Dagur


Dagur - 24.01.1962, Qupperneq 1

Dagur - 24.01.1962, Qupperneq 1
i' I Vm.A<,.\ Fra.MS0KNARMAN.NA f:R l 1 KI Davídsson SKiUKVIX)! A í H.M NARS rk.KTI '10 SÍM! t !<><> . SktNINCIO OG I'KKNTON ANNAsT PliKiNrVI'.KK Ol)»S B.iÓRNSSONAR H.l'. Akori.vri Dagur XLV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 24. janúar 1982. — 4. tbl. Ai;r.iAsíni.asi jóhi: Jón Sam- ÓEI„Ssa\ . AwiAM.I ItlKN M'M VI! Kti. 100.00. Gjai.udaci i-.k ji ,.i BLAÐrr/KtMOK ÓT Á MIDVIKHDÖK- !■'. S)0 A . Ai í. vu:■( );. i * %. W'.CAl! AST.TflA I.YKUI TII. Nýtt talsímasamband Sæsími frá íslandi til Skotlands, um Færeyjar, var opnaður til afnota sl. mánudag, 22. janúar Á MÁNUDAGINN var hinn nýi sæsími milli íslands, Færeyja og Skotlands opnaður til aínota. i Hundur bitur barn \ Á AKUREYRI er stór hópur óleyfilegra hunda, og eru sumir grimmir svo að börn hræðast þá. Fyrir fáum dögum beit hund- ur barn í hendi, svo illa, að gera varð að sárum þess á sjúkrahúsi. Kæra út af þessum atburði var þegar send bæjar- fógeta. Með nokkrum heiðarlegum undantekningum, eru hundarn- ir í bænum öllum til leiðinda og auk þess eru þeir ekki hættulausir. Foreldrar hafa oft kvartað yfir hundunum vegna barna, en litla áheyrn fengið. Nú er mál til komið að lóga öllum óþarfa hundum, sem lausir ganga og ekkert leyfi er fyrir, og er rétt að gera þoð áð- ur en fleiri börn eru hundbitin, en sótthi'einsa þá, sem eftir lifa. □ En mál þetta hefur verið 6 ár í undirbúningi og jafn lengi var símasambandið við útlönd óvið- unandi og gamli sæsíminn frá 1918 mjög oft að bila. Sæsíminn var 1300 km. lang- ur, en framhaldssæsími til Ný- fundnalands, sem lagður verður á þessu ári, er 3000 km. Nýi síminn til Skotlands hef- ur 24 talsrásir, en hverja talrás má nota fyrir 22 ritsímarásir með sérstökum útbúnaði. Mikla norræna ritsímafélagið lagði fram 70% kostnaðar, póst- og símamálastjórn Breta 20% og danska póst- og símamála- stjórnin um 10%. íslendingar kostuðu aðeins sambandið milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, sem er radiófjölsími. Kostnaður varð 170 milljónir ísl. króna. Talsambönd við útlönd hafa farið fram á stuttbylgjum og verið ófullnægjandi. Hér eftir verða símtöl afgreidd allan sól- arhringinn, og er um gagngerða breytingu að ræða, sem greiða mun fyrir öllum viðskiptum um langa framtíð. Opnun sæsímans er því hinn :§r i: i Stundum er eins og náttúran leggi sig fram við skreytingu bæjarins. (Ljósmynd: E. D.). ll•lllM••lll•mllll IMMMMMMMMIMMMMMMMIMMMMMMMM IMMMMMMMMMI lllllllllllllll Um byggingamálin á Akureyri íbúðabyggingar hafa mjög dregizt saman og byggingakostnaðnr hækkað verulega merkasti viðburður. □ BLAÐIÐ leitaði nýlega upp- lýsinga um byggingafram- kvæmdir hjá byggingafulltrúa Akureyrarkaupstaðar, Jóni G. Ágústssyni. Næsta helgi helguð íþróttmmsn Margs konar í|)róttakeppni á Akureyri í tilefni fimmtíu ára afmælis í. S. í. á sunnudaginn Á SUNNUDAGINN KEMUR er 50 ára afmæli Iþróttasamb. ís- lands og verða af því tilefni mikil hátíðahöld í höfuðstaðn- um. En framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur mælzt til þess við íþrótta- bandalag Akureyrar, að það beiti sér fyrir íþróttadegi í höf- uðstað Norðurlands í tilefni af- mælisins og til almennrar vakn- ingar meðal íþróttamanna. Blaðið leitaði frétta af þessu hjá ÍBA og fékk eftirfarandi upplýsingar: Hálfrar aldar afmælis ÍSf verður minnzt um land allt. Hér á Akureyri verður tilhögun á þá leið, að efnt verður til mjög fjöibreyttrar íþróttakeppni í Bændaklúbbsfundur verður að Hótel KEA mánu- daginn 29. jan. n.k. og hefst kl. 9 síðdegis. Umræðuefni: Framtíðarhorf- ur landbúnaðarins. Frummæl- andi Arnór Signrjónsson, rit- stjóri Árbókar landbúnaðarins. mörgum greinum, seld verða afmælismerki og að lokum verður afmælishóf. Ungmenna- samband Eyjafjarðar tekur þátt í íþróttakeppninni í félagi við ÍBA. Á laugardaginn verður frjálsíþróttakeppni í íþrótta- húsinu og keppt í hástökki með og án atrennu og þrístökki án atrennu. Þessi keppni