Dagur - 20.09.1961, Side 4

Dagur - 20.09.1961, Side 4
4 ................... ■■■■..—..""•% Ðagur „Friðarsprengjur" TILRAUNIR með kjarnorkusprengjur höfðu legið niðri um skeið. Stórveldin í austri og vestri, sem hvort um sig hafa á valdi sínu nægilegan eyðingarmátt í kjarnorku- og vetnissprengjum til þess að tortíma verulegum hluta mannkyns, ræða um frið og afvopnun. En um síðustu mánaðamót varð allur hinn frjálsi heimur skelfingu lostinn er Rússar tóku þá ákvörðun að hefja á ný kjarnorkutilraunir. Krustjoff hafði þó við mörg tækifæri lýst því yfir, að sá væri böðull heimsfriðarins, sem á ný hæfi tilraunir með mestu gjöreyðingar- vopnum allra tíma. Rússar höfðu villt öllum heimi sýn með friðartali sínu og yfirlýsingum um að þeir myndu aldrei verða fyrstir til að sprengja kjarnorku- sprengjur í tilraunaskyni. Hinn 28. ágúst 1959 gáfu Ráðstjórnar- ríkin svohljóðandi yfirlýsingu: „Ríkis- stjórn Ráðstjórnarríkjanna hefur ákveð- ið að taka ekki aftur upp kjarnorkutil- raunir, ef vesturveldin gera ekki heldur slíkar tilraunir með kjarnorku- og vetn- issprengjur. Aðeins af vesturveldin taka kjarnorkutilraunir upp að nýju, skoða Ráðstjórnarrikin sig laus frá skuldbind- ingu, sem þau hafa tekið á sig.“ Nú í þessum mánuði hófu Rússar svo kjarnorkutilraunir og sprengja hverja sprengjuna af annarri, ganga þannig al- gerlega bak orða sinna og ógna bæði heimsfriði og heilsu manna, sem þola aðeins takmarkaða geislavirkni loftsins. Þessi fyrirlitning á eigin loforðum og þessi kaldhæðni gegn friðarvilja allra manna er alveg óskiljanleg. Venjulegir íslenzkir konunúnistar urðu svo furðu lostnir og sorgbitnir, að það var sem skorin væri úr þeim tungan fyrst í stað. Þeir höfðu ekki kjark til að bera sér friðarhjal í munn eins og foringinn gerði á meðan sprengjurnar sprungu. í öllum lödum er framkoma Rússa fordæmd, nema í leppríkjum þeirra. Undantekning er þó til. Blaðið Þjóðvilj- inn lýsir velþóknun sinni á atburðunum og hefur þannig stimplað sig og íslenzka kommúnista sem undirlægjur Rússa. Lýðræðisinnað fólk, sem kosið hefur Alþýðubandalagið í þeirri góðu trú, að það væri að kjósa flokk, sem ekki Iyti Rússum í einu og öllu, hefur orðið fyrir herfilegum vonbrigðum. Ættu þau von- brigði að vera hæfileg viðvörun. Eða skyldi þetta sama fólk ekki vilja tileinka sér hina afdráttarlausu stefnu hins fyrrv. leiðtoga danskra kommúnista, sem nú hefur opinberlega lýst megnustu óbeit sinni á framferði Rússa? Undanfarin misseri hafa menn vonað, að friðvænlegar horfði í heiminum og að ögn þokaðist til samkomulags um af- vopnun. Rússar hafa gert þessar vonir áð engu með því að ógna heiminum með æðisgenginni meðferð á mestu dráps- tækjum mannkynssögunnar. Þessar að- farir ættu að þjappa frjálsum þjóðum saman í varnarstöðu. Allir hljóta nú að sjá, að einræðinu fylgir meiri voði fyrir mannkyn allt en nokkru öðru stjómar- fari, og að þar sem einræði er, er al- menningur gjörsamlega vamarlaus. Það er í senn sorglegt og viðbjóðslegt, að til skuli vera nokkrir menn á íslandi, sem æfinlega hrópa í fögnuði yfir hverri ákvörðun hhis rússneska einræðis. Eða getur nokkur tekið undir það, að verið sé að sprengja „friðarsprengjur?