Dagur - 21.02.1962, Blaðsíða 1

Dagur - 21.02.1962, Blaðsíða 1
i \i í.acs FramsóknÁrmanna H 15'rjóui: Fri íVí.í Davíh.ssox &líll smi':\ i H U \ARsTK 1 i 1 90 SlMi 1 101) , Sl I.MM.l- OG i-Rl.M( N ANNAST í’liKNTVTRK OlMl.S B.1<")kn.ssóná« ii.i. Akuiœvri s.............................. XLV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 21. febrúar 1962 — 8. tbl. AlT.i.VMNCAsTJÓRl: ÍÓN Sam- !’K1„sso\ . Aki.AM.Í'RINN JCöSTAR ur. 100-00 . G ,'Ai.ií»A<a t.r !. n.TÍ Bl.AÖIÐ UMIII; ;Vr Á Mœvnumöt,- VVi OO Á ilAUtlAubÖGUM : V: (•TOAR ÁSt.T.DA TYKIR Tli. Stjórnahi geimfarinu Iprjú myrkurskeid ferharinnar JOHN H. GLENN, ofursta var í gær skotið í geimfari á braut umhverfis jörðu úr Atlasflug- skeyti frá Canaveral-höfða í Bandaríkjunum. Klukkan var aftan mig er rakettan úr flug- skeytinu. Þá lýsir hann dásam- legu útsýni og öðru, er hann varð áskynja. Hver hringferð tók um 88 mín. Fjarlægð frá John H. Glenn. Hann var sæmdur herilinfðingjanafnbót í gær. þá 13.47 eftir íslenzkum tíma. Fáum mínútum síðar var liann kominn á rétta braut. En á fyrri hluta leiðarinnar upp frá jörðu var loftþrýstingurinn 7% sinniun meiri en aðdráttarafl jarðar. En hlutfallið snerist brátt við, er hann komst út í al gert þyngdarleysi. Ekkert tæki bilaði í geimfar- inu og ofurstanum leið vel. í fyrstu hringferðinni sagði hann, þá staddur yfir Kanaríeyjm: Ég er mjög vel upplagður. Klefinn (geimfarið) snýst dálítið og nokkur hundruð metrum fyrir | Þorkell V. Ottesen, | vélsetjari hjá Prentverki Odds Björnssonar h.f., Akureyri, varð bráðkvaddur á mánudagsmorg- un, er hann var á leið í vinnu sína. — Dagur niun minnast hans síðar. □ jörðu var mest 256 km, en minnst 160 km. Útvarpað var bæði og sjón- varpað frá geimferðinni urri öll Bandaríkin og einnig í Moskvu- útvarpi á rússnesku og ensku. Svo vel tókst útvarpið, að ís- lenzkir hlustendur gátu heyrt hjartaslög geymfarans í gegn- um Keflavíkurútvarp. John H. Glenn gaf skýrslu á hálftíma fresti. Hann stjórnaði sjálfur geimfarinu yfir 3 myrk- urskeið hinna þriggja hring- ferða frá vestri til austurs. Glenn ofursti er þrautþjálf- aður flugmaður írá síðustu heimsstyrjöld. Tók hann þátt í 50 loftárásum á Japan og 100 í Kóreu. Þá skaut hann niður 3 MIG orrustuþotur síðustu 9 dagana í þeim hildarleik og var sæmdur a. m. k. 23 verðlaun- um fyrir liugrekki og hetju- skap. Glenn er 40 ára, kvæntur og á tvö börn. SÍÐUSTU FRÉTTIR: Klukkan 6.43 lenti John H. Glenn geimfari sínu undan Flor idaströnd. Hafði þá allt geng- ið samkvæmt áætlun að öðru leyti en því, að einhverrar bil- unar gætti í sambandi við sjálf- virk stýristæki þegar hálfnuð var önnur hringferðin. Tók geimfarinn stjórnina al- gerlega í sínar hendur og liafði hana á leiðarenda. Um kl. 7 í gærkveldi bárust loks þær fréttir og allt benti til að manni og geimfari yrði far- sællega bjargað, annað hvort manninum með þyrlu eða manni og geimfari um borð í eitthvert skip sem nærstatt var. ALLRA SÍÐUSTU FRÉTTIR: Glenn ofursti heill á húfi. Geysilegur fögnuður í Banda- ríkjunum. □ r Attatíu ára afmæli samvinnu- hreyfingarinnar á Islandi Og sextíu ára afmæli Sambands íslenzkra samvinnufélaga var í gær HIÍ7N 20. febrúar árið 1882 var fyrsta kaupfélag landsins stofn- að að Þverá í Laxárdal í Suður Þingeyjarsýslu. Það var Kaup- félag Þingeyinga, sem enn starf ar og hefur á margan hátt verið forystufélag hinn.a mörgu kaup- félaga landsins, sem síðar voru stofnuð. Bændur þeir, sem félagið stofnuðu, voru efnalitlir menn en margir þeirra víðlesnir og menntaðir. Og lífið hafði kennt þeim í hörðum skóla, að í strjál býli var ekki hægt að lifa ón sámvinnu. Fjárleitir á víðáttu- miklum afréttum og erfiðar að- dráttarferðir á vetrum voru ó- framkvæmanlegar án sam- vinnu, svo dæmi séu nefnd. En hinn nýi félagsskapur beindist að stórum verkefnum. Bændur undu ekki lengur ein- okun í vérzlun og viðskiptum. Félag þeirra var stofnað sem sjálfsvörn á þessu sviði. Fram- undan var ein harðasta barátta, sem um getur, er lauk með full um sigri bændanna og liðsveitir samvinnumanna um land allt, unnu, hvern stórsigurinn af öðr um og leystu klafa verzlunar- kúgunar af þjóðinni. Tuttugu árum eftir stofnun fyrsta kaupfélagsins í baðstof- unni á Þverá, var Samband ísl. samvinnufélaga stofnað að Yztafelli í Köldukinn. Samband ið á því sama afmælisdag, og varð sextugt í gær. í landinu eru nú 56 kaupfé- lög, og innan þeirra yfir 30 þús- und félagar. Verzlun er ennþá aðalstarfsgrein kaupfélaganna. En á síðari árum hafa samvinnu menn komið á fót yfirgripsmikl um iðnaði, siglingum á öflugum og ört vaxandi flota góðra skipa og hlutur þeirra í sjávarútvegi vex stöðugt, bæði í útgerðinni sjálfri og fiskverkun. Kaupfélög landsins og Sam- bandið eru mestu félagsmála- hreyfingar, sem nokkru sinni hafa borizt til þessa lands. Þau flytja á skipum sínum meira en þriðjung allrar vöru, sem til landsins kemur, framleiða fyrir tugi milljóna af viðurkenndri iðnvöru úr íslenzku hráefni og þau annast mikinn hluta allrai' smásöluvei'zl. í landinu. Sam- vinnuhugsjónin, sem Þingeying ar færðu í félagslegt form, fyrst ir manna á íslandi, í baráttunni við harðdræga verzlunarstétt, hefur reynzt öðrum félagsmála- hreyfingum máttugri í baráttu þjóðarinnar fyrir betri lífskjör- um. Hið félagslega jafnrétti (andstætt hlutafélögum) sann virði vörunnar, hin opinberu reikningsskil og stuðningur við hvers konar menningar- og framfaramál er öllum ljóst, og einnig það, að eignir kaupfélag- anna verða aldrei fluttar brott (Framhald á bls. 7) Hallgríniur Kristinsson, hinn eyfirzki samvinnufrömuður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.