hefst kl. 4 e. h. Sama dag fer fram sýningar- keppni á vegum Skautafélags- ins, ef veður leyfir og hefst hún væntanlega kl. 6 e. h. á æfinga- svæðinu við íþróttavöllinn. Á sunnudaginn verður skiða- keppni í HlíðarfjaÍli. Bifreiðar frá Ferðaskrifstofunni leggja af stað kl. 9.30. Keppt verður í ýmsum greinar skiðaíþróttar- innar. Eftir hádegi á sunnudaginn verður keppni í knattleikjum í fimleikasal M. A. og íþrótta- húsinu. Keppni hefst kl. 1.30. Keppt verður í handknattleik karla og kvenna og körfuknatt- leik. Eftir það fer fram sundkeppni í Sundlauginni og hefst hún kl. 5.30. Keppt verður í 50 metra bringusundi kvenna og 50 m. bringusundi karla. Einnig verð- ur keppt í 50 metra skriðsundi karla og kvenna og í 4x50 metra skriðboðsundi karla og 4x50 metra boðsundi, bringusundi karla. Þá verður 4x25 m. boð- sund kvenna á bringusundi og skriðsundi. Á sunnudagskvöldið verður svo afmælishóf að Bjargi fyrir íþróttafólk og hefst það kl. 8.30. Þar verður m. a. úthlutað verð- launum dagsins. Samkvæmt þessari upptaln- ingu er ljóst, að um næstu helgi verður mjög fjölmenn íþrótta- starfsemi hér í bænum, og fer vel á því að heildarsamtakanna sé minnzt á þann hátt á hálfrar aldar afmælinu. □ UNNIÐ AF KAPPI LÖGÐ ER ÁHERZLA á að inn- rétta skíðahótelið í Hlíðarfjalli. En þar mun skíðalandsmótið haldið um páskana, og þá er nauðsynlegt að byggingin verði komin eins langt áleiðis og auðið er. □ Fara upplýsingar hans hér á eftir. Hafin var bygging fremur fárra íbúða í kaupstaðnum á árinu 1961, en hins vegar voru mörg stórhýsi í smíðum. íbúðir, sem fullgerðar voru á árinu, voru samtals 59. Meðal- stærðin var 438 rúmm. Auk þess voru 33 íbúðir gerðar fok- heldar og íbúðir skemmra á veg komnar um síðustu áramót 9 talsins. Samanburðartölur frá árinu 1960 eru þessar: Tala fullgerðra íbúða 77. Fokheldar 70 íbúðir og íbúðir skemmra á veg' komn- ar 25. Meðalstærð 442 m". Af ýmsum húsum, sem fullgerð voru 1961 má nefna: Flugstöðin á Akureyrarflugvelli, Súkku- laðiverksmiðjan Linda og end- urbygging fjóss á Galtalæk. Af ýmsum húsum, sem gerð voru fokheld árið 1961, má nefna Elliheimilið, Fataverksmiðjuna Heklu og byggingu Utvegs- bankans. Svo er hafin bygging samkomuhúss Akurs h.f. við Geislagötu 7, Byggingavöru- verzlunar KEA og annars áfanga við Barnaskóla Oddeyr- ar, sem steyptur var upp, og unnið hefur verið við innrétt- ingar við Skíðaskálann í Hlíðar- fjalli. Ennfremur var unnið að endurbótum og viðbyggingum á eldri húsum. Þá má nefna bráðabirgðahús og bifreiða- geymslur. íbúðirnar eru flestar á Syðri brekkunni og i Glerárhverfi. Nýungar í byggingaiðnaðin- um eru helztar þær, að hafin var notkun strengjasteypu í bita í nýbyggingu Heklu, sem er 2259 fermetra bygging, en 10828 rúmmetrar og stærsta hús, sem nú er í byggingu á Akureyri. Ennfremur eru þar notaðar frauðsteinsþakplötur, í stað timburklæðningar, sem einnig er nýtt hér. En notkun þess efnis var skilyrði frá bygg- inganefnd. Plötur þessar' eru erlendar og víða mjög út- breiddar í byggingaiðnaðinum, ibæði sem þak- og veggklæðn- ' ing. — Strengjasteypubitarnir (Framhald á bls. 2) IIIMMIIIMMIIIIMII IIMMMMIMMI | Einstaklingsframtak- Í ið og íbúðabyggingar j MEÐALÍBÚÐ, byggð á Ak- I ureyri 1961, kostar 500 þús. = krónur. Byggingarkostnaður i hverrar meðalíbúðar hefur = hækkað um meira en 100 þús. : krónur frá 1959 vegna „við- j reisnar“-ráðstafana. i Húsbyggjendur hafa nokkur I undanfarin ár fengið allt að | 100 þús kr. lán í Veðdeild | Landsbankans út á hverja j.íbúð. i Þetta lán hrekkur ekki einu 1 sinni til að mæta auknum I byggingarkostnaði, hvað þá | meira. Önnur lán er örðugt að i fá, enda 300 millj. af spari- | fénu „frystar“ í Seðlabank- : anum. | Já, svona fer íhaldið að því i að efla „einstaklingsframtak- j ið“ og svona vinnur það að | þeirri Landsfundarsamþykkt É sinni, að gera sem flestum i fært að eignast eigið hús- I næði! □ • •11111111111111IIMMMMMMMMIII MMMMMMIMMMMMMIIIIt

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.