“ □ V__________________________________> . .....iiiii...........................................mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi n» I Nokkur orð um sfórvirkjun og sfóriðju á Norðurlandi Á ALÞINGI 1959—60 fluttum við Karl Kristjánsson og Garðar heitinn Halldórsson tillögu til þingsályktunar um að láta gera fullnaðaráætlun um virkjun Jökulsár á Fjöllum og að láta athuga möguleika á því að koma upp útflutningsfram- leiðslu í sambandi við væntan- lega virkjun. Tillagan hlaut ekki afgreiðslu á því þingi, en vakti athygli, einkum á Norð- urlandi, svo sem fundarsam- þykktir báru vitni um. Á síð- asta þingi tókum við svo málið upp á ný og fengum til liðs við okkur nokkra aðra norðan- menn á þingi. Var tillaga í mál- inu samþykkt, án mótatkvæða, sem ályktun Alþingis. Sambandsþing Framsóknar- félaganna í Norðurlandskjör- dæmi eystra, sem háð var á Laugum í Reykjadal 18. júní sl., tók þetta mál til sérstakrar at- hugunar og gerði um það ýtar- lega ályktun, sem birt var í Degi 15. júlí sl. og nokkru síðar í Tímanum. Ingvar Gíslason al- þingismaður ritaði um málið í Tímanum frá sjónarmiði Noi'ð- lendinga um leið og ályktunin frá Laugum var birt þar. Þetta er hið helzta, sem fram hefur komið um málið opinbei'Iega nú nýlega, svo að ég hafi orðið var við, nema ef telja skyldi al- mennar hugleiðingar um notk- un erlends fjármagns til at- vinnurekstrar hér á landi, sem birzt hafa öðru hverju í sumar, oftast í Reykjavíkurblöðum. Varðandi framkvæmd þings- ályktunarinnar er mér það kunnugt, að íslenzkir verkfræð ingar hafa í sumar unnið að fullnaðaráætluninni um virkjun Jökulsár. Jafnframt mun vera unnið að samanburðaráætlun um virkjun í Þjórsá. Þótt ekki liggi fyrir sérstök ályktun Al- þingis um það efni, er ekki nema gott um það að segja, að unnið sé að áætlun um Þjórsár- virkjun, ef það verk verður því ekki til tafar, að fyrirmæli Al- þingis um Jökulsár-áætlun verði framkvæmd á hæfilegum tíma. Um það leyti sem þingsálykt- unartillagan var flutt í fyrra sinn, var okkui' flutningsmönn- um hennar það kunnugt, að virkjun Dettifoss var af ýmsum, sem skyn bera á þessi mál, talin fjárhagslega hagkvæmasta virkj un fallvatna hér á landi. Sú mun og vera raunin á, þótt reynt kunni að verða að hnekkja þeirri staðreynd. Það er því þjóðhagslega rétt að stefna að því, að hún verði næsta stórvirkjun á íslandi, og ef annað yrði upp á teningnum — sem að svo stöddu er ekki ástæða til að ætla — yrði erfitt fyrir Norðlendinga að una slíkri málsmeðferð. Meðan ég dvaldi norðanlands í sumar, heyrði ég sögu um það að sunnan, að hér hefðu verið á ferð fulltrúar erlendra fyrir- tækja, sem séu óðfús til að leggja fé í virkjun íslenzkra fallvatna og byggingu stóriðju- vers. Ekki veit ég, hvað rætt kann að hafa verið við stjórnar- völd um þá hluti. Almenningur á Norðurlandi skyldi samt var- ast að leggja trúnað á sögusagn- ir um það, að útlendingar standi í biðröð til að sækja um leyfi íslendinga til að virkja fyrir okkar fossana og hagnýta orkuna. Hitt er svo annað mál, að unnt kann að vera að fá hingað erlent fjármagn í þessu skyni, sé eftir því leitað. Framsýnir menn á Norður- landi gera sér það fyllilega Ijóst, hvílíkt stórmál hér er um að ræða, að það getur ráðið alda hvörfum í sögu Norðurlands, hvort næsta stórvirkjunin verð- ur þar eða ekki. Að það, sem í þessu máli gerist, eða gerist ekki, sker að líkindum úr um það, hvort Norðurlandi tekst að halda eðlilegri fólksfjölgun Gísli Guðmundsson alþm. sinni næstu áratugi, eða fólks- straumurinn heldur áfram eins og verið hefur. Ef svo tækist til, að til næstu stórvirkjunar yrði stofnað fyrir sunnan, í nágrenni Reykjavíkur, myndi það enn auka þennan straum. