Dagur - 07.02.1962, Blaðsíða 1
í 'Hi.<;a<;n Frams6k.narman.na
s R <5i |óiu: Kku\<;i:r Dávjösso.n
SraimwA i Haknarstkau i 90
Sími I 166 . Sei'nincu o<: piucniun
ANNAST PRENT%'ERK OdDS
Bjíiknssonar h.f. Akukkyki
s______________________________>
A <r.i.'í stNcAvrtóri: Jon •Sam-
KK. 100.00 . G ]AI,r>DA<;í F,l\ Kí« I AR - ■ :) ÍIÚ
V\l 'on A I.AUGARlKK.t •M '
M'.GAU aVT.EOA 1‘VK.IR rn. MMíSi
Kirkjusókn á Akureyri og fieira
SÍÐASTA ÁR var töluvert við-
burðaríkt í sögu kirkjunnar á
Akureyri. Pípuorgel var sett
upp, en hið eldra selt og gagn-
gerðar endurbætur voru gerðar
á kirkjubyggingunni sjálfri, að
innan. Árið 1961 var líka af-
mælisár kirkjunnar, og var 20
ára afmælisins minnst á viðeig-
andi hátt.
Við kirkjuna á Akureyri er
mikið æskulýðsstarf, sem sókn-
arprestarnir sjá um.
Á Akureyri eru tvær kirkju-
sóknir, Akureyrarkirkjusókn
og Lögmannshlíðarkirkjusókn
og tveir þjónandi prestar.
í Akureyrarkirkjusókn fóru
fram 68 guðsþjónustur og sóttu
þær 9830 manns samtals. Auk
þess var messað þriðja hvern
sunnudag í Lögmannshlíðar-
sókn. Bæjarbúar voru 1. des sl.
8958 manns, og svarar því
kirkjusóknin til þess, að allir
hafi farið einu sinni til kirkju á
árinu og sjötti hver bæjarbúi
tvisvar til að hlýða guðsþjón-
ustu.
(Framhald á bls. 5)
Sjóvinnunámskeidið hófsf í gær
Haldið á vegum G. A. fyrir 23 nemendur hans
EINS og frá var sagt í síðasta Gagnfræðaskólans eða annarra
| Nokkrir þeirra er hlutu verðlaun Samvinnutrygginga fyrir öruggan akstur og áður er frá sagt.
lllllllllllllllllllllllllllllll 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
tölublaði Dags hefur staðið yfir
undirbúningur að fyrsta sjó-
vinnunámskeiðinu fyrir ungl-
inga á Akureyri, nú að undan-
förnu. Gagnfræðaskólinn, undir
stjórn Jóhanns Frímann, hefur
síðustu ár kannað möguleika á
sjóvinnunámskeiði, og nú er
hugmyndinni hrundið í fram-
kvæmd, því að námskeiðið
hófst í gær með 23 nemendum
úr bóknámsdeild og verknáms-
deild fjórða bekkjar og verk-
námsdeild þriðja bekkjar GA.
Nemendur sjóvinnunám-
skeiðsins sleppa engum tíma í
skóla sínum, en bæta við sig
hinu nýja og hagnýta námi tvö
kvöld í viku, tvær stundir
hverju sinni.
Hvort sem hin nýja náms-
grein verður áfram í höndum
aðila, er þakkarvert að hún er
upp tekin hér í bæ fyrir for-
göngu og á ábyrgð hins fjöl-
menna skóla og með styrk frá
Utgerðarfél. Akureyringa h.f.
og mórölskum styrk frá Skip-
stjórafélagi Norðlendinga. En
formaður Skipstjórafélagsins
verður trúnaðarmaður skólans
á námskeiðinu.
Á föstudaginn fór fram setn-
ingarathöfn í GA. Jóhann Frí-
mann skólastjóri setti nám-
skeiðið með ræðu og formaður
Skipstjórafélagsins ávarpaði
einnig nemendur. □
•iillillil111111111111111111111111111111111111111111111111111111 i»
IDaguk I
kemur næst út hinn 14. febrú-
ar. Mikið efni bíður.
Eitt og annað frá bæjarstjórn
Bæjarstjóri hefur skýrt frá
samningaumleitunum við verlc-
fræðingana Gu.nnar Böðvarsson
og Svein S. Einarsson, að þeir
taki að sér athuganir, áætlanir
og skýrslugerð varðandi
„varmaveitu“ á Akureyri og
hugsanlega samvinnu slíkrar
veitu við rafveitu eða olíuhit-
unarstöð. En talið er nauðsyn-
legt að þessar athuganh' verði
gerðar, áður en hafizt er handa
um tilraunaboranir með Norð-
urlandsbornum, sem enn liggur
óhreyfður í Reykjavík.
Það, sem athuganir þessar
eiga að leiða í ljós, er m. a.
„VINURINN LEIT ALD
r
Utilega og mannraunir á Axarf jarðarheiði
HINN 31. JANÚAR lagði Árni
Gunnlaugsson frá Skógum í
Reykjahverfi í S.-Þing. upp á
Axarfjarðarheiði, síðla dags.
Um hádegi næsta dag var
hann ókominn til byggða og var
þá Tryggvi Helgason flugmaður
á Akureyri fenginn til að leita
hans.
Tryggvi símaði til bæjanna
beggja vegna Axarfjarðarheiðar
Bændaklúbbsfimdur
verður haldinn á venjulegum
stað og tíma mánudaginn 12.
febrúar næstkomandi:
Fundarefni: Jurtasjúkdómar
og eyðing illgresis. Frummæl-
andi: Agnar Guðnason ráðu-
nautur Búnaðarfél. íslands.
