
skjöld var á leið til viðræðna
við Tshombe um vopnahlé
í Katanga.
Fráfall framkvæmdastjór-
ans er harmað um heim all-
an, því hann var merkisberi
friðarins í heiminum og
ímynd laga og réttar. Um-
mæli þjóðarleiðtoga vegna
hins liörmulega atburðar
hækkun á meðaltekjum þessara
stétta frá 1958 til 1960.
Sex manna nefnd á eftir að
fjalla um nýtt verð til bænda á
einstökum afurðum og um þann
vinnslu- og dreifingarkostnað,
sem leggst á afurðirnar á þessu
hausti. Er því ekki enn hægt að
segja neitt um væntanlegt út-
söluverð á einstökum landbún-
aðarvörum.“ □
A Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði eignaðist 18 vetra stóðhryssa tvö folöld, sem bæði lifa og i
dafna vel. Eigandinn er Magnús Jóhannsson. Hryssan er rauð að lit en folöldin, hestur og hryssa, 1
eru brún. Faðirinn er skjóttur stóðhestur, fjög urra vetra. Það er sjaldgæft að hryssur eignist tvö \
folöld í einu og enn sjaldgæfara að þau lifi. Myndin, sem hér fylgir, var tekin í Skagafirði á i
sunnudaginn var. (Ljósmynd: E. D.) [
Verðlðgsgrundvöllur landbúnaðarvara
Yfirnefnd felldi úrskurð 15. september sl. og
er meðalverðliækkun til bænda 14.5%
SEX MANNA NEFNDIN, sem
skipuð er 3 fulltrúum neytenda
og 3 fulltrúum framleiðenda og
ákveður verðlagsgrundvöll land
búnaðarafurða í samræmi við
kaup og kjör Dagsbrúnarverka
manna o. fl. vinnandi stétta,
náði ekki samkomulagi fyrir
verðlagsárið 1961—1962. Kom
málið þá til yfirdóms, þar sem
hagstofustjóri er oddamaður.
í fréttatilkynningu frá hag1-
stofustjóra segir þetta m. a.:
„Á fundi yfirnefndar í dag,
föstudag, var ákveðinn nýr verð
lagsgrundvöllur, sem gildir frá
þessu hausti. Er hann miðaður
við nokkru stærra bú en grund
völlurinn 1960—’61, eins og sjá
má af því, að magn sauðfjáraf-
urða vex um 9.5% og magn
nautgripaafurða um 5.3%, en af
urðaaukning grundvallarins í
heild er 6.8%.
Meðalhækkun á afurðaverði
til bænda samkvæmt hinum
nýja grundvelli er 14.5%, en
verð til bænda á kjöti og mjólk
og kartöflum hækkar heldur
minna, eða 13.5% að meðaltali.
Ástæða þessa munar er sú, að
verð á gærum og ull til útflutn
ings hækkar meira en á öðrum
afurðum og vegur upp hluta af
verðhækkun þeirra.
Þessi hækkun búvöruverðs
stafar sumpart af hækkun kaup
gjalds á síðastliðnu sumri og af
nýorðinni gengisbreytingu, en
sumpart af því, að „kaup bónd-
ans“ í verðlagsgrundvelli fylg-
ir breytingum á meðaltekjum
verkamar.na, sjómanna og iðn-
aðarmanna, og var — sam-
kvæmt niðurstöðum úrtaksat-
hugana — um að ræða verulega
Flugkennsla er að hefjasl á Akureyri
Dagverðareyri seld
SAMEIGNARFÉLAGIÐ TÚN
s.f., sem Eyþór Tómasson, Ak-
ureyri og forstjórarnir Sveinn
Guðmundsson í Héðni og Ást-
mundur Guðmundsson, Stál-
smiðjunni stofnuðu nýlega, hef
ur nú keypt eignir síldarverk-
smiðjunnar á Dagverðareyri fyr
ir hálfa aðra milljón króna. Selj
andi var Landsbankinn.
Eign þessari fylgja öll mann-
virki, svo sem verksmiðjuhús
(vélarnar áður fluttar brott) 5
íbúðir bryggjur og mjölskemrnu.
Ekki er enn ákveðið á hvern
hátt eignir þessar verða hag-
nýttar. En þó mun ráðgert að
hefja þar atvinnurekstur í ein
hverri mynd. En nú í haust verð
ur framkvæmd viðgerð á íbúð-
um o. fl., að því er Eyþór Tóm-
asson tjáði blaðinu í gær. En
hann mun annast þær fram-
kvæmdir er þarna verða gerðar
í bráð. Vonandi verður staður-
inn nýttur til atvinnuaukningar
og framleiðslu verðmæta. □
Dag Hammerskjöld
eru öll á þá lund, að Dag
Hammarskjöld hafi verið
einstæður maður að viti og
drengskap.
Hann varð framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna
1953, en hafði áður hlotið
mikinn frarna í Svíþjóð,
lieimalandi sínu, var m. a.
fulltrúi þess áður en hann
tók við framkvæmdastjóra-
starfinu. Hammarskjöld var
56 ára er hann lézt og er
harmaður um heim allan.