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir því, að jafnvel óbreytt íbúatala á Norðurlandi þýðir í raun og veru minnkandi Jón Oddgeir Jónsson: Um- ferðabókin. Útg. Ríkisút- gáfa námsbóka. Nýlega hefur Námsbókaútgáf an sent frá sér hjálparbók (kennslubók) til kennslu í um- ferðarmálum. Heitir hún Um- ferðarbókin og er hin prýðileg- asta að allri gerð, litprentuð og skreytt fjölda mynda, sem sýna lesandanum á eftirminnilegan hátt margvísleg atvik úr um- ferðinni. Teknar eru upp úr um ferðarlögunum margar hinna þýðingarmestu greina, en auk þeirra eru margir stuttorðir og greinargóðir kaflar um alls kon ar aðstöðu manna og tækja, og skýrt frá því hvað gera beri. Stundum er fjallað bæði um or sakir og afleiðingar algen^ra viðbragða, stöku sinnum minnzt á alvarleg slys, en aðallega lagt kapp á að kenna varúðarráðstaf anir, sem öllum geta að haldi komið. Öll er bókin, jafnt í máli sem myndum, mótuð af á- huga og viðleitni til að kenna mönnum að haga sér rétt í um- ferðinni, sýna hvorki frekju né glannaskap, hugsa um öryggi lífs og lima, jafnt annarra sem sjálfra sín. fólksfjölda miðað við það, að þjóðin í heild stækkar — hlut- fallslega minnkandi mátt Norð- lendinga til þess að halda sín- um hlut í þjóðarbúskapnnum og áhrifum í þjóðfélaginu. Hafa ber í huga, að fraamkvæmdir í sambandi við Jökulsá komast ekki í kring á svipstundu, þótt að þeim væri horfið. Þær taka sinn tíma. En byrjun slíks verks — þótt ekki væri lengra komið — skapar von og trú á framtíð norðlenzki'a byggða. Því kann að vera haldið fram, að virkjun mikilla fallvatna og stofnun stóriðju valdi óeðlilega mikilli röskun í þjóðfélaginu, og sé því hættulegt. Ekki er þetta úr lausu lofti gripið. Svo miklar gætu slíkar fram- kvæmdir orðið og á svo skömmum tíma að hætta staf- aði af. Það væri óskynsamlegt að ætla sér að virkja í einu öll stærstu fallvötn íslands, þau, sem óbeizluð eru. Fallvirkjun Jökulsár og Þjórsár samtímis í einum áfanga, væri líka óskyn- samlegt, þótt hægt væri að fá fjármagn til þess. En allt öðru máli gegnir að virkja Jökulsá eina eða nokkurn hluta hennar, t. d. þrjú efstu föllin saman, en það er sú framkvæmd, sem ég hygg, að nú komi til greina. Sú virkjun væri nál. helmingi stærri en Sogsvirkjunin, og myndi verða hlutfallslega ódýr- ari miðað við orkumagn, eftir því sem mér skilst á fróðum mönnum. Og vera má, að hæfi- legt væri að hagnýta ekki í byrjun nema svo sem helming þeirrar orku, sem þar er um að ræða, eða ca. 100 þús. kw., eða álíka orkumagn og í Soginu fullvirkjuðu. Þótt ekki væri lengra farið í öndverðu, er hér um mjög mikla orku að ræða. Sú orka Þetta er hin þarfasta bók, og hún hlýtur að verða vinsæl af almenningi, sökum augljósrar gagnsemi. En svo er hér um að ræða mjög glæsilega útgáfu, sem mun verða