Sýnir hann kvikmyndir og
skuggamydir í því sambandi.
og lagði síðan af stað frá Akur-
eyri kl. 1.15 hinn 1. febrúar.
Um leitina sagði hann meðal
annars þetta:
Fyrst þurfti eg að vita um þá
menn er voru að leita, svo að eg
villtist ekki á þeim og Árna
Gunnlaugssyni. Eg var rétt
kominn úr Oskjuferð, hvar eng
an jarðhita var að sjá, ‘og átti
eftir að fara sjúkraflug til Sauð
árkróks, en þá ferð fór eg að
aflokinni leitinni.
Þegar austur kom á Axar-
fjarðarheiði var dimmt af hríð
norðan til og leitaði eg því fyrst
sunnar. En brátt birti upp og
flaug eg þá yfir nálægt vegin-
um. Brátt sást til mannsins,
með tösku í hendi. Við sendum
honum skilaboð á miða er við
létum í svarta poka, sem skáru
vel af á hvítri fönninni, og lét-
um falla til jarðar, en hann
skeytti því engu, hélt áfram
göngu, sinni, breytti um stefnu
til norðurs, og var sýnilega
villtur.
Við vorum farnir að hitta
(Framhald á bls. 7)
Kabarett Sjálfsbjargar
í NÆSTU VIKU hefur Sjálfs-
björg kabarett hér í bæ. Meðal
skemmtikrafta verður Stein-
unn Bjarnadóttir frá Reykja-
vík.
Ágóðanum verður varið til
vinnuskálabyggingar við félags
'heimilið, sem mjög er aðkall-
andi fyrir starfsemina.
Án þess að blaðið geti nokkuð
fullyrt um ágæti kabarettsins,
eru bæjarbúar hvattir til að
fjölmenna málefnisins vegna,
og sýna með því, nú sem fyrr,
að þeir styðji þá drengilega sem
verr eru settir í lífsbarátt-
unni. □
þetta: Hitaþörf bæjarins, fjár-
hagslegur grundvöllur hita-
veitu og svo að sjálfsögðu
hvort líkur eru fyrir árangri að
borun í Glerárdal og annars
staðar í nágrenni bæjarins.
Ú. A. hefur farið þess á leit,
að það fái að láni úr Fram-
kvæmdasjóði 3.7 millj. króna,
sem notaðar yrðu til skuldajafn
aðar við skuldir Ú. A. við bæj-
arsjóð og bæjarstofnanir
vegna viðskipta sinna á árinu
1961.
En skuldir þessar nema tæp-
um 3.7 millj. kr.
Bæjarstjórn hefur fallist á
beiðnina.
Hafnarnefnd hefur lagt til við
bæjarstjórn að Sindri h.f. í
Reykjavík fái 2500 m- lóð á
Oddeyri fyrir járnvörulager og
brotajárnsmóttöku, á svæðinu
austan Hjalteyrargötu í nánd
við Nótastöðina. Bæjarstjórn
hefur samþykkt þetta. Lóðar-
leiga er kr. 2.50 pr. ferm.
Sindri hefur komið sér upp
svipaðri aðstöðu á Austurlandi
og í Reykjavík.
Hafnarnefnd hefur lagt til að
bæjargjaldkera verði heimilað
að fella niður vörugjöld kr. 5.00
og lægri.
Bygginganefnd lagði til að
byggingaleyfisgjald skuli vera
3 kr. á rúmmetra, en þar inni-
falin þessi gjöld: Byggingaleyfis
gjald, aukavatnsgjald, holræsa-
gjald og lóðarleiga. Lóðartöku-
gjald verði kr. 500.00 frá 1. jan.
1962. Bæjarstjórn samþykkti
þetta.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var meðal annars til afgreiðslu
beiðni frá verkalýðsfélögunum
rnn lóð sunnan Strandgötu en
vestan Glerái-götu, undir félags
heimili, samkomu- og verzl-
unarhús. Þar sem ekki hefur
verið gengið frá skipulagi á
þessu svæði lá fyrir jafnframt
umsókninni tillaga frá bæjar-
ráði um að taka ekki afstöðu til
beiðninnar fyrr en frá skipu-
laginu hefði verið gengið, og að
því yrði unnið. En í gær skeði
það, að Bragi Sigurjónsson og
Jón Sólnes vildu afdráttarlaust
neita beiðninni og þótt Bragi
hefði ekki gert ágreining í bæj-
arráði (en það hafði Jón Sól-
(Framhald á bls. 4)
„Lengi má bæta
pinklum á Skjónu“
LEIGA PÓSTHÓLFA hér í bæ
hefur hækkað um 200%, og er
það eins konar árétting á öðrum
kveðjum pósts og síma á síð-
ustu og verstu „viðreisnartím-
um“ og alveg í óbreyttum
anda.
„Lengi má bæta pinklum á
Skjónu“, varð manni einum að
orði við þessa hækkun. □
I Margir í bröggum
\ BORGARSTJÓRINN í Rvik
1 gaf þær upplýsingar á borg-
= 'arstjórnarfundi fyrir síðustu
i helgi, að 188 herskálaíbúðir
; væru enn í notkun með 776
E íbúum, þar af 376 börnum
i innan 16 ára.
| Þetta eru athyglisverðar
i tölm- mn ástand húsnæðis-
I mála í höfuðborginni — 17
i árum eftir stríðslok. — Og
j þær eru ekki nein skrautfjöð-
i ur í hatti flialdsmeirihlutans í
i borgarstjóminni. □
7i 11»111111111111111111111111111111111 • 1111111111111111111111111111