mörgum augna yndi. Hefur ungur, hafnfirzkur listamaður, Bjarni Jónsson, ann azt gerð myndanna og gert það af smekkvísi og næmum skiln- ingi á verkefninu. Aðalhöfund- ur ritsins er hinn þjóðkunni Jón svarar til þess, að núverandi Laxárvirkjun væri nífölduð. Einhverju af þessari orku yrði væntanlega veitt inn á orku- kerfi Norður- og Austurlands og myndi gerbreyta núverandi ástandi í rafmagnsmálum. En til þess að skapa virkjuninni fjár- hagslegan grundvöll yrði þó að koma upp iðjuveri eða iðjuver- um til að hagnýta mestan hluta orkunnar eins og sakir standa. — Heyi-t hef ég fróða menn hafa orð á því, að til greina kæmi að veita norðlenzku orkunni suður um Holtavörðuheiði, en það er önnur saga. Sú framleiðsla, sem rekin yrði með orku frá Jökulsárvirkjun, yrði stóriðja á íslenzkan mæli- kvarða. Ef til vill myndu þar vinna álíka margir og unnið hafa á Keflavíkurflugvelli. Trú- lega myndi þetta fljótlega skapa norðlenzkt þéttbýli á borð við Keflavíkurkaupstað eða vel það að fjölmenni, hvort sem það yrði austan Reykjaheiðar, vest- an Eyjafjarðar eða einhvers staðar þar á milli. M. a. myndi rísa byggð á virkjunarstað. Að sjálfsögðu myndi í slíku þétt- býli verða hentugur markaður fyrir landbúnaðarafurðir og ýmsa aðra norðlenzka fram- leiðslu. Vera má, að sú þéttbýl- ismyndun hefði í för með sér í svip einhvern „fólksstraum" að sunnan. Ekki verður séð, að sá fólksstraumur væri á neinn hátt varhugaverðari en núver- andi fólksstraumur að norðan. Þeir, sem óttast röskun vegna slíkrar framleiðsluaukningar á Norðurlandi, vex'ða að gei'a sér grein fyrir því, hve ör fólks- fjölgunin er í landinu og verð- ur væntanlega á þessari öld. ís- lendingar voru 177 þús. í árslok 1960. Þeir vei'ða nál. 390 þús- (Framhald á bls. 2) Oddgeir Jónsson, sem um langt skeið hefui' helgað sig því göf- uga hlutverki, að kenna ungum og gömlum að varast slysin, en einnig mörg holl ráð til að mæta þeim. Þessi bók þai-f að komast inn á hvert einasta heimili í land- inu, og það sem allra fyrst. Höf undarnir, Námsbókaútgáfan og prentstofan Litbrá eiga í sam- einingu miklar þakkir skyldar fyrir gott og fallegt verk, — jafn vandað að efni og útliti. J. Ó. Sæm. Ein hinna mörgu og ágætu mynda, sem xunferðarbókina prýða. Omíerðabókin er hin þarfasfa HÚSMÓÐIR SKRIFAR EFTIRFAR ANDI: „Eg þakka Jóhanni Valde- marssyni fyrir orðsendingu hans í síðasta „Degi“. Það er auðséð að hann skilur, að yfir- leitt hafa börn ekki þau aura- ráð, að þau geti leyft sér að kaupa þau mörgu barna- og myndablöð, sem bókabúðir hafa á boðstólum handa þeim. Og er það þó nokkur raunabót, að fá að líta í þau ókeypis, en auð- vitað með sjálfsagðri kurteisi. En þetta bann til barna, við að skoða blöð í bókabúðum, er ef til vill ill nauðsyn, en kemur þó úr hörðustu átt, þar sem börn eru stór hópur kaupenda, ein- mitt í bókabúðum, a. m. k. á veturna, alla sína skólatíð. Og ekki eru skólavörur gefnar og þær verður að kaupa. Þar að auki kaupa mörg börn mynda- og „hazarblöð", (eins og þau kalla blöðin), að ógleymdri leik araplágunni, sem var drjúgur peningaþjófur á heimilunum í fyrra vetur, en dágóð tekjulind fyrir seljendur. Eflaust hafa bókabúðir meiri tekjur en skaða af komu barnanna.“ □ GÖMUL HÚS SEM NÝ. Fegrunarfélagið á Akureyri beitti sér fyrir því í sumar, að húseigendur fengju ódýra utan- hússmálningu. Margir hafa not- fært sér þetta, svo sem fjöldi nýmálaðra húsa bera vitni. Þetta er liður í þeirri við- leitni félagsins að’fegra bæinn, sem á næsta sumri minnist 100 ára kaupstaðarafmælis síns. Og ekki verður á móti því mælt, að þessi viðleitni hefur borið tölu- verðan árangui'. □ ÓSAMBOÐIÐ GÓÐUM MÁLSTAÐ. Hákon Bjarnason skógrækt- arstjóri lætúr hafa það eftir sér í viðtali við Vísi 12. september sl., -að á síðustu 5;árum hafi verið gróðursettar 5 milljónir tr jáplantna í 1000 hektara lands. Þetta hefur verið gert á vegum Skógræktar ríkisins og skógræktarfélaganna. En ein- staklingar hafa svo þar að auki unnið mikil og góð störf á þess- um vettvangi. Sjö uppeldis- stöðvar fi-amleiða trjáplönturn- ar. AUt eru þetta góðar fréttir. Skógræktarstörfin eru unnin fyrir framtíðina og þessar trjá- plöntur og aði'ai', sem gróður- settar vei’ða á næstu árum, eiga áreiðanlega eftir að veita mörgum yndi. En í sama viðtali eru um- mæli, sem mjög eru óheppileg og spilla því traustti, sem for- ystumönnum er nauðsynlegt að hafa. Þau ummæli sýna líka sjúklega og næstum tortryggi- lega viðkvæmni gagnvart opin- berum umræðum um skóg- ræktarmál. Skógræktarstjóri segir, að til séu menn, „sem ekki geta séð trjáplöntu í friði öðruvísi en vilja hana feiga“ og að menn hafi „upphafið blaðaskrif um þetta af algeru þekkingarleysi. Þeir hafa ekki nennt að kynna sér aðstæður, en ekki haft vit á að þegja“. Svo bætir skógrækt- arstjóri við: „Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þegar hundur hleypur í ákveðna átt og byrjar að gelta, hlaupa aði'ir hundar á eftir og gelta líka, án þess að þeir viti af hverju þeir eru að þessu. Og það er svipað með þá sem skrifað hafa undan- farið um skógræktina". Skógræktarstjórinn virðist gleyma því, að götustrákaorð- bragð hæfir ekki hans stöðu. Hann gleymir því líka, að hann er ekki einn um skógræktar- þekkingu og ætti að telja rök- studdar greinar um skógrækt- armál mjög æskilegar. Og ennfremur verður skóg- í-æktarstjórinn að gera sér ljóst, að hinn öfgafulli ái'óður um framleiðslugildi skógræktar á íslandi, sem rekinn hefur verið í krafti þess að tilgangurinn helgi meðalið, á engan hljóm- grunn lengur og vekja útreikn- ingar um það efni nánast að- hlátui'. Það er tilgangslaúst fyrir skógræktarmenn að halda því fram, að það „sé tölulega sannað að skógrækt er betri nýting á landinu en nokkur önnur“ og að hann sé „tölulega sannaður“ gróðinn af hverjum ha. lands, sem tekinn er undir trjárækt. En þrátt fyrir þetta á skóg- ræktin fyllsta rétt á sér, bæði til fegrunar, til að veita nytja- gróðri og búpeningi skjól og auk þess til margs konar ann- arra nytja í timbursoltnu landi. Hinir fáu og strjálu skógar- blettir, sem til eru í landinu nú, sýna allt þetta á ótvíræðan hátt. Og þeir eru ólýgnastir vegvísar í skógræktarmálum. Og fegurð- arskyn landsfólksins mun halda verndarhendi yfir öllum þeim milljónum ungplantna, sem gróðursettar hafa verið á síð- ustu árum. f skjóli þess fyrst og fremst, og einnig sem þáttur mannræktar á íslandi, rnunu skógar fi'amtíðarinnar vaxa. Z ÚTIVIST SKÓLABARNA Á KVÖLDIN Nú er skólastax'fið hafið á ný. Yngstu nemendurnir eru byrj- aðir. Hver kennari leitast þá við að kynna þeim reglur skól- ans, nokkrar, mikilsverðar, til að byrja með, og jafnframt nauð syn þess, að þeim sé fylgt í skóla og heima. En í því efni þurfa aðstandendur bamanna einnig að vera á verði og hjálpa. Bömum — og þeim yngri hvað helzt — er lífsnauðsyn að hafa nægan svefn, með allri sinni skólavist. Lögreglusam- þykkt bæjarins setur ákvæði um útivist barna á kvöldin, og bera forráðamenn barnanna á- byrgð á því, að viðlögðum sekt- um, að þeim ákvæðum sé fylgt. Lögreglusamþykktin mun í fárra höndum og foreldrum mörgum of ókunn þessi ákvæði. En úr því mun lögreglan bæta eitthvað með fjölrituðum þætti á næstunni. Nokkuð — e. t. v. mikið — af óreglu þeirri og siðspillingu sem islenzkt æskufólk er nú ásakað um, má áreiðanlega rekja til þessi hirðuleysis sumra foreldra að leyfa börnum sínum að þvæl ast úti á kvöldin, þvert ofan í fyrirmæli lögreglusamþykkta bæjanna. Auk þess, sem börnin af þessu finna og tileinka sér lítilsvirðingu foreldranna fyrir lögum og í’eglum, er tækifæi'ið oft einkar líklegt til að temja sér slæmar venjur, ósiði og slark. Þyki samþ. gölluð eða úr elt, er sjálfsagt að endurskoða hana — og breyta —, en þess verður að krefjast, að ákvæðum hennar sé fylgt á hverjum tíma, eftir því sem mögulegt er. T. d. gæti komið til greina, að leyfa útivist til kl. 9 yfir veturinn — fyrir öll börn á barnaskóla- aldri, — að mörgu leyti heppi- legra, að það sama gildi fyrir all an þann hóp (og þá samt æski- legra að miðað væri við kl. 8.) Flestir kennarar munu hafa átt tal við foreldra, sem segjast reyna að hafa börn sín inn á kvöldin á tilskildum tíma, en það sé bara svo erfitt, þar sem jafnaldrar þeirra í næsta húsi fái að leika sér úti fram eftir öllu, að því er virðist, athuga- semdalaust af foreldrum og lög reglu. Hér verður að breyta um háttalag. Foreldrar, sem láta sér ekki á sama standa um fram tíðarvelferð barna sinna, verða að gera sér grein fyrir reglum þessum, og hafa með sér samtök til að framfylgja þeim. Við hina á hiklaust að beita viðhlítandi ákvæðum: áminningu og sekt- um. Það þarf að vera öllum ljóst, að það eru foreldrarnir, uppalendurnir, sem ábyrgðina bera, og til þeirra eiga eftirlits- menn bæjai'ins, lögreglan, að snúa sér fremur en barnanna, ef til afskipta þarf að koma. En ég hef þá trú, að flestum foreldrum sé það ljóst og líka áhugamál, að böi'n þeirra hlíti settum reglum í þessu efni og yrðu þakklátir hverjum stuðn- ingi og samhjálp í því skyni. — Reglurnar munu fljótlega kynnt ar og síðan verða foreldrar, kennarar og lögregla að vinna saman að framkvæmd. Hér er núkið í húfi. Jónas Jónsson frá Brekknakoti. FAGRIR GARÐAR. Nýlega hlutu nokkrir borgar- ar viðurkenningu fyrir fagra skrúðgarða, samkvæmt hinni árlegu yfirreið og tillögum dóm nefndar Fegrunarfélagsins. — Hvort sem dómnefnd þessi er óskeikul eða ekki, hafa garðar þeir, sem viðurkenningu hlutu, til síns ágætis nokkuð. Og þess- ir garðar og aðrir fallegir garð- ar hér í bæ, eru mönnum hvatning og húsbyggjendum fyrirmynd. „Fallegir garðar eru smitandi,“ sagði kona ein ný- lega, og það er rétt. Við heilar götur hér í bæ er hver garður- inn öðrum fegurri, eigendum til ánægju og bænum til sóma. □ HVAR MEGUM VIÐ LEIKA OKKUR? Þessari spurningu varpa bömin fram og þessari spurn- ingu þarf bærinn að svara í vei'ki. í hverju bæjarhvei'fi þarf að, vera nokkurt svæði, þar sem börn og unglingar geta svalað leikþrá sinni. í þessui efni eru bæjaryfir- völdin ekki nógu vakandi. Það er líkt með bílana og börnin, hvorugu er ætlaður staður fyrr en búið er að troða niður hús- um svo þétt, að næstum því er hægt að takast í hendur milli þeirra. □ SAUÐFÉ OG HESTAR Aldrei er of oft á það minnt fyrir göngur og réttir, hve mikil vægt það er að fara vel og skyn samlega með fé í rekstri, í rétt- um og á flutningabílum bæði af mannúðarástæðum og einnig vegna þess hve mjög kjöt verð- fellur við mai-bletti og léttist í ógætilegum í'ekstri. Réttai'stjór ar þurfa að hafa afskipti af hrottalegri meðferð, ef hennar verður vart hjá drukknum mönnum eða öðrum óvitum, og reyna að koma í veg fyrir hana. Þá er einnig vandfarið með hesta, sem notaðir eru í göngur eð'a smalamennsku. Þeir eru orðnir mjög feitir, svitna mikið og þurfa nákvæma meðferð. Möi'g eru þess dæmi, að hestar, sem sleppt er sveittum að kvöldi, ofkælast og bíða þess aldrei bætur. Þurrt hús, ábreiða ÓLAFUR TRYGGVIÓLAFS- SON var fæddur að Borgarhóli í Öngulsstaðahreppi 1. desem- ber 1874, sonur Ólafs Ólafsson- ar bónda þar, og konu hans, Jó- hönnu Júlíönu Jóhannesdóttur. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum við algenga sveitavinnu, fór síðan í Hólaskóla og útskrif- aðist þaðan búfræðingur. Að loknu búfræðinámi vann Ólafur að jarðabótum fyrir ýmsa næstu 3 árin, en réðst síð- an til stórbóndans og kaup- mannsins Magnúsar Sigurðs- sonar á Grund, verkstjóri á sumrin, en á veturna vann hann við verzlun Magnúsar. Þar kynntist Ólafur Hallgrími Krist inssyni. Eftir þrjú ár hætti Ól- afur störfum hjá Magnúsi, og stóð nú hugur hans til búskapar á eigin spýtur, en jarðnæði lá ekki á lausu, og varð það úr, að Ólafur fluttist til Akureyrar rétt eftir aldamótin. Á Akureyri vann Ólafur við verzlunarstörf hjá ýmsum: Sig- tryggi Jónssyni í 2 ár, við verzlun Páls Þorkelssonar í 2 ár og í 2% ár við verzlun Otto Tuliniusar. Hinn 1. jan. 1910 gerðist Ólafur starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga og starf- aði síðan óslitið hjá félaginu þar til í september 1956, eða því nær full 47 ár, og hafði þá starfað lengst allra starfsmanna hjá fé- laginu. í fyrstu vann hann við skrifstofu- og afgreiðslustörf, 1913 var hann í'áðinn forstöðu- rnaður kjötbúðar félagsins og hafði það starf með höndum í 11 ár. Eftir það vann hann við ýmsar deildir félagsins og síð- ustu árin á aðalskrifstofu þess. 16. maí 1904 kvæntist Ólafur Magneu Jakobínu Magnúsdótt- ur, ættaðri úr Þingeyjarsýslu, og eignuðust þau hjón 3 börn, er upp komust: Þóri, stýrimann á Goðafossi, er fórst með skipi sínu, er Þjóð- verjar skutu það niður undir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Kjartan, bæjarpóst á Akur- eyri, og Jóhönnu, húsfreyju á Akui’- eyri. Kona Ólafs andaðist hér á Akureyri snemmá árs 1940. Ólafur lézt 30. ágúst síðastl. og var jarðsettur frá Akureyr- ai'kirkju 7. september. Þegar Ólafur hóf starf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, voru starfsmenn aðeins 6. Öll verzlun félagsins og skrifstofur voru til húsa í Hafnarsti'æti 90, sem þá var aðeins ein hæð og minna um sig en nú. Þegar Ólafur hætti störfum, var félagið orðið voldugt fyrirtæki með marg- víslegan atvinnurekstur, ekki einungis í bænum sjálfum, heldur einnig utan hans, og hafði rúmlega 360 fastráðna stai'fsmenn. Ólafur átti þannig því láni að fagna að sjá félagið vaxa og þróast langt fram úr því, sem fyrstu forvígismenn þess gat dreymt um. Honum þótti mjög vænt um félagið sitt og bar hag þess mjög fyrir brjósti, og var viðhorf hans stundum til þess líkara því, að um væri að ræða persónu en félagsheild. Öll störf sín fyrir félagið rækti Ólafur af stakri trú- mennsku eins og honum var lagið, og kveið hann því mest, er hann nálgaðist sjötugsaldur- inn, að hann yrði þá að hætta störfum hjá félaginu. Forráða- mönnum félagsins var kunnugt um hug hans til þess, og var því gerð sérstök stjórnar- samþykkt, sem heimilaði Ólafi að vinna áfram hjá félaginu, eftir því sem heilsa og kraftar leyfðu og hann óskaði sjálfur. Hef ég sjaldan séð innilegri fögnuð í andliti nokkurs manns, en þegar Ólafi var færð þessi fregn. Kraftarnir . entust enn rúman áratug, en þá treysti hann sér ekki til að stunda starf sitt lengur og hætti. Þó hélt hann sambandi við sam- starfsmennina og heimsótti okkur alltaf öðru hvoru á skrif- stofuna, þar til nokkrum mán- uðum áður en hann dó, að kraft arnir tóku að bila fyrir alvöru. Ólafur átti því láni að fagna að alast upp á glaðværu heimili, þar sem mikið var um söng. Hann lærði snemma að leika á orgel hjá Sigtryggi Benedikts- syni á Möðruvöllum og var um skeið oi'ganleikari í Grundar- kirkju. Eftir að hann kom til Akureyi'ar lærði hann að leika á blásturshljóðfæri hjá Magnúsi Einarssyni organista og lék síð- an í lúðraveit, sem þá starfaði um skeið. Síðar gekkst Ólafur, ásamt fleirum, fyrir stoínun lúðrasveitarinnar Heklu, en hún lagðist niður eftir nokkur ár. Undir 1930 stóð Ólafur enn að því, að vakin var á ný starf- semi lúðrasveitar á Akureyi'I, og stjórnaði henni í nokkur ár Karl Ó. Runólfsson tónskáld. En starfsemi Lúðrasveitar Ak- ureyrar féll niður með brottför Karls úr bænum. En Ólafur geymdi hljóðfærin og æfði sig öðru hvoru, og 1940 gekkst hann enn .fyrir því, að Lúðra- sveit Akureyrar var endurvak- in til lífsins undir stjórn Jakobs Tryggvasonar, og starfar hún enn. Má þannig segja, að Ólafur hafi varðveitt sál lúðTasveitar- innar og búið henni skilyrði til að vakna til nýs lífs, hvenær ssm færi gafst. Þá var Ólafur meðal stofn- enda Karlakórsins Geysis og söng með kórnum um margra ára skeið. Er óhætt að segja, að þar sem söngur og hljóðfæra- sláttur var annars vegar, var Ólafur ævinlega boðinn og bú- inn til starfa. Ólafur Ti-yggvi var trúmaður mikill og kirkjurækinn. Hann var meðhjálpari við Akureyrar kirkju liátt á annan áratug, og þóttu meðhjálparastörfin fara honum vel úr hendi. Hann var félagslyndur og í'æðinn, glaðlegur í viðmóti, hafði gaman af græzkulausu gamni og gat verið hnyttinn í orðurn. Væri hallað á einhvern í áheyrn Ólafs, þyngdist hann á brún og vildi ekki taka þátt í (Framhald á bls. 7)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.